Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1997, Qupperneq 36
LT3
Þórshöfn:
Meirihluti sveitar-
stjórnar sprunginn
- vegna ósættis um sölu hlutabréfa hreppsins í HÞ
„Þetta var dropinn sem fyllti
mælinn hér og ég er alveg búinn að
fá nóg af þessu. Það er margt sem
er í ólestri hér og má nefna m.a.
byggingu íþróttahússins sem er allt
of stórt fyrir svona lítið bæjarfé-
lag,“ segir Jónas Jóhannsson, sem
verið hefur einn þriggja aðila í
meirihluta sveitarstjómar Þórs-
hafhar.
Meirihluti sveitarstjórnarinnar
sprakk sl. þriðjudagskvöld þegar
Jónas sagði sig úr stjóminni eftir
að deilur komu þar upp um sölu
11,3% af hlutafé sem hreppurinn á
í Hraðfrystistöð Þórshafnar.
Einkahlutafélagið Hængur ehf.,
sem Jóhann A. Jónsson, oddviti og
framkvæmdstjóri HÞ og fleiri hátt-
settir menn innan HÞ eiga, vildi
kaupa þessi 11,3% hlutabréfa sem
hreppurinn ætlar að selja og eru að
nafnvirði rúmar 33 milljónir
króna. Jónas og Jón Gunnþórsson,
sem er í minnihluta hreppsnefnd-
ar, vildu hins vegar láta auglýsa
sölu þessara hlutabréfa þannig að
þau færu á opinn markað og hæsta
tilboði í þau yrði tekið.
Einkahlutafélag Jóhanns A.
Jónssonar, bræðra hans og félaga,
Hængur ehf. sem stofhaö var í febr-
úar 1995, á þegar um fjórðung í HÞ
og hefur undanfarið sankað að sér
hlutabréfum í fyrirtækinu. Jóhann
og tveir bræður hans eiga persónu-
lega tæp 10%. Því er alls rúmlega
þriðjungur hlutafjár i fyrirtækinu í
eign þeirra. Hlutabréfm hafa
Hængsmenn í flestum tilfellum
keypt á nafnverði eða því sem næst
samkvæmt heimildum DV. Miðað
við gengi bréfanna á markaði nú er
verðmæti þeirra margfalt meira en
Hængsmenn borguðu fyrir á sínum
tíma.
Þórshafnarhreppur er stærsti
einstaki hluthaflnn en þar sem Jó-
hann er líka oddviti hefur hann
ítök í um 70% hlutafjár eða ríflega
tvöföldum meirihluta. Ef Hængur
hf. nær nú að kaupa þessi 11,3%,
sem hreppurinn ætlar að selja,
aukast ítökin enn frekar.
Jóhann A. Jónsson oddviti og
framkvæmdastjóri HÞ, segir að
búið sé að fela bæjarstjóranum að
ganga frá sölu 11,3% af hlutafénu
til Hængs. Jóhann segir ekkert
óeðlilegt við að Hængur kaupi
hlutabréfin af hreppnum.
„Hreppurinn er að reyna að fjár-
magna byggingu íþróttahúss og
lækkun skulda og meirihlutinn er
hlynntur því. Það er ástæðan að
verið er að selja þetta hlutafé í HÞ
sem hreppurinn á. Við höfum
byggt upp HÞ og tekið áhættu en
fyrirtækið spjarar sig ágætlega.
Við höfúm háleit markmið og erum
að reyna að rífa upp atvinnulífið
hér á Þórshöfh. Það er mjög slæmt
að finna að ýmsir hér í bæjarfélag-
inu geta ekki glaðst yfir því þegar
vel gengur," segir Jóhann.
-RR
Veðrið á morgun:
Skýjað með
köflum
Á morgun er gert ráð fyrir
norðankalda og frosti um mestallt
land, él við norðausturströndina
en skýjað með köflum annars
staðar.
Veðriö í dag er á bls. 44
FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997
^AImera
öryggisins vegna
®lngvar
Helgason hf.
Simi 525 8000
100 menn leit-
uöu tveggja
skíðamanna
Hjálpar- og björgunarsveitir af höf-
uðborgarsvæðinu leituðu tveggja
skíðamanna sem höfðu orðið viðskila
við sjö félaga sína á Botnssúlum í
gærdag. För fundust eftir mennina
tvo um kl. 2.40 og mennirnir sjálfir
síðan tæpum tveimur tímum síðar.
Þeir voru villtir, heilir á húfi en nokk-
uð þrekaðir. Hundrað menn með fjóra
hunda leituðu á 20 bílum. -sv
Haneshjónin fá
að dvelja lengur
Davið Oddsson hefur fallist á
málaleitan Donalds og Conniear
Hanes um að þau fái að dvelja allt
að einum mánuði lengur hér á
landi, en þau höfðu áður gert sam-
komulag við íslensk stjórnvöld um
að yfirgefa ísland eigi síðar en á
morgun. -Ótt
Formaöur grænlensku landsstjórnarinnar, Lars Emil Johansen, kom i opinbera heimsókn til Islands í gær. Þá ritaði
hann meöal annars nafn sitt í gestabók Alþingis og fundaöi með Davíö Oddssyni forsætisráöherra. Lars Emil hitti
íslensku forsetahjónin nú i morgun og fer síðan til Akureyrar þar sem honum veröa sýnd helstu fiskvinnslufyrirtæki
bæjarins. DV-mynd ÞÖK
Sjötíu þúsundin
á röngum stað
- segir Björn Grétar
„Okkar krafa er að byrjunarlaun
verði 70 þúsund krónur og síðan bygg-
ist hæsta kaupið upp á því. Þess
vegna hafa þeir sett sjötíu þúsund
kallinn á rangan stað með því að
hann náist ekki fyrr en í lok samn-
ingstímabilsins. Þá leggja þeir til að
yfirvinnuálagið verði lækkað sem
þýðir einfaldlega að yfirvinnukaupið
verður lækkað og þessu höfum við
áður hafhað. Síðan eru þeir með
samningatímann fram yfir næstu al-
þingiskosningar," sagði Bjöm Grétar
Sveinsson, formaður Verkamanna-
sambandsins, í morgun.
Vinnuveitendur hafa lagt fram nýja
útfærslu á því sem þeir hafa áður ver-
ið að tala um. Nú leggja þeir til að
laun hækki um tæplega 11 prósent í
þremur áföngum, 3,85, 3,5 og 3,5 pró-
sent í hvert sinn. í lok samningstíma-
bilsins verði lægstu laun komin í 70
þúsund krónur. Samningstíminn
verði til 1. október eða 1. nóvember
1999. -S.dór
Fanginn fundinn
Lögreglan í Reykjavík handtók í
gær manninn sem strauk úr Héraðs-
dómi Reykjavíkur fyrir um 65 dögum
og sagði DV sögu sína í blaðinu gær,
þá „frjáls" maður. -sv
f-L'*
KEMST DAV\Ð ÞÁ í
HEILAGRA MANNA
TÖLU?
Helgarblað DV:
Björk og þeir
’ bestu
Helgarblað DV á morgun er efnis-
mikið og yfirfúllt af skemmtilegu efni
úr öllum áttum. Viðtöl eru við hand-
hafa menningarverðlauna DV 1997
sem afhent voru í gær. Einkaviðtal er
við Björk Guðmundsdóttur sem nk.
þriðjudag tekur við Tónlistarverð-
launum Norðurlandaráðs.
Rætt er við Friðrik Karlsson gítar-
leikara sem nú starfar við góðan
orðstir í London og hefur komist í
íb^ náðina hjá stórstiminu Madonnu.
Spjallað er við heitasta leikaraparið í
bænum, Baltasar Kormák og Margréti
Vilhjálmsdóttur, sem er að fara að
leika saman í Ketti á heitu blikkþaki
i Þjóðleikhúsinu. Haukur Dór lista-
maður er heimsóttur á Stokkseyri en
hann hefur höndlað hamingjuna á ný
eftir sáran konumissi og eignast barn,
kominn vel á sextugsaldur. -em/bjb
Þrefjaldur
i. vinningur
FRÉTTASK 0 TIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555