Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1997, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997
15
Nóbelsskáld fer vestur
Nú hefur íslenskur höfundur
vakið athygli í Bandaríkjunum og
það nóbelsskáldið sjálft. Það mætti
halda að eftir nóbelinn væri meiri
upphefð óhugsandi. En Banda-
ríkjamenn skipta nóbelsskáldum í
tvennt, þau frægu og smámennin
sem fengu verðlaunin vegna hás
aldurs eða kunningsskapar við
einhvern í nefndinni.
Ég minnist áfallsins þegar ég sá
í bandarísku riti lista yfir sniil-
inga sem ekki fengu nóbelsverð-
laun en aftast voru talin upp öll
nóboddíin sem hafa fengið verð-
launin og Laxness þar á meðal.
Úthýst
En nú tala menn vestra um að
Halldór eigi heima meðal alvöru-
höfundanna og fyrir það eitt er
óhætt að kalla Sjálfstætt fólk
skáldsögu aldarinnar á íslandi.
Jafnvel heimsveldiö hefur upp-
götvað hana. Á sama tíma og sú
skoðun heyrist á íslandi að réttast
sé að hætta að halda sumum skáld-
sögum Halldórs Laxness að ung-
mennum, þar á meðal Sjálfstæðu
fólki, þar sem í þeim séu „úreltar
skoðanir".
Ég mun víkja að þeirri hug-
mynd um einkarétt á nútímanum
sem felst í hugtakinu „úreltar
skoðanir" í annarri
grein. En minna
má á að Sjálfstætt
fólk kom áður út í
Bandaríkjunum,
fékk góða dóma og
seldist vel en vegna
hugmynda í henni
og í öðrum verkum
skáldsins var henni
úthýst af Banda-
ríkjamarkaði á
tímabilinu sem ................
kennt er við McCarthy, þegar
skoðanafrelsi var atlagt í landi
frelsisins.
Lífseig goðsögn
Nú á að vera önnur öldin, en þó
er sú goðsögn lífseig að eitthvað sé
„úrelt“ í verk-
um Halldórs
Laxness enda
hljóti verk sem
skírskoti ákaft
til samtíma og
samfélags síns
að úreldast
hraðar en önn-
ur. Þau geti
ekki orðið sí-
gild á sama
hátt og skáld-
verk um sálar-
líf einstaklings
og hið eilífa
manneðli enda
ekki hafin yfir
stað og stund.
En ekkert
verk manns er
hafið yfir stað
og stund. Þau
eru öll skrifuð í
ákveðnu sam-
hengi og þau
sem endast
best eru
einmitt þau sem fanga samtíma
sinn og færa komandi kynslóöum.
Raunsæisskáld 19. aldar litu á
verk sín sem innlegg í samtímann,
þau settu „problemer under
debat“, eins og Halldór Laxness
„Nú á að vera önnur öldin, en þó er sú goðsögn lífseig að eitthvað sé „úrelt" í verkum Hall-
dórs Laxness." - Skáldið áritar bækur í verslun árið 1987.
„Hugmyndin um hreinfagurfræði-
legt listaverk óháð tíma og rúmi
sem saurgast ef það kemst í
snertingu við mannlífið og sam-
féiagið er og var aldrei neitt ann-
að en bull.“
gerir. Þess vegna eru verk þeirra
ekki úrelt. Mál gærdagsins eiga
alltaf erindi við kynslóðir dagsins
í dag.
Þær bækur sem ekki snerta
taug í samtímanum eða leggja eitt-
hvað fram til umræðu i samfélag-
inu, þær úreldast og
gleymast. Það sem
ekki kemur samtíð-
inni við mun ekki
koma framtíðinni
við. Nákvæmlega
þess vegna lifa verk
nóbelsskáldsins með
þjóðinni fremur en
verk nokkurs annars
íslensk höfundar.
Þau náðu að fanga
samtímann.
Mál málanna á
okkar tíö
Af íslenskum
skáldsögum seinasta
áratugar hafa þrjár
orkað sterkast á mig.
Allar sefja þær
„problemer under
debat“, ræða málin.
heimsins eftir Einar
Kjallarinn
Armann
Jakobsson
íslenskufræðingur
Englar al-
Má Guð-
mundsson er ein þeirra, saga um
árekstur einstaklings og samfé-
lags. Önnur er Meðan
nóttin líður eftir
Fríðu Á. Sigurðardótt-
ur, viðbót við íslands-
söguna þar sem konur
fá sinn sess. Gunnlað-
ar saga eftir Svövu
Jakobsdóttur gerir á
sama hátt upp við goð-
sögnina um karla og
konur, mál málanna á
okkar tíð.
Þannig á skáldskapur-
inn að slá í takt við
hjarta samfélagsins
en breyta um leið
þeim hjartslætti. Hug-
myndin um hreinfag-
urfræðilegt listaverk
__________ óháð tíma og rúmi
sem saurgast ef það
kemst í snertingu við
mannlíflð og samfélagið er og var
aldrei neitt annað en bull.
Ármann Jakobsson
Vörugjöld - tilfinningar eða geðþótti
í kvöldfréttum sjónvarps á Stöð
1 sunnudaginn 9. febrúar var m.a.
rætt við framkvæmdastjóra Versl-
unarráðs íslands - alþingismann-
inn Vilhjálm Egilsson, sem einnig
er formaður efnahags- og við-
skiptanefndar Alþingis. Umræðan
var um vörugjöld og hugsanlegar
ástæður fyrir þvl að vörugjöld
væru mismunandi eftir vöruteg-
undum.
Flokkum allt
Af mikilli reynslu sinni sagði
Vilhjálmur orðrétt: „að það væri
nú þannig með þessi blessuðu
vörugjöld að þetta byggist nú oftar
á tilfinningum og geðþótta frekar
en á einhverjum útpældum efnis-
legum rökum"!
Fáir eða enginn
sem ég þekki hafa
farið aðra eins
kollsteypu í þess-
um vörugjalds-
málum en blessað-
ur framkvæmda-
stjóri Verslunar-
ráðsins og „kollegi
hans“ alþingis-
maðurinn og
nefndarformaður-
inn.
Mætti halda að
hér væri um tvo algjörlega að-
skilda aðila að ræða, því fram-
kvæmdastjóri Verslunarráðsins
hefur á öllum fundum ráðsins ver-
ið algjörlega á móti öllum vöru-
gjöldum og ávallt lýst þeirri skoð-
un sinni á þeim fundmn að þessi
vörugjöld verði einfaldlega að
hverfa og því fyrr, því betra.
En síðan bregður þessi sami
maður sér á fund hjá efnahags- og
viðskiptanefnd því þar stýrir hann
nefndinni sem formaður og þá
fara nú tilfumingamar og geðþótt-
inn að koma til skjalanna eins og
hann lýsti svo vel í viðtalinu. Þá
þarf að fara að taka tillit til ýmissa
annarra atriða eins og að komast
nú ekki upp á kant við formann
eða varaformann flokksins, að
maður nú ekki tali um embættis-
mannakerfið í ljármálaráðuneyt-
inu, sem öllu virðist ráða í skatt-
lagningu hér á landi, og virðist
gefa alþjóðasamningum langt nef
og ekkert fara eftir því sem þar
var skrifað undir.
Þá koma einnig fýrmefhdu til-
finningamar til skjalanna um það
hvort menn sitji nú á næsta þingi
ef ekki er farið að flokksaga eða
geðþótta þeirra sem virðast ráða
lögum og lofum innan flokksins.
Og þá er .nú bara betra að taka
geðþóttaákvörðun jafnvel þótt hún
sé þvert á fyrri yfirlýsingar og eig-
in sannfæringu. Flokknum aRt -
og allt frekar en að detta út úr
áhrifastöðum á þingi og í nefndum
- skítt með sannfæringuna og eið-
stafmn um að greiða aðeins at-
kvæði samkvæmt því sem sam-
viska og sannfæring
kalla á.
Hali er alltaf hali
í fyrrgreindu við-
tali kemur svo nefhd-
arformaðurinn og al-
þingismaðurinn inn á
rafmagns- heimilis-
tækin og nefnir þau
sem mjög vinsælan
skattstofn enda hefur
hann átt drjúgan þátt
í því að gera þau að
slíkum. í viðtalinu
segir nefhdarformað-
urinn: „Þetta er fyrst
og fremst að verða
skattur á fólk sem
ekki ferðast, því að
fólk sem ferðast það
getur keypt þessar
vömr í útlöndum - verslunin fær-
ist út úr landinu en eftir situr
skattlagning á fólkið sem ekki get-
ur farið neitt" Þvílíkt og annað
eins bull.
Nú þarf nefndarformaðurinn að
fá viðtal hjá framkvæmdastjóra
Verslunarráðsins, því sá aðili
vissi í þaö minnsta að það var
búið að fella niður svo til öll vöru-
gjöld af smærri tækjum, en eftir
sitja ofurgjöld á stærri heimilis-
tæki eins og þvottavélar, kælis-
kápa, sjónvörp o.s.frv. Að vísu
bætti nefndarformaðurinn líka
eldavélum inn í hóp skattlagðra
heimilistækja sl. sumar, en áður
höfðu eldunartæki verið undan-
þegin vörugjöldum. Framkvæmda-
stjórinn vissi þetta allt mjög vel og
getur vafalaust upplýst skattglaða
nefndarformanninn um að ferða-
menn komi yfirleitt ekki með
þessi stóru tæki í far-
angri sínum úr ferða-
lögmn til útlanda.
Skattglaða formann-
inum var að vísu
bent oftar en einu
sinni og oftar en
tvisvar sinnum á að
vörugjöld væru lögð á
brauðristar sem rista
brauðið lárétt, en
engar álögur væru á
brauðristar sem rista
brauðið lóðrétt, en
skítt með það - fjár-
málaráðuneytið hafði
tekið sínar geðþótta-
ákvarðanir og þeim
vildi nefndarformað-
urinn ekki breyta.
Hann vissi nefnilega
og veit enn hvenær
tilfinningar og hvenær geðþótta-
ákvarðanir eiga að ráða.
Það væri e.t.v. hollt að minna
skattglaða nefhdarformanninn á
sögu, sem ég held að sé heimfærð
upp á Abraham Lincoln, sem einu
sinni spurði einn af herforingjum
sínum hve marga fætur kýr hefði
ef halinn væri líka kallaður fótur.
Hershöfðinginn svaraði 5, en þá
svaraði Lincoln að þetta væri að
sjálfsögðu rangt - það væri sama
hvað halinn væri kallaður - hann
væri alltaf hali.
Það sama gildir nefnilega einnig
um vörugjöld, magngjöld, kílóa-
gjöld, lítragjöld o.s.frv. Það er
hægt að kalla þau hvað sem er, en
þau verða ekkert annað en tollar.
Vona að þeir nái saman fram-
kvæmdastjórinn og skattglaði
nefndarformaðurinn
Kristmann Magnússon
„Fjármálaráðuneytið hafði tekið
sínar geðþóttaákvarðanir og þeim
vildi formaðurinn ekki breyta.
Hann vissi nefnilega og veit enn
hvenær tiifínningar og hvenær
geðþóttaákvarðanir eiga að ráða.u
Kjallarinn
Kristmann
Magnússon
stjórnarform. PFAFF hf.
Með og
á móti
Meiri háttar íþróttavið-
burðir í opinni dagskrá
sjónvarps
Jóhannes Gunnars-
son, framkvœmda-
stjóri Noytenda-
samtakanna.
Eiga að
standa öll-
um til boða
„Neytendasamtökin á íslandi,
eins og neytendasamtök í öðrum
Evrópulöndum, hafa verið að
skoða þessi mál. Það er ljóst að
það er mjög
mikil óánægja
á meðal neyt-
enda þegar
ákveðnir stór-
viðburðir í
íþróttaheimin-
um eru sendir
út í læstri dag-
skrá og það er
engin tilviljun
að Evrópusam-
bandið íhugar
tilskipun á
þessu sviði. Við munum fyrst og
fremst fylgjast mjög grannt með
hvemig framkvæmd þessa verð-
ur í nágrannalöndum okkar
vegna þess að hvert land mun
hafa heimild til þess að fram-
kvæma þetta miðað við vinsæld-
ir einstakra íþróttagreina. Þegar
um er að ræða þjóðaríþrótt hjá
ákveðinni þjóð er það skoðun
okkar að meiri háttar viðburðir
þar eigi að standa öllum til boða
og þess vegna eigi að senda þá út
í opinni dagskrá. Það er alveg
ljóst að við erum ekki að tala um
galopna dagskrá hvað varðar
íþróttir. Við erum að tala um
helstu viðburði sem á dagskrá
eru.“
Tillagan
dæmd til
að falla
„Tillaga fyrir framkvæmda-
nefnd Evrópusambandsins á
langa leið fýrir höndum áður en
hún kemur til samþykktar og
framkvæmda.
Spyrja má
hvers vegna
íþróttahreyf-
ingin þarf að
sætta sig við
miðstýringar-
vald af þessu
tagi. Ef emb-
ættismanna-
nefndir eiga að
skera úr um
hvaða viðburð-
ir hafa slíka
sérstöðu að þeim beri að sjón-
varpa ókeypis til almennings
hvernig verður þá skorið úr
álitamálum? Hverjir skipa þær
nefndir? Verður það kannski
kontóristi í stjórnarráðinu sem
raðar leikjum á dagskrá RÚV í
beinni útsendingu og skikkar
sjónvarpið til greiðslna? Þessi til-
laga er á skjön við alla þróun í
framleiðslu og dreifmgu íþrótta-
efnis í heiminum í dag. Hún er
dæmd til að falla sökum þess að
hún tekur ekki mið af raunveru-
legum aðstæðum. Hvers vegna
ætti sá hluti skattborgara sem
hefur engan áhuga á knatt-
spyrnu, boxi, tennis eða íslenskri
glímu að niðurgreiða þá skemmt-
un fyrir hina sem hafa brenn-
andi áhuga á slíku efni?“ -ilk
Páll Baldvin Bald-
vlnason, fram-
kvaomdastjórl dag-
skrársvl&s íslenska
Útvarpsfélagslns.
Kjallarahöfundar
Athygli kjallarahöfunda er
vakin á því að ekki er tekiö við
greinum í blaöið nema þær ber-
ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu-
diski eða á netinu.
Netfang ritstjómar er:
dvritst@centrum.is