Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1997, Page 20
32
FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997
íþróttir
DV
Alþjóölegt
mót í skvassi
í Veggsporti
í dag hefst alþjóðlegt mót í
skvassi í Veggsporti við Stór-
höfða. Mótinu lýkur á morgun,
laugardag.
Þetta er í þriðja skipti sem
þetta mót er haldið en það hefur
fengið nafnið Norðurljósamótið.
Að þessu sinni koma um 30 er-
lendir keppendur á mótið, flestir
frá Norðurlöndum en einnig
nokkrir frá Luxemburg og
Þýskalandi.
Glæsileg verðlaun gefa Nói-
Síríus en úrslitaleikir mótsins
hefjast um klukkan þrjú á laug-
ardag. Áhugamenn um skvass
eiga kost á að fylgjast með í
fremsta gæðaflokki í dag og á
morgun en allar nánari upplýs-
ingar um mótið eru veittar í
Veggsporti í síma 5775555.
-SK
Lést í miðri við-
ureign í Karate
23 ára gamall rússneskur
karatemaður lést á dögunum í
miðri viðureign á rússneska
meistaramótinu.
Rússinn, Vadim Kafarov, fékk
gríðarlegt högg á hálsinn og af-
leiðingarnar urðu þær að allt
súrefhisstreymi til heilans stöðv-
aðist samstundis. Kafarov lést
skömmu seinna og tilraunir til
að bjarga lífi hans skiluðu ekki
árangri.
-SK
Neitað um rík-
isborgararétt
Bandarísk yfirvöld hafa neitað
einum besta langhlaupara
heims, John Ngugi frá Kenýa,
um bandarískan ríkisborgara-
rétt.
Ngugi fór fram á að gerast
bandarískur rikisborgari í gær
en það hefði tryggt honum þátt-
tökurétt á hinu þekkta maraþon-
hlaupi í Los Angeles á sunnu-
daginn.
Engar skýringar fylgdu neit-
uninni en Ngugu hafði ætlað sér
að setjast að i Bandaríkjunum til
frambúðar. Hann er fyrrverandi
ólympíumeistari í 5.000 metra
hlaupi og fimm sinnum hefur
hann borið sigur úr býtum á
heimsmeistaramótinu í víða-
vangshlaupi. -SK
í banastuði
Elden Campbell hefur tekið við miðherjastööunni hjá Lakers af Shaquille
O’Neal eftir aö hann meiddist illa. Campbell hefur stað’iö sig afburðavel og
ekki gefið O’Neal neitt eftir. Margir telja að O'Neal eigi margt eftir ólært í
NBA-deildinni og geta hans séu engan veginn í samræmi við launin sem
Lakers verður aö greiða honum. Campbell skoraði 38 stig fyrir Lakers í nótt
gegn Washington. Símamynd Reuter
Fimm leikir í NBA-deildinni í nótt:
Cleveland
í fyrradag var gengið fró stofnun hlutafélags um íslandsmeistarann f golfi, Birgi Leif Hafþórsson, GL, en fyrst var
grefnt frá þessum áætlunum í DV. Alls nemur hlutaféð f dag rúmum tfu milljónum og er reiknaö meö að það verði
um fimmtán milljonir þegar upp veröur staðið. Með stofnun félagsins eru Birgi Leifi, sem sést hér við hliö móður
sfnnari á stofnfundinum, skapaðar mjög góöar og óvenjulegar aðstæöur. DV-mynd PS
- og Chicago skoraði aðems 70 stig
Fimm leikir fóru fram í NBA-
deildinni í körfuknattleik í nótt. Úr-
slit urðu sem hér segir:
Washington-LA Lakers .......107-122
Cleveland-Chicago.............73-70
Dallas-Minnesota ...........105-107
Houston-Charlotte ...........95-106
Utah Jazz-Toronto...........118-114
Meistarar Chicago fengu að finna
fyrir feiknalega öflugum varnarleik
Cleveland í nótt og ekki á færi
margra liða að halda Chicago í 70
stigum. Michael Jordan skoraði 23
stig en Dennis Rodman var með 16
stig og 16 fráköst. „Þetta var ekki
okkar dagur. Við hittum illa og það
var í raun merkilegt að við skildum
þó ná að vera með í leiknum til
leilsoka," sagði Jordan eftir leikinn,
en hann reyndi að jafna metin með
3ja stiga skoti á síðustu sekúnd-
unni. Chicago hefur ekki skorað
færri stig í deildinni í tvö ár eða síð-
an liðið tapaði fyrir Sacramento,
88-68.
Karl Malone skoraði 32 stig, að
vanda liggur manni við að segja,
fyrir Utah gegn Toronto, tók 13 frá-
köst og gaf 10 stoðsendingar og var
maðurinn á bak við nauman sigur-
inn. John Stockton skoraði 19 stig
og gaf 13 stoðsendingar. Walt Willi-
ams var stigahæstur hjá Toronto
með 32 stig.
Það var mikið fjör í Dallas þar
sem Minnesota sigraði heimamenn
eftir tvær framlengingar. Það var
Tom Gugliotta sem tryggði
Minnesota sigurinn með langskoti
þegar rúmar tvær sekúndur voru
eftir af síðari framlengingunni.
Kevin Gamett skoraði 23 stig fyrir
Minnesota og Gugliotta 22. Erick
Strickland skoraði 25 stig fyrir
Dallas.
Glen Rice skoraði 24 stig fyrir
Charlotte gegn Houston. Dell Curry
var með 17 stig og Ricky Pierce 13.
Mario Elie skoraði 23 stig fyrir Hou-
ston og Hakeem Olajuwon 22. -SK
„Veitekki hvern-
igéghefþað•
Enski kylfingurinn David
Carter varð fyrir heldur
óskemmtilegri reynslu á þriðju-
daginn er hann lék golf fyrir mót
atvinnumanna sem hófst í Dubai
í gær.
Carter fór að líða einkennilega
og hætti hann leik á æfingu.
Hann fór til hótels sins og fannst
þar meðvitundarlaus skömmu
síðar.
Þegar komið var með Carter á
sjúkrahús kom í ljós að blætt
hafði inn á heilann og hann var
þvi umsvifalaust skorinn upp.
Talið er að hann nái fullum
bata en þurfi að dveljast á
sjúkrahúsinu í fjóra til fimm
daga til viðbótar. Hann er enn
frekar ruglaður í kollinum eins
og eftirfarandi ummæli hans í
gær gefa til kynna. „Það eina
sem ég veit í raun og veru er að
ég er í Dubai. Ég veit ekkert
hvað gerðist eða af hverju ég er
hér eða hvernig ég komst á
sjúkrahúsið. Ég hef heldur ekki
hugmynd um það hvemig mér
líður,“ sagði Carter í gær. Hann
er mjög snjall kylfíngur, hafnaði
í 33. sæti á peningalistanum í
Evrópu eftir síðasta tímabil og
varð í ööm sæti á teimur mótum
atvinnumanna.
-SK
Olazabal byrjar
ótrúlega vel
' Jose Maria Olazabal frá Spáni
byrjaði mjög vel á mótinu í
Dubai en hann hefur ekki leikiö
golf vegna meiðsla í 18 mánuði.
Olazabal, sem er mjög vinsæll
kylfingur, lék fyrstu 18 holur
mótsins á 69 höggum eða þremur
höggum undir pari vallarins.
Olazabal var ekki spáð glæstri
framtíð er hann fór að finna fyr-
ir slæmum verkjum í öðrum fæt-
inum og um tíma leit út fyrir að
hann yrði i hjólastól það sem eft-
ir væri.
Það var svo þýskur læknir
sem kom Spánverjanum á beinu
brautina á ný og í dag hefur
hann náð sér ótrúlega vel. „Ég er
ánægður með þessa byrjun en
einbeitingin er ekki eins góð og
hún var fyrir meiöslin," sagði
Olazabal í gær.
-SK