Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1997, Qupperneq 26
34
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997
Afmæli_____________________
Sigurgeir ísaksson
Sigurgeir ísaksson, bóndi og versl-
unarstjóri í Ásbyrgi í Kelduhverfi, er
sextugur í dag.
Starfsferill
Sigurgeir fæddist á Hóli í Keldu-
hverfí en flutti sjö ára að Undirvegg
í sömu sveit. Hann lauk búíræðiprófi
frá Bændaskólanum á Hvanneyri
1956.
Er Sigurgeir kvæntist hófu þau
hjónin fyrst búskap að Undirvegg.
Þau fluttu síðan í Ásbyrgi 1961 og
hafa rekið þar bú siðan. Þó hætti Sig-
urgeir búskap fyrir ári.
Sigurgeir var eftirlitsmaöur með
eignum og tjaldstæðum Skógræktar
ríkisins í Ásbyrgi þar til Náttúru-
vemdarráð tók við rekstri tjaldstæð-
isins 1975. Þá starfræktu þau hjónin
bensínafgreiðslu og sölutum í Ás-
byrgi á árunum 1966-74 er Kaupfélag
Norður-Þingeyinga byggði útibú í Ás-
byrgi. Sigurgeir var útibússtjóri
kaupfélagsins þar 1974-90 en hefur
síðan rekið sjálfur verslunina í Ás-
byrgi ásamt syni sínum.
Sigurgeir var um langt árabil for-
maður Skógræktar Norður-Þingey-
inga, sat lengi í sýslunefhd og á nú
sem oftar sæti í hreppsnefnd Keldu-
neshrepps. Hann hefur
setið i stjóm Búnaðarfé-
lags Keldhverfinga, í
stjórn Ungmennafélagsins
Leifs heppna, gegnir nú
formennsku í Hesta-
mannafélaginu Feyki og
hefur setið í fjölda nefiida,
m.a. á sviði ferðamála.
Fjölskylda
Sigurgeir kvæntist
26.10. 1958 Sveininnu
Jónsdóttur, f. 7.5. 1937,
húsfreyju. Hún er dóttir Jóns Árna-
sonar, og k.h., Kristjönu Þorsteins-
dóttur, bókakaupmanna á Melum á
Kópaskeri, auk þess sem Jón er
starfsmaður Kaupfélags Norður-
Þingeyinga.
Böm Sigurgeirs og Sveininnu era
Jón Skúli Sigurgeirsson, f. 2.7. 1958,
sjómaður á Húsavík, og á hann einn
son með Elísabetu B. Bjömsdóttm-
auk þess sem hún á son sem er upp-
eldissonur Jóns Skúla; Ævar ísak
Sigurgeirsson, f. 22.8. 1961, verslun-
armaður í Reykjavík; Kristjana Sig-
urgeirsdóttir, f. 4.9.1965, búsett á Ak-
ureyri, gift Vésteini Aðalgeirssyni
sjómanni og eiga þau tvo syni; Sævar
Sigurgeirsson, f. 27.7.1969,
verslunarmaður í Reykja-
vik, i sambúð með Her-
borgu Eðvaldsdóttur og
eiga þau einn son.
Hálfbróðir Sigurgeirs,
sammæðra, er Sigvaldi
Gunnarsson, f. 5.1. 1928,
starfsmaður Fiskiðjusam-
lags Húsavíkur.
Alsystkini Sigurgeirs eru
Haflgrímur ísaksson, f.
25.2. 1935, d. í ágúst 1935;
Tryggvi ísaksson, f. 5.9.
1938, bóndi á Hóli í Keldu-
hverfi; Sigurbjörg Isaksdóttir, f. 8.10.
1940, nuddari i Reykjavík; Kristrún
ísaksdóttir, f. 3.9. 1946, deildarsér-
fræðingur í menntamálaráðuneyt-
inu.
Foreldrar Sigurgeirs em ísak Sig-
urgeirsson, f. 9.5.1910, fyrrv. bóndi á
Hóli og Undirvegg en á Húsavík frá
1983, og k.h., Klara Tryggvadóttir, f.
7.2.1908, húsfreyja.
Ætt
ísak er sonur Sigurgeirs einhenta,
b. á Hóli, bróður Sigurbjargar, ömmu
Stefáns Jónssonar, alþm. og rithöf-
undar. Önnur systir Sigurgeirs var
Helga, amma Thors Vilhjálmssonar
rithöfundar, foður Guðmundar
Andra Thorssonar rithöfundar. Sig-
urgeir var sonur ísaks, b. á Auð-
bjargarstöðum í Kelduhverfi, Sig-
urðssonar, b. í Brekkukoti, Guð-
brandssonar, b. á Sultum, Pálssonar,
bróður Þórarins, afa Ólafar,
langömmu Guðmundar Benedikts-
sonar, fyrrv. ráðuneytisstjóra, og
Bjama Benediktssonar forsætisráð-
herra, fóður Bjöms menntamálaráð-
herra. Systir Guðbrands var Ingunn,
langamma Sveins, forfóður Hall-
bjamarstaðaættarinnar, afa Krist-
jáns Fjallaskálds.
Klara er systir Helga, bókbindara
á Vopnafirði, afa Heimis Sindrason-
ar, tannlæknis og tónskálds. Klara er
dóttir Tryggva, frá Hauksstöðum i
Vopnafirði, Helgasonar, b. í Steindyr-
um, Guðlaugssonar.
Móðir Klöra var Kristrún Sig-
valdadóttir, b. á Mánárseli á Tjör-
nesi, Sigurðssonar, og Guðrúnar frá
Mánárseli Pétursdóttur.
Sigurgeir og Sveininna taka á móti
gestum i félagsheimilinu Skúlagarði,
laugardaginn 15.2. eftir kl. 18.00.
Sigurgeir ísaksson.
Aðalsteinn ísfjörð Sigurpálsson
Aðalsteinn ísfjörð Sigurpálsson
verktaki, Baughóli 19, Húsavík, er
fimmtugur í dag.
Starfsferill
Aðalsteinn fæddist á Húsavík og
ólst þar upp. Hann lærði múrverk,
lauk sveinsprófi á Húsavík og öðlað-
ist meistararéttindi 1978.
Aðalsteinn stundaði múrverk til
1979, kenndi við Tónlistarskóla
Húsavíkur 1979-83 en hefur síðan
unnið við steypusögun, kjamabor-
un og múrverk.
Aðalsteinn hefur spilað í dans-
hljómsveitum á Húsavík frá 1965,
spilaði í Lúðrasveit Húsavíkur
1961-69, er stofnandi
Harmoníkufélags Þingey-
inga 1978 og formaður
þess 1987-89. Þá hefur
hann spilað á harmoníku
við ýmis tækifæri um allt
land.
Fjölskylda
Eiginkona Aðalsteins er
Unnur Sigfúsdóttir, f. 22.3.
1948, aðstoðarmaður
sjúkraþjálfara. Hún er
dóttir Sigfúsar Þórs Bald-
vinssonar, fyrrv. bónda á
Sandhólum á Tjömesi, nú á Húsa-
vík, og Kristbjargar Haraldsdóttur,
Aðalsteinn ísfjörð
Sigurpálsson.
húsmóðm- í Reykjavík.
Börn Aðalsteins og Unn
ar: óskírt stúlkuham,
2.2. 1968, d. 5.2. 1968; Sig
urpáll Þór Aðalsteins
son, f. 8.11. 1970, híl
stjóri, var í sambúð með
Ernu Hauksdóttur og
eiga þau eina dóttur,
Brynju Dögg, f. 28.10
1993; Linda Rós Aðal
steinsdóttir, f. 31.3. 1973,
í sambúð með Magnúsi
Georg Hrafnssyni og
eiga þau eina dóttur,
Tönju Mjöll, f. 26.2. 1995
andvana stúlkubam, f. 8.12. 1982;
Ása Bima Aðalsteinsdóttir, f. 21.2.
1984.
Systkini Aðalsteins era Ólafur V.
Sigurpálsson, f. 24.3.1943, bllstjóri á
Húsavík; Gylfi Þór Sigurpálsson, f.
18.8. 1951, verslunarmaður í Kópa-
vogi; Ámi Amar Sigurpálsson, f.
28.2. 1955, bilasali í Reykjavík;
Hólmfríður Ása Sigurpálsdóttir, f.
17.7. 1958, húsmóðir í Vestmanna-
eyjmn; Símon Sigurpálsson, f. 4.1.
1961, verslunarmaður í Reykjavík.
Foreldrar Aðalsteins: Sigurpáll
ísfjörð Aðalsteinsson, f. 6.4. 1922,
múrarameistari og klæðskerameist-
ari á Húsavík, nú í Kópavogi, og
Anna Hulda Símonardóttir, f. 17.8.
1923, d. 10.8.1984, saumakona.
Ilse W. Árnason
Ilse Wallman Ámason, húsfreyja
að Oddgeirshólum II, Hraungerðis-
hreppi, er sjötiu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Ilse fæddist í Travemunde í
Þýskalandi og ólst þar upp. Hún
stundaði þar bamaskólanám og tók
sjúkraliðapróf 1941 og starfaði við
þaö til 1946.
Ilse kom til íslands 1949 og hóf þá
störf að Oddgeirshólum. Eftir að
hún gifti sig hefur hún verið hús-
freyja á Oddgeirshólum II. Auk þess
hefur hún unnið í sláturhúsi á Sel-
fossi, við fiskvinnslu í Þorlákshöfn
og á Stokkseyri og starfað
við heimilshjálp.
Ilse sat í stjóm Þýsk-is-
lenska vinafélagsins í
tuttugu ár.
Fjölskylda
Ilse giftist 26.11. 1949
Guðmundi Ámasyni, f.
27.8. 1916, bónda á Odd-
geirshólum H. Hann er
sonur Árna Árnasonar,
bónda þar, og k.h., Elínar
Briem húsfreyju.
Börn Hse og Guðmmid-
ar era Angilika Guðmundsdóttir,
llse Wallman
Árnason.
húsmóðir í Reykjavik,
gift Ásgeiri Gunnarssyni
og eiga þau fjögur böm,
Guðlaugu Elsu sem er
gift Jóhannesi Kjartans-
syni og eiga þau tvö
börn, Fjólu Kristínu,
Gunni Guðnýju og Hflyn
Þór; Ámi Oddgeir Guð-
mundsson, byggingar-
meistari á Selfossi,
kvæntur Guðrúnu Guð-
mundsdóttur og eignuð-
ust þau þrjú böm, Guð-
mund sem fórst af slys-
foram, Jóhann og Ámýju
Hse; Magnús Guðmann, búfræðing-
ur og bóndi að Oddgeirshólum H,
kvæntur Margréti Einarsdóttur og
eiga þau fjögur böm, Hörpu, Bryn-
hildi, Elínu og Einar; Steinþór, bif-
vélavirki og bóndi á Oddgeirshólum
U, kvæntur Þuríði Einarsdóttur og
eiga þau þrjú höm, Söndra, Áma
Stein og Kristrúnu.
Foreldrar Hse vora Otto
Wallman, skipstjóri í Travemunde,
og k.h., Elsa Waflman, f. Rúvóld,
matreiðslumeistari.
Ilse og Guðmundur verða að
heiman á afmælisdaginn.
og greiöslukortaafsláttur a\\t mil// him/nx
og stighœkkandi
birtingarafsláttur
Smáauglýsingar
550 5000
DV
Til hamingju
með afmælið
13. febrúar
95 ára
Sæbjörg K. Beck,
Sunnugerði 7, Reyðarfirði.
75 ára
Gunnar Guðmundsson,
Lindarbrekku 1, Djúpavogi.
Guðrún Jóhannesdóttir,
Ljósheimum 2, Reykjavík.
Helgi Eiríksson,
Grænuhlíð 7, Reykjavík.
70 ára
Agnar Guðnason,
Byggðarenda 2, Reykjavík.
Inga Guðbrandsdóttir,
Lindargötu 61, Reykjavík.
Jón S. HaUdórsson,
Skarðshlíð 27A, Akureyri.
Kristbjörg J. Björgólfsdóttir,
Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði.
60 ára
Þórir Hans Ottósson,
bifreiðastjóri,
Ármúla 32, Reykjavík.
Hann dvelur á Hótel íslandi á af-
mælisdaginn.
50 ára
Þórdis Richter,
Grenibyggð 6, Mosfellsbæ.
Bjami Jónsson,
Stekkjarhvammi 54, Hafnarfirði.
Einar Matthíasson,
byggingarfræðingur,
Unnarstíg 2, Reykjavík.
Guðrún Ástdís Ólafsdóttir,
Freyjugötu 1, Reykjavík.
40 ára
Guðrún Ólafsdóttir,
Ásbrún Vin, Andakílshreppi.
Þóra Gylfadóttir,
Grenimel 49, Reykjavik.
Kristinn Már Þorsteinsson,
Huldubraut 34, Kópavogi.
Jón Þór Högnason,
Kambaseli 31, Reykjavík.
Kristin Högnadóttir,
Veghúsum 21, Reykjavík.
PáU Heimir Einarsson,
Laugamesvegi 42, Reykjavík.
Baldvina Sigrún Sverrisdótt-
ir,
Stuðlabergi 78, Hafnarfirði.
Rafh Gislason,
húsasmiður,
Meistaravöllum 5, Reykjavík.
Þorsteinn Pétursson,
Lindasmára 30, Kópavogi.
Kristbjörg Traustadóttir,
Tjamargötu 16, Reykjavík.
Hjálmar Kristinsson,
Hólsgötu 6, Neskaupstað.
Þóra Björg Jónsdóttir,
Hólavegi 17, Siglufirði.
Jóhannes Þormar,
Víðihvammi 1, Hafnarfirði.
Dagný Ósk Guðmundsdóttir,
GrænuhUð, Torfalækjarhreppi.
Anna Jónína Sigurbergsdótt-
ir,
Móabarði 14, Hafnarfirði.
Sigriður Kristin Bjamadóttir,
Grænumýri 9, Akureyri.
Atli Rúnar Aðalsteinsson,
Bleiksárhlíð 22, Eskifirði.
Jón Þorvaldur Bjamason,
Ljósalandi 24, Reykjavík.