Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1997, Page 6
6
FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997
Neytendur
Betri
Símaþjónusta hjá hinu opinbera:
en búist var við
Sennilega hefur okkur öllum
hitnað í hamsi eftir árangurslitlar
tilraunir til að ná símasambandi
við stofnanir og fyrirtseki sem hæði
hafa svarað seint og illa. En þegar
haft er samband við fyrirtæki er sá
aðili sem svarar símanum sá hinn
sami og vekur upp fyrstu viðbrögð
varðandi fyrirtækið. Stjórnendur
stofnana og fyrirtækja eru sífellt að
gera sér betur grein fyrir hvað þessi
ásýnd skiptir miklu máli og senda
því starfsfólk sitt í auknum mæli á
námskeið í símsvörun.
Hringt af handahófi
DV tók sig til og hringdi í nokkr-
ar opinberar stofnanir milli kl. 14.00
og 15.00 sl. þriðjudag og mældi hve
langan tíma tók að ná sambandi.
Annars vegar var tekinn tími á hve
langur tími leið þangað til að skipti-
borð svaraði og hins vegar hve lang-
an tíma tók að ná sambandi við
rétta deild sem valin var af handa-
hófi eftir að sambandi hafði verið
náð við skiptiborð.
Stofnanirnar, sem hringt var í,
voru eftirtaldar: Tollstjóri, beðið
var um afgreiðslu tollskjala; Trygg-
ingastofnun, beðið var um aðila
meö upplýsingar um fæðingarorlof;
Félagsmálastofnun, beðið var um
Símaþjónusta opinberra stofnana
Sel<- r~ ■ , Hringing Svar, skiptiborð r.-. ■. rza Svar, deild
húsaleigubóta-
deild; Landspítal-
inn, beöið var
um sængur-
kvennagang;
Hagstofa Islands,
beðið var um fyr-
irtækjaskrá;
Gjaldheimtan í
Reykjavík, beðið
var um af-
greiðslu; Hús-
næðisstofnun
ríkisins, beðið
var um húsbréfa-
deild og Skatt-
stjóri þar sem
beðið var um
upplýsingar um
staðgreiðslu.
120
100
Almennt góð
svörun
Á heildina litið
komu ofantaldar
stofnanir mjög
vel út. Lengsti
biðtími á skipti-
borð var 65 sek.
en sá stysti var
Húsnæ&isstofn. rik. Tollstjórl Félagsmálastofnun Hagstofa
- húsbréfadelld - - afgr. tollskjala - - húsalelgubætur - - fyrirtækjaskrá -
GJaldheimtan í Rvík. Skattstjórl Trygglngastofnun Landspítallnn
- afgrelðsla - - upplýs. um staðgr. - -fæðlngaroriof - - sængurkv. deild - > »
Hér má sjá hve langan tíma tók að ná sambandi viö nokkrar opinberar stofnanir sem DV valdi af
handahófi og hringdi í milli kl. 14.00 og 15.00 sl. þriðjudag. Annars vegar er sýndur tíminn sem
tók aö fá samband við skiptiborð og hins vegar sá tími sem tók að ná á rétta deild. Eins og sjá
má gekk verkefnið vonum framar.
tæpar 2 sek. Lengsti biðtími á rétta
deild var 1 mín. og 23 sek. eri sá
stysti var 2 sek. Þegar reyndist vera
á tali hjá viðkomandi deild var
hringjandi í langflestum tilfellum
látinn vita með reglulegu millibili
að enn væri á tali. Lengsti biðtími á
deild, sem var á tali, var 1 mín. og
10 sek. -ggá
Góð ráð fýrir
Grenningarsápa á markaðinn:
Sápan fer sigur-
för um Evrópu
- segir Hermann Huijbens
DV, Akureyri:
„Sápan er unnin úr íslenskum
djúpsjávarþara sem er fluttur til
HoUands þar sem svissneska fyrir-
tækið Biologics framleiðir úr hon-
um þessa
sápu sem nú
fer sigurför
um Evrópu,“
segir Her-
mann Hui-
jbens, eig-
andi HeUsu-
hornsins á
Akureyri,
sem hefur
hafið inn-
Outning á
Alga-Line
grenningar-
sápunni.
Þarinn,
sem notaður
er í sápuna,
er fenginn
frá Þörunga-
vinnslunni á
Reykhólum en í þaranum eru yflr
70 virk efni sem hafa mikUvæg
áhrif tU að styrkja teygjanleika húð-
arinnar. Þörungamir í sápunni fjar-
lægja dauðar húðfrumur og hafa
nærandi, rakagefandi og mýkjandi
áhrif á húð-
ina,“ segir
Hermann
Huijbens.
Hann
segir
sápuna að-
aUega hafa
þau áhrif
að gera
húðina
stinnari.
Erlendis sé
sápan hins
vegar aug-
lýst sem
grenningar-
sápa og hafi
þar slegið í
gegn sem
slík.
Hermann Huijbens meö Alga-Line grenn-
ingarsápuna. DV-mynd g
bíleigandann
Ef mikU móða myndast innan á
rúðunmn á bílnum er fátt sem nær
henni betur burt en svampur eins
og sá sem notaður er tU að þurrka
krít af töflum.
Ef vinnukonurnar standa sig ekki
jafnvel og áður er upplagt að renna
yfir blöðin með sandpappir.
Útvarpsloftnetiö festist síður ef
það er vaxborið reglulega. Þama
dugar venjulegur vaxpappír ágæt-
lega.
Ef miklar útfeUingar koma úr raf-
geymnum er upplagt að hreinsa þær
burtu með að heUa gosdrykk yfir.
Kolsýran étur þær burtu.
Líka er snjallt að stinga smápen-
ingi i rafgeyminn þannig að útfeUin-
gamar setjist á peninginn í staðinn
fyrir rafgeyminn sjálfan.
Það er gott að hafa aUtaf poka af
kattasandi í skottinu. Honum má
dreifa undir bUinn til að ná gripi ef
hann festist í snjó eða spólar í
hálku.
Olíublettum á gólfi bUskúr má ná
með að dreifa kattasandi yfir og
sópa honum svo upp eftir nokkum
tíma þegar sandurinn hefur sogið í
sig olíuna.
Kókakóla og álpappír ná ryðblett-
um af dempurum.
Ef málning rispast af bUnum er
nauðsynlegt að þvo sárið vel og
mála með naglalakki tU að svæðið
ryðgi ekki.
Hægt er að ná saltinu úr teppun-
um í bílnum með helmingsblöndu af
ediki og vatni.
-ggá
Hér má sjá matreiöslumenn skera niður gómsæta lambakjötsrétti en nýlega
hélt Landssamband sauðfjárbænda kynningu á nýju myndbandi um mat-
reiöslu á lambakjöti. Myndband þetta hefur aö geyma margar uppskriftir aö
hollum, Ijúffengum, ódýrum og auöveldum heimilismat úr lambakjöti. Þar er
sýnt hvernig skrokkur er tekinn í sundur, kjötiö úrbeinaö og kennt að mat-
reiöa Ijúffenga rétti úr bæði kjöti og innmat. DV-mynd Hilmar Þór.
Forsoönar
skyndikartöflur
Nýlega setti Kartöfluverk-
smiðja Þykkvabæjar á markað
forsoðnar skyndikartöflur í 1
kg pakkningum. Kartöflumar
eru í nýstárlegum tví-
skipt-
um sem
klippa
má í sundur í miðju þegar ekki
er þörf á að nota allt magnið í
einu. Kartöflumar má hita í
skál í örbylgjuofni eða sjóða í 2
mínútur í potti. Þær er einnig
kjörið að brúna i sykri á pönnu
eða steikja í smjöri með góðu
kryddi. Umbúðimar em stimpl-
aðar með framleiðsludegi og er
síðasti söludagur 6 vikum
seinna.
Nýir bæklingar frá
Húsnæöisstofnun
Húsnæðissto&iun ríkisins
hefur gefið út nýja bæklinga
um félagslegar íbúðir á vegum
sveitarfélaga, endurskoðaða í
samræmi við breytingar á lög-
um og reglugerðum. Bækling-
arnir gefa góða mynd af félags-
lega íbúðakerfinu; annars vegar
með kynningu á þessum val-
kosti í húsnæðismálum og hins
vegar með ítarlegum upplýsing-
um fyrir íbúa í félagslegum
íbúðum. Fyrri bæklingurinn:
Félagsleg íbúð fyrir mig?, er al-
menn kynning á félagslegmn
íbúðum sveitarfélaga en síðari
bæklingurinn: Að búa í félags-
legri íbúð, er ætlaður íbúum í
félagslegum íbúðum.
Spurt um sveskjur
Lesandi hafði samband við
neytendasíðu og var ósáttur
við að fá hvergi keyptar
sveskjur eftir vigt, aðeins inn-
pakkaðar. Sagði hann inn-
pökkuðu sveskjumar hvergi
nærri eins safaríkar. DV hafði
samband við verslanir og var
svarið að ekki þætti ráðlegt að
selja sveskjur í vigt vegna þess
hve þær væm sykraðar og
rakar, það þætti of sóðalegt
auk þess sem þær þomuðu
fljótt upp. Aftur á móti selur
t.d. Hagkaup sveskjur á bakka,
pakkaðar inn í fdmu.
Ábending um rafmagns-
sparnaö
Hreinsaðu ljósapemrnar
reglulega svo birtan frá þeim
njóti sín. Ryk, fitulög frá elda-
mennsku og sígarettureykur
vilja nefnilega setjast á ljósa-
perar. Fjarlægið peramar úr
perustæðinu áður en þær era
þrifnar, öryggisins vegna.
Þvoið þær og gætið þess að þær
séu orðnar alveg þurrar áður
en þær era settar aftur í.