Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1997, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997
7
pv__________________________________________________________________________________Fréttir
Ferðamálaráð bauð upp á átta ára gamalt hvalkjöt í veislu:
Menn mjög ánægöir
enda fínar steikur
- segir matreiðslumeistari - gæti geymst í áratugi, segir Úlfar Eysteinsson
„Ferðamálaráð borðaði hval-
kjötið hjá okkur og var mjög
ánægt enda voru þetta finar steik-
ur. Við skárum 2 millímetra utan
af kjötinu og það var sem nýtt,“
segir Guðmundur Guðmundsson,
matreiðslumeistari á Hótel Sögu,
sem í fyrrakvöld matreiddi kjöt af
langreyði sem Úlfar Eysteinsson
matreiðslumeistari á Þremur
Frökkum útvegaði.
Eins og fram kom í DV í gær
vildi Magnús Oddsson ferðamála-
stjóri ekki staðfesta að hvalkjöt
hefði verið á borðum í veislu á
vegum ferðamálaráðs; í samtali
við DV sagðist hann ekki hafa „á
nokkum hátt borðað hvalkjöt
lengi“. Hér skal ekki fullyrt að
Magnús hafi lagt sér langreyðina
til munns en ljóst er að ferðamála-
ráð, sem ekki vill láta veiða hvali
samkvæmt ályktim frá því fyrr í
vikunni, óskaði sérstaklega eftir
slíku kjöti.
Kjötið sem um ræðir er hluti af
sendingu sem fór í gámum til meg-
inlands Evrópu á leið til Japans. í
Hamhorg spunnust miklar deilur
um kjötið og hlekkjuðu grænfirið-
ungar sig við gámana í því skyni
að stöðva útflutning þess. I fram-
haldinu var kjötið sent aftur til ís-
lands þar sem Úlfar Eysteinsson
samdi um kaup á einum þriggja
gáma. Það vekur sérstaka athygli
að Úlfar býr enn að kjötinu, sem
er af langreyði, nú átta árum síð-
ar.
Úlfar sagði í samtali við DV að
kjötið væri sem nýtt enda hefði
það fengið slíka meðhöndlvm í
upphafi geymslutímans.
„Kjötið var íshúðað í tvígang og
þannig varið með tvöföldu lagi.
Síðan hefur þetta verið geymt í 27
til 30 stiga frosti. Kjötið er sem
nýtt enda laust við alla hormóna
og í því er ekkert penisillín. Þá er
ekki hætta á kúariðu við neyslu
þessa kjöts,“ segir Úlfar.
Hann segist eiga nægar birgðir
af kjöti næstu árin.
„Þetta er besta kjötið á mark-
aðnum og heldur algjörlega gæð-
um sínum. Það má geyma kjöt
með þessum hætti í áratugi ef ekk-
ert óhapp kemur fyrir. Ég á birgð-
ir af þessu sem nægja mér næstu
tvö til þrjú árin,“ segir Úlfar.
-rt
Úlfar Eysteinsson matreiðslumeistari með hluta af hvalkjötinu sem hann hefur átt í tæp átta ár. Hann lagöi m.a. feröa-
málaráði til kjöt í veisiu sem ráöiö hélt I fyrrakvöld.
Forsetahjónin á öðrum degi Noregsheimsóknarinnar:
Ólafur Ragnar
renndi sér
í Smuguna
- í hádegisverðarræðu - fékk meðmæli sem skíðamaður
DV, Ósló:
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
íslands, fékk meðmæli stallara Nor-
egskonungs eftir frækilega skíða-
göngu frá Fomgardseli til Hólma-
kolls ofan Óslóar í gær.
Ólafur Ragnar notaði siðan tæki-
færiö í veislu hjá norsku ríkis-
stjóminni í gær til að skora á Thor-
bjöm Jagland forsætisráðherra í
kappgöngu. Var forsetinn þess albú-
inn að mæta Norðmönnum á heima-
velli þeirra í þjóðaríþróttinni.
Ólafur setti sig ekki heldur úr
færi að renna sér í Smuguna í ræðu
sinni undir hádegisverðinum. Taldi
hann við liggja að þessar tvær
bræ&raþjóðir næðu samkomulagi
um veiðamar þar norður frá. Norð-
menn era raunar sammála þessu
því síðar lýsti Bjöm Tore Godal ut-
anríkisráðherra því yfir að það
væri algert gjaldþrot í samskiptum
þjóðanna ef þær næðu ekki saman í
Smugumálinu.
Skíðaferð Ólafs Ragnars í gær-
morgun var utan dagskrár en í all-
an gærdag hafa hann og frú Guðrún
Katrín Þorbergsdóttir fylgt strangri
dagskrá þar sem m.a. var tekið á
móti íslendingum, búsettum i Ósló,
og norska jarðfræðistofnunin, þjóð-
minjasafnið og tónleikahöllin heim-
sótt.
Seint í gærkvöld var svo boð í
ráðhúsinu hjá borgarstjóra Óslóar.
Áður höfðu borgarstjóri og forseti
borgarstjómar sýnt forsetahjónun-
um ráðhúsið sem er mjög sérstæð
bygging og mikiö skreytt, bæði ut-
andyra og innan.
í morgun var haldið til Björgvinj-
ar þar sem fjölbreytt dagskrá bíður
áður en haldið verður til Óslóar á
ný og í kvöld er röðin komin að for-
setahjónunum að bjóða til kvöld-
verðar. Verður hann á Grand Hotel
í glæsilegasta og sögufrægasta veit-
ingasal borgarinnar. Þar tæmdi
m.a. Henrik Ibsen, höfúöskáld Norð-
manna, ölkrús daglega. Heimsókn
forsetahjónanna til Noregs lýkur
annað kvöld.
-GK
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti fslands, og stallari Noregskonungs sjást
hér á skíöagöngu fyrir ofan Ósló á öörum degi Noregsheimsóknar forsetans
í gær. DV-mynd Guölaugur Tryggvl
Enginn þorramatur í Kaupmannahöfn:
Stemningin góð þótt
hrútspungana vanti
- segir formaöur íslendingafélagsins
„Við höfum reynt allt sem við
gátum en það er nú orðið ljóst að
það verður enginn þorramatur á
boðstólnum á þorrablótinu hjá
okkur. Engu að siður verður
stemningin góð þótt hrútspungana
vanti,“ segir Haraldur Gunnlaugs-
son, formaður íslendingafélagsins
í Kaupmannahöfti.
Danir hafa hert mjög reglur um
innflutning á matvörum frá ís-
landi en Haraldur segir að aðeins
sé miðað við unnar matvömr og
því verði hægt að bjóða upp á ís-
lenskan mat, þótt ekki sé hann af
þorrakyni.
„Kokkamir munu sjá um að við
fáum lambalæri aö hætti mömmu
allra og fisk má ílytja inn. Síðan
verður brennivínið á sínum stað
og ég óttast ekki að stemningin
verði ekki í lagi,“ segir Haraldur.
Hann sagði að húsið tæki um 400
manns og reiknaöi með að troðið
yrði út úr dyrum.
Þorrblót íslendingafélagsins í
Kaupmannahöfh verður haldið 15.
febrúar næstkomandi og það verð-
ur hljómsveitin Karma sem spilar
fyrir dansi.
Samkvæmt heimildum DV náði
íslendingafélagið að smygla hangi-
kjöti til landsins en öll von er úti
hvað varðar þorramatinn.
Pétur Kjartansson er einn
þeirra íslendinga sem býr í Kaup-
mannahöfh og ætlar aö mæta á
þorrablót um helgina þrátt fyrir
að þorramatinn vanti.
„Þetta ástand lyktar af því að
um sé að ræða hefndargerðir
Dana vegna þess aö þefr fá ekki að
flytja inn svínakjöt til íslands. Það
er mjög einkennilegt að við skul-
um ekki fá aö pjóta þorramatarins
svo sem verið hefur frá því sögur
hófust,“ segir Pétur Kjartansson.
-sv/-rt
Verkalýðsfélag Húsavíkur:
Vill ráðstefnu um
málefni Þingeyinga
DV, Akureyri:
Verkalýðsfélag Húsavíkur hefur
sent erindi til Atvinnuþróunarfé-
lags Þingeyinga þar sem þess er
óskað að haldin verði ráðsteftia um
byggða- og atvinnumál í Þingeyjar-
sýslum og þar verði leitað svara við
þeirri spumingu hvort Þingeyingar
séu tilbúnir til að standa saman og
hver sé framtíðarsýn sveitarstjóm-
armanna, þingmanna og hagsmuna-
aðila í þessum málum.
í erindi verkalýðsfélagsins segir
að til umræðu sé að skera niður
framlög til heilbrigðisþjónustu og
skólamála á svæðinu. Stjórn Sjúkra-
húss Þingeyinga berjist fyrir til-
verurétti sinum, vegamál hafi verið
töluvert í umræðunni og einstaka
vegir standi t.d. ferðaþjónustu í N-
Þingeyjarsýslu fyrir þrifum. Þetta
og fleiri hagsmunamál íbúanna vill
verkalýðsfélagiö að rætt verði um á
ráðstefnunni.
-gk