Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1997, Page 13
FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997
13
DV
Fréttir
Reykholt í Borgarfiröi:
Ekki grundvollur fyrir skola
hald þar í núverandi mynd
DV, Vesturlandi:
Hagsýslustofnun rlkisins hefur
komist að þeirri niðurstöðu að ekki
sé grundvöllur fyrir áframhaldandi
rekstri á skólahaldi eins og Fjöl-
brautaskóli Vesturlands hefur haft
með höndum í Reykholti í Borgar-
firði síðan 1995. Reksturinn þykir of
dýr miðað við fjölda nemenda.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun
um hvaða starfsemi verði í framtíð-
inni í Reykholti. Ríkir því óvissa
um atvinnu íbúa í Reykholtsdal því
að um 18% íbúa á heimilum í daln-
um hafa beina atvinnu af rekstri
skólans.
Bjöm Bjarnason menntamálaráð-
herra sagði á fundi í Logalandi um
helgina að hann myndi taka ákvörð-
un um endanlega framtíð skólans,
byggða á skýrslu Hagsýslu ríkisins.
Hann taldi æskilegt að nám á há-
skólastigi yrði í Reykholti í framtíð-
inni og kæmi þar til greina fræða-
stofnun í miðaldafræðum. Enn
fremur lýsti hann sig reiðubúinn til
viðræðna við heimamenn um fram-
haldið og taldi að hægt væri að
leggja grunn að framtíð Reykholts
með metnaðarfullu átaki heima-
manna og stuðningi ríkisins. Ljóst
er að þessi hugmynd og aðrar kom-
ast ekki í framkvæmd á næsta
skólaári og jafnvel ekki fyrir en eft-
ir nokkur ár. Getur það verið af-
drifaríkt fyrir byggðina. Þama búa
um 350 manns.
-DVÓ
Patreksfjörður:
Oddi keypti
sláturhúsið
firæga
DV, Patreksfirði:
Á siðara uppboði á sláturhúsinu
á Patreksfirði á dögunum átti fyr-
irtækið Nyko í Reykjavik hæsta
tilboðið en Oddi á Patreksfirði það
næsthæsta. Ekki gat reykvíska
fyrirtækið staðið við sitt tilboö og
því gafst Odda kostur á að ganga
inn í málið og keypti fyrirtækið
húsnæðið á 4,5 milljónir króna.
Sigurður Viggósson, fram-
kvæmdastjóri Odda, sagði að ekki
væri endanlega búið að ákveða
nýtingu húsnæðisins. Þó sagði
hann ákveðið að þar yrði mat-
vælavinnsla, hvort sem hún verð-
ur á vegum Odda eða einhverra
annarra. Sagði hann aö stjórn
Odda væri jákvæð gagnvart því að
áfram yrði rekið þarna sláturhús
og bjóða ætti bændum að skoða
það dæmi. -HKr.
Starfsfólk á stofunum. Talið frá vinstri: Þórarinn Þórhallsson sölustjóri, Guðný Þórdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
fasteignasölu, Gísli M. Auðbergsson, Þetra J. Vignisdóttir ritari, og Jónas A. Þ. Jónsson. DV-mynd Emii
Lögfræðistofa í fyrsta
sinn á Eskifirði
DV; Eskifiröi:
Lögfræðiskrifstofa hefur í fyrsta
sinn hafið rekstur hér á Eskifirði, -
Lögfræðistofa Gísla M. Auðbergs-
sonar að Strandgötu 53, eða 1 gömlu
heilsugæslustöðinni, sem er nú í
eigu bæjarsjóðs Eskifjarðar. Gísli er
þrítugur Eskfirðingur, sonur Auð-
bergs Jónssonar héraðslæknis og
Katrinar Gísladóttur.
Samhliða almennum lögfræði-
störfum hefur Gísli stofnað Fast-
eigna- og skipasölu Austurlands,
ásamt svila sínum, Jónasi A. Þ.
Jónassyni hdl. Bæði fyrirtækin eru
á Eskifirði. Bæjarsjóður kostaði
breytingar á húsnæðinu og leigir
það til fimm ára. Þetta er liður bæj-
aryfirvalda til nýsköpunar í at-
vinnumálum á Eskifirði. Vilja þau
með þessu leggja sitt af mörkum til
að auka breidd í fremur einhæfum
atvinnumálum staðarins; fiskveið-
um og vinnslu sjávarafurða.
Með opnun lögfræði- og fasteigna-
sölunnar hafa skapast 4-5 ný störf,
sem ekki voru hér fyrir hendi áður.
í samtali við DV sagði Gísli að starf-
semin legðist mjög vel í sig og næg
verkefni væru fyrir hendi.
„Starfsemin kemur til með að
standa og falla með viðskiptmn,
fyrst og fremst frá miðfjörðunum,
Neskaupstað, Eskifirði og Reyðar-
firði,“ sagði Gísli. Aldrei fyrr hefur
almenn lögfræðisþjónusta verið
starfrækt á Eskifirði. Er ánægjulegt
til þess að vita að unga fólkið, sem
hefur sótt menntun til Reykjavíkur,
skuli koma aftrn- og starfa í sinni
heimabyggð við störf sem svo sann-
arlega hefur skort í dreifbýlinu.
E.T.
1 BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR
I BORGARTÚN 3-105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Laugavegur 86 og 86B
St.gr. 1.174
Breyting á skipulagi
Samþykkt hefur verið í skipulagsnefnd breyting á
skipulagi við Laugaveg 86 og 86B. Gert er ráð fyrir
að húsið við Laugaveg 86 verði flutt en húsið nr. 86B
verði rifið. Tillögur um uppbyggingu eru til sýnis í
kynningarsal Borgarskipulags og byggingarfulltrúa
að Borgartúni 3. 1. hæð, kl. 9:00-16:00 virka daga frá
28. febrúar - 26. mars.
Sauðárkrókur:
Metþátttaka í
dægurlagakeppni
DV, Sauðárkróki:
Alls bárust 94 lög í dægurlaga-
keppni Kvenfélags Sauðárkróks og er
það um þrisvar sinnum fleiri lög en á
síðasta ári. Valin hafa verið 10 lög í
úrslit og sú keppni verður á stór-
skemmtim í íþróttahúsinu 2. maí nk.
Að sögn Guðmundar Ragnarsson-
ar, framkvæmdastjóra keppninnar,
er þegar farið að útsetja lögin. Eirik-
ur Hiimisson sér um það og stjómar
einnig upptöku á iögunum. Þau
verða gefin út á geisladiski sem kem-
ur út á úrslitakvöldinu. Lögin 94 eru
frá um 80 lagahöfundum sem skiluðu
inn lögum undir duinefnum. Hulunni
verður svipt af þessum höfúndanöfn-
um á úrslitakvöldinu.
Því er lítið vitað um lagahöf-
undana nema að þeir eru hvaðanæva
að af landinu. Guðmundur Ragnars-
son kveðst hins vegar hafa ffétt að á
meðal söngvara og flytjenda sé þekkt
tóniistarfólk. Eiríkur Hilmisson
stjómar hljómsveit sem leikur á úr-
slitakvöldinu og sveitin verður ein-
göngu skipuð heimamönnum. Dóm-
nefnd valdi lögin 10 og heldur hún
álfam störfum á úrslitakvöldinu,
ásamt áhorfendum úr sal.
ÞÁ
Aukin ökuréttindi
Næsta námskeið í Reykjavík
verður sett mánudaginn
3. mars kl. 18.00 í húsnæði
skólans að Suðurlandsbraut 16.
ÖKUSKÖLI
Wn i j ‘ fl
LEIGIIBIFRBII) - VflRIJRIFHHIfJ - IIÓPBIFRBID
Landsbyggðarmenn ath! Ökuskóli S.G. hyggst bjóða upp á nýjungar í kennslutilhögun
utan Reykjavíkur. Kynnið ykkur málið! Byrjað verður í Vestmannaeyjum og Höfn í
Homafirði. Nánar auglýst síðar.
Aukin réttindi - Auknir möguleikar
Okuskóli S.G.
Suðurlandsbraut 16
Símar: 5811919 og 892 4124
Netfang: okuskol@itn.is