Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1997, Page 4
4
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997
Fréttir
Launahækkanir bankastjóra, ráöherra, alþingismanna og embættismanna:
Dæmi um allt að 52
prósenta launahækkun
Það er ekki að furða þótt fólk hafi
hrokkið við þegar svar við fyrirspum
Jóhönnu Sigurðardóttur um laun
bankastjóra ríkisbankanna voru birt
á þriðjudag. Þetta hefði þó ekki átt að
koma þeim á óvart sem fylgdust með
og muna þær hækkanir sem forseti ís-
lands, ráðherrar, alþingismenn, for-
seti Hæstaréttar, biskup og ýmsir
fleiri embættismenn fengu í septem-
ber 1995. Enda þótt laun bankastjóra
hafi hækkað langmest hækkuðu ýms-
ir mjög ríflega í september 1995.
Á þvl samningstímaili aðila vinnu-
markaðarins, sem rann út um síðustu
áramót, sem var 22 mánuðir, hækk-
uðu laun verkafólks um rúmar 22 þús-
und krónur eða um rúmar 1.000 krón-
ur á mánuði.
Laun bankastjóra Seðlabankans
hækkuðu um 52 prósent síðustu 6
árin eða um 165 þúsund á mánuði og
eru nú 481 þúsund krónur á mánuði.
Hér er um meðailaun að ræða.
Laun bankastjóra Landsbankans
hafa hækkað um 27 prósent á síðustu
6 árum eða um 110 þúsund krónur á
mánuði og eru nú að meðaltali 518
þúsund krónur á mánuði. Aðalbanka-
sljórar hafa hærri laun.
Laun bankastjóra Búnaðarbankans
hækkuðu um 34 prósent síðustu 6
árin eða um 137 þúsund krónur á
mánuði og eru nú að meðaltali 536
þúsund krónur á mánuði.
Þá er ekki talinn með bíll, bíla-
styrkur, dagpeningar á ferðalögum og
risnukostnaður bankastjóra allra
bankanna.
Auk þessa hafa bankastjórar allt að
250 þúsund krónur á mánuði fyrir
setu í stjómum fyrir bankana.
Fyrir rúmum tveimur árum, eða í
september 1995, hækkaði Kjaradómur
laun eftirtalinna aðila.
Laun forseta íslands hækkuðu um
66 þúsund krónur á mánuði eða úr 336
þúsundum í 400 þúsund krónur á
mánuði.
Laun forsætisráðherra í september
1995 voru 323 þúsund krónur. Hann
fékk 62 þúsunda króna hækkun og er
því með 385 þúsund krónur á mánuði.
Aðrir ráðherrar höfðu á þessum
sama tíma 300 þúsund krónur i mán-
aðarlaun. Þeir hækkuðu mn 55 þús-
und krónur og eru því með 350 þús-
und krónur á mánuði. Forseti Hæstaréttar hafði 278.064 70.000 kr. | >6.000
krónur í mánaðarlaun. Hann fékk 26.416 króna hækkun og því era mán- aðarlaun hans nú 304.480 krónur. 60.000
Aðrir hæstaréttardómarar höfðu
252.786 krónur á mánuði. Þeir fengu
24.014 króna hækkun og eru því með
276.800 krónur á mánuði.
Umboðsmaður Alþingis hafði
213.596 krónur í mánaðarlaun. Hann
fékk 63.204 króna hækkun og er því
með 276.800 krónur í mánaðarlaun.
Ríkissaksóknari hafði 250.800 krón-
ur á mánuði. Hann fékk 26.000 króna
hækkun og er því með 276.800 krónur
á mánuði. Ríkissáttasemjari var og er
með sömu laun.
Ríkisendurskoðandi hafði 224.426
þúsund krónur í laun á mánuði. Hann
fékk 21.324 króna hækkun og er því
Launamunur í landinu
- mánaðarhækkun launa hjá ýmsum stéttum frá 1995 -
50.000
— 40.000
*o
3
C
E 30.000
63.204
55.000
26.416
24.014
3
C
'S
20.000
10.000
26.000 28-104
21.324
3
1.000
g
<
1
<
c
■o
E
s
'S
c
o.
£
cc
‘•fTrai
Hækkun bankastjóralauna
180.000 kr.
- síöustu sex árin -
160.000
140.000
120.000
100.000
80.000
60.000
40.000
20.000
0
með 245.750 krónur á mánuði.
Biskup íslands hafði 213.596 þúsund
krónur í mánaðarlaun. Hann fékk
28.104 króna hækkun og er því með
241.700 króna mánaðarlaun.
Dómstjórinn í Reykjavík var með
og er með sömu laun og biskupinn.
Aðrir dómstjórar höfðu 199.158
krónur í laun á mánuði. Þeir fengu
19.342 króna hækkun og eru því með
218.500 krónur í mánaðarlaun.
Umboðsmaður bama og héraðs-
dómarar höfðu 192.511 krónur á mán-
uði. Fengu 18.389 króna hækkun og
eru því með 210.900 krónur á mánuði.
Alþingismenn höfðu 177.993 krónur
á mánuði, fengu 17.007 króna hækkun
og eru því með 195.000 krónur í þing-
fararkaup. Þar að auki fengu þeir 40
þúsund króna sérstaka kostnaðar-
greiðslu á mánuði auk hinnar al-
mennu kostnaðargreiðslu sem þing-
menn fá. -S.dór
Fjórir með
fíkniefni
Fikniefhadeild lögreglunnar í
Reykjavík réðst ásamt almennu
lögregluliði til inngöngu i ibúð i
Breiðholti á mánudagskvöld
vegna sterks gruns um að þar
væri flkniefni að fmna.
Grunur lögreglunnar reyndist
réttur því í íbúðinni fundust 20
grömm af amfetamíni og nokk-
ur grömm af hassi. Fjórir ungir
menn voru handteknir á staðn-
um og sitja þeir í fangageymsl-
um lögreglunnar. Þeir hafa allir
komið áður við sögu lögreglu
vegna flkniefnamála.
-RR
Dagfari
Bankaleynd aflétt
Það er engin bankaleynd yfir
launum bankastjóra ríkisban-
kanna. Ekki lengur að minnsta
kosti eftir að Jóhanna Sigurðar-
dóttir bað Finn Ingólfsson banka-
málaráðherra að forvitnast um
laun þeirra. Finnur gerði eins og
Jóhanna bað og upplýsti á þingi að
bankastjóramir hefðu þokkaleg
laun. Það átti svo sem ekki að
koma neinum á óvart. En það var
eins og við manninn mælt, allt
varð vitlaust vegna launanna og
hækkana sem karlarnir hafa náð
sér í undanfarin misseri.
Það kom í ljós að bankastjórarn-
ir hafa svona öðm hvom megin
við hálfa milljón í laun á mánuði.
Lægstir era seðlabankastjórarnir,
þá landsbankastjórarnir og efst
tróna þeir sem stýra Búnaðarbank-
anum. Það munar þó ekki nema
um 50 þúsund krónum að meðaltali
á þeim lægstu og hæstu. Þess utan
hafa bankastjórarnir nokkrar
aukasporslur á mánuði og nemur
sú þóknun frá 50 til 250 þúsundun-
um króna á mánuði. Þetta er
smotterí, eins og að sitja í stjóm-
um fyrir hönd bankanna og fleira.
Sumir hefðu nú haldið að í þeim
störfum fælist meðal annars vinna
bankastjóranna en svo mun ekki
vera.
Það sem kom raunar mest á
óvart í þessu er að uppgefin laun
bankastjóranna skuli ekki vera
hærri en raun ber vitni. Ef rétt er
munað hafa skattframtöl banka-
stjóra sýnt að laun a.m.k. sumra
þeirra væm nær milljón krónum á
mánuði en hálfri. Þar hafa verið
taldir upp nokkrir frægustu banka-
stjórarnir. Nú kann að vera, af því
að bankamálaráðherrann sýnir Jó-
hönnu aðeins meðaltöl, að ein-
hverjir hálfdrættingar dragi aðal-
bankastjórana niður. Þvi sýni
þingskýrslan aðeins þessa óveru.
Jóhanna virðist eitthvað vantrúuð
líka því hún ætlar að biðja um nýja
skýrslu um viðbótartekjur banka-
stjóranna. Þá kann að vera að hið
rétta komi í ljós og bankastjórarn-
ir standi undir nafni sem hátekju-
menn.
Hér hefur ekki verið tíundað að
bankastjórar hafa ríflegan lífeyris-
sjóð og fá auk þess fina jeppa til
umráða og styrki til að aka þeim.
Miðað er við að þeir keyri jeppana
sína eitthvað nálægt 100 km á dag
og má vel vera að svo sé. Sá akstur
slagar að vísu hátt upp í það sem
sumir atvinnubílstjórar aka á dag
en það kann að vera að langt sé á
milli staða þar sem hinir ýmsu
stjórnarfundir era haldnir.
Svo sanngirni sé í frásögninni,
þegar talað er um að mánaðarlaun-
in séu hálf miiljón en ekki heil, má
ekki gleyma því að bankastjórar
þurfa oft að skreppa til útlanda að
erinda fyrir bankann sinn. Þegcir
þeim dettur það í hug er bankinn
svo elskulegur að greiða öll út-
gjöld, ferðir, gistingu og fæði, en
þess utan fá bankastjóramir fulla
dagpeninga á ferðum sinum. Hver
ætti svo sem að sjá ofsjónum yflr
því?
En sérkennilegt má það vera hjá
Jóhönnu að biðja um þessar upp-
lýsingar einmitt nú þegar kjaravið-
ræður standa sem hæst og deilt er
um hvort verkafólk eigi að fá 50
eða 70 þúsund krónur á mánuði.
Það mátti hún vita að einhverjir
fengju hnút I magann við talnalest-
urinn. Era bankastjóramir ekki
meira og minna allir gamlir félag-
ar Jóhönnu af þingi eða ríkis-
stjómum? Hvað er hún að abbast
upp á þessa góðu drengi þótt þeir
fái vel launuð störf þegar líður
undir lok starfsævinnar?
Seðlabankastjórar munu hafa
fengið 130 þúsund króna hækkun á
mánuði vegna þess að þeir voru
langt á eftir öðram bankastjórum.
Er nema sanngjamt að þeir fái eitt-
hvað svipað og félagarnir í Lands-
bankanum og Búnaðarbankanum?
Þarf að gera mál úr svona lítil-
ræði?
Dagfari