Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1997, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997
Utlönd
^ Verkamannaflokkurinn vann yfirburðasigur í aukakosningum:
Ihaldsflokkur Majors
kominn í minnihluta
íhaldsflokkur Johns Majors, for-
sætisráðherra Bretlands, galt mikið
afhroð í gær þegar Verkamanna-
flokkurinn vann yfirburðasigur í
aukakosningum í kjördæminu
Wirral South í norðvesturhluta Eng-
lands. íhaldsflokkurinn hafði „átt“
kjördæmið frá þvi það var myndað
árið 1983. Verkamannaflokkurinn
fékk nú 53 prósent atkvæða en
íhaldsflokkurinn 34 prósent.
Ósigurinn í gær þýðir að íhalds-
flokkurinn hefur nú aðeins 322 þing-
menn í neðri deild breska þingsins,
einum færri en Verkamannaflokkur-
inn og allir aðrir flokkar samanlagð-
ir. Major þarf því að reiða sig á ýmsa
smáflokka til að koma málum sínum
i gegn. Úrslitin þykja ekki boða gott
fyrir almennu þingkosningarnar
sem verða haldnar einhvem tímann
í maí í vor.
„íbúar í Wirral hafa látið í sér
heyra. Boð þeirra til Johns Majors
og íhaldsflokksins eru: „Nú er nóg
komið. ihaldið er búið að vera allt of
lengi við völd“,“ sagði Ben Chap-
man, frambjóðandi Verkamanna-
flokksins, við sigrihrósandi stuðn-
ingsmenn sína þegar úrslitin voru
lesin upp í nótt.
Chapman sigraði með tæplega átta
þúsund atkvæða mun en í kosning-
unum árið 1992 sigraði frambjóðandi
Ihaldsflokksins með rúmlega átta
þúsund atkvæða mun. Boðað var til
aukakosninganna vegna dauða þing-
manns íhaldsflokksins í kjördæm-
inu.
Ben Chapman, frambjóðandi Verkamannaflokksins, og dóttir hans Bridget eru kampakát eftir sigur Verkamannaflokksins í
aukakosningum í Bretlandi t gær. Frambjóöandi Ihaldsflokksins stendur við hliö Bridget, ekki mjög kátur. Símamynd Reuter
Sigur Verkamannaflokksins í
Wirral South er í samræmi við það
forskot sem hann hefur á íhalds-
flokkinn í skoðanakönnunum en það
hefur verið í kringum 20 stig að und-
anfórnu. Ef niðurstöður kosning-
anna í maí verða í samræmi við úr-
slitin nú þýddi það rúmlega eitt
hundrað þingsæta meirihluta fyrir
Verkamannaflokkinn.
Almennt er litið á aukakosningar
sem tækifæri fyrir kjósendur til að
lýsa yfir óánægju sinni með stjórn-
völd en margir kjósenda halda svo
tryggð sinni við gamla flokkinn sinn
í almennum þingkosningum. Enginn
flokkur í Bretlandi hefur hins vegar
á síðari tímum náð að vinna upp
svona mikinn mun á jafn skömmum
tíma og til stefnu er. Reuter
Nýjar hugmynd-
ir um fiskveiðar
Framkvæmdanefnd Evrópu-
sambandsins, ESB, hefur kynnt
nýjar hugmyndir um niðurskurð
á fiskveiðum. Fiskveiðiþjóðir
ESB höfðu harðlega gagnrýnt til-
lögur Emmu Bonino, sem fer með
sjávarútvegsmál sambandsins,
frá því i fyrra. Samkvæmt nýju
hugmyndunum eiga aðildarríkin
sjálf að gera áætlanir um niður-
skurð, eftirlit ESB með áætlun-
unum á aö verða umfangsmeira
og sömuleiöis eftirlit með endur-
nýjun flota.
Handtökur í
Kína í kjölfar
sprengjuárása
Kínverska lögreglan hefur
handtekið nokkra menn í kjölfar
sprengjuárásanna í borginni Ur-
umqi í Xinjianghéraði á þriðju-
daginn. Fjórir létu lifið og sextíu
særðust er sprengjur sprungu í
þremur strætisvögnum. Yfirvöld
í Kína fyrirskipuðu í gær herferð
gegn ólöglegum sprengiefnum.
Má nota sæði
látins eigin-
manns
Breska ekkjan Diane Blood
fékk í gær leyfi breskrar stofnun-
ar, sem fer með frjósemismál, til
að nota sæði úr látnum eigin-
manni sínum til að reyna að
eignast bam. Úrskurðaði stofn-
unin að ekkjan, sem er 32 ára,
mætti flytja fryst sæöið til Belgíu
og gangast þar undir frjósemisað-
gerð. Upphaflega hafði stofnunin
neitað bón ekkjunnar þar sem
eiginmaðurinn hafði ekki veitt
skriflegt samþykki sitt áður en
hann lést.
Reuter
Yasser Arafat harmar ákvörðun ísraela um byggingarframkvæmdir:
Netanyahu lýsir yfir sigri
í baráttunni um Jerúsalem
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
mun halda óformlegar viðræður í
dag um beiðni arabaþjóðanna um
fund vegna þeirrar ákvörðunar
stjórnvalda í ísrael að byggja þús-
undir íbúða fyrir gyðinga i arabísk-
um hluta Jerúsalem. Arabaríkin
fóru fram á tafarlausan fund en
ekki er gert ráð fyrir að hann verði
fyrr en i næstu viku.
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, lét mótmæli þjóða
heims, svo og Pcdestínumanna, gegn
byggingaráformunum sem vind um
eyrun þjóta í gær og lýsti yflr sigri
í baráttunni um Jerúsalem.
„Ég veit að þið komuð til að
styrkja mig en ég kom til að styrkja
ykkur. Ég finn til mikils styrks,“
sagði Netanyahu á fundi með bar-
áttumönnum í Likudflokki sínum.
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, harmaði ákvörðun ísraels-
manna en lét ekkert uppi um til
Yasser Arafat er ekki hress með
ísraelsmenn. Símamynd Reuler
hvaða aðgerða hann mundi grípa.
„Þetta er alvarlegt brot á gerðmn
samningum og þetta stríðir gegn
ályktunum SÞ og einnig gegn trygg-
ingunum sem bandarísk stjórnvöld
veittu," sagði Arafat.
Eli Ishai, atvinnumálaráðherra
ísraels, undirritaði byggingarleyfið
í gær og í framhaldi af því geta jarð-
ýtur farið að athafna sig á Jahal
Abu Ghneim, skógi vaxinni hæð
milli arabíska hluta Jerúsalem og
borgarinnar Betlehem sem Palest-
ínumenn ráða yfir. ísraelsmenn
náðu hæðinni á sitt vald í sex daga
stríðinu 1967.
En mitt í öllum fagnaðarlátum
stjórnarliða bárust þau tíðindi að
ísraelska lögreglan myndi sennilega
ákæra þrjá aðalmennina i rannsókn
á spillingu innan stjómkerfisins. Þá
hefur lögreglan í hyggju að yfir-
heyra Netanyahu að nýju og mun
hann verða varaður við að saka
ekki sjálfan sig um refsivert athæfi.
Málið snýst um meinta spillingu í
skipan embættis rikislögmanns.
Reuter
Chelsea Clinton orðin 17 ára:
Forsetahjónin buðu dótturinni
og vinum hennar út að borða
Chelsea Clinton, dóttir Bills
Clintons Bandaríkjaforseta og Hill-
ary Clinton, varð sautján ára í gær
og hélt hún upp á daginn með því
að fara út að borða með foreldrum
sínum og um 10 vinum.
Núna um helgina verður meira
um að vera í tilefni afmælisins því
forsetahjónin ætla þá að bjóða dótt-
urinni til New York til að sjá
nokkrar leiksýningar og heim-
sækja veitingastaði, að sögn tals-
manns Hvíta hússins, Mikes McC-
urrys.
Á sjálfan afmælisdaginn fór
Chelsea í skólann eins og venju-
lega. Og um kvöldið var svo haldið
til veitingastaðarins Bombay Club
sem er ekki langt frá Hvíta húsinu.
Chelsea á frí í skólanum nokkra
daga í mars og fer hún þá með móð-
ur sinni í heimsókn til nokkurra
Afríkulanda.
Að sögn starfsmanna Hvita húss-
ins hefur stúlkan áhuga á að fara í
undirbúningsnám fyrir læknis-
fræði næsta vetur. Hún hefur þeg-
ar skoðað nokkra skóla og meðal
þeirra eru HarvEird, Brown og Yale
og Stanford í Kaliforníu. Þegar dag-
blaðið Los Angeles Times greindi
frá því að Chelsea hefði komist að í
Harvard lýsti forsetinn því yfir að
dóttirin væri enn ekki búin að
ákveða í hvaða skóla hún hygðist
sækja um Reuter
Reiðubúnir tii viðræðna
Skæruliðar í Saír segjast vera
reiðubúnir til viðræðna um að
binda enda á borgarastríðið í land-
inu.
Ávarpar þjóðina
Búist er við
að Borís Jeltsin
Rússlandsforseti
muni í ávarpi til
þjóðarinnar í
dag ræða vanda-
mál rússneska
hersins. Miklar
vangaveltur eru
um að hann
muni reka vamarmálaráðherra
landsins.
Schwarzkopf efast
Norman Schwarskopf hershöfð-
ingi segist efast um að bandarískir
hermenn hafi fengið i sig íraskt
stríðsgas þar sem eitt millígramm
af því sé banvænt.
Ráðherra dáinn
Aðstoðarvamarmálaráðherra N-
Kóreu, Kim Kwang-jin, lést tæpri
viku eftir andlát vamarmálaráð-
herra landsins.
Lögmæt skotmörk
Skæruliðar i Súdan segja öll er-
lend olíufélög í landinu lögmæt
hemaðarleg skotmörk.
Lofa samvinnu
Yfirvöld í Sádi-Arabíu ítrekuðu í
gær loforð sitt um samvinnu við
Bandaríkjamenn viö rannsókn á
sprengjuárás á Bandaríkjamenn.
Skjálfti í Pakistan
Að minnsta kosti 35 týndu lífi í
mjög öflugum jarðskjálfta sem varð
í Baluchistan-héraði i Pakistan í
nótt, að sögn embættismanna.
Á hraðri
Vinsældir
Jacques Chiracs
Frakklandsfor-
seta og Alains
Juppés forsætis-
ráðherra hafa
aukist mjög i
kjölfar tilrauna
þeirra til að
koma umdeildu
frumvarpi um hertar aðgeröir
gegn ólöglegum innflytjendum í
gegnum þingið.
Ekkert gengur
Ekkert miðar í viðræðum Suð-
ur-Kóreu og Kína um norður-
kóreskan embættismann sem leit-
aði hælis í sendiráði sunnan-
manna í Peking.
Hermaður drepinn
ísraelskur hermaður lét lífið og
tveir félagar hans særðust í árás
skæruliða í sunnanverðu Líbanon
í morgun.
Fjölmenn útför
Sjö þúsund manns voru við út-
för fjögurra franskra stúlkna sem
voru myrtar í borginni Boulogne
fyrir skömmu.
Berisha í framboði
Sali Berisha,
forseti Albaníu,
verður frambjóð-
andi flokks sins
þegar þing lands-
ins greiðn at-
kvæði um nýjan
forseta á mánu-
daginn kemur.
Næsta vist þykir
að ekkert mótframboð komi fram
og Berisha muni því gegna emb-
ætti næstu fimm árin.
Konurnar með
Hljóðfæraleikarar í Vínarfíl-
harmóníunni, síðasta karlaveldinu
í tónlistinni, greiddu atkvæði með
inntöku kvenna í sveitina.
Dauðsföllum fækkar
Bandarísk heilbrigðisyfirvöld
skýrðu frá því í gær að dauðsföll-
um af völdum alnæmis hefði fækk-
að í fyrra og hefur slíkt ekki gerst
áður. Reuter
uppieið