Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1997, Side 21
LAUGARDAGUR 12. APRIL 1997
frétt/r.
Fjárhagur liðanna er
stöðug barátta við núllið
Undanfama daga hefur
staðið yfir úrslitakeppnin i
handbolta. Fjölmiðlar beina
að vonum spjótum sínum að
þessum atburði og hafa þeir
verið uppfuliir af frásögnum
af leikjunum. Það vita abir,
sem komið nálægt störfum í
íþróttahreyfingunni, að rekst-
ur hennar byggist að stórum
hluta á traustum og öruggum
tekjum. Að reka íþróttafélag
er ekkert öðruvísi en að reka
heimili. Það hlýtur því að
vera lífspursmál fyrir félögin
að stefha þangað sem pening-
amir em og þá er að finna
þegar komið er í úrslita-
keppnina. Þá fyrst vaknar
fyrir alvöra áhugi áhorfenda
fyrir leikjunum sem eru upp
á líf og dauða.
Það hefur líka sýnt sig að
húsfyllir hefur verið á öllum
leikjum frá því í 8 liða úrslit-
unum og þetta hlýtur að
skipta liðin öllu máli. Það er
ekki einungis í formi að-
gangseyris sem tekjurnar
verður meiri heldur vaknar
áhugi fyrirtækja á að auglýsa
á keppnisstöðum. Það er sam-
an hvert litið er í þessu dæmi
að fjárhagsafkoman tekur
stakkaskiptum þegar liðin
komast alla þessa leið í
keppninni.
Kvennfólkið fór heldur
ekki varhluta af gífurlegum áhuga
og jókst tala áhorfenda með hverj-
um leik Hauka og Stjörnunnar. í
síðasta leiknum, sem skar úr um
hvort liðið hreppti titilinn, var hús-
fyllir í Garðabæ. Þarna fékk
kvennahandboltinn gífurlega góða
auglýsingu sem skilar sér enn betur
ef rétt verður á spilum haldið.
KA og Afturelding leika um ís-
landsmeistaratitilinn í karlaflokki
og stendur úrslitakeppni nú sem
hæst. Það hefur þvi verið í nógu að
snúast hjá leikmönnum og stjómar-
mönnum síðustu vikumar enda í
mörg horn að líta.
Tii að skyggnast örlítið inn í
þennan heim handboltans lá beinast
við að heyra í stjómarmönnum lið-
anna sem berjast um sigurinn i
deildinni.
20 útileikir á tímabilinu
dýrt dæmi
„Það skiptir öllu máli að komast
Fréttaljós á
laugardegi
Jón Kristján Sigurðsson
þetta langt í keppninni. Við í KA
höfum verið í eldlínunni sl. þrjú ár,
bæði í deildinni og í bikamum, og
höfum því svolitla reynsLu í þessum
málum. Við eram þvi í mjög góðri
stöðu til að sjá hvað það er mikil-
vægt að liðið standi sig. Afkoma
deildarinnar byggist á frammistöðu
liðsins, á því leikur enginn vafi. Að
reka heila handboltadeild er bara
hörkuvinna. Það segir sig alveg
sjálft að með fleiri áhorfendum
koma meiri peningar í kassann og
ekki veitir af. Ég veit það ekki ná-
kvæmlega hvað áhorfendum hjá
okkur fjölgar mikið í úrslitakeppn-
inni. Ég gætið þó skotið á að fjölg-
unin næmi í kringum 30% og það
hjálpar mikið í öllum rekstri deild-
arinnar. Hinu má ekki heldur
gleyma að með betri árangri verður
auðveldara að fá auglýsingar og
annað því samfara. í úrslitakeppn-
inni sjá fyrirtæki að þarna er eitt-
hvað í gangi og þess virði að aug-
lýsa og styrkja okkur. Við eigum
marga frábæra stuðningsmenn sem
styrkja okkur mikið og án þeirra
væri erfitt að halda starfseminni
úti. Það er kostnaðarsamt að reka
handknattleiksdeild á borð við KA.
Við erum í þeim sporum að þiufa að
leika í kringum 20 útileiki á tímabil-
inu og það er gífurlega dýrt. Við
stöndum í öðrum sporum en flest
liðin sem aðeins þurfa að kosta 4-5
útileiki en í aðra fara leikmenn
hara á einkabílum. Við eram af
þessum sökum í mjög sérstöku
dæmi sem kostar meiri fjárútlát.
Þátttaka í Evróppukeppninni hefur
enn fremur verið dýr biti fyrir okk-
ur en þátttaka í henni gefur enga
PústekirpiÆMU
m/3ái.eáafMii
ogfœráaérafría
P|arðargata 11
styrki. Félögin þurfa þar ein-
göngu að treysta á sína eigin
buddu. Úr þvi að við förum
alia leið í úrslit á íslandsmót-
inu hef ég trú á því að við
verðum á núllinu þegar
dæmið verður gert upp. Við
værum í betri málum ef við
hefðum ekki verið með í Evr-
ópukeppninni. Ég get ekki
svarað fyrir önnur lið en við
stöndum á sléttu þegar upp
verður staðið en þátttakan í
Evrópukeppninni tók gífur-
legan toll. Stjórnarseta í
handknattleiksdeild KA gef-
ur manni mikið þegar vel
gengur og við stefnum ávallt
að að verða í fremstu röð,“
sagði Sveinn Rafnsson, vara-
formaður hnadknattleiks-
deildar KA.
Jóhann Guðjónsson, for-
maður handknattleiksdeild-
ar Aftureldingar, tók undir
orð Sveins og sagði að það
skipti öllu máli að vera með
í úrslitakeppninni og helst af
öllu að komast alla leið.
Tekjur í úrslitunum
meiri en allan vet-
urinn í deildinni
„Það er ekkert launungar-
mál að við hjá Aftureldingu
erum að fá meira í aðgangs-
eyri í úrslitakeppninni en allan vet-
urinn í deildakeppninni. Það er því
mikið kappsmál fyrir okkur að vera
með í þessari keppni en i leiknum í
Mosfellsbæ á fimmtudagskvöldið
settum við met hvað áhorfenda-
fjölda snertir en þá borguðu inn
1050 manns enda var húsið pakkað.
Að reka handboltadeild verður
alltaf barningur en handknattleiks-
deildin á samt ekki við neinn
skuldahala að etja. Við erum auðvit-
að með okkar yfirdráttarheimild á
heftinu en þetta verður alltaf bar-
átta og við hjökkum í sífellu í núll-
inu. í fyrra töpuðum við tveimur
milljónum króna í Evrópukeppn-
inni en í dag erum við búnir að
vinna okkur út úr því. Liðið hefur
þegar tryggt sér keppnisrétt í þá
keppni en ég held að við hugsum
okkar gang hvað við gerum í þeim
efnum næsta haust. Að öðra leyti
eru fjárhagsmál deildarinnar í
þokkalegu standi. Við höfum heyrt
það út í bæ að við skulduðum marg-
ar miiljónir hér og þar vegna kaupa
á leikmönnum undanfarin ár. Sann-
leikurinn er bara sá að þetta er
mesti misskilningur. í fyrra mátti
sjá það í fjölmiðlum að við værum
að kaupa leikmenn fyrir 1,6 milijón-
ir, sem er alveg rétt, en við vorum
líka á sama tíma að selja leikmenn.
Jóhann Samúelsson fór til Dan-
merkur og Róbert Sighvatsson til
Þýskalands. Þegar öllu er á botninn
hvolft erum við ekki farnir að sjá
neinn hagnað í þessu. Þetta er og
verður alltaf baráttan við núllið en
leikirnir í úrslitakeppninni hjálpað
mikið við að halda fjárhagnum i far-
inu. Það verður ekki fram hjá því
horft að það að reka handboltadeild
er mikil vinna,“ sagði Jóhann Guð-
jónsson.
Vantar þig
*Húshjálp *Heimilisþrif
Traustur maöur og
ábyggilegur.
Svarþjónusta DV,
sími 903-5670, tilvnr. 80831.
ISPO
Góöur og ódýr kostur
Ispó er samskeytalaust
akrýlmúrkerfi.
Yfir 600 hús klædd á síðastliðn-
um 14 árum. 5 ára ábyrgð.
Gerum tilboð í efni og vinnu, þér
að kostnaðarlausu.
Múrklæöning hf.
Smiðsbúð 3, 210 Garðabær
Sími 656 8826
m/3áleéatteiri
9*pmam/4ah
tit*ptanm/$ál.
W(ptegam/3át*
18" piirn m/t ál
/■fíftíMn/fit /mz hnnnv/m
1*"m/3át. ðOOkr.
Wm/Sát. 900*r. li“phtam/3ál.
t8Hm/3ái. tOOO*r. t0-t3april
I8“piztam/3ál.
tZ-kvitlbr.
&21kókáaðeim
1800kr.
/jtfffstMMi Í}/J Kflílftvfifi
I