Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1997, Side 28
;<q
36
FIMMTUDAGUR 13. FEBRUAR 1997
m&o
nn
Blóðið á
hreyfingu
„Ef þessar yfirlýsingar
kveikja ekki upp í fólki og koma
blóðinu á hreyfingu þá er bara
hætt að renna blóðið í æðum
þessarar þjóðar.“
Ögmundur Jónasson, form.
BSRB, um viðbrögð VSÍ við
hækkunum til seölabanka-
stjóra, i DV.
Tímaskekkja
„Ég man ekki eftir því að
hækkanir til þeirra hærri hafi
ekki verið taldar tímaskekkja."
Steingrímur Hermannsson seðla-
bankastjóri, í Degi-Timanum.
Dragbíturinn
„Það er ríkisstjórn Davíðs
Oddssonar sem er helsti dragbít-
ur á skynsamlega kjarasamn-
inga sem ættu að tryggja vax-
andi kaupmátt launþega."
Jón Baldvin Hannibalsson al-
þingismaður, í Alþýðublaðinu.
Ummæli
Bíða þess að við
misstígum okkur
„Þau bíða þess að við misstíg-
um okkur. Þegar það gerist er
grátkórinn settur í gang.“
Ásbjörn Björgvinsson um við-
brögð umhverfissamtaka ef við
byrjum aftur hvalveiðar, í DV.
Ekkert annað en öfund
„Menn blása okkur upp bara
af eintómri öfund og engu öðru.
Við erum orðnir hundsvekktir á
allri þessari umræðu í kringum
okkur."
Þorsteinn Þorvaldsson, for-
maður Leifturs á Ólafsfirði, í
Degi- Tímanum.
Óhemjumikið er framleitt af bjór
og hann er einhver vinsælasti
drykkur í heimi.
Bjór- og áfengis-
framleiðsla
Áfengi í ýmsu formi hefur
fylgt manninum í gegnum ald-
imar. Elsta ölgerð veraldar er
Weihenstephan-ölgerðin í Freis-
ing, nærri Miinchen, og var hún
stofnuð árið 1040. Stærsta starf-
andi ölgerð veraldar er
Anheuser-Busch, Inc., sem er
með höfuðstöðvar í St. Louis í
Bandaríkjunum. Fyrirtækið á
tólf bmgghús víðs vegar um
Bandaríkin og selur yfir 10.000
milljón lítra af öli á ári. Ölgerð-
in i St. Louis þekur rúmlega 40
hektara svæði. Þar er þó ekki
stærsta bmgghús í heimi heldur
er það í eigu Adolph Coors Co. í
Golden í Colorado.
Blessuð veröldin
Stærsti áfengis-
framleiðandinn
Stærsti áfengisframleiðandi
heims er Seagram Company Ltd.
í Kanada. Sala þess nemur um 6
milljörðum dollara á ári. Hjá fyr-
irtækinu starfa um 13.000
manns. Stærsta verksmiðjan þar
sem skoskt viskí er framleitt er
Shieldhall-verksmiðjan i Glas-
gow. Þar er hægt að tappa
skosku viskíi á 144 milljón flösk-
ur á ári. Söluhæsta gintegundin
í heiminum er Gordonsgin.
Slydda eða rigning
Um 350 km suður af Reykjanesi
er nokkuð kröpp 970 mb lægð sem
þokast í bili norðvestur. Norðaustur
af Jan Mayen er 1015 mb hæð.
Veðrið í dag
í dag verður austan- og suðaust-
ankaldi eða stinningskaldi. Slydda
við austurströndina og slydda eða
rigning við suður- og suðaustur-
ströndina, en annars víðast þurrt,
þó víða skafrenningur suðvestan- og
vestanlands. Heldur hlýnandi.
Á höfuðborgarsvæðinu er austan-
kaldi og skýjað, dálítill skafrenning-
ur og slydduél í kvöld og nótt. Hiti 1
til 2 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 17.56
Sólarupprás á morgun: 09.26
Síðdegisflóð í Reykjavík: 23.12
Árdegisflóð á morgun: 11.42
Veöriö kl. 6 í morgun:
Akureyri skýjaö -6
Akurnes slydda 1
Bergstaðir heiöskirt -7
Bolungarvík
Egilsstaóir snjók. á síð.kls. 1
Keflavíkurflugv. skafrenningur -0
Kirkjubkl. skýjaö 1
Raufarhöfn slydduél 1
Reykjavík skýjaö 1
Stórhöföi slydduél 2
Helsinki snjókoma -5
Kaupmannah. rign. á síö.kls. 6
Ósló skýjaö -5
Stokkhólmur
Þórshöfn alskýjaö 5
Amsterdam léttskýjaö 7
Barcelona heiöskirt 11
Chicago léttskýjaó -8
Frankfurt skúr á síö.kls. 9
Glasgow skúr á síö.kls. 5
Hamborg rigning 9
London skúr á síö.kls. 6
Lúxemborg skúr 7
Malaga heiöskírt 13
Mallorca skýjaö 10
Miami
París 8
Róm þokumóöa 12
New York hálfskýjaö 1
Orlando skýjaö 16
Nuuk alskýjað -11
Vín skýjaó 8
Winnipeg snjókoma -17
Einar Karl Hjartarson hástökkvari:
Það hefur aldrei verið nein
alvara í þessu fyrr en í vetur
DV, Akuieyri:
„Ég byrjaöi að keppa í hástökki
þegar ég var níu ára, en ég hef
aldrei æft hástökk af neinni al-
vöru fyrr en nú í vetur eftir að ég
fór í Menntaskólann á Akureyri
og Jón Sævar Þórðarson fór að
þjálfa mig,“ segir Einar Karl
Hjartarson, 16 ára Húnvetningur,
sem setti glæsilegt íslandsmet
drengja og unglinga í Laugardals-
höll um síðustu helgi. Hann stökk
2,11 metra sem er glæsilegur ár-
angur og fróðir menn fullyrða að
fram á sjónarsviðiö sé komið
mesta hástökkvaraefni hér á landi
frá upphafí.
Maður dagsins
Einar Karl fæddist á Húsavík og
bjó fyrstu árin að Stórutjömum í
S- Þingeyjarsýslu en þá fluttu for-
eldrar hans að Húnavöllum í A-
Húnavatnssýslu þar sem þeir
bjuggu þar til i haust. Þá flutti
Einar Karl sig reyndar til Akur-
eyrar þar sem hann stundar nám í
menntaskólanum og æfir hástökk
Einar Karl Hjartarson. DV-mynd gk
í fyrsta skipti af alvöru undir
handleiöslu þjálfara.
„Ég hef oft keppt á héraðsmót-
um og minni mótum heima, en
það hefur aldrei verið nein alvara
í þessu fyrr en í vetur. Pabbi sagði
mér reyndar dálitið til en hann er
íþróttakennari og var hástökkvari
og á best 1,86 metra með
grúfustílnum. Ég átti best 1,82
metra í upphafi síðasta vetrar en
náði þá aö bæta árangur pabba og
hef bætt mig um 29 cm síðan.“
Árangur Einars Karls skipar
honum án efa á bekk með bestu
jafhöldrum hans í Evrópu og jafn-
vel þótt víðar væri leitað. En telur
hann að hann geti bætt sig veru-
lega í framtíðinni?
„Já, ég held það. Ég var t.d. vel
yfir 2,13 þegar ég setti metið en
rak kálfana í og felldi. Ég á eftir að
læra heilmikið varöandi alla
tækni og vonandi á ég talsvert
inni,“ segir Einar Karl hógvær.
Það vekur athygli að Einar Karl
stekkur berfættur innanhúss,
hvers vegna?
„Ég er vanur þessu. Þegar ég
átti heima á Húnavöllum fylgdist
ég vel með þegar eitthvað var um
að vera í íþróttahúsinu þar og var
fljótur að drífa mig þangað ef eitt-
hvað var að gerast. Svo var ég
bara drifinn í að stökkva og var þá
berfættur.“
Varðandi önnur áhugamál en
hástökkið segir Einar Karl að
íþróttir beri hæst. „Ég hef mikinn
áhuga á körfubolta og hef verið að
leika mér í blaki með KA. Annars
hef ég bara áhuga á öllum íþrótt-
um og að skemmta mér eins og
aðrir unglingar. -gk
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1734:
Myndgátan hér aö ofan lýsir hvorugkynsoröi.
DV
Jóhanna Sveinsdóttir. I bak-
grunninum eru verk eftir hana.
Haust-
myndir
Sýning Jóhönnu Sveinsdóttur
í Gallerí Listakoti hefur verið
framlengd til 1. mars. Á sýning-
unni eru einþrykk og myndir
unnar með blandaðri tækni.
Myndirnar eru unnar síðastliöið
haust og ber sýningin yfirskrift-
ina Haustmyndir.
Sýningar
Undir pari
Um þessar mundir sýnir í sýn-
ingaraðstöðunni Undir pari
þýska listakonan Aeanne Lang-
horst. Um sýningu sína segir
Aeanna: „Ljótleiki breytist í feg-
urö, fegurð í ljótleika. Mér líka
andstæður og mótsagnir hvemig
sem þær birtast. Ég skoða þær
og athuga hvemig ég get nýtt
mér þær.“ Undir pari er opiö
fimmtudaga til laugardaga kl.
20.00-23.00.
Fjórir
leikir í
úrvals-
deildinni
í kvöld verða leiknir fjórir
leikir í úrvalsdeildinni í körfu-
bolta. í Grindavík leika heima-
menn við ÍR, KR tekur á móti
Skallagrími frá Borgarnesi,
Breiðablik leikur í Kópavogin-
um gegn Keflavík og Haukar
íþróttir
leika í Strandgötunni gegn Þór.
Einn leikur er í 1. deild kvenna í
körfunni, Keflvíkingar leika
gegn Breiðabliki. Allir leikimir
hefjast kl. 20.00.
4 NÆSTA
SOLUSTAÐ
EÐA
ÍÁSKRIFT
ÍSÍMA
550 5752