Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1997, Síða 19
18
31
+
FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997
íþróttir ~___________________________________pv dv________________________________________________________________________________________________________________íþróttir
Matthías í bam
Aganeöid HSÍ úrskuröaöi á fundi
sínum í gær Matthías Matthiasson,
þjáifera og leikmann ÍR, í eins leiks
bann og tekur það gildi i dag. Matt-
hías veröur því fjairi góðu gamni
þegar ÍR-ingar mæta FH-ingum í
Seljaskóla á sunnudagskvöldið.
Rússar sigruöu
Rússar fögnuðu sigri í 4x5 km
boðgöngu kvenna á heimsmeistara-
mótinu í norrænum greinum í
Þrándheimi í gær. Það var Jelena
Velbe sem tryggði rússnesku sveit-
inni sigurinn en hún gekk síðustu 5
km. Þetta voru fjórðu gullverölaun
hennar á mótinu en henni var
dæmdur sigurinn í 10 og 15 km
göngunni eftir að landa hennar, Lju-
bov Jegorva, var nöppuö á lyfja-
prófi.
Keflavík meistari
Með sigri sínum á KR í fyrra-
kvöld tn'ggðu íslands- og bikar-
meistarar Keflvíkinga sér deilda-
meistaratitilinn í 1. deild kvenna.
Eitthvað skoluðust til stig KR-ing-
anna í blaðinu í gær en Guöbjörg
Norðfjörð skoraði 17 stig, Kristín
Jónsdóttir 15, Helga Þorvaldsdóttir
15 og Linda Sfefansdóttir 12.
Scifo til Anderlecht
Belgíski landsliðsmaðurinn Enzo
Scifo, sem leikið hefúr með Monaco
í Frakkalandi undanfarin ár, mun
ganga í raðir Anderlecht í Belgíu á
næsta tímabili en 10 ár eru síðan
hann lék með liðinu.
KR-ingar sigruöu
KR sigraði Ármann, 43-32, í 2.
deild karla í handknattleik í gær.
-GH
ÚRVALSDEILDIN
Keflavík 20 17 3 1964-1656 34
Grindavík 21 16 5 1950-1833 32
ÍA 21 14 7 1663-1593 28
Haukar 20 13 7 1663-1602 26
Njarövík 21 13 8 1786-1722 26
KR 21 11 9 1841-1734 22
Skallagr. 21 10 11 1739-1791 20
ÍR 21 9 12 1790-1782 18
KFÍ 20 8 12 1629-1672 16
Tindastóll 20 7 13 1627-1679 14
Þór, A. 21 6 15 1698-1878 12
Breiðablik 21 0 21 1496-1894 0
Keflvíkingar tryggðu sér
deildameistaratitilinn í gær í kjölfar
ósigurs Grindvíkinga. Það ræðst í
lokaumferðinni á sunnudaginn hvaða
lið mætast í 1. umferð úrslitakeppn-
innar.
Eins og staðan er í dag leika:
Keflavík-ÍR, Grindavik-Skallagrím-
ur, Akranes-KR og Haukar-Njarðvík.
Þetta getur hæglega breyst enda
deildin mjög jöfn. ísfirðingar eygja
enn von um að komast i úrslitin en
til þess þurfa þeir að vinna báða leiki
sina og stóla á að ÍR tapi.
Jón Júlíus Árnason er hættur
að leika með Njarövíkingum en hann
hefur ekki gefið sér tíma til að stunda
íþróttina vegna náms.
Ástþór Ingason, þjálfari Njarð-
vikinga, kom á óvart í gær og mætti
í splunkunýjum jakkafötum.
„Ég vildi slá Frikka út af laginu,“
sagði Ástþór og átti viö Frirðik Inga,
kollega sinn hjá Grindavík, sem um
árabil hefur borið titilinn „best
klæddi þjálfari deildarinnar".
Tindastóll og Hatikar gátu
ekki leikið i gær þar sem Haukamir
gátu ekki flogið á Krókinn vegna veð-
urs. Leikurinn hefur verið settur á
klukkan 20 í kvöld og á sama tima
leika KFÍ og Keflavík á ísafirði.
„Besti leikur okkar
á þessu tímabili"
- Grindvlkingar töpuöu og þar með urðu KeflvHdngar deildameistarar
DV; Suðumesjum:
„Þetta var flábær leikur hjá okkur
og sá besti í vetur. Strákamir voru stór-
kosttegir í sókn og vöm og við erum
greinilega á réttri leið,“ sagði Ástþór
Ingason, þjálfari Njarðvíkinga, eftir sig-
ur á Grindvíkingum á útivelli. Það
vom ekki aðeins Njarðvíkingar sem
fögnuðu í leikslok því Keflvíkingar
tryggðu sér deildameistaratitilinn með
þessum ósigri Grindvíkinga.
Njarðvíkingar léku geysilega vel í
gær og em greinilega í mikilli sókn.
Þeir léku sterkan vamarleik og náðu að
loka á hinar öflugu þriggja stiga skytt-
ur Grindvíkinga. Herman Myers var
mjög sterkur í fyrri hálfleik og skoraði
þá 22 stig en í síðari hálfleik tók Krist-
inn Einarsson hann úr umferð og við
það náðu Njarðvíkingar góðum tökum
á leiknum. Þegar 7 mínútur vom til
leiksloka má segja að Grindvíkingar
hafi kastaö hvíta handklæðinu til
merkis um uppgjöf en þá var Myers
tekinn af velli og spilaði hann ekki
meira eftir það.
Eins og Njarðvíkingar léku í gær em
þeir til alls liklegir í úrslitakeppninni
sem er fram undan. Liðsheildin var
mjög jöfn en besti maður liðsins var
Torrey John sem átti frábæran leik.
Kristinn Einarsson mjög sterkur i
vöminni og hélt Hermani Myers
algjörlega í skefjum í seinni hálfleik.
Friðrik Ragnarsson kom mjög sterkur
inn í síðari hálfleik og skoraöi öfl 14
stigin sín. Þá átti Rúnar Ámason góðar
rispur í síðari hálfleik.
Biö stuöningsmenn
okkar afsökunar
„Við fengum fifllt af fríum skotum en
hittum ekki úr þeim. Njarðvíkingamir
vom hungraðri en við í sigur og við lék-
um langt undir geta Ég vil biðja stuðn-
ingsmenn okkar afsökunar og lofa þeim
að viö munum faka okkur saman í and-
litinu fyrir úrslitakeppnina," sagði
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálferi Grind-
víkinga. Myers var þeirra bestur
maður og Páll Vilbergsson átti ágætan
leik
-ÆMK
Barátta Þórsara
dugöi ekki til
í Borgarnesi
DV, Borgarnesi:
„Það var byrjunin öðru fremur sem
lagði grunninn að sigrinum. Þaö vom
allir liðsmenn vel stilltir inn á þennan
leik sem var okkur mikilvægur. Þórs-
arar eiga heiður skilið fyrir góða bar-
áttu en þeir gáfust aldrei upp, en leik-
urinn var þeim ekki eins mikilvægur
og Borgnesingum,“ sagði Tómas
Holton, þjálfari Skallagríms, við DV
eftir sigur á Þór í Borgamesi í gær-
kvöldi.
Það er hægt að taka undir orð
Tómasar að Skallagrímur geröi út um
leikinn strax í byrjun. Þórsarar reyndu
allt hvað þeir gátu til hanga í heima-
mönnum og tókst það með ágætum.
Undir lok leiksins, þegar sigurinn var
kominn í ömgga höfn hjá Skallagrími,
fengu óreyndari menn að reyna sig og
reyndar gerðu Þórsarar það sama
einnig.
Skallagrímur vann leikinn á sterkri
liðsheild en Ari Gunnarsson átti mjög
góöan leik og átti 12 stoðsendingar.
Þórsarar eiga hrós skilið fyrir góða
baráttu en yfirburðamaöur hjá þeim
eins og fyrri daginn var Fred Williams.
Það væri gaman að sjá þennan snjalla
leikmann í sterkari liði.
-EP
Marel Guölaugsson og félagar hans ■ Grindavík máttu þola tap á heimavelli
fyrir Kristni Einarssyni og samherjum hans í Njarövík í gær. í kjölfar ósigurs
Grindvíkinga tryggöu Keflvíkingar sér deildameistaratitilinn.
„Mjög ánægöur
meö strákana"
- sagði Hrannar Hólm, þjálfari KR
KR-ingar sigruðu ÍR-inga í Selja-
skóla, 86-100, í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í gærkvöldi. KR-ing-
ar hófu leikinn af miklum krafti,
vom mjög grimmir í öflum aðgerð-
um, en það sama verður ekki sagt
um ÍR-inga. Þeir náðu þó að rétta úr
kútnum og um miðjan fyrri hálfleik
náðu þeir að jafna og komast yfir.
Síðari hálfleikur þróaðist með
svipuðum hætti og sá fyrri nema að
KR-ingar héldu lengur út og unnu
mjög sannfærandi sigur. Leikurinn
var hraður og skemmtilegur fyrir
áhorfendur.
Roney Eford átti góðan leik fyrir
KR og hitti vel. Hermann Hauksson
barðist eins og ljón í fráköstunum.
Baráttan var allsráðandi hjá KR í
leiknum og uppskeran eftir því. Hjá
ÍR-ingum stóð Eggert Garðarsson
upp úr.
„Við höfúm verið að leika upp og
niður í vetur. Það er eins og vissan
stöðugleika hafl vantað. Okkur hef-
ur ekki gengið vel á útivöllum í vet-
ur og því var gott að vinna sigur
hér í Seljaskóla þar sem ÍR-ingar
hafa verið sterkir. Ég var einnig
ánægður með að sjá hvað liðinu
tókst að rífa sig upp eftir ósigurinn
vestur á ísafirði á dögunum. Þaö
var gaman að sjá til Efords í þess-
um leik en snjall leikur hans má
segja að hafi smitað út frá sér. Þetta
er allt saman á réttri braut hjá okk-
ur,“ sagði Hrannar Hólm, þjálfari
KR-inga, í samtali við DV eftir leik-
inn í Seljaskóla.
-RS
Oruggt á Skaganum
DV, Akranesi:
„Það var erfitt að ná sér upp eft-
ir sigurleikinn gegn Grindavík.
Við hrukkum í gang i síðari hálf-
leik en það var fyrir öllu að
vinna,“ sagði Alexander Ermol-
inski eftir sigur Akumesinga á
Breiðabliki, 88-74, á Skaganum i
gærkvöldi. Breiðablik leiddi í
hálfleik en það var ekki fyrr en í
síðari hálfleik sem heimamenn
hristu af sér slenið og sigu fram
úr. Blikamir mættu aðeins með
sjö leikmenn til leiksins. Áhuga-
leysið er orðið algjört enda fallnir
fyrir löngu í 1. deild.
Bestir hjá Skagamönnum í
leiknum vom Alexander Ermol-
inski, Haraldur Leifsson og Ron-
ald Baileys. Hjá Blikum var
Clifton Bush áberandi bestur og
einnig átti Pétur Sigurgeirsson
ágætan leik.
Síðasti leikur Skagamanna
gegn Njarðvíkingum er mikilvæg-
ur því með sigri ná þeir þriðja
sætinu í deildinni.
-DVÓ
Grindavík (43)83
Njarðvík (49)98
2-0,8-12,16-16,24-16,29-38,35-38 (43-49),
50-59,58-72, 62-83, 79-90,83-98.
Stíg Grindavlkur: Myers 26, Marel
Guðlaugsson 18, Páll Vilbergsson 18,
Helgi Guðfmnsson 17, Jón Kr. 2, Pétur
Guðmundsson 2.
Stíg Njarðvíkun Torrey 29, Frirðik
Ragnarsson 14, Sverrir Þór 12, Rúnar
Ámason 12, Kristlnn Einarsson 12, Jó-
hannes Kristbjömsson 6, Páll Kristins-
son 5, Ragnar Ragnarsson 4, Guðjón
Gylfáson 2, Örvar Kristjánsson 2.
Fráköst: Grindavlk 20, Njarðvik 37.
3ja stíga körfúr: Grindavík 1/22,
Njarðvfk 5/14.
Vítanýting: Grindavfk 23/26, Njarð-
vík 25/32.
Dómarar: Leifúr S. Garöarsson og
Helgi Bragason, ágætir.
Áhorfendur: 250.
Maður leiksins: Torrey John.
Akranes (37)88
BreiðabL (38) 74
6-10, 20-21, 27-25 (37-38). 4341, 71-58,
77-67, 88-74
Stíg ÍA: Ronald Baileys 25, Dagur
Þórisson 18, Alexander Ermolinski
17, Haraldur Leifsson 11, Bjami
Magnússon 10, Brynjar Sigurðsson 4,
Brynjar Karl Sigurðsson 3.
Stig Breiðabliks: Cliflon Bush 28,
Pálmi Sigurgeirsson 15, Einar Hann-
eson 14, ðskar Pétursson 10, Erling S.
Erlingsson 5, Baldur Steinarsson 2.
Fráköst: ÍA 29, Breiðablik 21.
3ja stíga körfur: ÍA 9, Breiðabiik
14.
Dómarar: Einar Skarphéðinsson
og Rögnvaldur Hreiðarsson, ágætir.
Áhorfendur: Um 200.
Maður leiksins: Ronald Baileys,
ÍA.
ÍR (46)86
KR (44) 100
0-3, 5-5, 6-15, 9-21, 18-25, 22-29, 32-33,
35-35 (46-44). 53-57, 56-63, 65-73,
71-78, 73-82, 77-86, 86-100.
Stíg ÍR: Tito Baker 29, Eggert
Garðarsson 21, Eiríkur Önundarson
20, Atli Þorbjömsson 9, Guðni Einars-
son 4, Hjörleifur Sigurþórsson 3.
Stíg KR: Roney Eford 40, Her-
mann Hauksson 28, Jónatan Bow 13,
Hinrik Gunnarsson 8, Ingvar Orm-
arsson 6, Gunnar örlygsson 5.
Fráköst: ÍR 31, KR 36.
3ja stiga körfur: ÍR 5, KR 3.
Vítanýting: ÍR 14/10, KR 23/19.
Dómarar: Kristinn Albertsson og
Kristinn Óskarsson, sæmilegir.
Áhorfendur: Rúmlega 200.
Maöur leiksins: Hermann
Hauksson, KR.
Skallagr.(60) 108
Þór (38) 87
7-2, 20-7, 30-18, 45-22, 54-34 (60-38).
7043, 81-59, 98-71, 102-81, 108-87.
Stig Skallagríms: Joe Rett 24,
Bragi Magnússon 24, Ari Gunnarsson
18, Grétar Guðlaugsson 15, Tómas
Holton 13, Þórður Helgason 8, Egill
Egilsson 4, Kristinn Guðmundsson 2.
Stig Þórs: Fred Willimas 32, Haf-
steinn Lúðvíksson 14, Konráð Óskars-
son 13, Þórður Steinþórsson 10, Böðv-
ar Kristjánsson 10, Einar Valbergs-
son 2, Högni Friðriksson 2, Bjöm
Sveinsson 2, Joe Cariglia 2.
Fráköst: Skallagrímur 36, Þór 21.
3ja stíga körfur: Skallagr. 12/6,
Þór 22/7.
Dómarar: Jón Bender og Georg
Andersen, sæmilegir.
Áhorfendur: 303.
Maður leiksins: Ari Gunnars-
son, Skallagrími.
Reynir Reynisson:
Draumur lengi
að spila
landsleik
„Það var frábært að fá að koma inn á
og spila sinn fyrsta landsleik. Það er bú-
inn að vera draumur hjá mér lengi að
spila landsleik eða síðan maður var
polli aö horfa á þessa kalla í sjónvarp-
inu. Ég get ekki verið annað en sáttur
við mína frammistöðu. Ég vissi í raun-
ininni ekkert hvar ég stóð þar sem ég
hef ekki spilað landsleik áður svo þetta
var prófraun fyrir mig hvar ég stend.
Ég fann mig vel í leiknum enda vömin
mjög góð fyrir framan mig. Það hjálpaði
mér líka að verja vítið i upphafi síðari
hálfleiks.
Auðvitað ætlar maður að reyna að
halda í landsliðssætið en núna hugsa ég
um að standa mig með Fram og gera
góða hluti í úrslitakeppninni," sagði
Reynir Þór Reynisson, sem var að leika
sinn fyrsta landsleik í gær og það er
ekki hægt að segja annað en að byrjun-
in lofi góðu hjá honum.
-GH
Leikið gegn Kína
í byrjun apríl
Næsta verkefni íslenska landsliðsins
em tveir leikir gegn Kínverjum hér á
landi 2. og 3. apríl. Leikimir verða háð-
ir á ísafirði og á Selfossi.
Þrír meiddir hjá
Aftureldingu
Þrir af lykilmönnum Aftureldingar,
Gunnar Andrésson, Einar Gunnar Sig-
urðsson og Sigurður Sveinsson, eru á
sjúkralistanum og verða væntanlega
fjarri góðu gamni þegar Afturelding
sækir Gróttu heim á Seltjamames á
morgun. Sigurður Sveinsson var valinn
í landsliðshópinn í leikina gegn Egypt-
um en gat ekki leikið sökum meiðslna.
-GH
Júlíus skoraði
sexmörk
Júlíus Jónasson átti stórleik þegar
Suhr tapaði naumlega fyrir Borba Luz-
em á útivelli, 24-23. Júlíus skoraði sex
mörk og átti að auki góðan leik í vöm-
inni að sögn svissneskra blaða. Eftir
átta umferðir í úrslitakeppninni er Pfa-
di Winterthur með 19 stig og St. Otmar
er í öðru sæti með 12 stig. Suhr er í
neðsta sæti með 4 stig.
-DVÓ/JKS
Róbert Duranona undirbýr þrumufleyg gegn Egyptum í gær. Á minni myndinni á Gústaf Bjarnason sendingu á Bjarka sem skilaöi boltanum í netið. -BG
Allt á réttri leið
Islendingar léku oft vel í Smáranum í gær og lögðu Egypta
„Þessi leikur var mun betri hjá
okkur en sá fyrri og þá sérstaklega
vamarleikurinn. Vörnin var mjög
hreyfanleg og við réðum vel við þá
þrátt fyrir snerpu þeirra. Þá gekk
okkur betur að ráða við framliggj-
andi vörn þeirra. Menn voru hreyf-
anlegri og duglegir við að gera
klippingar. Ég ánægðastur með að
við skuluum vera búnir að reka þá
grýlu af okkur að geta ekki spilað á
móti hreyfanlegri vöm. Þetta gefur
okkur aukið sjálfstraust upp á fram-
haldið. Ég tel okkur vera á góðu róli
fyrir HM og mér sýnist þetta vera á
réttri leið,“ sagöi Þorbjöm Jensson,
þjálfari íslendinga, eftir sigur á Eg-
yptum, 27-22, í Smáranum í gær-
kvöldi.
Lokatölur leiksins gefa þó ekki
rétta mynd af leiknum því hann var
lengstum í járnum en íslendingar
áttu frábæran endasprett og unnu
sætan og sanngjaman sigur.
Það var einkum og sér í lagi góð-
ur vamarleikur íslenska liðsins
sem skóp sigurinn. Framan af fyrri
hálfleik fengu hinar öflugu skyttur
Egypta aö leika lausum hala og var
Hlynur Jóhannesson, sem byrjaði
inn á í markinu, ekki öfundsverður
af hlutverki sínu. Þegar leið á fyrri
hálfleik náðu íslendingar að þétta
vömina og í síðari hálfleik áttu Eg-
yptar oft í stökustu vandræðum
með að brjóta sér leið fram hjá is-
lensku vöminni.
Sóknarleikurinn var á köflum
nokkuð mistækur í fyrri hálfleik en
hann lagaðist í þeim síðari. Egyptar
komu oft mjög framarlega út í vöm-
inni en strákamir leystu þaö oft
mjög vel með góðum hlaupum og
klippingum og oftar en ekki einu
sinni opnaði Gústaf Bjamason leið
fyrir félaga sína með blokkeringum.
íslenska liðiö var nokkuð jafnt í
þessum leik. Hornamennimir
Bjarki Sigurðsson og Björgvin
Björgvinsson léku báðir mjög vel,
Ólafur Stefánsson og Dagur Sigurðs-
son vom drjúgir og Gústaf Bjama-
son skilaði hlutverki sínu með
sóma. Duranona var mjög mistækur
í fyrri hálfleik, missti oft boltann og
var ragur, en hann vann á þegar
leið á leikinn. í sterkri vöm léku
Ingi Rafn Jónsson og Rúnar Sig-
tryggsson lykilhlutverk og gaman
hefði verið að sjá Rúnar spreyta sig
í sókninni. Hlynur Jóhannesson
stóð í markinu mestallan fyrri hálf-
leikinn en náði sér ekki á strik en
Reynir Þór Reynisson kom sterkur
inn í síðari hálfleikinn og varði oft
mjög vel í sínum fyrsta landsleik.
-GH
Island (12) 27
Egyptal. (12)22
0-1, 2-2, 4-3, 6-7, 9-9 (12-12), 14-12,
16-15, 20-17, 20-20, 23-22, 27-22.
Mörk íslands: Bjarki Sigurðsson
6, Ólafur Stefánsson 6/2, Róbert
Duranona 6/1, Björgvin Björgvinsson
3, Dagur Sigurðsson 2, Gústaf
Bjamason 2, Rúnar Sigtryggsson 1,
Ingi Rafn Jónsson 1.
Varin skot: Hlynur Jóhannesson
2/1, Reynir Þ. Reynisson 10/1.
Mörk Egyptalands: Sameh E1
Waress 6, Ahmed E1 Attar 3, Ashraf
Awad 3, Hazem Awad 2, Gohar Nabil
2, Saber Hussein 2, Magdy E1 Magd 1,
Aser Kasaby 1, Marwan Ragab 1,
Sherif Hegazy 1/1.
Varin skot: Mohamed Ibrahim
10/2, Mohamed Nakib 1.
Brottvísanir: fsland 6 mín.,
Egyptaland 2 mínútur.
Dómarar: Gunnar Viðarsson og
Sigui'geir Sveinsson, sluppu ágætlega
frá leiknum.
Áhorfendur: Um 1500.
Maður leiksins: Bjarki
Sigurðsson, íslandi.
Engir þjóðsöngvar
Þjóðsöngvar landanna voru
ekki spilaðir fyrir leikinn í gær
eins og tíðkast. Ástæðan var sú
aö Egyptar eru nýbúnir að skipta
um þjóðsöng og hafði hann ekki
borist til landsins.
Vernharð farinn úr landi
Einn sterkasti júdómaður lands-
ins pakkaði niður í tösku um síð-
ustu helgi og hélt áleiðis til Noregs
þar sem hann hyggst setjast að og
stunda sina íþrótt. Hér er átt við
Vemharð Þorleifsson frá Akur-
eyri sem keppti á Ólympíuleikun-
um í Atlanta á sl. sumri.
Vemharð sagði í samtali við DV
í gærkvöldi það hafa legið beinast
við aö fara út fýrir landsteinana til
að getað iðkað júdóið af alvöru.
Hann ætli sér að komast lengra en
honum hafi ekki verið sköpuð skil-
yrði til þess heima á íslandi.
„Norömennirnir brugöust
skjótt viö“
„Ég hafði samband við norska
júdósambandið og sagði þeim
hvemig málum háttaði hjá mér.
Þeir bmgðust skjótt við, útveguðu
mér atvinnu og húsnæðismálin
verða komin í höfn innan skamms.
Ég verð hér í Bergen til að byrja
með en stefnt er að því að ég verði
með aðsetur í Ósló. Þessi ákvörðun
snýst að mestu leyti um peninga.
Ég fékk lítinn stuðning á Islandi
en þar var litið á mig sem efnileg-
an íþróttamann en að minu áliti
hef ég tekið miklum framfömm á
sl. tveimur árum. Ég stefhdi lengra
en það var ekki skilningur fyrir
því á íslandi. Ég stóð einnig
frammi fyrir þeirri staöreynd að
sökkva enn dýpra í skuldum en ég
hef kostað töluverðu úr eigin vasa
vegna æfinga og keppni fyrir ís-
lands hönd. Úr þvi sem komið var
sá ég þann kost vænstan að pakka
niður og leita fyrir mér erlendis.
Það hefur verið vel tekið á móti
okkur hér í Bergen,“ sagði Vem-
harð í samtali við DV en hann fór
utan sl. sunnudag ásamt kærustu
sinni.
„Mér bauöst styrkur heima en
hann hrökk skammt. Ef ég hefði
þegið hann var ég áfram í fjár-
hagskröggum.
Vemharð sagði enn fremur að
hann stefndi að því að fá norskan
ríkisborgararétt svo hann gæti
keppt á Ólympíuleikunum i Sydn-
ey árið 2000 en þangað stefndi
hann leynt og ljóst.
„Ákveðinn í aö standa mig“
„Eftir þriggja ára búsetu í Nor-
egi er góð von um að ég öðlist
norskan ríkisborgararétt en fram
að því get ég ekki keppt undir
norskum fána á Evrópu- og heims-
meistaramótum. Ef ég stend migg
vel hér i Noregi og eins á alþjóðleg-
um mótum gæti verið að málinu
yrði flýtt innan norska kerfisins.
Ég er ákveðinn i að standa mig, er
spenntur og hlakka til framtíðar-
innar,“ sagði Vemharð að lokum.
-JKS
NBA í nótt og fleiri íþróttafréttir bls. 32 og 33
v
íT
V