Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1997, Blaðsíða 23
FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997
35
Fréttir
Skagaíjörður:
Kosið um sameiningu sveitarfelaga
DV, Fljótnm:
Nú er ljóst aö kosið verður um
sameiningu sveitarfélaga í Skaga-
firöi í haust. í fyrra áttu 11 af 12
sveitarfélögum í héraðinu í við-
ræðum um sameiningu og á síð-
asta fundi sameiningamefndar
var samþykkt tillaga um aö kosn-
ingar um sameiningu verði fyrir
næstu áramót.
Akrahreppur tekur ekki þátt í
sameiningarviðræðum en samein-
ing allra sveitarfélaga í héraöinu
var kolfelld þar haustið 1993 og
sveitarstjórnin hefúr ekki talið að
afstaða íbúa þar hafi breyst síðan.
Sveitarfélög, sem eru í viðræð-
um um sameiningu, hafa nú skip-
að einn fúlltrúa hvert í nefnd sem
ætlað er að geri tillögur um stjóm-
skipulag fyrir væntanlegt nýtt
sveitarfélag. Áætlað er að fyrsta
tillaga stjómskipulags og verkefha
liggi fyrir í maí og fljótlega þar á
eftir hefjist kynning meðal ibúa
héraðsins.
Ljóst er aö vanda verður til
verka því málið í heild er við-
kvæmt. Þannig liggur fyrir að sum
sveitarfélögin hafa veitt íbúum
sínum margvíslega þjónustu án
þess að taka gjald fyrir meðan
önnur hafa látið greiða ýmist hálft
gjald eða fullt fyrir sambærilega
þjónustu. Þá hefur álagningarpró-
senta útsvars og fasteignagjalda
verið mismunandi milli sveitarfé-
laga.
Ef þessi 11 sveitarfélög sam-
þykkja sameiningu verða íbúar
hins nýja sveitarfélags um 4.400 og
reiknað er með að sameiningin
taki gildi eftir sveitarstjómar-
kosningar 1998.
Oddfellowar þegar þeir afhentu gjöfina. Þeir eru Árni Þorgrímsson, Þorvaldur Ólafsson, Jón Gunnar Stefánsson,
Guölaugur Arnaldsson og Jósef Borgarsson, ásamt þeim Ernu Björnsdóttur, hjúkrunarforstjóra, Þóri Njálssyni
skurölækni, Jóhanni Einvarössyni og Eyjólfi Eysteinssyni stjórnarmanni. Dv-mynd æmk
Sjúkrahús Suðurnesja fékk góða gjöf:
Tæki sem bætir aðstöðu við
svæfingar fýrir skurðaðgerðir
DV, Suðurnesjum:
„Það er þýöingarmikið að fá
svona tæki að gjöf því við höfum
ekki tök á því að kaupa það sjálf,
við höfum ekki fjárveitingar til
þess. Tækið gjörbreytir aðstöðu
svæfingalæknis við skurðaðgerðir
þar sem hægt er að fylgjast ná-
kvæmlega með líðan sjúklingsins.
Mér skilst á mönnum sem til
þekkja að tækið sé eins og það ger-
ist best á svona stofhunum. Gamla
tækið var bæði orðið úrelt og ekki
eins fullkomið og nýja tækið,“
sagði Jóhann Einvarðsson, fram-
kvæmdastjóri Sjúkrahúss Suöur-
nesja, í samtali við DV.
Oddfellowar Njarðar í Reykja-
nesbæ gáfu Sjúkrahúsi Suðumesja
mjög fúllkominn “monitor" sem
svæfingalæknir notar til að fylgj-
ast mjög nákvæmlega með líðan
sjúklingsins fyrir skurðaðgerð.
Tækið kostaði 1360 þúsund krónur
og er gefið af líknarsjóði Njarðar
og styrktar- og líknarsjóði Oddfell-
owa í tilefni 20 ára afmælis Njarð-
Akranes:
Tillaga um flugvoll felld
DV, Akranesi:
Tillaga Péturs Ottesen, bæjarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins, um að
setja Qugvöll inn á aðalskipulag
bæjarins, var felld í bæjarstjóm
Akraness fyrir skömmu.
Tillagan var felld með fjórum at-
kvæðum gegn Qmm. SamQokks-
menn Péturs, Gunnar Sigurðsson og
Elínbjörg Magnúsdóttir, ásamt ein-
um fulltrúa Alþýðubandalagsins,
Sveini Kristinsyni, samþykktu til-
löguna en tveir fulltrúar Alþýðu-
bandalagsins, einn fulltrúi Alþýðu-
Qokksins og tveir fulltrúar Fram-
sóknarQokksins felldu hana.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Pétur Qytur tillögu um að setja Qug-
völl inn í aðalskipulagið. Hann
Qutti sams konar tillögu 1996 og þá
var hún felld með sama mun og lof-
aði Pétur því þá að hann myndi
Oytja hana aftur að ári.
Bygginga- og skipulagsnefnd
Akraness hefur mælt með þvi að
Bugvöllur verði settur inn í aðal-
skipulagið. :-DVÓ
ar og 100 ára aflnælis Oddfellow-
reglunnar á íslandi.
„Þegar við afhendum Sjúkra-
húsi Suðumesja þessa gjöf er okk-
ur efst í huga að hún komi að því
gagni sem vonir okkar standa tU.
Það er fyrst og fremst tQ að auka
öryggi í skurðstofu og þar með að
bæta líðan þeirra sem sjúkir era
og særðir. Sjúkrahús Suðumesja
er sú líknarstofnun sem veitt hef-
ur íbúum hér á Suðumesjum
mesta hjálp og vekur svo sannar-
lega öryggiskennd meðal þeirra og
við vonum að svo verði um alla
framtíð. Gjöfin er gefin í kærleiks-
anda Oddfellowreglunnar sem fel-
ur meðal annars í sér að láta gott
af sér leiða í samfélaginu," sagði
Jósef Borgarsson, yflrmeistari
Njarðar, þegar hann afhenti Jó-
hanni gjöfina.
ÆMK
Línuskipið Núpur á Patreksfirði:
Forðaðist þorskinn en
fékk samt 2.200 tonn
DV, Patreksfirði:
Línuveiðiskipið Núpur frá Pat-
reksfirði, sem er með beitningavél
um borð, veiddi yfir 2.200 tonn af
fiski á síðasta ári. Meginhluta árs-
ins var skipinu þó haldið frá þorsk-
veiðum og þá sótt í aðrar tegundir.
Að sögn Sigurðar Viggóssonar,
framkvæmdastjóra Odda sem gerir
skipið út, hefði verið hægt að veiða
mun meira ef veiðiheimildir hefðu
verið fyrir hendi. Greinileg aukning
var á afla skipsins hvem úthalds-
dag.
Ekki era það eingöngu Vest-
fjarðamið sem sótt era á Núpnum
því hann hefur verið að veiðum
sunnan lands og austan. Þá hefur
mikið verið sótt í keilu sem er utan-
kvótategund og gengu þær veiöar
vel. Eftirspum eftir keilu hefur ver-
iö vaxandi og verð hefur heldur
hækkað. Keilan fer að mestu til salt-
fiskvinnslu og í þurrk. Norðmenn
hafa keypt keilu mikið tQ vinnslu
og eins hafa íslenskir fiskverkendur*
keypt keflu í auknum mæli.
- HKr.
...
Frá höfninni ó Stöðvarfiröi. Eistneskur togari og frystitogarinn Klara Sveins-
dóttir að lesta frysta loðnu. DV-mynd GarBar
Fáskrúðsfl ör ður:
Fryst loðna beint
til Rússlands
Nú er búið að flysta um 2200 tonn
af loðnu hjá Gunnarstindi hf. á
Stöðvarfirði, að mestum hluta á
Rússlandsmarkað en erfiðar hefur
gengið með frystingu tfl Japan.
Afurðimar hafa farið svo tfl sam-
stundis í skip, sem hafa komið frá
Rússlandi og LetQandi að sækja
þær. Rússneskt skip þurfti þó að
bíða á aðra viku eftir farmi því þá
gekk ekki nógu vel að afla hráefnis
í vinnsluna vegna brælu á miðun-
um.
Nú síðast var hragðið á það ráð
að fá frystitogarann Klöra Sveins-
dóttur frá Fáskrúðsfirði tfl að flytja
loðnu til Rússlands. Togarinn fór
með um 450 tonn áleiðis til Múrm-
ansk. Siglingin er áæfluð á sjötta
sólarhring. . -GH.
Góugleði á Eskifirði
DV Esldfirði:
Eldri borgarar á Eskifirði efndu
tfl góugleði sem var haldin í félags-
heimilinu Valhöll. Þar mættu hátt í
70 manns og var samkoman alveg
frábær. Allir skemmtu sér vel því
Eskfirðingar kunna að skemmta sér
og öðrum.
Matur var góður, þríréttaður, vel
útbúinn og ekki hrár eins og oft vill
verða á hinum flottari hótelum.
Bára Pétursdóttir matreiddi hinar
góðu kræsingar en Árbjöm Magn-
ússon, fyrrverandi togaraskipstjóri,
bar matinn á borðin af mikilli
kunnáttu.
Jón Ólafsson, fyrrverandi lög-
reglumaður, var veislustjóri. Margt
var tfl skemmtunar. Margir sögöu
vel frá og sumir fóru á kostum. Ge-
org Halldórsson flutti annál ársins.
Séra Davíð Baldursson kom og var
gleðigjafi með sinni hressandi fram-
komu. Hann Davíð er svo fjölhæfur
og sálusorgari góður. Að lokum var
dansinn stiginn og spilaði hinn
flinki organisti og prófessorssonur
úr Reykjavík, Ámi ísleifsson, á pí-
anóið. Regína