Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1997, Síða 17
JOfT ’ FOSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997
nnmg:
Friðrik Pór Friðriksson er eiginlega fastagestur. Þetta var í fjórða sinn sem
hann tók við Menningarverðlaunum DV.
íslenska kvikmyndasamsteypan - kvikmyndir:
Gnæfði yfir annað
Friðrik Þór Friðriksson tók við
verðlaunum fyrir kvikmyndagerð
úr hendi Hilmars Karlssonar, tákn-
rænu ljóni frá Páli á Húsafelli. Það
var íslenska kvikmyndasamsteypan
sem viðurkenninguna hlaut fyrir
Djöflaeyjuna, sem líklega kemur
fáum á óvart, því hún gnæfði yfir
annað á árinu að mati nefndarinn-
ar.
„Það er mikið afrek að koma á
myndmál skáldsögum Einars Kára-
sonar, sem nær öll þjóðin þekkir og
dáir. Og það að Djöflaeyjan skyldi
vera vinsælasta kvikmyndin sem
sýnd var á íslandi í fyrra segir sina
sögu um það hvemig þjóðin tók
myndinni," sagði Hilmar.
Djöflaeyjan hefur þegar hafið
ferðalag um erlendar kvikmyndahá-
tíðir með glæsibrag og er skemmst
að minnast undirtekta á kvik-
myndahátíðinni i Berlín.
Með Hilmari í nefndinni voru
Þorfinnur Guðnason kvikmynda-
gerðarmaður og Baldur Hjaltason
forstjóri.
Ólafur Gíslason afhendir Steinu Vasulka myndlistarverölaunin. Hún hélt aö
fslendingar heföu séð í gegnum hana - en þaö höfðu þeir greinilega ekki
gert úr því aö hún fékk þessi verölaun!
Steina Yasulka - myndlist:
Brautryðjandi
í nýrri tækni
Steina Vasulka hefur dvalist er-
lendis lengst af sinni starfsævi og
gerðist þar brautryðjandi í nýrri
tækni á sviði myndlistar, eins og
Ólafur Gíslason kynnti viðstöddum
þegar hann afhenti Steinu sauðnaut
Páls á Húsafelli í myndlistarverð-
laun. Hún hefur unnið að tilraunum
í gerð myndbanda og samþættingu
myndbandatækni við tónlist og aðra
rafræna margmiðlun.
„Það fór vart framhjá neinum
sem sá sýningu Steinu á Kjarvals-
stöðum í fyrra að þar var á ferð ný-
sköpun," sagði Ólafur, „þar sem
efniviður listakonunnar var ekki
bara frumefhi á borð við íslenska
náttúru og orku og tíma, heldur líka
miðillinn sjálfur, tæknilegir mögu-
leikar hans og eiginleikar, sem og
skynjun okkar á þessum miðli. Með
verkum sínum hefur Steina víkkað
svið myndlistarinnar."
Með Ólafl í nefndinni voru Aðal-
steinn Ingólfsson listfræðingur og
Harpa Bjömsdóttir myndlistarmað-
ur.
Jón Ásgeirsson - tónlist:
Samfellt tónmál
og magnaðar senur
Sigfríður Björnsdóttir greip til
þjóðsagnastílsins þegar hún kynnti
verðlaunahafann í tónlist, Jón Ás-
geirsson, og færði honum styttu
Páls á Húsafelli af fugli með silfur-
berg í vængjum - „því það er eins
og í Jóni persónugerist öfl og eðli
sem maður almennt tengir við nátt-
úmna eða þjóðsagnapersónur." Hún
sagði hann hafa fylgst álengdar með
módernískum sveiflum tónlistar á
öldinni án þess að hafa gerst liðs-
maður neinnar þeirra tískustefna
sem fram hafa komið; þess i stað
hefði hann sökkt sér í þjóðararfinn
og þróað persónulegan og þjóðlegan
stíl.
Um verðlaunaverkið sagði Sig-
fríður: „Óperan Galdra-Loftur er
stórvirki í íslenskri tónlistarsögu.
Samspil texta og tónlistar er sterkt.
- Samfellt tónmál, áhrifamiklar lín-
ur og magnaðar senur einkenna
hana. Þetta er áhrifamikil ópera
byggð á íslenskum efniviði í ís-
lenskum stíl.“
Með Sigfríði sátu í nefndinni
Anna Guðný Guðmundsdóttir pi-
anóleikari og Lára Halla Maack geð-
læknir.
Svitanum sló út á Jóni þegar hann hlustaði á Sigfríöi halda ræöuna. Hér tek-
ur hann viö tónlistarverölaununum úr hendi hennar.
Studio Granda - byggingarlist:
Veigamikið framlag
Verðlaun í byggingarlist fengu
hönnuðir Dómhúss Hæstaréttar,
arkitektamir Margrét Harðardóttir
og Steve Christer sem standa saman
að arkitektastofunni Studio Granda.
Dr. Maggi Jónsson afhenti Margr-
éti og Steve styttu Páls á Húsafelli
af fll og sagði meðal annars: „Dóm-
nefndin telur verkið vandaða og ag-
aða byggingarlist. Þar haldast í
hendur útlit sem styður við um-
hverfið, gott innra skipulag og
markviss efnismeðferð. Höfundar
taka á næman og hógværan hátt til-
lit til sögulegs umhverfis og tekst að
auðga samspil þeima húsa sem fyr-
ir eru og gera úr svæðinu heild-
stæðari borgarmynd.
Skipulag hússins er einfalt og
rökrétt. Hvert smáatriði hugsað frá
gnrnni af fagmennsku og vand-
virkni. Húsið er samhljóma heild og
veigamikið framlag síns tíma til is-
lenskrar byggingarlistar.“
Með dr. Magga voru í nefndinni
Richard Ólafur Briem arkitekt og
Auður Ólafsdóttir listfræðingur.
Dr. Maggi Jónsson afhendir Margréti Harðardóttur og Steve Christer stóra
gula fílinn í verölaun fyrir Dómhús Hæstaréttar.
Gyrðir Elíasson - bókmenntir:
Allífið handan hversdagsleikans
Gyröir Elíasson tekur viö tákni viskunnar úr hendi Jóns Karls Helgasonar.
„Með Indíánasumri hefur Gyrðir
Elíasson ekki aðeins aukið nými
perlu við höfundarverk sitt heldur
dregið skýrar fram en áður það
mynstur hugmynda og merkingar
sem liggja skáldskap hans til grund-
vallar," sagði Jón Karl Helgason
þegar hann afhenti Gyrði gula uglu
Páls á Húsafelli í verðlaun fyrir
bókmenntaafrek.
Og Jón Karl hélt áfram: „Sögu-
svið Indíánasumars er við fyrstu
sýn ósköp hversdagslegt, skáldið
kveikir á kaffivélinni, lítur út um
eldhúsgluggann, þvottur hangir á
snúru. En handan þessa hversdags-
lífs er sjálft allífið með englum sin-
um og reikistjörnum. Og það er
þangað sem skáldið skyggnist ásamt
þeim persónum - mönnum og dýr-
um - sem við sögu koma.“
Með Jóni Karli í nefndinni voru
bókmenntafræðingarnir Sigríður
Albertsdóttir og Eiríkur Guðmunds-
son.