Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1997, Side 39
LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997
Sleeper í Háskólabíói:
„Þetta er sönn saga um náinn vinskap. Þetta er
saga mín og þeirra þriggja vina minna sem
skiptu mestu máli fyrir mig. Tveir þeirra urðu
morðingjar sem náðu ekki þrjátíu ára aldri. Sá
þriðji varð lögfræðingur, en gat aldrei starfað við
sitt fag þar sem hann komst aldrei yfir hrylling-
inn sem yfir okkur dundi. Ég er því sá eini sem
getur talað fyrir þá og sagt frá því hvemig böm
við vorum.“
Þannig byrjar sögumaður að segja sögu sína í
Einstirni irkirk
Mikiö og gott drama um þrjá lögreglustjóra í smábæ í Texas
sem starfa hver á sínu tímaskeiði. í sérlega vel skrifuðu hand-
riti verður það sem byrjaði sem morðsaga að sögu um leynd-
armál og tilfmningar þar sem fjöldi persóna kemur við sögu.
Besta mynd Johns Sayles til þessa. -HK
Djöflaeyjan irkirk
Nýjasta kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar er mikið og
skemmtilegt sjónarspil sem sveiflast á milli gamans og alvöru.
Gísli Halldórsson og Baltasar Kormákur eru bestir í sterkum
hópi leikara þar sem margar persónur verða eftirminnilegar.
-HK
Brimbrot kkirk
Ákaflega mögnuð kvikmynd hins danska Lars von Triers um
ástir og örlög tveggja ungmenna í samfélagi strangtrúaðra
kalvínista í Skotlandi í byijun áttunda áratugarins. Óvenjuleg
ástarsaga og óvenjusterk, með aldeilis frábærum leik. -GB
Lausnargjaldið
Vönduð og spennandi afþreyingarmynd sem einnig ristir í
mannlegar tilfmningar og er myndin rós i hnappagat leik-
stjórans, Rons Howards (Apollo 13). Mel Gibson sýnir góðan
leik og lýsir vel þeirri örvæntingu sem grípur foður þegar
syni hans er rænt. -HK
Reykur kkk
Framúrskarandi vel skrifuð og vel leikin mynd um fólk í
Brooklyn sem segir sögur í gríð og erg, sumar sannar en aðr-
ar ekki. Sprelllifandi og skemmtilegar mannlýsingar. GB
Ríkharður III. ★★★
Áhrifamikil og sterk kvikmynd upp úr leikriti Shakespeares
sem fært er yfir á fjórða áratugiim. Ian McKellan er í miklu
stuði sem hinn lævísi og grimmi konungur sem í.nútimagervi
sinu minnir á nútímastríðsherra sem hafa haft valdagræðgi
að leiðarljósi. -HK
Matthildur ★★★
Danny DeVito, sem bæði leikstýrir og leikur, hefur gert heil-
steypta ævintýramynd sem gerist í nútímanum og er óhætt að
mæla með Matthildi fyrir alla fjölskylduna. Mara Wilson í tit-
ilhlutverkinu er hvers manns hugljúfi og geislar af leikgleði.
Hringjarinn frá Notre Dame kkk
Nýjasta Disney-teiknimyndin hefur klassikina I bókmenntum
sem fyrirmynd. Nokkuð skortir á léttleika sem er að finna í
meistaraverkum Disneys en myndin er samt sem áður góð al-
hliða skemmtun fyrir alla. Oftast áður hefur samt tónlistin
verið skemmtilegri.
Hamsun ★★★
Max von Sydow fer á kostum sem norski rithöfundurinn Knut
Hamsun í þessari mynd um eftirmál þess að skáldiö lýsti yfir
aðdáun sinni á Hitler og stefnu hans. Um margt áhrifamikil
mynd en óhófleg lengd skemmir mikið fyrir. -GB
Hetjudáð kki
Tveimur athyglisveröum og dramatískum sögum úr Persaflóa-
stríðinu eru gerð góð skil f vel skrifuðu handriti. Denzel Was-
hington er góður í hlutverki herforingja sem þarf að eiga viö
samvisku sína en Meg Ryan er ekki beint leikkona sem er
sannfærandi í fremstu víglínu í stórhemaði. HK
Dragonheart ★★★
Dragonheart er ævintýramynd upp á gamia mátann þar sem
nýjustu tækni og brellum er beitt og gengur myndin ágætlega
upp þótt ekki sé hún hnökralaus. Góður húmor hefúr sitt að
segja um útkomuna. -HK
Aðdáandinn ★★★
Robert De Niro á góðan dag í hlutverki andlega truflaðs
hnífasölumanns sem rænir syni hafnaboltahetju sem hann
dáir og dýrkar. Þokkaleg mynd hjá Tony Scott en hún er þó
bæði of löng og of hávaðasöm. -GB
Til síðasta manns ★★★
Það er mikil stífl yfir myndinni og má segja að kvikmynda-
takan, klipping og góð tónlist skapi flna stemningu. Bruce
Wiflis er sem fyrr góður töffari og hjálpar það mikið til að úr
verður ágæt skemmtun. -HK
Sleepers sem Háskólabíó
frumsýndi í gær. Mynd-
in er byggð á um-
deildri bók eftir
Lorenzo Carca-
terra, sem bygg-
ist á sönnum at-
burðum. Um er
að ræða sögu
um fjóra unga
drengi
sem
voru
settir
á betr-
unar-
hæli
þar
sem
þeim
taka þeir lögin í sínar
hendur."
Barry Levinson,
sem jöfnum hönd-
um vinnur sem
leikstjóri, hand-
ritshöfundur og
framleiðandi,
fékk ósk-
arsverðlaun
sem besti
leik-
stjóri
árið
1988
fyrir
Rain
Man, en sú
mynd var
einnig valin
besta kvik-
mynd það
árið. Rain
Man náði
miklum vin-
sældum og
svo er um
fleiri
var
mis-
þyrmt og
nauðgað.
Það er mikill
og góður leik-
arahópur sem
skipar hlut-
verkin og má
nefna
Kevin
Dustin Hoffman leikur lögfræðing sem tekur að sér að verja þá tvo pilta sem ásakaðir eru
fyrir morö.
Bacon, Robert de Niro, Dustin Hoffman,
Jason Patrick, Brad Pitt, Brad Renfro og
Minnie Driver. Leikstjóri er Barry Levin-
son, sem þykir hafa gert góða kvikmynd úr
áhrifaríku efni.
Afdrifarík strákapör
Myndin gerist í New York á sjöunda ára-
tugnum, í hverfi sem kallast Eldhús helvit-
is. Þetta er ekki besti staðurinn til að alast
upp í en í skóla sem rekinn er af kaþólsku
kirkjunni alast upp fjórir vinir og eru þeir
allir í uppáhaldi hjá skólastjóranum sem er
kaþólskur prestur. Strákarnir koma frá
vandræðaheimilum og eru því mikið á göt-
unni innan um alls konar lýð. Einn heitan
sumardag ákveða þeir í leiðindum að stríða
pylsusala og færa til pylsuvagninn hans.
Þetta prakkarastrik tekst þó ekki betur en
svo að þeir verða næstum manni einum að
bana.
Drengimir eru allir ákærðir fyrir glæp
og dæmdir í níu til átján mánaða vistar
á betrunarskóla fyrir drengi. Þrátt
fyrir að hafa alist upp í Eldhúsi
helvítis eru þeir aRs ekki undir þá
grimmd og svívirðingu búnir sem
verðir undir forystu sadista að nafni
Sean Nokes beita og líf þeirra verð-
ur aldrei það sama og áður eftir
vist þeirra í skólanum. EUefu
árum síðar hittast tveir vinanna
og þar sem þeir sitja á veit-
ingastað sjá þeir vörðinn sem
fór hvað verst með þá. Stund
hefndarinnar er runnin upp.
Amerísk tra-
gedía
„Sleepers er
amerísk tra-
gedía,“ segir
leiksfjórinn
Barry Levinson
um mynd sína.
„Hún fjallar um
unga menn úr hverfi
þar sem allt önnur
lögmál gilda en víðast/
hvar annars staðar.
Þegar þeir sjá þann
sem þeir telja eiga Robert de Niro ieikur kaþólskan prest sem hefur kennt drengjunum fjór-
sök á hörmum þeirra um sem dæmdir eru til vistar á betrunarhæli.
myndir Levensons. Má nefna Good Morning
Vietnam og Bugsy sem báðar voru einnig til-
nefndar til óskarsverðlauna.
Levinson ólst upp í Baltimore og hefur hann
þrisvar notað borgina sem bakgrunn fyrir kvik-
myndir sínar. Fyrsta kvikmynd hans, Diner, sem
var að nokkru byggð á endurminningum hans,
gerist í Baltimore og svo er einnig um Tin Men
og Avalon.
Eftir að háskólanámi lauk flutti Barry Levin-
son til Los Angeles þar sem hann hóf störf sem
handritshöfundur fyrir gamanleikara auk þess
sem hann skrifaði gamantexta fyrir sjálfan sig og
kom fram í ýmsum klúbbum. Hann hætti þó fljótt
sjálfur að koma fram en réð sig sem handritshöf-
und við ýmsa gamanmyndaflokka í sjónvarpi.
Fyrstu kynni sín af kvikmyndum fékk hann í
gegnum Mel Brooks, en hann réði Levinson sem
meðskrifara að Silent Movie og High Anxiety.
Sem handritshöfundur hefur Levinson fengið
þrjár óskarstilnefningar (And Justice for All, Di-
ner og Avalon). Levinson er nú að vinna að sinni
næstu mynd, Sphere, sem gerð er eftir skáldsögu
Michael Chricton. Levin-
son hefur áður leik-
stýrt kvikmynd
sem byggð er á
sögu eftir Cric-
hton, var það
Disclosure.
-HK
ikmyndir
Systir
Shakespeares
Þessa dagana er verið að
kvikmynda í Bandarikjun-
um Shakespeare’s Sister og
leikur Kenneth Brannagh
aðalhlutverkið. Þegar nöfnin
Shakespeare og Brannagh
eru nefnd í sömu andrá dett-
ur mönnum að sjálfsögðu
klassíkin í hug, enda
Brannagh verið duglegur að
koma verkum Shakespeares
yfir á hvíta tjaldið, en
Shakespeare’s Sister kem-
ur ekkert nálægt klassík-
inni heldur gerist hún á
austurströnd Bandaríkj-
anna á fjórða áratugnum.
Mótleikarar Brannagh eru
Madelaine Stowe og Willi-
am Hurt. Leikstjóri er Lesli
Linker (Now and Then).
Misheppnaður
,
Hinn ágæti leikari Ethan
Hawke (Dead Poet’s Society,
Alive, Before Sunrise) sendi
frá sér skáldsöguna The
Hottest State fyrir stuttu og
var fyrirfram gert mikið úr
afreki hans. Annað er upp á
teningnum nú eftir að gagn-
rýnendur hafa hakkað í sig
bókina og eru þeir nánast all-
ir sammála um að Hawke
ætti að láta allar tilraunir á
ritvellinum eiga sig og halda
sig við leiklistina.
Fyrir og eftir
Félagarnir Quentin Tar-
antino eru nú að undirbúa
tvær kvikmyndir sem báð-
ar tengjast From Dusk till
Dawn. Önnur verður fram-
hald en hin gerist áður en
þeir Gecko-bræður rændu
prestinum Jacob Fuller og
hittu fyrir vampírur. Tar-
antino og Rodriguez munu
hafa yfirumsjón með fram-
kvæmdum en láta ungum
leikstjórum eftir leikstjórn
myndanna. Áætlað er að_
gera þær samtímis um mitt
næsta sumar og er kostnað-
urinn upp á 10 milljón doll-
ara hvor mynd um sig.
■
Herra Bean í
kvikmynd
Það eru margir sem hafa
hlegið sig máttlausa við að
horfa á sérvitringinn herra
Bean í sjónvarpinu Nú á að
fara að gera kvikmynd í fullri
lengd um ævintýri Beans og
heitir hún einfaldlega Mr.
Bean. Það er að sjálfsögðu
Rowan Atkinson sem leikur
Bean og fjallar myndin um
ferðalag hans til Ameríku.
Og eins og við er að búast
1 nær hann að rústa líf amer-
ískrar fjölskyldu. Leikstjóri
er Mel Smith.
Danny Boyle í
Ameríku
Hinn skoski leikstjóri
Danny Boyle (Shallow Gra-
ve, Trainspotting) gerir sína
næstu mynd vestanhafs. Um
er að ræða kvikmynd gerða
eftir handriti samstarfs-
manns hans, John Hodges,
og heitir hún A Life Less
Ordinary. Að sjálfsögðu
er Ewan MacGregor í
aðalhlutverki, en aðrir
leikarar eru Cameron
Diaz og Holly Hunter.