Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1997, Síða 12
12
LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997 JL#"V
iðsljós
Laganeminn og dansarinn Lauri Thompson:
Flýgur 1000 km í og úr skóla
daglega
Laganeminn Lauri Thompson
lætur 1000 kilómetra sér ekki fyrir
brjósti brenna þegar spumingin er
um það að sækja vinnu og skóla og
ná langt á báðum sviðum. Á hverj-
um degi flýgur Lauri yfir 500 kíló-
metra vegalengd til San Diego til að
fara á lagafyrirlestra i háskólanum
þar og aftur til baka til Las Vegas
þar sem hún kemur fram á skraut-
sýningu tvisvar á kvöldi. Þannig
tekst Lauri að ná endum saman og
Laganeminn við vinnu sína í háskólanum áður en hún verður að þjóta upp í flugvélina aftur.
vellinum, og nær
þannig í tíma klukk-
an níu. Eftir skóla-
daginn flýgur hún til
baka klukkan hálf-
fimm síðdegis og
sest inn i húnings-
herbergið sitt til að
læra áður en sýning-
in hefst. Lauri kem-
ur fram tvisvar á kvöldi en hún not-
ar hverja mínútu sem gefst til að
læra.
Þegar Lauri loks leggur höfuð á
koddann er komið fram yfir mið-
nætti en hún lætur það ekki á sig fá.
„Það er ekkert vont. Mér tekst að
sofa fram eftir um helgar,“ segir
hún.
Lauri sérhæfir sig í lögum um
skemmtanaiðnaðinn til að hafa eitt-
hvað að hverfa að þegar dögum
hennar í dansinum lýkur. Hún út-
skrifast úr laganáminu árið 1998.
Hún er nú 36 ára gömul og hefur
verið gift í fjögur ár. En hvað skyldi
hún ætla að gera þegar náminu lýk-
ur? „Mig langar til að eignast höm,“
segir þessi hávaxna dansmær og
laganemi.
etlend bóksiá
Metsölukiljur
• ••••••••«•« « « •
Bretland
Skáldsögur:
1. Dlck Francls:
Come to Grief.
2. John Grlsham:
The Runaway Jury.
3. Rob Grant:
Backwards.
4. Danlelle Steel:
Flve Days In Parls.
5. Terry Pratchett:
Maskerade.
6. Wllbur Smlth:
The Seventh Scroll.
7. Catherlne Cookson:
The Obsesslon.
8. Nlcholas Evans:
The Horse Whlsperer.
9. Nlck Hornby:
Hlgh Hdellty.
10. Cllve Cussler:
Shockwave.
Rit almenns eölis:
1. Blll Bryson:
Notes from a Small Island.
2. Andy McNab:
Immedlate Actlon.
3. Carl Glles:
Giles 50th.
4. Gary Larson:
Last Chapter and Worse.
5. Prlvate Eye:
Best of Prlvate Eye Annual.
6. Davld Wlld:
Frlends: The Book.
7. B. Watterson:
There’s Treasure Everywhere.
8. S. Nye & P. Dornan:
A-Z of Bahavlng Badly.
9. S. Coogan & H. Normal:
The Paul and Pauline Calf Book.
10. Fergal Keane:
Letter to Danlel.
Innbundnar skáldsögur:
1. Terry Pratchett:
Hogfather.
2. Maeve Blnchy:
Evenlng Class.
3. Dlck Francls:
To the Hilt.
4. James Herbert:
'48.
5. Tom Clancy:
Executlve Orders.
Innbundln rit almenns eðlls:
1. R. Harrls, M. Lelgh & M. Leplne:
True Anlmal Tales.
2. Damon Hlll:
My Champlonshlp Year.
3. Vlz Comlc:
Vlz Volume 11: The Turtle’s Head.
4. Jack Charlton:
Autoblography.
5. Kenny Dalgllsh:
Dalgllsh: My Autoblography.
(Byggt A The Sunday Tlmes)
Stjarnfræðingurinn sem
samdi þrjátíu bækur
Stjamfræðingurinn og rit-
höfundurinn Carl Sagan lét
undan síga fyrir krabbamein-
inu rétt fyrir jólin, aðeins 62
ára að aldri. Hann var víð-
frægur fyrir bækur sínar og
sjónvarpsþætti mn gátur
himingeimsins og hlaut m.a.
hin eftirsóttu bandarísku
Pulitzerverðlaun fyrir eitt
rita sinna.
Sagan var snillingur í að
útskýra flókin fyrirbrigði al-
heimsins á einfaldan máta
fyrir alþýðu manna - jafnt í
sjónvarpi sem í rituðu máli.
Um leið var hann harður
talsmaður umhverfisvemdar
og baráttumaður gegn kjam-
orkuvá.
Sonur innflytjanda
Carl Sagan fæddist í New
York borg 9. nóvember árið
1934, sonur rússnesks inn-
flytjanda, sem var klæðskeri,
og bandarískrar konu. Hann
fékk á unglingsárum mikinn
áhuga á himingeimnum, reyndist
hinn ágætasti námsmaður og lauk
háskólaprófi í Chicago á ámnum
1954 og 1955. Hann hlaut styrk til
frekari rannsókna í stjameðlis-
fræði og vakti fyrst athygli árið
1956 þegar hann skýrði frá því á ár-
legri vísindaráðstefnu að hann
hefði afsannað þáverandi kenning-
ar um gróður væri á yfirhorði reiki-
stjömunnar Mars.
Árið 1960 varði hann doktorsrit-
gerð sína, Physical Studies of Pla-
nets, og hélt síðan áfram ýmsum
rannsóknum við nokkra háskóla og
skrifaði um leið fjöldann allan af
tímaritsgreinum. Fljótlega varð
hann líka ráögjafi bandarísku geim-
ferðastofnunarinnar og réð m.a. út-
Carl Sagan lést aðeins 62 ára að aldri.
(Jmsjón
Elías Snæland Jónsson
liti skjaldar sem verið hefur um
áratugaskeið á ferð um geiminn í
Pioneer geimfarinu bandaríska - en
skjöldurinn ber kveðju frá jarðar-
búum til umheimsins.
500 milljónir áhorfenda
Carl Sagan varð heimsfrægur
með sýningu sjónvarpsmynda-
flokksins Cosmos. Þar lýsti hann í
13 þáttum sögu alheimsins síðustu
15 milljarða ára - allt frá stóra
hvelli til nútímans - á svo
áhugaverðan og ljósan hátt
að einstaka athygli vakti.
Þættimir voru fyrst sýndir
árið 1980 og er talið að um
500 milljónir manna hafi
fylgst með þeim víða um ver-
öldina. Sagan samdi einnig
bók um sama efni ásamt
konu sinni.
Hann var óþreytandi að
skrifa um áhugamál sín. Eft-
ir hann liggja 30 bækur af
ýmsu tagi. Þar á meðal eru
The Dragons of Eden:
Speculations on the
Evolution of Human Intellig-
ence, sem fékk bókmennta-
verðlavm Pulitzers árið 1978,
Broca’s Brain, sem fiallar um
þróun mannsheilans, og
Shadows of Forgotten
Ancestors, sem er rit um þró-
im lífs á jörðinni. Síðasta bók
hans kom út árið 1995, nefii-
ist Demon Haunted World og
er gagnrýni á gervivísindi
alls konar.
Hugsanlegt samband jarðarbúa
við verur á öðrum hnöttum var
mikið áhugamál Sagans alla tíð.
Hann var forvígismaður ítarlegra
tilrauna til að hlusta eftir hugsan-
legum útvarpssendingum frá menn-
ingarþjóðfélögum úti 1 geimnum.
Eina skáldsagan sem hann samdi,
Contact frá árinu 1985, fiallar
einnig um tilraunir manna til að
komast í samband við geimverur.
Carl Sagan tókst með bókum sín-
um og sjónvarpsþáttum að gefa
milljónum manna um allan heim til
kynna þá æsilegu spennu og eggjun
sem fylgir vísindcdegum uppgötv-
unum, svo vitnað sé til oröa forseta
Comell háskólans, en Sagan starf-
aði þar í tæplega þrjá áratugi.
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Michael Ondaatje:
The English Patlent.
2. Nlcholas Evans:
The Horse Whlsperer.
3. Robert Ludlum:
The Cry of the Halldon.
4. James Patterson:
Hlde and Seek.
5. Cllve Cussler:
Shock Wave.
6. Amy Tan:
The Hundred Secret Senses.
| 7. Tonl Morrlson:
Song of Solomon.
8. Johanna Llndsey:
Love Me Forever.
9. Mary Higglns Clark:
Sllent Nlght.
10. Jane Hamilton:
The Book of Ruth.
11. David Guterson:
Snow Falllng on Cedars.
12. Mlchael Crlchton:
The Lost World.
13. Dean Koontz:
Intenslty.
14. John Sandford:
The Fool’s Run.
| 15. Davld Baldaccl:
Absolute Power.
Rlt almenns eölls:
1. Jonathan Harr:
A Clvll Actlon.
2. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers.
3. B. Gates, Myhrvold & Rlnearson:
The Road Ahead.
4. Dava Sobel:
Longitude.
5. Mary Plpher:
Revlvlng Ophella.
6. Thomas Cahill:
How the Irlsh Saved Clvlllzatlon.
7. Barbara Klngsolver:
Hlgh Tide in Tucson.
8. MTV/Melcher Medla:
The Real World Diarles.
9. Al Franken:
Rush Llmbaugh Is a Blg Fat Idlot.
10. Mary Karr:
The Liar’s Club.
11. Howard Stem:
Miss Amerlca.
12. Betty J. Eadle & Curtls Taylor:
Embraced by the Llght.
13. Jonathan Kozol:
Amazlng Grace.
14. Davld Brlnkley:
Davld Brinkley.
15. Tom Clancy:
Marlne.
(Byggt á New York Tfmes Book Revlew)
8 '