Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1997, Side 25
LAUGARDAGUR 4. JANUAR 1997
45
__________________________________________________________ ékák
W X'
Rilton-Cup skákmótið í Stokkhólmi:
Þrír íslenskir stórmeistarcir; Jó-
hann Hjartarson, Helgi Áss Grétars-
son og Hannes Hlífar Stefánsson,
sitja nú aö tafli á Rilton-Cup skák-
mótinu í Stokkhólmi. Mótið er jafn-
framt fjórða mótið í röðinni í nor-
rænu VISA-bikarkeppninni sem
áformað er að ljúki með úrslita-
keppni í haust. Keppendur eru 120
talsins, þar af 22 stórmeistarar. Ril-
ton-Cup mótið er nú haldið í 26.
sinn. Mótið er kennt við dr. Tore
Rilton sem lét eftir sig digra sjóði en
lét svo um mælt í erfðaskrá að hluta
fjárins skyldi varið til þess að efla
skáklistina.
Helgi Áss og Hannes hafa ekki
Umsjón
Jón L. Árnason
tapað skák þegar fimm umferðir af
níu hafa verið tefldar á mótinu.
Helgi deilir 2.-10. sæti með 4 v. af 5
mögulegum - þeir Hannes gerðu
innbyrðis jafntefli snemma i mótinu
og í 5. umferð lauk skák Helga við
Rússann Gleizerov með því að kapp-
amir slíðruðu sverðin. Hannes hef-
ur gert einu jafntefli betur og hefur
3,5 v. Jóhann hefur 3 v. en hann
varð að bíta í það súra epli að tapa
fyrir Rússanum Agrest í 5. umferð
eftir að hafa glutrað niður vinnings-
stöðu.
Eftir 5 umferðir er norski stór-
meistarinn Einar Gausel einn efstur
með 4,5 v. Jafnir Helga Áss í 2. sæti
eru kapparnir Joel Benjamin,
Bandaríkjunum, Curt Hansen og
Lars Schandorff, Danmörku, Lars
Degerman og Johan Hellsten, Sví-
þjóð, Evgeni Gleizerov, Evgení
Agrest og Mikhail Ulibin, Rúss-
landi.
Keppnin um sæti í úrslitakeppn-
inni i norrænu bikarkeppninni er
einnig spennandi. Eins og fyrr segir
er Rilton-Cup fjórða mótið í röð
undanrása en fimmta mótið fer
fram í Þórshöfn í Færeyjum i febrú-
ar. Keppendur safna stigum og telja
þrjú bestu mótin. Fyrir Rilton-Cup
var staða efstu manna þessi: 1.
Hillarp- Persson, Svíþjóð. 2. Margeir
Pétursson 3. Curt Hansen, Dan-
mörku. 4. Simen Agdestein, Noregi.
5. Jóhann Hjartarson. 6. Jonathan
Tisdall, Noregi. 7. Jonny Hector,
Svíþjóð. 8. Rune Djurhuus, Noregi.
9. Einar Gausel, Noregi. 10. Helgi
Áss Grétarsson 11. Helgi Ólafsson
12. Hannes Hlífar Stefánsson 13.
Þröstur Þórhallsson 14. Nikolaj
Borge.
Skoðum tvær fjörugar skákir frá
Stokkhólmi. Fyrst sýnir Helgi Áss
skemmtileg tilþrif er hann hrindir
sókn mótherjans meö drottningar-
fórn. Síðan áreynslulaus sigur
Smyslovs þar sem handbragð
heimsmeistarans fyrrverandi leynir
sér ekki.
Hvítt: Jesper Hamark
Svart: Helgi Áss Grétarsson
Enskur leikur.
1. c4 e5 2. Rc3 Rf6 3. Rf3 Rc6 4.
e4 Bb4 5. d3 0-0 6. g3 d6 7. Bg2
Rd4 8. Rxd4 exd4 9. a3 Ba5 10. b4
c5!? 11. Ra2! Bc7 12. 0-0 a6 13.
Bd2 Be6 14. f4 b6 15. Rcl Hb8 16.
Í5 Bc8 17. g4 b5 18. g5 Rd7 19.
Dh5
Hvítur hefur fengið fram sóknar-
stöðu en nú, eða í næsta leik, er rétt
að hægja eilítið á með 19. cxb5.
19. -He8 20. f6 Re5! 21. fxg7
bxc4 22. dxc4 Bg4 23. Dh4 Be6
Taflið er tvíeggjað. Ef hvita sókn-
in gengur ekki upp mun svartur
færa sér veikleikana á drottningar-
væng í nyt.
24. Re2 Bxc4 25. Rg3! Rg6 26.
Dh6 Dd7!
Helgi Áss telur enga ástæðu til að
gína við hróknum á fl. Nú er nauð-
synlegt að treysta vamirnar.
27. Rh5 Bd8
28. Bh3 Dxh3!?
í’Ljóst er að þessi leikur kostar
drottninguna. Svartur fær aðeins
tvo menn í skiptum fyrir hana en
tekst um leið að ráða niðurlögum
hvítu sóknarinnar. Þess vegna er
fórnin freistandi en trúlega er þó
betra að víkja drottningunni ein-
faldlega undan biskupnum.
29. Rf6+ Bxf6 30. Dxh3 Bxg7 31.
Hf6 Hxe4! 32. Hel Hxel+ 33. Bxel
He8 34. Bd2 BfB!?
Nú er tímahrakið farið að verða
ógnandi og Helgi kýs að hafa vaðið
fyrir neðan sig. Til greina kemur þó
34. - Bxf6 35. gxf6 He6 en svartur
gæti orðið mát - seinna.
35. Dg3 He4 36. Hf2!
Fellur ekki í gildruna 32. Hxd6?
Re5! með tvöfaldri hótun, á g4 og d6.
35. -Be6 37. h3 Re5 38. Hf4 He2
39. Hf2 He4 40. Bf4?
Þessi og næsti leikir benda til
þess að hvítur hafi misst tölu á
leikjunum og gleymt svörtu frels-
ingjunum um leið.
c4! 41. h4? d3 42. h5 c3 43. Bxe5
d2!
- og nú rann upp fyrir hvítum
ljós. Hann getur ekki stöðvað peðin
og gafst þvi upp.
Hvítt: Vassily Smyslov
Svart: Mathias Eklund
Frönsk vörn.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5
c5 5. a3 Bxc3+ 6. bxc3 Re7 7. a4
Da5 8. Bd2 Rbc6 9. Rf3 0-0 10. Bb5
Dc7 11. 0-0 Ra5 12. dxc5 Dxc5 13.
Bd3 h6
Hræðist biskupsfórn á h7.
14. Hel Rc4 15. Bcl Bd7 16. Rd4
Kh8?! 17. Dh5 Rg8?
Sextándi leikur svarts var slakur
og nú bætir hann gráu ofan á svart.
Smyslov eygir nú möguleika á að
þvinga fram hagstæða atburðarás.
18. Bxc4! Dxc4 19. Ba3 He8
Svartur kýs að láta f-peðið með
góðu sem auðvitað veit ekki á gott.
Mögulegt var að fórna skiptamun
með 19. - Dxc3 en einnig í því tilviki
á hvítur vænlegri færi.
20. Dxf7 Had8
Betra er 20. - Dxc3 21. Re2 Dc8 en
22. Rf4 kemur riddaranum í sóknar-
stöðu.
21. He3 Dxa4 22. Rb3 Bc8? 23.
Hg3 g5?!
Af tvennu illu var 23. - Dd7 24.
Hxg7 Dxf7 25. Hxf7 skárra.
bridge
------------- *★ *
Aðalsteinn og Matthías fóru á kostum
Tveir stærstu sparisjóðir lands-
ins stóðu fyrir keppni í tvímenningi
í lok ársins með glæsilegum verð-
launum og mikilli þátttöku.
Sparisjóður Hafnarfjarðar hélt
jólamót í samvinnu við Bridgefélag
Hafnarfjarðar sem fagnaði 50 ára af-
mæli. Voru glæsileg verðlaun í boði
og 75 pör tóku þátt. Keppnisformið
var Mitchell og því með tvennum
sigurvegurum. í n-s sigruðu Aðal-
steinn Jörgensen og Sigurður B.
Þorsteinsson en hlutskarpastir í a-v
voru Guðlaugur R. Jóhannsson og
Matthías Þorvaldsson.
Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis - SPRON - stóð fyrir keppni
i samvinnu við Bridgefélag Reykja-
víkur til minningar um
bridgemeistarann Hörð Þórðarson
sem jafnframt var sparisjóðsstjóri í
fjölda ára. Hörður var í landsliði ís-
lands sem náði þriðja sæti á Evr-
ópumótinu 1950 og einnig var hann
sigursæll í keppni innanlands, m.a.
íslandsmeistari í sveitakeppni
nokkrum sinnum.
í þetta sinn sneru Aðalsteinn og
Matthías bökum saman og sigruðu
nokkuð örugglega. Keppnisformið
var nú barometer, með Monrad-
kerfi, þar sem efstu pörin spiluðu sí-
fellt saman. Þetta form hentaði
þeim félögum ekki síður en
Mitchellinn daginn áður og sigruðu
þeir með 60,1% skor.
Fyrsta spilið gaf tóninn aö því
sem eftir fór því Aðalsteinn og
Matthías fengu strax topp og svo
skemmtilega vildi til að andstæðing-
amir voru Helgi Sigurðsson og
makker Aðalsteins frá deginum
áður, Sigurður B. Þorsteinsson.
En skoðum spilið:
N/0 ♦ 8 •0 A952 ♦ D962 * 8432 4 Á
♦ D9642 N
•* G643 * K1087
♦ 75 + K83
* ÁK S * G10976
4 KG10753 M D
+ ÁG104 * D5
Með Sigurð og Helga í n-s og
Matthías og Aðalstein i a-v gengu
sagnir á þessa leið:
Norður Austur Suður Vestur
pass 14- 14 dobl
pass 2*A 24 dobl
pass 3*A pass pass
dobl pass pass pass
Dobl norðurs er í hvassari kant-
inum, jafnvel í tvímenningi, og
hann fékk hámarksrefsingu að laun-
um.
Nú, en Helgi átti að spila út og
hann átti ekkert sjálfsagt útspil.
Valið virtist standa á milli drottn-
inganna og hann var ekki á skot-
skónum þegar hann valdi tromp-
drottninguna.
Matthías fékk slaginn á kónginn
og losaði sig strax við tvo hæstu í
laufi. Síðan kom spaði á ásinn, lauf-
gosi og tía. Tveimur tíglum var hent
úr blindum, tígull trompaður, spaði
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
trompaður og tígull trompaður. Enn
kom spaði, norður missti þolinmæð-
ina og stakk frá með trompás og
Matthígs henti tígulkóngi. Hann átti
síðan afganginn af slögunum. Þrír
yfirslagir og 830 fyrir spilið. Gull-
toppur.
24. Hxg5! Dd7
Eða 24. - hxg5 25. Dh5+ Kg7 26.
Bf8+ og drottningin fellur.
25. Dh5 Dh7 26. Hg3 Bd7 27.
Rd4 Hc8 28. Hel Hc4? 29. Hf3!
Vinningsleikur. Vegna hótunar-
innar 30. Hf7 verður svartur að láta
skiptamun með 29. - Hxd4 30. cxd4
Dxc2 en 31. Hf7 gefur hvítum vinn-
ingsstöðu. Svartur gafst upp.
Jólahraðskákmót
Taflfélag Kópavogs stóð fyrir jóla-
móti á annan dag jóla. Sigurvegari
varð Jón G. Viðarsson sem hlaut
14,5 v. Þráinn Vigfússon varð í 2.
sæti með 13 v. og Hrannar Baldurs-
son í þriðja sæti með jafhmarga
vinninga. .
Jólahraðskákmót Taflfélags
Garðabæjar fór fram 30. desember
og varð Amar Þorsteinsson hlut-
skarpastur með 11,5 v. af 14 mögu-
legum. Baldvin Gíslason hlaut 9,5 v.
og Ögmundur Kristinsson varð í 3.
sæti með 9 v.
Á jólahraðskákmóti Taflfélags
Reykjavíkur sigraði Jón Viktrö''
Gunnarsson með 13 v. af 15. Sigur-
björn Björnsson fékk 11,5 v. og 3.-4.
sæti deildu Björn Þorfinnsson og
Páll Agnar Þórarinsson með 10,5 v.
Minningarmót um Eikrem
Ákveðið hefur verið að halda
minningarmót um norska skákjöf-
urinn og íslandsvininn Arnold J.
Eikrem sem lést á nýliðnu ári.
Eikrem stóð um árabil að skákmót-
um í Gausdal þar sem fjölmargir ís-
lendingar tefldu.
Mótið verður haldið laugardag-
inn 11. janúar í göngugötunni í
Mjódd og hefst kl. 14. Þátttökugjald
verður kr. 1.000 og rennur óskiptV)
sérstakan minningarsjóð Eikrems
sem m.a. er ætlaður til að styrkja
skáksamskipti íslands og Noregs.
Veitt verða þrenn verðláun: 15 þús.,
12 þús. og 8 þús., auk 5 þúsund
króna verðlauna fyrir bestan árang-
ur í flokkum 2001-2200 stig,
1800-2000 stig og undir 1800 Elo- stig
auk bókaverðlauna. VISA Island og
Skákprent gefa verðlaun en Taflfé-
lagið Hellir stendur að mótinu fyrir
tilstuðlan Skáksambands íslands.
Jólatréskemmtun VR
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur jólatrésskemmtun fyrir börn
félagsmanna sunnudaginn 5. janúar nk. kl. 15.00 á Hótel íslandi.
Miðaverð er kr. 600 fyrir börn og kr. 200 fyrir fúllorðna. Miðar eru seldir á
skrifsofu VR í Húsi verslunarinnar, 8. hæð, og við innganginn.
Nánari upplýsingar í síma félagsins 568-7100.
Verzlunarmannafélag Reykjavfkur
Frönskunámskeiö
Alliance Francaise
Vetrarnámskeið verða haldin 13. janúar til 11. apríl.
Innritun fer fram alla virka daga kl. 15-19 í
Austurstræti 3, sími 552-3870
pr Alliance Francaise
INNANHÚSS- ios
ARKITEKTÚR
í frítíma yöar með bréfaskriftum
Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til þátt-
töku. Spennandi atvinna eða aöeins til eigin nota.
Námskeiðiö er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, iiti, lýs-
ingu, list, þar tilheyrir iistiönaður, gamall og nýr stíll, bióm,
skipulagning, nýtísku eldhús, gólflagnir, veggklæðningar,
vefnaðarvara, þar tilheyrir góifteppi, húsgagnaefni og giugga-
tjöld ásamt hagsýni o.fl.
Eg óska án skuldbindingar aö fá sendan bækling yðar um
INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ
Nafn_________________________________
Heimilisfang_____________________________________________
Akademisk Brevskole A/S
Jyllandsvej 15 • Postboks 234
2000 Frederiksberg • Kobenhavn •..Danmark