Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1997, Side 32
6 X 18^24]
28X39X43^
Qö
(22 X 25X321
Vínningstölur miðvikudaglnn 12.2.97
E
s
Vlnnlngar Fjöldl vlnnlnga Vinningsupphxð
l.tafé , 2 21.195.000
2.Safé' íjoW 0 632.538
3.Saft 1 212.140
4. t aft ,139 2.420
S. 3oft' íw'%77 210
Heildarvlnningsupphxð >4 íslandl
43.713.228 1.323.228
Vinningstölur
12.2/97
18) (19) (25)
KIN
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997
Saksóknari í Arizona:
Haneshjónin
ákærð
Saksóknari í Arizona hefur gefið
út ákæru á hendur hjónunum
Connie Jean og Donald Hanes sem
yfirgáfu Bandaríkin með litlu telp-
una Zenith án vitundar móður
hennar. Bill Fitzgerald, talsmaður
saksóknarans í Arizona, sagði í
samtali við DV i gær að hjónin séu
ákærð fyrir afskipti af forsjá - al-
varlegt brot sem varði við fangelsis-
refsingu, hins vegar sé einnig mögu-
leiki á skilorðsdómi. Fitzgerald
sagði að beðið sé eftir að hjónin
komi til Bandaríkjanna og muni þá
ákveðið ferli fara í gang.
Hjónin búa enn i Kópavogi en
^hafa gert samkomulag við íslensk
stjómvöld um að yfirgefa landið fyr-
ir l. mars. -Ótt
Skriðufall:
Sá björgin
velta niður
hlíðina
„Mér var litið út um eldhúsglugg-
w»nn og sá þá björgin koma veltandi
niður hlíðina. Okkur varð auðvitað
bilt við en sem betur fer stöðvaðist
skriðan áður en hún kom að hús-
inu,“ segir Sigurjón Eyjólfsson,
bóndi í Eystri-Pétursey, en mikið
skriðufall varð úr fjaUinu Pétursey
í Mýrdal í gær.
Mannhæðarhá björg stöðvuðust
aðeins um 100 metra frá bæ Sigur-
jóns, sem stendur undir fjallinu.
Engin meiðsl urðu á fólki eða fénaði
í skriðunni og engar skemmdir
urðu á túni. -RR
Kreditkortafyrirtæki:
Allir mögu-
leikar
kannaðir
Olíufélögin, Bónus, Húsasmiðjan
og Byko hafa samkvæmt heimildum
DV átt í alvarlegum viðræðum um
stofnun kreditkortafyrirtækis. Fyr-
irtækjunum þykir fýsilegt að kanna
hvort hægt verði með einhverjum
hætti að lækka þann kostnað sem
kortanotkuninni fylgir, hvort sem
það verður gert með stofnun nýs
fyrirtækis eða sameiginlegum þrýst-
ingi á þau kortafyrirtæki sem fýrir
eru á markaðnum. Sumum þykir
»sem ekki sé pláss fyrir eitt kortafyr-
irtæki enn á markaðnum. Verið er
að skoöa alla möguleika þessa dag-
ana en ekkert fæst staðfest um gang
mála. -sv
L O K I
Endurskoðendur Kjalarneshrepps um það bil að ljúka gagnavinnu fyrir 4ra ára tímabil:
Fyrrum sveitarstjóri
grunaður um fjárdrátt
- lét af störfum síðastliðið vor að eigin ósk eftir að óreiða hafði komið fram
Endurskoðendur Kjalarnes-
hrepps eru um þaö bil að ljúka
umfangsmikilli vinnu í kjölfar
þess að fyrrum sveitarstjóri, sem
lét af störfum síðastliðið vor, er
grunaður um fjárdrátt á tímabil-
inu frá 1992-1996. Ekki liggur fyr-
ir enn þá hve háar fjárhæðir er
um að ræða en samkvæmt heim-
ildum DV er á þessu stigi talið að
um sé að ræða á aðra milljón
króna á umræddu tímabili. Sveit-
arstjórinn fyrrverandi hefur á
síðustu dögum fallist á að endur-
greiða þá fjárhæö - fjármuni sem
öruggt og ágreiningslaust er talið
að sveitarfélagið eigi inni hjá
honrnn. Engu að síður mun rann-
sókn endurskoðenda halda áfram.
Endurskoðendur hafa rætt um að
mjög mikil óreiða hafl komið
fram, s.s. fyrirframgreidd laun og
fleira.
Ákvörðun hefur ekki verið tek-
in í hreppsnefnd um hvort fyrr-
um sveitarstjóri verði kærður.
Það ætti þó að liggja fyrir á næst-
unni þegar endurskoðendur hafa
lokið sinni vinnu að fullu. Engu
að síður hefur verið rætt um að
greiði sveitarstjórinn fyrrverandi
þá fjármuni að fullu sem honum
ber samkvæmt rannsókn endur-
skoðenda þá muni málinu ljúka
án afskipta lögreglu.
í árslok 1995 kom upp veruleg-
ur ágreiningur innan hrepps-
nefndar vegna óreiðu og mis-
færslur af hálfu sveitarstjóra með
fjármuni og eignir hreppsins.
Sveitarstjórinn lét síðan af störf-
um að eigin ósk á vormánuðum
1996 og tók þá nýr maður við í
hans stað. Það var síðan eftir að
sveitarstjórinn fyrrverandi lét af
störfum að grunur vaknaði um
hinn meinta fjárdrátt.
í hreppsnefnd er litið á málið
sem „alvarlegt“ en fram að þessu
hefur grunur leikið á um að hin-
ar meintu misfærslur eða fjár-
dráttur hafi farið fram í samskipt-
um við ýmsa viðskiptamenn
hreppsins.
-Ótt
Þaö sitja tveir sjúkraþjálfarar á þingi um þessar mundir og mun þaö ekki hafa gerst áður. Þetta eru þær Siv Friöleifs-
dóttir og Guörún Sigurjónsdóttir, varamaöur Bryndísar Hiöðversdóttur. Þærtóku sig til og nudduðu axlir Jóns Krist-
jánssonar, formanns fjarlaganefndar. Axlir manna hafa bilaö undan minna oki en fjárlögum ríkisins sem Jón hefur
veriö meö á bakinu í bráöum tvö ár. DV-mynd Pjetur
Bankastjóralaun:
Getur trufl-
aö kjaravið-
ræðurnar
- segir Steingrímur
„Þessi umræða um laun banka-
stjóra ríkisbankanna mun eflaust
trufla eitthvað kjarasamningavið-
ræðumar sem standa yfir. Það eru
sjálfsagt einhverjir sem vilja nota
þetta á þeim vettvangi. Ég veit hins
vegar ekki betur en aö þessar upp-
lýsingar hafi legið fyrir á hverju
ári,“ sagði Steingrímur Hermanns-
son, bankastjóri Seðlabankans, í
samtali við DV í morgun.
Hann segir að Fijáls verslun hafi
birt laun bankastjóra eftir skatta-
tölum. Það sé heldur ekki langt síð-
an að ríkisendurskoðandi var lát-
inn skoða þetta og það komið fram
á Alþingi.
„Það er því ekkert nýtt í þessu.
Ef eitthvað er nýtt þá er það að
bankaráð Seðlabankans ákvað eftir
margra ára bið að hækka laun
seðlabankastjóra þannig að þau
nálguðust laun bankastjóra hinna
ríkisbankanna," sagði Steingrím-
ur.
Hann var spurður hvort við-
brögðin í þjóðfélaginu við þessum
upplýsingum um bankastjóralaun
kæmi honum á óvart. Svarið var
stutt og laggott. „Nei.“ S.dór
- sjá nánar á bls. 4
Veðrið á morgun:
Frystir um
mestallt
land
Á morgun frystir um mest-
allt land og þá verður vindátt
austlæg eða breytileg. Reiknað
er með minni háttar éljum um
landið sunnanvert en áfram
verður úrkomulaust á Vest-
fjörðum og Norðurlandi.
Veöriö í dag er á bls. 36
Opel Vectra
Caravan
f fynta slnn
á íslandl
Bílheimar ehf.
Scevarhöfba 2a Síml:S25 9000