Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1997, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1997, Blaðsíða 8
s sælkerinn LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997 DV Brauðbaksturinn sparar peninga í blankheitum eftir hátíðirnar: Gróft brauð og bollur með papriku og tómötum Brauðbakstur heima fyrir verður sífellt algengari enda felst í honum geysimikill sparnaður fyrir heimilin. Margir eiga svokallaðar brauðvélar sem eru óspart notaðar. Enn fleiri þurfa ekki á slíku töfra- tæki að halda heldur hnoða bara og baka sitt brauð upp á gamla mát- ann. Hvemig svo sem þessu háttar þá stendur heimabakað brauð alltaf fyrir sinu og meira en það. Hér koma uppskriftir að ljúffengu brauði og bollum sem gott getur verið að grípa til í blankheitunum eftir há- tíðimar. Afmæliskaka fyrir börnin Allir krakkar hiakkar til að eiga afmæli og nú geta svo til öll landsins böm farið að skipuleggja afmælishaldið því að öll eiga þau afmæli á þessu ári. Hér kemur uppskrift að góðri og einfaldri súkkulaðiköku í afmælis- boð krakkanna. 4 egg 4 dl sykur 100 g smjörlíki 5 dl hveiti 3 tsk. lyftiduft 4 tsk. vanillusykur 6 msk. eða 1 dl kakó 2 msk. neskaffi Bollur -15-18 stk. 200 g súkkulaði 2 msk. neskaffi hrært út í örlitlu vatni 150 g smjörlíki 1 egg l'/2 dl flórsykur Egg og sykur em stif- þeytt. Bráðið smjörlíki er hellt saman við. Afgang- inum af efnunum er hrært saman við. Deiginu er hellt í tvö vel smurð form og bakað við 180 gráður í 30-40 mín. neðst í ofni. Súkkulaðið er brætt í smjörlíki yfir litlum hita. Kælt áður en kaffi og eggi er bætt út í. Flórsykri er i bætt út í og glassúrinn hrærður vel og rösklega. Ef hann virðist þunnur þá er hann kældur betur. Kreminu er svo smurt á kökuna og hún skreytt eins og myndin sýnir. -GHS 25 g ger 6 dl vatn 150 g heilhveiti y2 msk. salt 800 g hveiti 1 rauð paprika 15 þurrkaðir tómatar Gerið er hrært saman við volgt vatn. Heil- hveitið, salt og hveiti er bætt út í og hnoðað vel. Paprikuteningum er bætt út í og tómatbitum og hnoð- að. Hugsanlega þarf að bæta hveiti út í. Deigið er látið standa á góðum stað í 1 /2 klst. meðan það hefast. Deigið er slegið nið- ur og skipt í 15-18 stk. Búnar eru til bollur og þær eru settar á bökunar- pappír. Bollumar eru látnar hefast í 30 mín. undir klút. Pensl- aðar, til dæmis með mjólk. Ofninn er hit- aður í 200 gráður og bökunarplatan sett í hann miðjan. Bollurn- ar em bakaðar í 30 mín. Þá er slökkt á ofninum og bollumar látnar standa inni í honum í 20 mín. Bollurnar eru kæld- ar á rist. Ekki er gott að frysta þessar boll- Gróft brauð 50 g ger 75 g smjör eða smjörlíki ý2 dl dökkt síróp 1 flaska léttöl og 5 dl vatn iy2 tsk. salt 1 msk. kóríander eða anis 1 dl rúsínur (má sleppa) 300 g rúgmjöl 700 g hveiti Gerið er mulið í skálina. Smjör- ið er brætt og öl og vatni hellt i. Hitað upp að 37 gráðum og hellt yfir gerið og hrært. Afganginum bætt saman við og hveiti hnoðað saman við þar til deigið er svo til fast við skálina. Látið hefast í 30-40 mín. undir plasti. Deigið er hnoöað á borðinu og formuð tvö brauð á bökunarpappír. Gaflli er stungiö í deigið og látið hef- ast í 30 min. Bakað við 225 gráður neðst í ofni í 25-30 mín. -GHS Glassúr matgæðingur vikunnar Ásta Júlía Jónsdóttir og Jón H. Sigurmundsson: Tómatsíld og rúgbrauð Hjónin Ásta Júlía Jónsdóttir og Jón H. Sigurmundsson i Þorláks- höfn em matgæðingar vikunnar að þessu sinni. Þau kunna vel að meta síldarrétti og tilheyrandi. Þau gefa hér uppskrift að góðum síldarrétti og auðvitað er ómissandi að hafa rúgbrauð með. Tómatsíld 16 síldarflök cl/nrin í tómatsósa, ca 430 g 1 púrtvínsglas matarolía, tæplega 1 dl 4-5 negulnaglar 3- 4 asíur 1 soðin gulrót 2 stórar sneiðar rauðrófur 4- 5 laukar Sykri er bætt í edikið þar til það er orðið á þykkt við . matarolíu. jáTómatsósu, negulnögl- um og mat- arolíu er bætt út í. Gulrót, así- ar og rauðrófur er sexað smátt og bætt út í. Að síðustu er síldin sett í. Látið standa við stofuhita í að minnsta kosti einn sólarhring og hrært reglulega í. Geymist í um það bil þrjár vikur í kæliskáp. Rúgbrauð 6 bollar rúgmjöl 3 bollar heilhveiti 1 bolli púðursykur 6 bollar súrmjólk 500 g síróp 5 tsk. natrón 3 tsk. salt Allt þar til Lauk er hrært saman í hrærivél efnin hafa blandast vel. Sett í fjórar mjólkurfernur, passa að fylla þær aðeins til hálfs og hefta fyrir. Fernurnar eru settar í bakaraofh og látnar standa upp á endann. Bakað í 7 klukkustundir við 100 gráðu hita og látið kólna í ofninum. Rúgbrauðið geymist vel í frosti. Ásta Júlía og Jón skora á hjónin Karl Sigmar Karlsson og Guðrúnu Sigurðardóttur á Reyðarfirði. -GHS Hjónin Ásta Júlía Jónsdóttir og Jón H. Sigurmundsson í Þorlákshöfn gefa uppskrift að tómatsíld og rúgbrauði. DV-mynd Sigrún Lovísa A matborðið: Grænmetis- og fiskréttir Grænmetis- og flskréttir komast sem betur fer aftur á borð lands- manna eftir kjöthátið undanfarinna I vikna enda eru sjálfsagt margir Íorðnir þreyttir á stórsteikum og sætindum myndarlegra húsmæðra og -feðra. Hér koma nokkrar hug- myndir að léttum og sniðugum rétt- um til að hafa á borðum fyrstu vik- ur ársins. IMarinerað grænmeti - fyrir 4-6 250 g sellerí 200 g gulrætur 150 g brokkolí 250 g tómatar salt og pipar Marinering y21 hvítvín y2 dl olía 3 lárberjablöð 5 kardimommufræ 4 anisfræ Kryddjurtir púrrulaukur piparmynta Skerið niður brokkolí og afgang- inn af grænmetinu í strimla. Helm- ingið tómata og takið kjamann út. Skerið tómatana í þunna strimla. Efnin í maríneringuna er blandað saman í potti og soðið. Leginum er svo hellt yfir grænmetið og hrært í. Saltað og piprað. Grænmetið er lát- ið standa í ísskáp i 1 klst. Krydd- jurtunum, púrrulauk og pipar- myntu, er bætt út í. Grænmetinu er skipt á diska og gott brauð borið fram með. Pasta með kræklingi - fyrir fjóra 1 kg kræklingur 100 g laukur timjan y2 dl hvítvín Í1 dl vatn salt og pipar !150 g fenníkel 2 msk. smjör 1 msk. hveiti V2 msk. karrí 2'/2 dl rjómi 300 g pasta persilja til skreytingar Krækling- urinn er hreinsaður vel undir ; köldu vatni, látinn í pott og niður- skomum lauk, timj- an, hvítvíni I og vatni hellt yfir. Saltað og piprað og lokið sett á pottinn. Kræklingurinn er soðinn í 5-7 mín. eða þar til hann hefur opnað sig. Takið frá þá sem ekki hafa gert það. Hreinsið kjötið út úr þeim ; opnu. Súpan er sigtuð og soðin nið- ur í 2 dl. Grænmetið er skorið smátt og steikt í smjöri í nokkrar mín. og hveiti og karríi bætt út í. Rjóma er bætt út í og sósan er soðin í 5 mín. Kræklingnum er hellt út í, saltað og piprað. Pastað er soðið eftir leiðbeining- um á pakka. -GHS 1 ,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.