Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1997, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997
11
Fréttir
Bændur í Qötrum sérstakrar lagaverndar og sérvisku:
Ein lög og einn siður fýrir
alla verður að gilda
- segir Jón Eiríksson bóndi, Arnarfelli
„Þegar EES-samningurinn var
gerður voru bændur teknir út úr og
sérstök lög látin gilda inn þá, æðri
öðrum lögum ,“ segir Jón Eiriksson,
bóndi að Amarfelli í Eyjafjarðarsveit.
Jón segir að bændur starfi í skjóli
búvörulaga sem eru æðri samkeppn-
islögum og bijóti í raun í bága við
þau. Samkvæmt búvörulögum er
bæði verð og magn búvara ákveðið af
sérstökum aðilum meðan verðlagn-
ing annarra vara ákvarðast af fram-
boði og eftirspum í samræmi við
samkeppnislög. Bændur séu þannig
vemdaðir fyrir raunveruleikanum af
sérstökum lögum eins og þeir séu
fatlaðir, enda þótt fótlun þeirra sé
ekki sýnilega fólgin í öðm en því að
þeir em bændur.
Jón segir að svo alvarlega sé nú
komið fyrir elsta atvinnuvegi þjóðar-
innar að forysta bænda og fulltrúar
þeirra á búnaðarþingi, sem nú stend-
ur yfír, geti ekki lengur vikist undan
því að fara að dæmi Þorgeirs Ljós-
vetningagoða og leggjast undir feld og
hugsa sitt ráð. Eftir það hljóti þeim
Jón Eiríksson, bóndi að Arnarfelli í Eyjafjaröarsveit, segir sérstök lög gilda um bændur sem æöri séu öörum lögum.
Þeir séu þvi sérstaklega verndaöir. Ari Teitsson, formaöur Bændasamtakanna, segir bændur feta sig smátt og smátt
í frjálsræðisátt.
Formaður Bændasamtakanna:
Fetum okkur í átt
til frjálsræðis
- háskalegt að fleygja öllu fyrir róða strax, segir Ari Teitsson
„í drögum að kjaramálaáætlun
búnaðarþings kemur fram að við
geram okkur grein fyrir því að
ffamtíð okkar liggur í markaðn-
um,“ sagöi Ari Teitsson, formaður
Bændasamtakanna, þegar DV bar
undir hann gagnrýni Jóns Eiríks-
sonar um að bændur sætu fastir I
viöjum sérlaga sem veija þá fyrir
markaöslögmálunum og hindra þá í
því að taka þátt í markaðsþjóðfélag-
inu á sömu forsendum og aðrar at-
vinnugreinar.
Ari Teitsson segir þessa gagnrýni
ekki sanngjama þar sem verulegar
breytingar I frjálsræðisátt hafl ver-
ið gerðar á landbúnaðinum og sé
verið að gera jafht og þétt. „Við höf-
um verið í dálítið lokuðu umhverfi,
með sérlög, -reglur og miðstýringu
undanfama áratugi. Þetta var líka
svona í Sovétríkjunum þegar Gor-
batsjov ákvað að fleygja því öllu út
í hafsauga og hver var niðurstaðan?
þaö hrundi allt. Við viijum ekki fara
þá leið en erum sammála honum
um að það þurfi að losa um hlutina
og þróa þá en ekki að fleygja öllu
fyrir borð. Ég held þannig að sauð-
fjársamningurinn, sem við gerðum
fyrir rúmu ári, sé dæmi um hvem-
ig er verið að reyna að þróa hlutina.
í honum var skilið að verulegu leyti
milli stuðnings og framleiðslu og
framleiðslustýring í raun afnumin
og ákveðið að verðlagningin yrði
gefin öjáls eftir tvö ár. Við erum
því að feta okkur í þessa átt,“ segir
Ari Teitsson, formaður Bænda-
samtakanna.
-SÁ
að verða ljóst eins og Þorgeiri að ekki
gengur annað en að hafa ein lög og
einn sið í landinu.
„Stéttin er búin að múra sig inni
með sérlögum og reglum og mun með
sama áffamhaldi einangrast æ meir
eins og einhvers konar sértrúarsöfh-
uður þar sem príoramir boöa sjálfsaf-
neitun þegnanna og sjálfsagt fyrir-
gefiiingu syndanna sjálfum sér til
handa, í stað þess að stéttin takist á
við lífið eins og það er.“
Jón gagnrýnir þann málflutning
forystu Bændasamtakanna við upp-
haf Búnaðarþings að bændur hafi
fært miklar fómir vegna þjóðarsátt-
ar sem þeir þurfi að endurheimta,
m.a. með aukinni innflutnings- og
tollavemd og opinberum styrkjum.
Bændur hafi vissulega fómað sér en
fyrst og fremst á altari sérvisku og
haldið dauðahaldi í úrelt kerfi sem
algerlega sé úr takti við allar breyt-
ingar sem orðið hafa í þjóðfélaginu.
Litlar breytingar hafi þar komist að
í átt til markaðsfrelsis, hagræðingar
og hagkvæmni eins og í öðrum at-
vinnugreinum. Takmarkaður skiln-
ingur hafi komist að hjá forystu-
sveit bænda á því að landbúnaður-
inn sé hluti af samfélaginu og verð-
ur að þróast og breytast með því
Skóviðgerðir—Töskuviðgerðir—Lyklasmíði
Opið 10-16 á laugardaginn
Grettisgötu 3 - Sími 552-1785 - Bak við SPRON - góð bílastæði
BEKO fékk viðurkenningu
í hinu virta breska tímanti
WHATVIDEO sem
bestu sjónvarpskaupin.
M • Myndlampi Black Matrix
• 100 stöðva minni
• Allar aðgerðir á skjá
• Skart tengi • Fjarstýring
• Aukatengi f. hátalara
• íslenskt textavarp
R Æ Ð U R N I R
Umboðsmenn:
ími 533 2800
Lá g m ú
Reykjavík: Byggt & Búið, Kringlunni. Vesturiand: Méiningarþjónustan Akranesi,
Kf.Borgfirðinga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Helllssandi. Vestflrðlr: Geirseyrarbúðin, 1
Patreksfirði. Ratverk,Bolungarv(k.Straumur,fsatirði. Norðurland: Kf. V-Hún.,
Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Hegri.Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri. 5
KEA.Dalvlk. Kf. Þingeyinga, Húsavik. Austurland: KHB, Egilsstððum. Verslunin Vfk, 1
Neskaupsstað. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði. Kf. Stððfirðimga, Stöðvarfirði. °
Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes,
Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavik. Rafborg.Grindavfk. §