Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1997, Page 12
12
Qrikmyndir
LAUGARDAGUR 15. MARS 1997
Ný heimildarmynd eftir Sigurbjörn Aðalsteinsson sýnd í Sjónvarpinu um páskana:
Bóndinn merkilegri en kóngurinn
- segir Sigurbjörn sem reynir að skyggnast inn í þjóðarsálina
Sigurbjörn Aðalsteinsson við vinnslu á nýjustu heimildarmynd sinni, Fólkið sem iifir, sem
frumsýnd verður í Sjónvarpinu um páskana. Dv-mynd þök
„Eg framleiði þessa mynd í sam-
starfi við Sjónvarpið. Efniviðinn
sæki ég í gamlar myndir af Kvik-
myndasafni íslands, einkum frá ár-
unum 1919-1939, og reyni að skyggn-
ast inn í þjóðarsálina á þeim tíma.
Fer síðan að spyrja spuminga um
okkur sjálf út frá þessu efni, hvernig
við erum sem þjóð. Velti þvi t.d. mik-
ið fyrir mér hvaða myndefni er tekið
og hvar áherslumar liggja. Spurning-
ar koma upp um hvað sé merkilegt í
dag. Hvernig forgangsröðin hefur
breyst á áttatíu árum,“ segir Sigur-
björn Aðalsteinsson kvikmyndagerð-
armaður en um páskana verður sýnd
ný heimildarmynd eftir hann í Sjón-
varpinu sem nefnist Fólkið sem liflr.
Myndin verður sýnd í tveimur hlut-
um, fyrst á pálmasunnudag og síðan
á skírdag.
Sigurbjörn nefnir sem dæmi, um
hvað hann skoðaði, myndir frá þrem-
ur konungsheimsóknum á árunum
1919-1930. Myndir hefðu verið af
konungnum, Kristjáni tíunda, og
þeim sem tóku á móti honum en eng-
ar nærmyndir af almenningi, fólkinu
sem kom til að horfa á þá konung-
bomu. Fyrir honum sé t.d. hverdags-
leg mynd af bónda að slá með orfi og
ljá mun merkilegri mynd.
Eins og að finna kamb
frá þjooveldisöld
„Þetta er eins og að finna kamb frá
þjóðveldisöld, sem þá var verðlaus,
en þegar hann er grafinn upp þá er
ekki hægt að meta hann. Þannig
finnst mér hlutirnir snúast við.
Bóndi að slá er orðinn merkilegri en
kóngurinn," segir Sigurbjöm.
Myndin hefur verið í vinnslu í
rúmt ár og hlaut Sigurbjöm styrk
vegna hennar frá Menningarsjóði
útvarpsstöðva. Sjónvarpið er með-
framleiðandi eins og áður segir.
Frumsamin tónlist í myndinni er
eftir Eyþór Amalds. Hvor þáttur
tekur hálftíma í sýningu þannig að
myndin er í heild klukkutíma löng.
Fjórða heimildarmyndin
Þetta er fjórða heimildarmynd
Sigurbjörns. Hann hefur einnig gert
nokkrar stuttmyndir, einar sjö, og
sumar þeirra hlotið verðlaun. Má
þar nefna Hundur, hundur frá árinu
1990, sem verðlaunuð var besta
stuttmyndin á hátíð í Hamborg og
valin í hóp bestu stuttmynda Norð-
urlanda síðastliðinn áratug, Ókunn
dufl, sem gerð var árið 1991 og verð-
launuð á gamanmyndahátíð í Vevey
í Sviss og tilnefnd til Menningar-
verðlauna DV 1992, sjónvarpsmynd-
ina Camera Obscura, sem gerð var
1993 eftir að handrit að henni hafði
unnið í samkeppni á vegum Sjón-
varpsins, og barnamyndina um Ása
sem verðlaunuð var á sjónvarps-
myndahátíð í Chicago fyrir tveimur
árum. Alls hafa myndir Sigurbjörns
verið sýndar í sjónvarpsstöðvum í
15 löndum í þremur heimsálfum.
Komst
næstum
því til
Hollywood!
Fólkið sem lif-
ir er ekki eina
verkefni Sigur-
bjöms að undan-
förnu. Meðal
þess sem hann
gerði var að
senda handrit í
keppni í Holly-
wood sem nefnist
Chesterfield
Writer Project.
Aðstandendur
hennar, Frank
Marshall og
Kathleen Kenn-
edy, hafa m.a.
framleitt margar
af myndum
Stevens Spiel-
bergs og áttu með
honum Amblin
Entertainment áður en hann stofn-
aði Dreamworks. Spielberg er hins
vegar upphafsmaður keppninnar
sem er árleg. Þúsundir handrita eru
sendar inn en sjö til tíu eru valin til
úrslita. Fá höfundar þeirra að
dvelja í eitt ár í Hollywood til að
vinna að handritununum undir
handleiðslu Franks og Katleenar.
„Ég tók þátt í þessu núna og
komst í undanúrslit með handrit
sem nefnist The Treasure of Hinter-
land. í bréfinu sem ég fékk stóð að
ég hefði sæmt mér vel sem einn af
sigurvegurunum en bara því miður
ekki komist áfram í úrslit. Engu aö
síður er þetta mikilvægt fyrir mig
upp á framhaldið. Keppnin er virt
og þetta auðveldar mér t.d. að leita
að umboðsmanni. Þeir taka mark á
svona löguðu," segir Sigurbjörn en
vill ekki fullyrða að sinn draumur
sé að „meika það“ í Hollywood. Það
haldi ekki fyrir sér vöku. -bjb
erlend bóksjá
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Catherine Cookson:
The Upstart.
2. Graham Swift:
Last Orders.
3. Helen Forrester:
Mourning Doves.
4. Josephine Cox:
A Time for Us.
5. Nick Hornby:
High Fidelity.
6. Mlchael Klmball:
Undone.
7. Marian Keyes:
Lucy Sulllvan is Gettlng Married.
8. James Patterson:
Hide and Seek.
9. Jostein Gaarder:
Sophie's World.
10. Nlcholas Evans:
The Horse Whlsperer.
Rit almenns eölis:
1. Bill Bryson:
Notes from a Small Island.
2. John Gray:
Men Are From Mars, Women Are
From Venus.
3. Sebastlan Faulks:
The Fatal Engllshman.
4. Griff Rhys Jones ritstjóri:
The Natlon’s Favourlte Poems.
5. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers.
6. Paul Wilson:
A Little Book of Calm.
7. R. Bauval & G. Hancock:
Keeper of Genesls.
8. Fergal Keane:
Letter to Danlel.
9. Bill Bryson:
The Lost Continent.
10. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers. (kvlkmyndaútgáfa)
Innbundnar skáldsögur:
1. Catherlne Cookson:
Bondage of Love.
2. Mary Wesley:
Part of the Furnlture.
3. Mlnette Walters:
The Echo.
4. Ken Follett:
The Thlrd Twln.
5. Michael Crlchton:
Airframe.
Innbundin rit almenns eðlis:
1. Anne Frank:
Dlary of a Young Glrl.
2. Dava Sobel:
Longltude.
3. Scott Adams:
The Dllbert Prlnclple.
4. Benedict Allen:
The Skeleton Coast.
5. Nicholas Faith:
Classic Tralns.
(öyggt á The Sunday Times)
Sjötugur útlagi
Gabriel Garcia Marquez: sjötugur og í útlegö.
Það vakti eink-
um athygli á sjö-
tugsafmæli
Gabriel Garcia
Marques í síðustu
viku að nóbels-
skáldið frá Kól-
umbíu hafði enn
eina ferðina flúið
frá heimalandi
sínu. Hann kvaðst
ekki ætla að flytja
heim aftur fyrr en
núverandi forseti
landsins, Ernesto
Samper, léti af
völdum. Kjörtíma-
bili hans lýkur í
ágúst 1998.
Marquez greip
til þessa örþrifa-
ráðs á sama tíma
og víðtækur undirbúningur á sér
stað í Kólumbíu, og reyndar víða
annars staðar í Rómönsku Amer-
íku, vegna fyrirhugaðra hátiða-
halda á komandi sumri. Tilefnið er
að sjálfsögðu að þá verða þrjátíu ár
liðin síðan frægasta skáldsaga þess-
arar heimsálfu leit dagsins ljós.
„Hundrað ára einsemd" kom sem sé
út í júní árið 1967 og sló strax í
gegn. Á þeim þremur áratugum sem
síðan eru liðnir hafa selst riflega 30
milljónir eintaka af sögunni, eða að
meðaltali um ein milljón bóka á
hverju ári, og það á 37 tungumálum.
Blóði drifin saga
Marquez fæddist 6. mars árið 1927
í smábænum Aracataca í Magda-
lena-sýslu í norðurhluta Kólumbíu,
skammt frá ströndum Karíbahafs-
ins. Sem ungur maður kynntist
hann frá fyrstu hendi þeim ógnum
sem löngum hafa einkennt stjórnar-
farið í landinu, en það hefur verið
óvenju blóði drifið, jafnvel á suður-
amerískan mælikvarða. Um tíu ára
skeið, frá 1948 til 1957, ríkti sann-
kölluð ógnaröld og borgarastyrjöld í
landinu, ekki síst í valdatíð böðuls-
ins Rojas Pinilla sem skreytti sig
með forsetanafnbót á árunum
1953-1957. Talið er að a.m.k. þrjú
hundruð þúsund manns hafi látið
lífið í þeim hildarleik.
Eins og margir aörir suður-am-
erískir rithöfundar varð Marquez á
unga aldri fyrir miklum áhrifum frá
kunnasta höfundi suðurrikjanna
bandarísku, William Faulkner, en
hann fékk nóbelsverðlaunin árið
1950. En Marquez einbeitti sér að
því að segja sögu sinnar eigin
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
heimsálfu, lands og héraðs. Sögu-
svið verka hans fyrstu áratugina
var því hinn ímyndaði bær
Macondo, sem birtist fyrst í „La
hojarasca“ (Laufstormur) árið 1955,
náði verulegum þroska í „Liðsfor-
ingjanum berst aldrei bréf' árið
1961 og full-
komnaðist í
„Hundrað ára
einsemd"
1967. Reyndar
hefur komið
fram að
Marquez hóf
ritun hlið-
stæðrar sögu
(La Casa) þeg-
ar árið 1945,
en lagði hana
til hliðar.
Úttast
mann-
rán?
Síðari ár
hefur
Marquez lengst af átt heima í borg-
inni Cartagena sem er á strönd
Karíbahafsins, en hann á einnig
heimili í Bogota, höfuðborg lands-
ins, og reyndar verulegar eignir,
þar á meðal hluta í áhrifamiklum
fjölmiðlum.
Áður hafði hann löngum búið
utan heimalands síns, ekki síst á
Kúbu og í Mexíkó - en þangað flutti
hann einmitt enn á ný rétt fyrir sjö-
tugsafmælið. Hann sagði í yfirlýs-
ingu um brottflutninginn að ástand-
ið í Kólumbíu væri óþægilegt fyrir
rithöfund og mikil óvissa í loftinu.
Getum er aö því leitt að Marquez
hafi óttast að sér yrði rænt, en Kól-
umbía mun eiga heimsmet í mann-
ránum og morðum.
Það hefur vafalaust aukið skiln-
ing nóbelsskáldsins á þeirri hættu
sem steðjar að öllum sem eru þekkt-
ir eða auðugir í Kólumbíu, hvað þá
hvoru tveggja, að hann hefur síð-
ustu misseri kynnt sér sérstaklega
hvernig eiturlyfjabarónarnir þar í
landi notuðu mannrán sem tæki í
baráttu sinni viö stjómvöld - en um
það fjallar nýjasta bók skáldsins.
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. John Grlsham:
Runaway Jury.
2. Wally Lamb:
She’s Come Undone.
3. David Baldacci:
Absolute Power.
4. LaVyrie Spencer:
The Camden Summer.
5. Michael Ondaatje:
The English Patient.
6. Tom Clancy & Steve Pieczenik:
Acts of War.
7. Sandra Brown:
Love’s Encore.
8. Llllan Jackson Braun:
The Cat Who Sald Cheese.
9. Jane Hamilton:
The Book of Ruth.
10. Marlo Puzo:
The Last Don.
11. Danlelle Steel:
Rve Days in Paris.
12. John Saul:
The Blackstone Chronicles: Parts
1 & 2.
13. Judith Krantz:
Spring Collection.
14. Linda Howard:
Son of the Morning.
15. Tami Hoag:
Gullty as Sln.
Rit almenns eðlis:
1 1. Jonathan Harr:
A Civil Actlon.
2. Mary Pipher:
Reviving Ophelia.
3. Jon Krakauer:
Into the Wild.
4. Thomas Cahill:
How the Irish Saved Clvllization.
5. Kay Redfield Jamison:
An Unquiet Mind.
6. Andrew Weil:
Spontaneous Healing.
7. Dava Sobel:
Longitude.
8. Mary Karr:
The Liar’s Club.
9. James McBride:
The Color of Water.
10. C. A. Darden & J. Walter:
In Contempt.
11. M. Scott Peclc
The Road Less Traveled.
12. Isabel Fonseca:
Bury Me Standlng.
13. Danalel Jonah Goldhagen:
Hltler’s Willing Executloners.
14. Richard W. Lewis:
Absolut Book.
15. Barbara Kingsolver:
Hlgh Tide In Tucson.
(Byggt á New York Times Book Review)