Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1997, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997
11
Fréttir
Sólarhringsváktir við hafhir leggjast niður nk. mánudag:
Ekki hægt aö lofa fíkniefna-
lausu íslandi nema róttækar
breytingar verði í tollgæslu
- segir Sveinbjörn Guðmundsson, yfirmaður hjá Tollstjóraembættinu
„Það er deginum ljósara að það
þarf róttækar breytingar á tollgæslu
í landinu. Fyrr er ekki hægt að lofa
fíkniefnalausu islandi 2002 eins og
ráðamenn stefna að. Við höfum
vissulega áhyggjur af ástandinu en
við viljum gefa þessu möguleika.
Það er verið að fara inn í nýja
vinnutilhögun og það þarf auðvitað
tima til að sjá hvemig þetta gengur
upp,“ segir Sveinbjöm Guðmunds-
son, aðaldeildarstjóri hjá Tollstjóra-
embættinu í Reykjavík, vegna breyt-
inga sem em þar i burðarliðum.
Sólarhringsvaktir við hafnir í
Reykjavík verða formlega lagðar
niður nk. mánudag. Engir tollverðir
verða þá á fastri vakt við hafnir en
Sveinbjöm segir að í staðinn verði
venjuleg dagvinna og mjög tak-
markaðar bakvaktir. Sveinbjörn
segir að það verði að koma í ljós
hvemig nýja vinnutilhögunin muni
reynast en það verði mjög erfitt að
framfylgja henni almennilega við
núverandi aðstæður.
Sveinbjöm segir að mikilvægt sé
að fá nýjan og tæknilegri tækjabún-
að og auk þess þurfi að bæta við
mun fleiri tollvörðum. Endurskipu-
lagning á vinnutilhöguninni hefur
tafist mjög, að sögn Sveinbjamar.
Margir tollverðir hafa hætt störfum
hjá embættinu undanfarin ár vegna
niðurskurðar. Sveinbjöm segir að
engir tollverðir hafi verið ráðnir í
staðinn fyrir þá sem hættu.
Verður mjög erfitt
„Það þarf að mörgu að hyggja í
eftirlitsþættinum og við erum að
undirbúa hann. Það þarf að endur-
nýja mikið af tækjabúnaðinum. Það
verður að segjast eins og er að allur
er þessi tækjabúnaður okkar orðinn
gamall og sumt af honum á heima á
fomminjasafni. Það sem við þurfum
em nýjar tölvur, fjarskiptatæki og
leitartæki til að gera okkur kleift að
stunda almennilegt eftirlit.
Það er ljóst að þetta verður mjög
erfitt. Það em verkefni fram undan
sem em stór í sniðum og krefjast
aukins mannafla og búnaðar. Það
verður auk þess að gera ráð fyrir
ýmsum tímabundnum afTóllum,
eins og veikindum og sumarfríum.
Það nægir ekki að ráða tóma afleys-
ingamenn því menn þurfa reynslu
og þjálfun.
Sveinbjörn Guðmundsson, aöaldeildarstjóri hjá Tolistjóraembættinu í Reykjavík, segir aö það þurfi róttækar breyt-
ingar á toligæsiu tii aö hægt veröi aö fylgjast almennilega meö höfnum og koma í veg fyrir innflutning á fíkniefn-
um og ööru. Sveinbjörn segir að fyrr sé ekki hægt aö lofa fíkniefnalausu Islandi áriö 2002 eins og margir ráðamenn
stefna aö. DV-mynd BG
Hægt að hækka kaup-
taxtana umtalsvert
- segir Ögmundur Jónasson, formaður BSRB
DV, Akureyri:
„Ég er sannfærður um að það er
hægt að hækka kauptaxta verulega
án þess að verðbólguhjólin fari af
stað, ef sjálftökuliðið heldur sig á
mottunni," sagði Ögmundur Jónas-
son, formaður BSRB, á opnum fúndi
um stöðu kjaramála sem haldinn
var á Akureyri.
Ögmundur lagði áherslu á að
launataxtakerfið þyrfti allt að
hækka umtalsvert. „Ætli menn geri
sér grein fyrir því, t.d. þegar við
erum að ræða kröfugerð Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur, hverjir
hæstu taxtar þar á bæ eru. Þeir eru
í kringum 80 þúsund krónur? En
vita menn hver meðaldagvinnulaun
skrifstofukarla á Reykjavíkursvæð-
inu eru? Þau eru 147 þúsund krón-
ur. Síðan eru menn að segja að það
sé ekki hægt að hækka taxtana um-
talsvert, og ég er ekki að tala um
taxtana í bönkunum sem eru út úr
öllu korti.“
Ögmundur benti á að kaupmáttur
taxtalauna sé nú nýlega orðinn sá
sami og var við upphaf þjóðarsáttar
1990. „Það hafði þá gerst í verð-
bólgubálinu árið áður að kaupmátt-
urinn hrapaði um 15%. Við skulum
ekki gleyma því hvaða stærðir við
erum að tala um. Við erum að tala
um fólk með laun sem eru svo lág
að drjúgur hluti launafólks þarf að
leita félagslegrar aðstoðar til að ná
endum saman. Þetta er fyrsta deild
Þórarins V. Þórarinssonar, fram-
kvæmdastjóra VSÍ,“ sagði Ögmund-
ur.
-gk
Það er í raun svo lítið sem höfum
getað gert undanfarin ár því það er
svo mikið af gámum og vörum sem
kemur hér inn. Það hefur ekki ver-
ið hægt að skoða almennilega nema
sáralítið að því magni vegna mann-
eklu. Það er auðvitað mjög erfitt að
ætla að stöðva fikniefnainnflutning
og annað smygl inn I landið við þau
skilyrði sem verið hafa.
Það hefur mörgu verið lofað í
gegnum tíðina til að styrkja toll-
gæslu. Nú undanfarið hefur okkur
verið lofað peningastyrkjum og ég
vona svo sannarlega að það gangi
eftir. Ég hef reyndar ástæðu til að
ætla að þessi loforð verði uppfyllt og
ég segi að það er svo sannarlega
kominn tími til,“ segir Sveinbjöm.
-RR
Valentínusardagurinn
SNYRTISTOFAN
HELENA
FAGRA
Snyrtistofan
HELENA FAGRA
3 ára
IGildir tii 28.2 '97)
★ Vaxuppáhné kr. 1500
★ Húðhreinsun kr. 1500
★ Handsnyrting kr. 1500
Munið gjafabréfin - Nýtt kortatímabil
Vinnumarkadur og jafnróttí
* k
Verður launamunur
kynjanna leiðréttur
í komandi
kj ar as amningfum?
Sjálfstæðar konur halda oplnn fund um
mögulegar lelölr tll að útrýma launamun
kynjanna á Lltlu-Brekku (á mótl Lækjarbrekku)
í dag, fímmtudag kl. 20.30.
Frummælendur verða:
Friörik Sophusson
fjármálarábherra
Ari Skúlason
framkvæmdastjórl ASÍ
Rannvelg Slguröardóttlr HJördís Ásberg
hagfræölngur BSRB •tarHmannattjðrl Bmskjpa hf.
Fundarstjórl: Áslaug Magnúsdóttlr
Sjálfstæöar konur
SJálfstæðar
konur kynrut
aöritr áhcrslur
i kvennapólltik
cn veriö Itafa i
k vcnnabarattu
untianfarinna