Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1997, Síða 24
44 Óihglingar
LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997
Hópur ungmenna berst fyrir viðhorfsbreytingu gegn ofbeldi:
Eir Pétursdóttir er í hópi ungmenna sem berjast fyrir viöhorfsbreytingu gegn
ofbeldi. Hún segir ofbeldi e.t.v. ekki hafa aukist heldur séu áverkarnir orön-
ir mun alvarlegri og hafi alvarlegri afleiöingar. DV-mynd Hilmar
Tískusýning
í Skjálftaskjóli
DV, Hveragerði:
Krakkar í grunnskólanum í
Hveragerði héldu á dögunum tísku-
sýningu og jólaball á vegum skólans
og félagsmiðstöðvarinnar Skjálfta-
skjóls. Verslunin Mótor í Reykjavík
lánaði föt til sýningarinnar.
Sautján krakkar úr 8.-10. bekk
tóku þátt í sýningunni og æfðu þau
næstum hvem dag í tvær vikur fyr-
ir sýningu.
Tvær stúlkur úr 9. bekk, Stein-
unn Bárðardóttir og Eva Harðar-
dóttir, stjómuðu og skipulögðu sýn-
inguna auk þess að taka þátt í
henni. Jólaballið sóttu 100 krakkar,
þar af 21 úr félagsmiðstöðinni i Þor-
lákshöfn, en þeim var sérstaklega
boðið á ballið.
Hljómsveitin Riff Reddhedd hélt
uppi stuði fram á nótt. -SL
Krakkar úr grunnskólanum í Hverageröi héldu nýlega tískusýningu.
DV-mynd Arnaldur
„Okkar hugmyndafræði byggist upp á því að sem
flestir hafi það að markmiði að taka afstöðu gegn ofbeldi
og forðist að hvetja til ofbeldis. Við viljum þannig vekja
fólk til umhugsunar um það ofbeldi sem nú viðgengst í
þjóðfélaginu og koma þessari viðhorfsbreytingu á hjá
sem flestum einstaklingum innan þess,“ sagði Eir Pét-
ursdóttir, 21 árs, sem starfar með hópi ungmenna í Hinu
húsinu að viðhorfsbreytingum gegn ofbeldi. Hópurinn
vinnur nú að samnorrænu verkefni um ofbeldi í sam-
starfi við samtökin BarnaheUl. Sú vinna felst aðallega í
því að safna upplýsingum, tölum og rannsóknum en þau
hafa einnig haldið fyrirlestra í skólum og þannig reynt
að leggja sitt af mörkum.
„í fyrirlestrunum fjöllum við mest um götuofbeldi,
heimilisofbeldi og ofbeldi á bömum en oft helst þetta
eitthvað i hendur. Viö reynum að sýna hver þróunin er,
hvert þetta stefnir og hvað samfélagið gerir til að taka á
þessu, þ.e. reynum að kynna þetta fyrir fólki,“ sagði Eir.
Aðspurð sagði hún að hlutfallslega hefði ofbeldi ekki
aukist til muna miðað við íbúatölu. „En áverkamir eru
orðnir mun alvarlegri og fleiri era lengi á spítala eftir
að hafa orðið fyrir ofbeldi. Það er einnig meira um
vopnað ofbeldi og meiri líkur á að manneskjan örkum-
list á einhvem hátt til lífstíðar,“ sagði Eir.
%in hliðin
Bjarni Arason söngvari:
Í'M
Að lifa lífinu
lifandi
Það er heilmikið að gerast hjá
Bjama Arasyni þessa dagana en
auk þess að troða upp hér og þar
er hann að gefa út geisladisk í
samstarfi við Grétar Örvarsson.
„Þetta er ákaflega heilsteypt,
melódísk plata með undirleik
Mezzoforte þar sem margt
gott tónlistaifólk kemur við
sögu. Ég er mjög sáttur við
hana,“ sagði Bjarni. Hann
segir þá Grétar hafa þekkst
frá árinu 1987 þegar þeir
störfuðu saman á Hótel
Sögu. Þegar svo Grétar hafi
falast eftir samstarfi við
hann við útgáfu vandaðrar
plötu hafi hann verið alveg
til í það. Bjarni Ara sýnir
hér á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Bjarni Andrés
Arason.
Fæðingardagur og ár: 13.
júlí 1971.
Maki: Silja Rut Ragnars-
dóttir.
Böm: Thelma Ósk, 1 árs 23.
desember.
Bifreið: Toyota Corolla lift-
back, árg. ’93.
Starf: Tónlistarmaður.
Laun: Ágæt en misjöfn.
Áhugamál: Tónlist og góð-
ar kvikmyndir.
Hefur þú unnið f happ-
drætti eða lottói? Einu
sinni, að mig minnir, ein-
hverja smáupphæð. Ég hef
enga tröllatrú á neinu slíku.
Hvað finnst þér skemmti-
legast að gera? Að syngja
fyrir þakkláta áheyrendur og að
liggja í sófanum heima með tæm-
ar upp í loft og horfa á gott sjón-
varpsefni.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að vakna snemma á morgn-
ana.
hefur séð? Engin spuming, það er
Thelma Ósk, dóttir mín.
Ertu hlynntur eða andvfgur rík-
isstjórninni? Hlynntur.
Hvaða persónu langar þig mest
til að hitta? Þann mann sem oft-
ast er nefndur konungur rokksins,
en það verður að bíða betri
tima.
Uppáhaldsleikari: Robert
De Niro.
Uppáhaldsleikkona:
Jessica Lange.
Uppáhaldssöngvari: Elvis
Presley.
Uppáhaldsstjórnmála-
maður: Davíð Oddsson.
Uppáhaldsteiknimynda-
persóna: Engin sérstök.
Uppáhaldssjónvarpsefni:
60 mínútur á Stöð 2.
Uppáhaldsmatsölustað-
ur/veitingahús: Hard
Rock Café.
Hvaða bók langar þig
mest að lesa? Æ, ég veit
það ekki. Ég er ekki mikið
fyrir bækur.
Hver útvarpsrásanna
þykir þér best? Hvers kon-
ar spurning er þetta eigin-
lega? Auðvitað Aðalstöðin.
Uppáhaldsútvarpsmaður:
Hallgrímur Thorsteinsson.
Hvaða sjónvarpsstöð
horfir þú mest á? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmað-
ur: Andy Rooney.
Uppáhaldsskemmtistað-
ur/krá: Enginn sérstakur.
Uppáhaldsfélag f íþrótt-
um: Ekkert sérstakt.
Stefnir þú að einhverju
sérstöku í framtíðinni? Að lifa
lífinu lifandi og ná langt i minu
fagi. Gera betur í dag heldur en í
gær.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu?
Fór með fjölskylduna á mínar
æskustöðvar, vestur á ísafjörð.
Uppáhaldsmatur: Hamborgar-
hryggur sem ég borða einu sinni á
ári.
Uppáhaldsdrykkur: ískalt sóda-
vatn með sítrónusneið í.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Hinn ungi nafni
Bjarni Arason sýnir á sér hina hliðina að þessu
sinni.
minn Guðjónsson ofan af Akra-
nesi.
Uppáhaldstímarit: Auglýsinga-
bæklingar sem ég fæ inn um lúg-
una hjá mér í haugum á hverjum
degi.
Hver er fallegasta kona sem þú