Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1997, Page 16
i6 nienning
FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 JjV
Menningarverðlaun DV afhent í nítjánda sinn í gær
Mikilvægt að beina
sjónum að nútímalist
í gær voru Menn-
ingarverðlaun DV af-
hent í nítjánda sinn
við hátíðlega athöfn í
Þingholti, hliðarsal
Hótel Holts.
Aðalsteinn Ingólfs-
son var að venju
veislustjóri og þakk-
aði dómnefndum
þeirra störf og sérstak-
lega þó listamannin-
um Páli Guðmunds-
syni á Húsafelli sem
hafði höggvið í steina
úr Húsafellsgili tákn-
rænt dýr fyrir hverja
listgrein.
„Sú staðreynd að
við skulum vera hér í
nitjánda sinn vitnar
ekki bara um týpiska
íslenska þrjósku,"
sagði Aðalsteinn,
„heldur er það árétt-
ing á því í orrahríð
fjölmiðlanna að einn
fjölmiðill heldur uppi
reglulegri menning-
arrýni og menningar-
skoðun."
Síðan voru dýr Páls
á Húsafelli afhent
hvert af öðru með til-
heyrandi rökstuðn-
ingi. Til dæmis talaði
dr. Maggi Jónsson um
hve mikilvægt það
væri að beina sjónum
að samtímalist. Ný-
lega hefði birst á
prenti valinn listi yfir fallegustu
hús á landinu og einungis lítill hluti
þeirra hefðu verið ný hús, reist á
Gestir f nftjánda Menningarverðlaunaboði DV bfða andaktugir eftir því að allir fái ofnbakaða barrann svo hægt verði að byrja að snæða.
DV-myndir BG
okkar tíma. Því skipti miklu máli
að DV skuli verðlauna listamenn
sem eru að skapa byggingarlist á
hveijum tíma.
Móttakendur dýranna þökkuðu
fyrir sig með ýmsum hætti. Birt-
ingsmenn, sem hlutu leiklistarveiu-
laun, fluttu brot úr verki Voltaires
og úrvinnslu Hermóðs og Háðvarar
á því. Friðrik Þór
Friðriksson sagðist
yngjast um nítján ár
við þetta tækifæri
því hann tók við
myndlistarverðlaun-
um DV fyrir hönd
Gallerísins Suður-
götu 7 árið 1979, í
fyrsta skipti sem þau
voru veitt. Svo hafði
hann reyndar komið
nokkrum sinnum síð-
an!
í lokin gat Jónas
Kristjánsson ritstjóri
áttundu listgreinar-
innar, matargerðar-
listarinnar. Máltíðin
hefði verið, eins og
venja er til, óður til
íslensks sjávarfangs
og franskrar matar-
gerðarlistar sem er
álíka gömul í landinu
og Menningarverð-
laun DV.
Nú voru á borðum
sandhverfa tartar í
forrétt og ofhbakaður
barri i aðalrétt. Skoð-
anir voru skiptar um
sandhverfuna. Annað
hvort fannst mönn-
um hún afbragð - og
svo var um flesta -
eða óæti! En allir
voru sammála um að
barrinn væri sjald-
gæft lostæti.
Auður Eydal afhendir Hilmari Jónssyni leiklistarverölaunin.
Hermóður og Háðvör - leiklist:
Að rækta
garðinn sinn
„Skyldi það ekki vera algjört met
að í allan vetm: hefur mátt velja úr
rúmlega tuttugu og stundum allt
upp undir þrjátíu leiksýningum í
viku hverri héma í Reykjavík og
nágrenni?“ spurði Auður Eydal þeg-
ar hún afhenti Hilmari Jónssyni
leiksfjóra gráfjólubláan apa frá Páli
á Húsafelli í leiklistarverðlaun. 1996
var ár hinna sterku, frumlegu og
faglega unnu leiksýninga, þar sem
allt hljómar saman: Leikur, um-
gjörð, listræn stjórn og inntak, og
ein þeirra var verðlaunahafinn,
Birtingur, sem Hafnarfjarðarleik-
húsið Hermóður og Háðvör hafa
sýnt síðan í haust.
„Sýningin einkenndist af hug-
kvæmni," sagði Auður. „Stefnan
var skýr, hugmyndimar vel gmnd-
aðar, listræn stjómun ákveðin og
öll atriði útfærslunnar rímuðu sam-
an. í verki hópsins endurspeglast
orð Birtings, þegar hann hefur
hlustað á Altungu lærimeistara
sinn um stund: „Þetta er vel mælt,
en hitt veit ég líka að maöur verður
að rækta garðinn sinn.“
Með Áúði í néfndinni vora Hall-
dóra Friðjónsdóttir leikhúsfræðing-
ur og Oddur Bjömsson, rithöfundur
og leikskáld.
George Hollanders - listhönnun:
Vönduð og litrík
þroskaleikföng
„Eitt af því sem hefur
ómæld áhrif á þroska
mannsins era leikfongin
frá æskuáranum. Sum
þeirra urðu manni kærari
en önnur og stuðluðu að
því að draumar og þrár
vöknuðu,“ sagði Torfi
Jónsson þegar hann af-
henti George Hollanders
Menningarverðlaun DV
fyrir listhönnun, hrút úr
steini frá Húsafelli.
George rekur Gtilla-
smiðjuna Stubb norður í
Eyjafirði og býr til fjöl-
breytt úrval leikfanga, allt
frá vögguglingri yfir í bíla,
eins og Torfi sagði: „Vand-
að handverk, skemmtileg
og litrík form sem kveikja
gleði og eftirvæntingu í
litlum hjörtum. Öll era
leikfongin meðhöndluð
með 100% lífrænni máln-
ingu sem er skaðlaus, og
þeim má stinga í sérsmíö-
aðan kassa sem vekur at-
hygli fyrir hugvitsamlega
læsingu."
Með Torfa í nefndinni
voru innanhússarkitekt-
arnir Eyjólfur Pálsson og
Baldur J. Baldursson.
Torfi Jónsson afhendir George Holianders listhönnunarverðlaunin fyrir einstaklega
falleg þroskaleikföng sem voru til sýnis í anddyri Þingholts.