Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1997, Síða 4
4
FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997
Fréttir
Öryggi fiskiskipa rætt utan dagskrár á Alþingi:
Fjöldi skipa hreinar
dauðagildrur
- haffærniskírteini gefin út þótt skipin væru vart sjófær, sagði Kristján Pálsson
„Það hefur lengi verið máltæki
íslenskra sjómanna, „Flýtur á með-
an ekki sekkur.“ Á það að sýna
hetjulund sjómanna sem alla tíma
hafa sýnt ótrúlegt afskiptaleysi
þegar kemur að því að vemda sitt
eigið líf og öryggi. Það hefur lítið
breyst enda allt of mörg sjóslys
sem rekja má beint til þess að ör-
yggi var ábótavant og eftirlit ekki
sem skyldi. Ég hef verið spuröur
að því hvort ég geti staðfest töluna
um 100 skipin. (sem ekki standast
öryggiskröfur) Þaö vill svo til að
Siglingastofnun íslands er nýbúin
að gera úttekt á stöðugleika 728
skipa af 2525 skipum á skipaskrá. í
könnuninni kom í ljós að 80 pró-
sent tréskipa undir 15 metrum að
lengd stóðust ekki kröfur um stöð-
ugleika. Um 52 prósent tréskipa 15
til 24 metra löng stóðust ekki kröf-
ur og um 28 prósent málmskipa 15
til 24 metra löng stóðust ekki kröf-
ur um stöðugleika. Af þessum 728
skipum sem skoðuð voru stóðst 191
skip ekki kröfurnar um stöðug-
leika. Mín tala um 100 skipin er því
allt of lág. í þessum tölum er ekki
tekið tilliti tU skipa sem hafa haf-
fæmiskírteini með athugasemdum
vegna annarra óuppfyUtra krafha
um öryggi eins og neyðarútganga
úr vél og káetu, breytinga vegna
vélaskipta, skilrúmabreytinga og
fleira," sagði Kristján Pálsson al-
þingismaður en hann tók öryggi
fiskiskipa upp utan dagskrár á Al-
Öryggi fiskiskipa
- úttekt gerð á stöðugleika skipa -
Stóðust ekkl skoðun
Kristján Pólsson alþingismaður beinir oröum sínum til Halldórs Blöndal samgönguróðherra við umræðuna um ör-
yggismál sjómanna. DV-mynd Hilmar Þór
þingi í gær.
Hann sagöi þetta einhverjar
verstu fréttir sem hann hefði feng-
iö um ástand íslenska fiskiskipa-
flotans.
„Fjöldi skipa eru hreinar dauða-
gUdrur þar sem endalausar undan-
þágur frá eðlUegum öryggiskröfum
hafa tíðkast ár eftir ár. Og haf-
fæmiskírteini jafnvel gefin út þótt
skipin væru vart sjófær," sagði
Kristján Pálsson.
HaUdór Blöndal samgönguráð-
herra var tU andsvara og sagðist
hann undrast málflutning Krist-
jáns Pálssonar og þeim áfeflisdómi
sem í orðum hans fólst tU þeirra
sem unnið hafa að öryggismálum
sjómanna gengnum árum.
Hann sagðist hafa haldið að fuU-
yrðingar eins og sú að hér væm
100 skip og 500 sjómenn í hættu
vegna j«ss að skipin standast ekki
öryggispróf heyrði fortíðinni tU.
HaUdór fúUyrti að öryggismál sjó-
manna hér á landi væm meiri og
betri en í öðram löndum en játaði
þó að tU væm hér skip á sjó sem
ekki standast stöðugleikapróf.
Margir þingmenn tóku tU máls og
voru flestir undrandi á ástandinu.
Ásta R. Jóhannesdóttir sagði að I
öðrum löndum hefði samgöngumála-
ráðherra oröið að segja af sér emb-
ætti eftir aðrar eins upplýsingar og
hér hefðu komið fram. -S.dór
Staða aldraðra í skatta- og tryggingakerfinu rædd utan dagskrár:
Skylda okkar að
hugsa um hag
gamla fólksins
- sagði Ágúst Einarsson alþingismaður
„Þaö er þrengt að hag eldri
borgara og óöryggi skapað og því
eðlUegt að málefni þeirra séu tek-
in tU umræöu á Alþingi. Hér á
landi eru um 65 þúsund manns 50
ára og eldri og 27 þúsund manns
yfir 67 ára,“ sagði Ágúst Einarsson
þegar hann hóf umræður utan
dagskrár um stööu eldri borgara í
skatta- og tryggingakerfinu," sagði
Ágúst Einarsson í utandag-
skráramræðum um bág kjör aldr-
aðra á Alþingi í gær.
Hann sagði þetta fólk hafa skU-
að sínu lífsstarfi og skapað þau
lífskjör sem við nú lifum viö. Því
væri það samfélagsleg skylda
stjómmálamanna og annarra að
veita öldruðum öryggi og gott við-
urværi í eUinni.
„Það er skammarlegt að það
skuli vera ástæða fyrir aldraða að
fyUast réttlátri gremju gagnvart
stjómvöldum. Þessi hópur á ekki
margra kosta völ tU að þrýsta á
stjórnvöld tU aö leiðrétta kjör sín.
Það er ekki rætt viö þennan hóp í
Karphúsinu og ekki fer hann í
verkfaU," sagði Ágúst.
Hann spurði fjármálaráðherra
hvort hann ætlaði aö beita sér fyr-
ir úrbótum á öUum því ófremdarás-
standi sem ríki varðandi kjör eldri
borgara. Nefndi hann hækkun eUi-
lífeyris, að eUUífeyrir, tekjutrygg-
ing og tengdar bætur fyrir árið 1997
hækkuðu, afnámi eða minnkun
tekjutengingar, ellUífeyris, tekju-
trygginga og tengdra bóta.
Friðrik Sophusson sagði að líf-
eyrir almannatryggingakerfisins
hefði verið hækkaöur um 2 pró-
sent í takt viö verðlagshækkanir
um síöustu áramót þótt engar
launahækkanir ættu sér þá stað á
vinnumarkaði.
„Eins og margoft hefur komið
fram verður lífeyririnn endur-
skoöaður þegar kjarasamningar
liggja fyrir. í lögum um bætur al-
mannatrygginga segir að þær
skuli breytast árlega í sambandi
við fjárlög hverju sinni,“ sagði
Friðrik Sophusson, íjármálaráð-
herra.
Honum var tíðrætt um trygg-
ingakerfið og þá endurskoðun
sem stendur yfir á því en vék
aldrei beint að þeirri slæmu stööu
sem Ágúst og fleiri þingmenn
sögðu eldri borgara vera í fjár-
hagslega vegna lítilla bóta og ei-
lífra skerðinga sem verið er að
gera á þeim.
Friðrik nefndi þó að skoða yrði
betur svokölluð jaðaráhrif í lífeyr-
ismálum gamla fólksins sem gætu
oröið meiri en í skattkerfinu.
-S.dór
Aldraðir fylgdust með skattaumræðunni á þingpöllum. Lögreglumenn að-
stoðuðu þá sem á þurftu að halda til þess að komast á pallana.
DV-mynd Hllmar Þór