Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1997, Síða 11
11
DV LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997
Vel fór á meö þeim Natalie frá Ástralíu og Friörík Þór kvikmyndagerðarmanni þar sem þau hittust í gær niöri
viö Reykjavíkurhöfn. Natalie fannst þaö góöur bónus aö fá aö hitta leikstjóra Cold Fever í íslandsferö sinni.
DV-mynd ÞÖK
KR. 22.995 KR. 17.417 KR. 20.256
Söluaðilar:
Ólafur Gíslason & Co hf Sundaborg 3 Reykjavík Sími 568 4800
E.G. Skrifstofubúnaður Ármúla 20 Reykjavík Sími 533 5900
Bókabúð Keflavíkur Sólvallagata 2 Keflavík Sími 421 1102
Skj alaskápar
26 ára ástralskur barnaskólakennari dvaldi hár á landi um jól og áramót:
Traustir - vandaðir
og á góðu verði!
Sá Cold Fever i Sydney
og ákvað þá íslandsferð
„Þegar kvikmyndir sýna fallegt
og framandi landslag til viðbótar
við góðan söguþráð þá er öruggt að
áhorfendur langar að ferðast til við-
komandi lands. í Ástralíu veit fólk
ekkert um ísland. Ég sá landslagið
og Bláa lónið í kvikmyndinni Cold
Fever og hugsaði um leið:
„Þangað langar mig að fara.“
Síðan eftir að ég kom hingað
finnst mér íbúarnir áhugaverðastir.
íslendingar eru mjög virkt fjöl-
skyldufólk, íbúamir eru mjög vin-
samlegir og ekki er verra að allir
tala ensku.“
Þetta segir Natalie Konakov, 26
ára barnaskólakennari frá Sydney í
Ástralíu, i viðtali við Helgarblað
DV. Hún ákvað í lok nóvember að
koma einsömul og dvelja yfir jól og
áramót á íslandi - vegna þess að
hún sá kvikmynd Friðriks Þórs
Friðrikssonar, Cold Fever, i Sydney,
heimaborg sinni í september.
Hvað kostar að fljúga til
Islands?
Natalie hefur dvalið á gistiheimili
við Strandgötu 21 í Hafharfirði um
hátíðarnar. Þaðan hefur hún m.a.
notið þess að horfa út um gluggann
- útsýnið þaðan, sjórinn, trén og
annað er allt frábrugðið því sem
hún hefur vanist. En hver var að-
dragandinn að ferð hennar hingað
til lands?
„Áður en ég sá íslensku kvik-
myndina vissi ég ekkert um ísland.
Ekkert. Ég hafði bara heyrt nafnið
nefnt - ísland og Grænland voru
hinum megin á hnettinum. Þetta
var það eina sem ég vissi.
Vinur minn spurði mig í septem-
ber hvort ég vildi koma með sér að
sjá kvikmyndina Cold Fever. „Jú,“
sagði ég. Þegar ég var búin að sjá
myndina langaði mig strax að fara
til íslands. Það trúði mér enginn.
En landið bara heillaði mig. í Ástr-
alíu eru hvorki snjór, kuldi né jökl-
ar og mig langaði til að sjá hvernig
lífið gengi fyrir sig á íslandi - á hin-
um enda heimsins. Ég fór að hugsa
málið betur. Vinur minn fór síðan
til útlanda og fjórum vikum áður en
ég lagði af stað hingað fér ég á
ferðaskrifstofu í Sydney og spurði:
„Hvað kostar að fljúga til íslands?“
Mér var sagt að ég yrði að fljúga
fyrst til London. Ég fór síðan heim
og þá tók ég ákvöröun. „Ég ætla að
gera eitthvað öðruvísi," hugsaði ég.
Eftir þetta fór ég og keypti farseðil
til Islands," segir Natalie. Ferð
hennar fram og til baka kostar um
130 þúsund krónur.
Aðalsöguhetjan gaf már
hugrekkið
„Það sem heillaði mig mest í
kvikmyndinni var landslagið - mig
langaði líka að fara til þess að finna
sjálf hvernig það er að upplifa kalda
veðráttu. í myndinni var útlending-
ur, Japani, sem gaf mér hugrekkið
til þess að koma sjálf til íslands.
Mér finnst mikilsvert að fara eitt-
hvað þar sem enginn í kringum
mann hefur nokkurn tímann verið.
Faðir minn var reyndar Rússi og
þangað á ég einhvem tímann eftir
að fara. Mér fannst því ágætt að
fara eitthvað þar sem kalt er til að
undirbúa sig.
Ég var full eftirvæntingar þegar
ég hafði flogið alla leið frá Ástralíu
og kom inn i íslensku flugvélina í
London þann 22. desember. Mig
hafði langað að vera í hinum enda
heimsins á afmælisdaginn minn
sem var daginn eftir. Vélin var
skreytt með jólaskrauti. Þegar við
voram í aöflugi til Keflavíkur
fannst mér gaman að berja landið
augum. í kringum flugvöllinn virt-
ist vera myrkvuð auðn.“
„Mér finnst allt vera öðruvisi hér
en heima í Ástralíu - trén, landslag-
ið og meira að segja sjórinn. Mér
fannst líka stórkostlegt að koma til
borgar þaðan sem maður sér fjöll
með snjókollum," segir Natalie.
- Finnst þér áhugavert núna að
„fínna kuldann“?
„Já. En það hefur aðeins verið
snjór í einn dag frá þvi að ég kom.
Þess vegna er ég dálítið vonsvikin.
Ég hélt líka að það yrði kaldara en
raun ber vitni. En ég er samt
ánægð.
Flestir íslendingar sem ég hef
rætt við hafa ekki séð Cold Fever.
Ég hélt að allir hefðu séð hana. Þess
vegna fannst mér ég dálítið kjánaleg
þegar ég fór að færa í tal hvers
vegna ég kom til íslands. En mynd-
in er afbragðsgóð. Ég er líka búin að
heyra um aðra mynd Friðriks Þórs,
Djöflaeyjuna - ég verð að sjá hana
líka. Mér finnst gott að heyra að að-
sókn á þá mynd var meiri á síðasta
ári en á amerísku kvikmyndimar.
Það er mjög gott.“ Natalie segir að
sér fínnist prýðilegt að vera alein á
ferðalagi. Ein með sjálfri sér:
„Ég tók strætó upp í Grafarvog í
vikunni og gekk síðan niður að
sjónum. Mér fannst það mjög gam-
an.“
Natalie fór með félaga sínum af
farfuglaheimilinu til Reykjavíkur á
gamlárskvöld. Um miðnættið stóð
hún uppi á Skólavörðuhæð fyrir
framan Hallgrímskirkju þegar hin
íslenska flugeldaskothíð stóð sem
hæst. „Mér finnst góður siður að
fagna nýju ári með því að skjóta
upp flugeldum. Heima í Sydney er
líka mikið skotið upp af flugeldum
um áramót," segir Natalie.
Hún er nú á fórum til Skotlands
til að hitta vin en þaðan fer hún til
Frakklands. Skólinn hjá Natalie og
nemendum hennar hefst ekki fyrr
en í byrjun febrúar. En þar er lífið
líka allt öðravísi er hér á landi. Þar
stendur skólinn yfir í 9-12 vikur í
einu en frí á milli eru frá tveimur
upp í sex vikur.
-Ótt
Friðrik Þór:
Þjóðverjar
komu
líka vegna
Barna
náttúrunnar
J: „Ég hef oft hitt fólk, bæði
Þjóðverja og Ameríkana, til
j dæmis eftir Böm náttúrunnar
og Bíódaga, sem hafa komið til
íslands eftir að hafa séð kvik-
myndimar. Árið 1993 komu sex
þúsund Þjóðverjar til íslands
| eiginlega út úr blámanum. Eng-
j inn hafði átt von á þeim. Ég tel
| að skýringin sé sú að á anriað
; hundrað þúsund Þjóðverjar sáu
Böm náttúrannar í kvik-
i myndahúsum í Þýskalandi.
| Þetta kemur mér því ekki á
j óvart. Harðasta fólkið hefúr
sjálft hringt í mig og látið mig
; vita,“ sagði Friðrik Þór Frið-
riksson kvikmyndagerðarmað-
ur um komu hinnar áströlsku
s; Natalie sem ákvað að koma til
íslands eftir að hafa séð mynd
hans Cold Fever.
Friðrik Þór sagði að gaman
hefði verið að hitta Natalie í
j- gær. Sú ástralska sagði hins
} vegar um fund hennar með
| Friðrik Þór: „Guð minn góöur,
| ég trúi því varla að vera komin
J hingað til íslands. Og nú er ég
líka búin að hitta manninn sem
i: gerði Cold Fever.“
-Ótt
••»