Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1997, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997
Istuttar fréttir
Ráöist á flóttamenn
Hópur burmneskra hermanna
réðst á tvennar flóttamannabúðir
í Tailandi í gær og drap að
minnsta kosti tíu flóttamenn af
ættbálki karena og særði fimm-
tíu.
Mubarak ver áveitu
Hosni Mubarak, forseti Eg-
I —yptalands. vísaði
í gær á bug gagn-
S rýni á dirfskufull
IÍS ^ m áform sin um að
íf ' Tj veita vatni úr
j£~ juá Nilarfljóti á um
IÉ. 'WM 200 þúsund hekt-
ara lands í eyðimörkinni.
ÍSpiegel fimmtugur
Staifsmenn þýska fréttatíma-
ritsins Spiegel halda upp á fimm-
tíu ára afmæli þess í dag og á
þeim tímamótum hafa birst ásak-
I anir um að gamlir nasistar hafi
| verið hátt settir á ritstjórninni.
Bannað aö reykja
Reykingar á almannafæri
: verða með öllu bannaðar í Nýju-
| Delhi, höfuðborg Indlands, frá 26.
janúar næstkomandi.
Clinton frestar enn
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
frestaði enn í gær gildistöku laga
sem heimila bandarískum
þegnum að lögsækja erlend
> fyrirtæki sem eiga í viðskiptum
| við Kúbu.
Ekki í forsetann
írski stjórnmálamaðurinn
I John Hume, einn helsti smiður
friðarferlisins á Norður-írlandi,
| visaði í gær á bug fréttum um að
h hann ætlaði i framboð til embætt-
I is forseta írlands.
Borgarstjórn á ný
| Flokkur forseta Gambíu sigr-
% aði í kosningum þar á fimmtudag
og hefur borgaraleg stjórn tekið
I við völdum á ný.
Oryggi ábótavant
Öryggi á mörgum flugvöllum
heimsins er ábótavant og á degi
hverjum komast átta þúsund
ferðatöskur um borð í millilanda-
flugvélar þótt eigandi þeirra ferð-
ist ekki með, segir í bresku neyt-
endablaði.
Nýja skútu handa Betu
Bresk stjórnvöld hafa verið
hvött til að fallast
á nýja skútu
handa Elísabetu
drottningu í stað
hinnar virðulegu
Britanniu sem
senn verður lagt
eftir 44 ára dygga þjónustu við
land og lýð.
Bráöiö súkkulaöi
Mörg tonn af belgísku
súkkulaöi bráðnuðu þegar eldur
kom upp í bílnum sem flutti nam-
mið. Reuter
Olíuverð hækkar:
Kuldar í Evrópu
meginástæðan
Hráolíuverð hækkaði talsvert á
fyrsta markaðsdegi eftir áramótin
en meginástæðan er miklir kuldar í
Evrópu. Tunnan hækkaði um 43
sent og fór í 24,24 Bandaríkjadollara
á fyrsta viðskiptadegi nýs árs, sem
er nærri hæsta verði undanfarinna
sex ára. Talið er að áframhaldandi
kuldar og litlar birgðir í Evrópu
muni valda því að olíuverð haldi
áfram að hækka.
Flutningar á gasolíu frá Rotter-
dam eftir Rínarfljóti til iðnaðarhér-
aða Þýskalands gengu erfiðlega í
gær og fyrradag vegna ísalaga á
fljótinu. Gasolía er notuð bæði á far-
aratæki og til húsahitunar. Verð á
gasolíu hefur hækkað mjög og á ein-
um mánuði hefur það stigið um 6%.
Búist er við enn frekari hækkunum
þar sem Kínverjar leita nú hófanna
í Evrópu um kaup á um milljón
tonnum af gasolíu. -SÁ
Stjórn Serbíu viöurkennir kosnmgaósigur í Belgrad:
Mótmælaaðgerðum
verður
Stjórnarandstæðingar í Serbíu
lýstu yfir óánægju sinni i gær með
að sósíalistastjórn Slobodans Milos-
evics forseta hefði ekki nema að
hluta til viðurkennt sigur stjórn-
arandstöðunnar i sveitarstjórnar-
kosningunum í nóvember og hétu
því að halda mótmælaaðgerðum sín-
um áfram.
í bréfi sem Milan Milutinovic, ut-
anríkisráðherra Júgóslavíu, sendi
Öryggis- og samvinnustofnun Evr-
ópu (ÖSE), viðurkenndu stjórnvöld
að stjórnarandstæðingar hefðu farið
með sigur af hólmi i níu kjördæmum
í höfuðborginni Belgrad. Milutinovic
haldið
viðurkenndi hins vegar ekki sigur
stjómarandstæðinga í öðrum stórum
borgum og bæjum og sagði að stjórn-
völd þyrftu frekari upplýsingar til að
skýra úrslitin á einstaka stað.
„Lygar, lygar og aftur lygar. Þetta
er dæmigert fyrir Milosevic, að
beita brögðum til að gabba þjóðir
heims. Við höfnum þessu skammar-
lega bréfi sem er fullt af lygum og
undanbrögðum," sagði Vuk Dra-
skovic, einn leiðtoga Zajedno, sam-
fylkingar stjórnarandstæðinga, í
viðtali við Reutersfréttastofuna í
gær. Stjórnarandstæðingar hafa
efnt til fjölmennra mótmæla á
afram
hverjum degi síðan stjórnvöld
ógiltu kosningar í nóvember þar
sem stjórnarandstaðan sigraði í 15
af 18 stærstu bæjum Serbíu, þar á
meðal Belgrad.
Bréf Milutinovics var svar við
skýrslu Felipes Gonzalez, fyrrum
forsætisráðherra Spánar, til ÖSE um
hinar umdeildu kosningar.
Zoran Djindjic, annar leiðtogi
stjórnarandstæðinga, eyddi í gær
ótta manna við að borgarastríð
kynni að brjótast út. Hann sagði að
staða Milosevics forseta væri orðin
svo veik að ekki væri mikil hætta á
alvarlegu ofbeldi. Reuter
Hollendingar gripu til ýmissa ráða til aö undirbúa skautahlaupiö mikla sem fram fer í dag. Hér má sjá heimatilbúinn
snjóplóg hreinsa ísinn í bænum Bartlehiem. Símamynd Reuter
Skautaæði í kuldakastinu í Hollandi:
Tvö hundruð km skautahlaup
milli ellefu borga I hörkugaddi
DV, HoUandi:
LangstærstL iþróttaviðburöur
Hollands, Ellefu borga skauta-
hlaupið í sýslunni Fríslandi, verð-
ur haldið í dag. Ellefu borga
skautanefndin, sem ákveður hvort
hægt verði að keppa, gaf leyfi fyrir
keppninni á fimmtudag, í fyrsta
sinn í tíu ár.
Slökkvilið í borgunum hafa und-
anfarna daga sprautað vatni yfir
þunnan ís og lagt ískubba í vakir
til að flýta fyrir ísmyndun en
þykktin verður að vera 14 til 17
sentímetrar. Keppni þessi var fyrst
haldin árið 1763 en síðan 1909 hefur
bara verið hægt að halda hana 14
sinnum, síðast árið 1986.
Skautahlaup skautahlaupanna,
eins og keppnin er kölluð, er mikO
mannraun og mjög erfið, 200 kiló-
metra löng og tekur 7 til 16 klukku-
stundir að fara. Skilyrðin eru erfið,
15 til 18 stiga frost og 4 til 6 vind-
stig. Um 250 manns mega taka þátt
í sjálfri keppninni en fyrir utan þá
leggja um 20 þúsund manns líka af
stað en langflestir þeirra gefast þó
upp á leiðinni.
Svo mikill áhugi er á þessari
skautakeppni að hún verður sýnd
beint á nokkrum sjónvarpsstöðv-
um frá klukkan hálfsex um morg-
uninn. Um tvö þúsund fréttamenn
úr öllum heimshornum hafa boðað
komu sína og búist er við milljón
áhorfendum með fram skautaleið-
inni.
Hinir miklu kuldar sem ríkt hafa
undanfarið í Evrópu hafa náð að
draga fleiri Hollendinga út úr hús-
um en nokkur góðviðrisdagur að
sumri til. Það ríkir algjört skauta-
æði í Hollandi þessa dagana. -EE
Xlf) Kauphallir og vöruverð erlendisl
DVi
Landnemar yfir-
gefa hæð á
Vesturbakkanum
Landnemar gyðinga féllust á að
yfirgefa hæð eina nærri bænum
| Ramallah á
| Vesturbakkan-
| um sem þeir
hertóku í gær.
Landnemamir
| höfðu flutt
hjólhýsi sín
| upp á hæðina
á sama tíma
| og Dennis Ross, sendimaður
Bandaríkjastjómar, reyndi hvað
;; hann gat að jafna ágreining ísra-
| ela og Palestínumanna um sjálf-
1 stjórnarsamning fyrir borgina
ÍHebron.
Ross hitti bæði Arafat, leiðtoga
Palestinumanna, og Netanyahu,
forsætisráðherra ísraels.
Þing allra þjóð-
arbrota í Bosníu
kemur saman
IFyrsti fúndur nýs þings allra
þjóðarbrota í Bosníu var haldinn
í Sarajevo í gær og þar hétu
! stjórnmálamenn úr röðum
múslíma, Króata og Serba að
vinna að varanlegum friði i land-
inu. Þá samþykktu þingmenn til-
nefningar forsætisnefndar lands-
ins um ráðherra í nýrri stjóm.
Heldur var þröngt um þessa
|j fyrrum óvini þar sem þeir sátu í
litlu herbergi í þjóðarsafhinu í
; Sarajevo og hlustuðu á ræður
L allra þriggja fulltrúa í forsætis-
1 nefhd landsins sem lýtur forustu
múslimans Alijas Izetbegovics.
Izetbegovic óskaði þingmönn-
;■ um velfamaðar 1 starfi og hvatti
I þá til að fara að fullu eftir Dayton
II friðarsamningunum sem geröir
| vom í nóvember 1995 og bundu
■ enda á þriggja og hálfs árs styrj-
aldarátök.
Kuldakastið í
Evropu hefur
kostaö 160 lífið
Að minnsta kosti 160 manns
Ihafa látist í mesta kuldakasti í
Evrópu í allt að þrjátíu ár. Ferða-
menn eru strandaglópar, ár eru
ísilagðar og meira aö segja eitt
líkhús í Rúmeníu er yfirfullt af
líkum.
Dóná er lokuð allri bátaumferð
alla leið frá Þýskalandi um Aust-
urríki til Slóvakiu en enn er hægt
að sigla um Rín frá Rotterdam til
Basel. Hlutar Thamesár í
i Englandi frusu í fyrsta sinn i ára-
Itugi
Á norðanverðu meginlandi
Evrópu og í austurhluta Englands
komst frostið niður í tíu gráður í
gær og gerði kuldinn líkgröfurum
víða lífið leitt.
Mikil röskun varð á lestarsam-
göngum í suðurhluta Frakklands
þar sem ís og snjór komu í veg fyr-
ir að lestir kæmust leiöar sinnar.
Sýrlendingar
kenna ísraelum
enn um tilræði
Ríkisútvarp Assads Sýrlands-
| forseta endumýjaði ásakanir sín-
ar á hendur
1 ísraelsmönn-
um í gær
I vegna
1 sprengjutil-
I ræðis í lang-
I ferðabíl í mið-
; borg
I Damaskus á
Sgamlársdag sem varð níu manns
að bana og særði 44.
I Útvarpið sagði sprenginguna
| tengjast nýlegum árásum á sýr-
| lensk skotmörk í Líbanon og að
| tilgangurinn væri að fá Sýrlend-
inga til að breyta stefiiu sinni í
| friðarviðræðum við ísraela.
ísraelsk stjómvöld fordæmdu
| sprengjutilræðið í gær og vfsuðu
| ásökunum Sýrlendinga, sem fyrst
| komu fram á fimmtudag, algjör-
; legaábug Reuter