Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1997, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997
7
Préttir
Unglingar í starfi hjá borginni i sumar:
Gert ráð fyrir um 5% fækkun
DV Sandkorn
Innri maðurinn
Séra Karl Sig-
urbjörnsson
hefur um þess-
ar mundir
lang mest fylgi
meðal þjóðar-
innar sem
næsti biskup
íslands ef
marka má
skoðanakann-
anir. Hann
virðist vera sá
maður sem fólk telur að geti raðað
saman þeim brotum sem kirkjan er
sögð vera i. Séra Karl fékk flestar
tilnefhingar í nýrri skoðanakönnun
DV og vegna þess fór ijósmyndari
blaðsins á fund séra Karls til að
mynda hann. Hann tók Ijósmyndara
ljúfmannlega eins og hans er von og
vísa. Séra Karl sagði ljósmyndaran-
um að hann hefði orðið fyrir óhappi
og væri axlarbrotinn. Þess vegna
hefði hann þurft að fara í röntgen-
myndatöku. „Getið þið ekki bara
notað þá mynd?“ spurði séra Karl,
„hún er nefnilega af mínum innri
manni.“
Löng atrenna
Það er ekki
aHtaf hefðbund-
in lýsing á
knattspyrnu-
kappleik hjá
þeim Her-
manni Gunn-
arssyni og
Loga Ólafssyni
landsliðsþjálf-
ara þegar þeir
lýsa leikjum á
Sýn eða Stöð 2
og 1/2, eins og gárungar kalla hana.
Það fer í taugamar á mörgum
knattspymuáhugamanninum þegar
þeir era að tala út og suður um efni
sem kemur hvorki leiknum, sem í
gangi er, né knattspymu yfir höfuð
nokkuð við. Samt læðast stundum
út úr þeim góðir brandarar. Her-
mann sagði einn í lýsingunni á
miðvikudag. Hann sagöi sögu af
tveimur mönnum sem voru að dást
að Jóni Amari Magnússyni tug-
þrautarkappa og íþróttaafrekum
hans. „Fyrst hleypur hann 1500
metrana og svo stekkur hann á eftir
4.50 metra í stangarstökki eins og
ekkert sé,“ sagði annar. „Það þykir
mér nú ekki mikið eftir svona langt
tilhlaup," svaraði hinn.
Roðskórnir
Enn er leitað i
sögubrunn
KnútsHaf-
steinssonar
menntaskóla-
kennara. Hann
segir að afstæði
tímans hafi
mörgum kenn-
aranum reynst
erfitt að koma
nemendum sín-
um f skilning um. Þetta hefði Sig-
ríöur Hlíðar stærðfræðikennari lika
mátti reyna í óvenju erfiðri glimu
við andhverf foll sem þó em svo
einfold að sögn. „Sko, elskumar
mínar, maður fer fyrst í sokkana og
svo í skóna og svo fer maður úr
skónum og síðan úr sokkunum. Ég
hef bara einu sinni heyrt talað um
konu sem fór í sokkana utan yfir
skó, en þaö var langömmusystir
mín á síðustu öld, svo hún rynni
ekki á hálkunni milli bæja. Skiljið
þið nú hvemig þetta er, elskumar
mínar?“ Það varð löng, löng þögn í
bekknum. Svo var eins og bamsleg-
ur roði færðist í kinnar að baki
farðanum hjá einni stúlkunni og
hún rétti upp höndina eins og áfjáð-
ur krakki í 6 ára bekk að upplýsa
kennara sinn. „Ég veit af hverju.
Þeir vom svo hálir þessir roðskór
sem þið notuðuð í gamla daga."
Verði Ijós
Guðni Ágústs-
son alþingís-
maður er mikill
áhugamaður
um að lýsa upp
veginn yfir
Helhsheiði. Á
dögunum var
þetta mál rætt
á Alþingi og
talaði Guðni
þar fyrir því að
lýsing yrði sett
upp á Hellisheiðinni. Jón Kristjáns-
son samþingmaöur Guöna orti þá i
orðastað hans:
í borginni er lélegt leiði
leiðist mér í Reykjavlk
Verði ljós á Hellisheiöi
heimvon mi'n er nokkuö rík
Umsjón: Sigurdór Sigurdórsson
Vinnuhópur um sumarvinnu
ungmenna hefur komið saman og
farið yfir skýrslur varðandi fjölda
þeirra sem hófu störf hjá hinum
ýmsum deildum og fyrirtækjum
borgarinnar á síðasta ári. Borgar-
ráð samþykkti samhljóða tiilög-
urnar fyrir árið 1997. í ljós kemur
að ráðningum hjá Vinnumiðlun
skólafólks hefur fækkað síðustu
tvö ár eins og sést á fylgiskjali 2.
Þær voru 2.480 árið 1996, 2.799 árið
1995 og 3.124 árið 1994.
Starfsáætlun Vinnuskólans mið-
ar við óbreyttan starfstíma hjá 14
og 15 ára árgöngum, óbreytt kaup
og spá um 5% færri starfandi ung-
Dómur í Bandaríkjunum:
Flugleiöir
dæmdar til að
greiða rúman
miiljarð
Kviðdómur í Bandaríkjunum
felldi í fyrrakvöld þann úrskurð i
máli Freds Pittmans gegn Flug-
leiðum að félaginu bæri að greiða
honum um 700 milljónir íslenskra
króna á þeirri forsendu að félagið
hefði tekið þátt í að flytja dóttur
hans og Ernu Eyjólfsdóttur frá
Bandaríkjunum til íslands með
ólögmætum hætti 1. mars 1992.
Jafnframt var niðurstaða kvið-
dómsins að félaginu bæri að
greiða Elísabetu dóttur Pittmans
um 350 milljónir króna. Flugleiðir
eru tryggðar fyrir skaðabótakröfu
í þessu dómsmáli.
Samkvæmt upplýsingum frá
Flugleiðum er málinu ekki lokið á
þessu dómstigi með þessum kvið-
dómsúrskurði. Dómari í málinu
hefur fengið úrskurðinn til um-
fjöllunar og getur fellt hann úr
gildi, lækkað bótafjárhæð eða fyr-
irskipað ný réttarhöld. Trygginga-
félagið, sem ber kostnaðinn af
bótakröfu, verði hún staðfest i ein-
hverju formi, hefur haldið uppi
vömum í málinu og mun fylgja
því eftir. -sv
Stórstjarnan
Björk meö
stórstjörnum
í Washington
DV, Akranesi:
Nú er allt útlit fyrir að sams kon-
ar tónleikar meö stórstjömum, sem
haldnir vora á síðasta ári, verði aft-
ur á þessu ári. Um er að ræða tón-
leikana Frelsum Tíbet en Björk
Guðmundsdóttir var á meðal flytj-
enda á þessum tónleikum á síðasta
ári.
Bassaleikari Beastie Boys, Adam
Yauh, er að undirbúa tónleika sem
á að halda 7.-8. júní i sumar á Ro-
bert F. Kennedy vellinum í Was-
hington og verða kallaðir Frelsum
Tíbet.
Það era engin smá nöfn sem
þama koma fram og hafa gefið sam-
þykki sitt auk Bjarkar. Þar má
nefna U2, R.E.M., Neil Young, David
Bowie, Stewie Wonder, Bob Dylan,
Public Enemy, Race Agains the
Machine, the Beastie Boys auk fleiri
frægra tónlistarmanna. DVÓ
LÍF- 0G SÖFNUNARTRYGGINGAR
Löggilt vátryggingamiðlun
Guðjón Styrkársson hrl.
Aðalstræti 9 - Reykjavík
Sími 551 8354
Fullgiltur söluaðili
SUN LIFE
LÍF- OG SÖFNUNARTRYGGINGAR
linga. Sama gildi um 16 ára ár-
ganginn en þar er miðað við
óbreytt kaup og spá um 5% fækk-
im frá síðasta ári.
Hjá garðyrkjudeild innifelur
starfsáætlun nú 90 störf við aíleys-
ingar og 200 við sumarstörf. Þessi
fjöldi var 120 og 260 og því er hér
um fækkun um 90 manns að ræða.
Óbreytt vinnufyrirkomulag er ráð-
gert hjá gatnadeild, þ.e. sumar-
störfln eru í skiptivinnu og 5%
færri ungmenni við störf. Þá er
reiknað með 148 færri ungmennum
við sumarstörf hjá ÍTR en í fyrra.
Er þar einkum um að ræða störf
hjá íþróttafélögunum og störf við
sumarnámskeið fyrir börn. í
starfsáætlun nú eru 260 störf fyrir
skólafólk en þau voru 408 í fýrra,
þar af 148 vegna aukafjárveitingar.
í Vinnuskólanum er gert ráð fyr-
ir 6 vikna starfstíma í 7 tima á dag
fyrir 15 ára, 3,5 tímar á dag fyrir 14
ára, 4 dagar verða teknir í fræðslu.
Sextán ára krakkar vinna 7 tíma á
dag, 5 daga vikunnar í 7 vikur og
sama gildi um 17 og 18 ára krakka
nema hvað þeir fá vinnu í 8 vikur.
Aðeins 19 ára og eldri verða
ráðnir í afleysingastörf hjá vinnu-
flokkum gatnadeildar, garðyrkju-
deildar og veitustofnunum, há-
mark yfireitt 10 vikur. Þá er heim-
ild til að ráða 17-19 ára ungmenni
af atvinnuleysisskrá í afleysinga-
störf eða til starfa sem stofnað er
til vegna fjárveitinga vegna sumar-
vinnu skólafólks.
Hjá ÍTR verða ekki ráðnir yngri
en 20 ára leiðbeinendur við sum-
arnámskeið barna. Krakkar á aldr-
inum 17-19 ára verða ráðnir sem
aðstoðarfólk á námskeiðum og við
almenn störf hjá ÍTR, hámark yfir-
leitt 10 vikur. Einungis 22 ára og
eldri verða ráðnir í störf leiðbein-
enda hjá Vinnuskólanum. Um-
sóknir um sumarstörf verða til 30.
apríl.
-sv
standa undir
nafni!
EUR0 og VISA raðgreiðslur
Lógmúla 8 • Sími 533 2800
-fetiframar
Umboðsmenn:
Reykjavík: Hagkaup. Byggt & Búið, Kringlunni.Magasín. BYKO. Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf.Borgfirðinga, Borgamesi. Blómsturvellir,
Hellissandi. Guðni E. Hallgrímsson, Grundarfiröi.Versun Einars Stefánssonar, Búðardal. Heimahornið, Stykkishólmi. Vestfirðir: Geirseyrarbúðin, Patreksfirði.
Rafverk.Bolungarvík.Straumur.ísafirði. Norðurland: Kf. Steingrímsfjarðar, Hólmavík. Kf. V-Hún.,Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi.
Skagfirðingabúð.Sauöárkróki.KEA, byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri. KEA.Dalvík. KEA Siglufirði. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Urð, Raufarhöfn. Lónið, Þórshöfn.
Austurland: Sveinn Guðmundsson.Egilsstöðum. Versiunin Vík, Neskaupsstað. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði. KASK Höfn. Suðurland: Mosfell, Hellu.
Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg.Grindavík. Fjarðarkaup, Hafnarfiröi.