Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1997, Qupperneq 24
32
+'
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997
Sviðsljós
Dóttir Paulu
með hrollvekj-
andi bamahúfu
Þeim brá í brún sem sáu húf-
una á sex mánaða gamalli dóttur
Paulu Yates er mæðgumar voru
í búðarferð í London. Á húfunni
var hauskúpa og þótti ýmsvun
mynstrið ekki hæfa ungbami.
Þetta er svo sem ekki í fyrsta
sinn sem dóttirin, Heavenly
Hiraani Tiger Lily, ber undarleg
höfuöföt. Flestir giska á að það
sé smekkur móðurinnar sem
ráöi þegar um klæðnað bamsins
er að ræða.
Fergie gætir þess að
Andrés haldi í við sig
Andrés prins og hertogi af Jórvík
náði af sér 10 kílóum á tveimur vik-
um. Slúðurblöðin fullyrða að það
hafi verið fyrrverandi eiginkona
hans, Fergie, sem hafi skipað Andr-
ési að fara í strangan megmnarkúr.
Hann á ekki að hafa fengið annað
en sveskjur í morgunmat, hráar
gulrætur í hádegismat og súpudisk
í kvöldmat. Það urðu ekki nema 600
kaloríur samtals yfir daginn. Haldi
prinsinn áfram verður hann orðinn
tággrannur á 37. afmælisdaginn
sinn 19. febrúar.
Andrés verður þar með góð aug-
lýsing fyrir hið nýja starf fyrrver-
andi eiginkonunnar en hún er tals-
maður alþjóðlegra samtaka, The
Weight Watchers, sem berjast við
aukakílóin.
Samtökin greiða hertogaynjunni
1,5 milljónir dollara fyrir að koma
fram fyrir þeirra hönd eða um 105
milijónir íslenskra króna. Og það er
óhætt að nota Fergie sem kynn-
ingaraðila því að hún hefúr sjálf
náð frábærum árangri í baráttunni
við aukakílóin. Hún er ekki nema
65 kíló en var, þegar hún tók sér
tak, orðin 92 kiló. Bresku slúður-
blöðin létu hana ekki friði og gerðu
Fergie og Andrés hafa náfi af sér tugum kílóa samtals.
sér að leik að birta myndir þar sem
spikið sást sem best.
En það eru ekki bara Andrés sem
Fergie hefúr eftirlit með þessa dag-
ana, ef marka má fféttir erlendis
frá. Dætur þeirra, Beatrice og Eu-
genie, fá heilsufæði. Sælgæti og kók
er komið á bannlista.
Eldabuskan, Denis Lewthwaite,
er sögð hafa sagt upp starfi sínu.
Hún er fimmta eldabuskan sem yfir-
gefúr Fergie. Þeim þykir ekki nógu
spennandi að gera lítið annað en að
skera niður grænmeti í salat og
rista brauð.
Jafnvel þó að Andrés sakni þess
stundum að fá ekki að borða ham-
borgara, kæfu og ffanskar kartöflur
er hann sagður ánægður með að
hafa losnað við öll aukakílóin. En
Bretar eru sagðir hafa áhyggjur yfir
því hvað hann grennist mikið. Mað-
ur, sem er jafnstór og prinsinn, þarf
2.500 kaloríur á dag og minnst 1.600
ef megrunin á að vera heilsusamleg,
að því er þeir fullyrða. Því er spáð
að hann komi til með að skófla í sig
mat þegar Fergie sleppir af honum
beislinu og þyngist og léttist til
skiptis, nákvæmlega eins og eigin-
konan fyrrverandi.
Fyrirsætan Tyra Banks var kynnir er Espy-verðlaunin voru afhent í New York
i vikunni. Verfilaunin eru veitt afreksmönnum í íþróttum. Sfmamynd Reuter
Peter Andre
á leið til #
Hollywood
Söngvarinn Peter Andre stendur
nú í samningaviðræðum við kvik-
myndafyrirtæki i Hollywood og er ,
að sögn búinn að fá tvö tilboö. Ann-
að er hlutverk í hasarmynd með
Tommy Cruise. Hin myndin er um
pilt úr fátækrahverfi sem dreymir
um að verða frægur. Peter er enn
ekki búinn að ákveða sig hvort
hlutverkið hann velur.