Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1997, Síða 18
26
FIMMTUDAGUR 13. FEBRUAR 1997
íþróttir
NBA í nótt:
Góður sigur
hjá Lakers
þrátt fyrir
meiðsli Shaqs
Flest úrslitin í NBA-deildinni í
nótt voru eftir bókinni. LA Lakers
gerði góða ferð til Minnesota og
varð þar fyrir blóðtöku. Shaquille
O’Neal meiddist og verður frá
keppni í tíu daga.
Úrslit leikjanna í nótt:
Charlotte-New Jersey .......113-100
Atlanta-Toronto .............106-84
Detroit-Orlando ..............96-87
Minnesota-LA Lakers..........84-100
Indiana-Cleveland ............75-83
, San Antonio-Vancouver ........101-106
Phoenix-Boston..............131-100
Shaq varö að yfírgefa völlinn strax í
fyrsta leikhluta vegna hnjámeiðsla. Hnéð
hefur verið að angra hann í vetur og hef-
ur hann af þeim sökum misst úr tvo leiki
í deildinni og svo stjömuleikinn um síð-
ustu helgi.
Shaq var búinn að skora 12 stig þegar
meiðslin tóku sig upp. Elden Campbell
leysti hann af hólmi.
„Ég var hræddur um að brotthvarf Shaq
myndi slá okkur út af laginu en til þess
kom ekki sem betur fer. Strákamir
.A sýndu styrk sinn og mátt,“ sagðu Del
Harris, þjálfari Lakers, í nótt. Eddie Jo-
nes skoraði 19 stig fyrir Lakers í leikn-
um. Kevin Gamett skoraði 17 stig fyrir
Minnesota.
Glen Rice lék manna best þegar
Charlotte lagði New Jersey. Þessi sterki
leikmaður skoraði 27 stig og Anthony
Mason gerði 21 stig. Vlade Divac var
einnig í stuði með sín 18 stig og blokkaöi
12 skot sem er met innan Homets.
Kendall Gill skoraði 26 stig fyrir Nets.
Atlanta var miklu betra gegn Toronto og
vann sinn 20. sigur í röð á heimavelli.
Dikembe Mutombo skoraði 22 stig og tók
11 fráköst. Mookie Blaylock gerði 19 stig
og var með 11 stoðsendingar.
Grant Hill náði sinni þriðju þrennu á
tímabilinu gegn Orlando, skoraði 31 stig,
10 fráköst og 10 stoðsendingar. Nick And-
erson var stigahæstur hjá Orlando með
20 stig og Horace Grant gerði 17 stig og
tók átta fráköst.
Cleveland vann góðan sigur á Nuggets í
Indianapolis. Terrell Brandon fór fyrir
liði Cleveland með 22 stig og 12 fráköst
sem er persónulegt met hjá kappanum.
Reggie Miller skoraði 22 stig fyrir Indi-
ana.
Phoenix Suns lék Boston-liðið sundur og
saman i nótt. Wesley Person skoraði 33
stig fyrir Suns en aldrei áður hefur hann
skora jafhmikiö í einum leik.
Kevin Johnson lék einnig vel og náði
þrennu í leiknum en alls voru stigin sem
hann skoraði 22 að tölu. Antoine Walker
skoraði 29 stig fyrir Boston en útkoma
liösins á útivöllum i vetur er afleit.
Vancouver skellti San Antonio á útivelli.
Abdur-Rahim skoraði 19 stig fyrir
Vancouver. Vemon Maxwell skoraði 19
stig fyrir San Antonio.
-JKS
Greg Anthony hjá Vancouver, sá grænklæddi, lék skínandi vel fyrir
lið sitt gegn San Antonio í nótt. Vancouver gerði sér lítið fyrir og
sigraði og gerði Anthony 24 stig í leiknum. Súnamynd-Reuter
Von Griinigen meistari
- Kristinn og Tomba féllu í fyrri ferðinni
Michael Von Griinigen frá Sviss varð i gær heimsmeistari í stórsvigi
karla i Sestriere á Ítalíu. Lasse Kjus frá Noregi varð annar og hlaut sitt
þriðja silfur á móinu og Andreas Schifferer frá Austurríki varð þriðji.
Þetta er fyrsti HM-titill Svisslendinga í stórsviginu í tíu ár.
Kristinn Björnsson var á meðal keppenda en féO i fyrri ferð og var þar
með úr leik. Hann fékk góðan félagsskap því hinn eini og sanni Alberto
Tomba frá Ítalíu hlaut sömu örlög. -VS
Júlíus Hafstein:
Öll gögn hjá
Ólympíunefnd
Að gefnu tOefni og til að forða
frekari deOum vegna brotthvarfs
' míns frá Ólympíunefnd íslands
vO ég taka fram að öO gögn, sem
ég hafði undir höndum og tengd-
ust undirbúningi Smáþjóðaleik-
anna, eru til staðar á skrifstofu
Ólympíunefndar. Hér er um að
ræða bréf, samninga og annað
tilheyrandi. Jafhframt hef ég
skrifað Ólympíunefnd íslands
bréf þar sem ég lista upp öO þau
fyrirtæki, stofnanir svo og nöfn
einstaklinga í viðkomandi fyrir-
tækjum og stofnunum sem ég hef
verið í viðræðum við um stuðn-
ing eða samstarf vegna smá-
þjóðaleikanna. Hvað varðar min
persónulegu sambönd við aðOa
þar sem QaOað hefur verið um
t ýmsar hugmyndir varðandi leik-
ana og eru tveggja manna samtöl
get ég ekki gefið um sérstakar
skýrslu. Undirbúningur vegna
smáþjóðaleikanna var vel á veg
kominn og auðvitað mun mín
vinna nýtast við leikana þó að
aðrir uppskeri að leikslokum.
Þeir sem við tóku verða að afla
þess fjár sem á vantar. Þeir gátu
engan veginn reiknað með því
að ég myndi starfa áfram að und-
irbúningi leikanna eins og brott-
hvarfi mínu var háttað úr
Ólympíunefndinni.
v Júlíus Hafstein
ívar hljóp vel í LasVegas
ívar Jósafatsson, Ármanni,
stórbætti árangur sinn í hálf-
maraþoni í Las Vegas nýverið.
Hann hljóp á 1:11,49 klst. en átti
best áður 1:15,26 klst. ívar hóf að
æfa hlaup fyrir alvöru fyrir að-
*» eins þremur árum.
-JKS
Tölulegar staðreyndir úr NBA:
Michael Jordan í
algjörum sérflokki
- er langstigahæstur í deildinni
Michael Jordan á engan sinn fíka,
hvaö sem sföar veröur.
Michael Jordan hjá Chicago
BuOs er langstigahæstur leik-
manna í NBA-deOdinni. Jordan
hefur skorað 1519 stig í 49 leikjum
sem segir að hann er að skora um
30 stig að meðaltali í leik. Það er
ekki ónýtt fyrir Chicago að hafa
slíkan leikmann innan sinna raða.
Hátt i þrjú hundruð stig er í
næsta mann en það er Karl Malone
hjá Utah Jazz. Malone hefur skor-
að 1274 stig í 48 leikjum sem er um
26 stig að meðaltali í leik.
ShaquiBe O’Neal, LA Lakers, er í
þriðja sæti með 1177 stig í 45 leikj-
um. Mitch Richmond, Sacramento,
er í fjórða sæti meö 1291 stig í 50
leikjum og LatreO SpreweO,
Golden State, er siðan í fimmta
sætinu með 1182 stig í 48 leikjum.
Dennis Rodman er harðastur í
fráköstunum. Hann hefur til þessa
tekið 592 slík sem eru 16 fráköst i
leik að meðaltali. Jayson WiOiams,
New Jersey, hefúr tekið 504 i 34
leikjum og í þriðja sætinu kemur
Charles Barkley, Houston, með aOs
506 í 35 leikjum.
Þeir Barkley og Rodman hafa
verið mikið frá vegna leikbanna og
meiðsla en eru mest á meðal efstu
manna.
Bradley blokkar mest
Shawn Bradley, New Jersey, hef-
ur blokkað 150 fráköst í 46 leikjum.
Dikembe Mutombo, Atlanta, hefur
hirt 156 í 45 leikjum og ShaquiOe
O’Neal, LA Lakers, er I þriðja sæt-
inu með 140 fráköst í 45 leikjum.
-JKS
Áfram hjá Liverpool
Steve McManaman lýsti þvi
yfir í viðtali í vikunni að hann
ætli að enda ferOinn hjá Liver-
pool. Lið frá Spáni, Ítalíu og
Þýskalandi hafa verið á höttun-
um eftir þessum snjaOi leik-
manni.
„Ég hef ekki áhuga á að leika
utan Englands. Ég ætla að leika
eins lengi og ég get með Liver-
pool. Mér líður vel þar. Ég er
heimamaður og elska félagið
mitt. Leikskipulagið hjá Liver-
pool hentar mér vel og fótboltinn
á Englandi er í stöðugri sókn,“
sagði McManaman.
Skipti á leikmönnum
Svo kann að fara að Manchest-
er City og Nottingham Forest
skipti á leikmönnum á næstu
dögum.
Frank Clark, hinn nýráðni
stjóri hjá City sem áður var hjá
Nottingham Forest, viO ólmur fá
Chris Bart WiOiams og vara-
markvörðinn Tommy Wright og
í staöinn myndi Nottingham
Forest fá Nigel Clough. Þar með
væri Clough kominn á æsku-
stöðvar sínar aftur.
Blaðið The Sun segir að Stuart
Pearce, stjóri Forest, hcdi sam-
þykkt þessi leikmannaskipti.
Öll vilja þau Thern
Sænski landsliðsmaðurinn
Jonas Them er vinsæO hjá
nokkram félögum en kappinn
leikur með ítalska liðinu Roma.
Hann hefur leikið vel í vetur
með liðinu og kemur áhugi liða
ekki á óvart.
Walter Smith hefur lengi hrif-
ist af Them og er nú svo komið
að hann hefur boöið um 300
miOjónir í kappann.
Thern hefur lýst yfir að hann
myndi skoða það gaumgæfilega
ef tfiboð bærist í hann. Benfica í
Portúgal og Fiorentina hugsa
einnig gott tO glóðarinnar
Knattspyrna:
Afmælismót
Fylkis haldið
í Reiðhöllinni
Fylkismenn standa fyrir af-
mælismóti um helgina í Reið-
höOinni í Víðidal en í ár era 30
ár frá stofhun félagsins. Átta lið
taka þátt í mótinu og er þeim
skipt í tvo riðla.
í A-riðli leika Þróttur, Fylkir,
KR og Reynir frá Sandgerði. í
B-riðli leika ÍA, Valur, Leiftur
og Leiknir, R. Mótið verður sett
á laugardagsmorguninn klukkan
10.20 en fyrsti leikurinn verður
flautaður á tíu mínútum síðar.
Riðlakeppninni lýkur um 15.30
og tekur þá við úrslitakeppni og
er áætlað að mótinu ljúki um
klukkan 18.30. -JKS
Auknar líkur að
Birkir verði með?
Norska blaðið Dagbladet gaf í
skyn í gær að nú væri meiri von
til þess en áður að Birkir Krist-
insson og Jan Ove Pedersen
fengju að spOa með Brann gegn
Liverpool i Evrópukeppni bikar-
hafa í knattspymu í næsta mán-
uði.
Stjórnarmenn Brann eru
staddir í Genf þar sem þeir ræða
viö forystumenn UEFA, Knatt-
spymusambands Evrópu. Tals-
maður UEFA, Thomas Kurth,
neitaði að segja af eða á við Dag-
bladet en blaðið segist hafa
heimOdir fyrir því að Brann-
menn hafi átt mjög jákvæðar
viðræður við Kurth sem sé lykO-
maður í málinu. Það verði tekið
fyrir hjá UEFA í næstu viku.
Eins og DV hefur áður sagt frá
vora Birkir og Pedersen ekki
skráðir leikmenn Brann þann
15. janúar og era samkvæmt því
ólöglegir í Evrópukeppni. -VS
Leutershausen
eitt á toppnum
Jason Ólafsson og félagar í
Leutershausen náðu í gærkvöldi
2ja stiga forystu í suðurriðli
þýsku 2. deOdarinnar í hand-
bolta með útisigri á Wiesbaden,
26-27. Leutershausen er með 38
stig en næstu tvö lið era með 36.
Kiel vann Magdeburg, 29-21, í
úrvalsdeOdinni í gærkvöldi og
komst með því í fjórða sætið.
Bad Schwartau vann Alten-
holz, 25-19, í norðurriðli 2. deOd-
ar og náði þriggja stiga forskoti
á íslendingaliðið Wuppertal sem
á leik tO góða. -VS
Kinkladze eftirsóttur
Leeds United hefur bæst í hóp
þeirra liða sem lýst hafa yfir
miklum áhuga á Georgíumann-
inn Kinkladze hjá Manchester
City. Newcastle, Arsenal og
Manchester United hafa lengi
haft þennan snjaOa leikmann
undir smásjánni. Ekki er víst að
City geti öBu lengur haldið hon-
um en hann er félaginu mjög
dýr.
Del Piero næstur?
Fjölmiðlar á Englandi segjast
hafa heimOdir fyrir því að
Arsenal sé búið að vera í
nokkurn tíma á eftir Alessandro
Del Piero hjá Juventus. Þeir
ganga svo langt að segja að
Arsenal hafi boðið Juventus tíu
mOljónir punda. Del Piero er
með samning við Juve tO alda-
móta. -JKS
Enskir sigruðu
England vann Ítalíu, 1-0, í
Evrópukeppni 21-árs landsliða í
knattspymu í Bristol í gærkvöld.
Darren Eadie frá Norwich skor-
aði sigurmarkið.
-VS