Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1997, Síða 28
40
-I"
FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997
sviðsljós
Daður í fríi
kostaði
1 milljarð
Kevin Costner hefur viður-
kennt að vera faðir lítils drengs
sem auðmannsdóttirin Bridget
Rooney eignaöist í nóvember
síðastliðnum. Þau höfðu hist
þegar leikarinn var í fríi í
Aspen í Colorado. Þrátt fyrir að
faðir Rooneys sé milljónamær-
ingur verður Costner að greiða
1 milljarð islenskra króna fyrir
uppeldi og menntun sonarins.
Danski kvikmyndaleikstjórinn Bille August:
Sér fjölskylduna bara;
þrjá daga í mánuði
Kvimyndaleikstjórinn Bille Aug-
ust er fremur óhress þessa dagana
því að danskir gagnrýnendur hafa
farið miður fallegum orðum um
kvikmynd hans um grænlensku
stúlkuna Smillu sem Julia Ormond
leikur. En August er reyndur og
veit að við slíku má alltaf búast.
Hann er reyndar orðinn vel stæð-
ur eftir alla velgengnina hingað til
en leikstjórastarflð tekur sinn toll.
August þarf að ferðast mikið og
hann saknar fjölskyldunnar hræði-
lega. „Ég sé fjölskylduna bara þrjá
til flóra daga í hverjum mánuði,"
Bille August.
sagði hann nýlega í tímaritsviðtali.
Fjölskyldan hittist þá ýmist í
Stokkhólmi, í Hombæk eða í íbúð í
London. Þá er reynt að hóa öllum
saman. Bille August, sem er 48 ára,
er kvæntur sænsku leikkonunni
Pemillu August sem nýlega er orð-
in 39 ára. Þau eiga tvær dætur sam-
an, þriggja og fimm ára. August á
einnig tvo stráka á táningsaldri,
fjórtán og áfján ára, frá fyrra hjóna-
bandi. Pemilla á tólf ára dóttur frá
fyrra hjónabandi og býr hún hjá foð-
ur sínum.
Leikstjórinn kveðst ætla að halda
áfram að búa til þær myndir sem
hann trúir á og sem hann getur út-
vegað fjármagn til. Það þýðir
náttúrlega að samverustundunum
með fjölskyldunni fjölgar ekki en
hann segir að þar sem Pernilla sé
sjálf leikkona viti hún hvemig mál-
in séu. Þau reyni hins vegar að hafa
þær stundir sem þau eiga saman
sem ánægjulegastar.
Bille August leggur áherslu á að
hann verði alltaf danskur þrátt fyr-
ir tengslin við Hollywood.
%
A)
ullt af Úrvalsefni:
Skynfæriii á ferð og flugi
Jóhanna Jóhannsdóttir spjallar létt um utanferðir
íslendinga og gefur góð ráð.
Endalaust flug
Flugvélar með tveggja hestafla hreyfla og sólarrafhlöður
fara á loft innan skamms.
Ceimverubær, Bandaríkjunum
Við íslendingar eigum okkar Snæfellsjökul og umhverfi
hans. En Bandaríkjamenn hafa komið upp geimverubæ
þar sem þær sýna sig tíðast.
Cóðu veirumar
Sumar veirur lifa á því að
teríum sem valda
Hveraig er
orðaforðinn?
Prófaðu bara sjálf/ur orða
þinn og íslenskukunnáttu
V
Söngkonan Toni Braxton flytur þakkarræðu eftir að hafa verið kjörin besta poppsöngkonan á Grammy-tónlistarhá-
tiðinni í New York. Braxton fékk verðlaunin fyrir lagið Un-Break My Heart. Sfmamynd Reuter
Ætluðu að myrða
Elenu Spánarprinsessu
Hryðjverkamenn aðskilnaðar-
hreyfmgar Baska á Spáni, ETA, ráð-
gerðu að ræna spænsku prinses-
sunni Elenu eða myrða hana í ein-
um af reiðskólum hennar í suður-
hluta Frakklands. Franskur sér-
fræðingur í baráttunni gegn hryðju-
verkum sagði frá þessu í viðtali við
franskt dagblað nú í vikunni.
Elena gekk að eiga spænska að-
alsmanninn Jaime de Marichalar
fyrir tveimur árum.
Jóhann Karl Spánarkonungur leiddi dóttur sfna, Elenu, upp að altarinu f
dómkirkjunni f Sevilla fyrir tveimur árum. Símamynd Reuter