Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1997, Side 46
54 afmæli
LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1997
711 hamingju
með afmælið
12. apríl
80 ára
Pálína Pálsdóttir,
Mýrargötu 20, Neskaupstað.
75 ára
Páll G. Hannesson,
Ægisíðu 86, Reykjavík.
70 ára
Pálína Þorsteinsdóttir,
Kaldárhöfða, Grimsneshreppi.
Margrét Marvinsdóttir,
Selvogsgötu 22, Hafnarfirði.
Björg Ólafsdóttir,
Dalseli 12, Reykjavík.
60 ára
Guðbjartur Kristinsson,
Faxabraut 38A, Keflavik.
Guðný Guðnadóttir,
Hnotubergi 21, Hafnarfirði.
Guðmundur Jónsson,
Hólabraut 12, Hafnarfirði.
Stella Björk Baldvinsdóttir,
Baldursgarði 3, Keflavík.
Eiginmaður hennar er Magn-
ús Guðmundsson.
Þau taka á móti gestum í
húsakynnum Karlakórs Kefla-
víkur að Vesturbraut 17-19 í
dag frá kl. 18.00.
Þorbjörn Sigurðsson,
Fomastöðum, Blönduósi.
50 ára
Þórhallur Borgþórsson,
Goðalandi 7, Reykjavík.
Helga Þórarinsdóttir,
Mararbraut 11, Húsavík.
Kristín Aðalsteinsdóttir,
Laufskógum 6, Egilsstöðum.
Guðmunda Ólafsdóttir,
Esjubraut 5, Akranesi.
Dagbjört Halldórsdóttir,
Vesturási 62, Reykjavík.
Karl Lúðvíksson,
Otrateigi 52, Reykjavik.
Erla Bil Bjarnadóttir,
Brekkubyggð 11, Garðabæ.
Hún tekur á móti gestum í
Stjörnuheimilinu í Garðabæ
laugardaginn 12.4. milli kl.
17.00 og 19.00.
40 ára
Kristjana Andrésdóttir,
Túngötu 13, Tálknafirði.
Ásdís Kristjánsdóttir,
Gónhóli 3, Njarðvík.
Vigdís Þorsteinsdóttir,
Garðavík 7, Borgarnesi.
Haukur Vésteinn Gunnars-
son,
Melgötu 9, Grýtubakkahreppi.
Guðmundur Ragnar Guð-
mundsson,
Lækjarbergi 46, Hafnarfirði.
Hrönn Pétursdóttir,
Víðibergi 11, Hafnarfirði.
Ólöf Ámadóttir,
Hraunholti 9, Akureyri.
Halldór Sigurðsson,
Hjartarstöðum I, Eiðahreppi.
Bjarnþór Elís Víðisson,
Boðagranda 3, Reykjavík.
Jóhannes Bragi Gíslason,
Reynimel 62, Reykjavík.
Ingibjörg Guðrún Heiðars-
dóttir,
Brunngötu 10, ísafirði.
Ásberg Kristján Pétursson,
Hverafold 140, Reykjavík.
Hálfdán Örnólfsson,
Hamarsstíg 39, Akureyri.
Arna Jóna Backman,
Jöklafold 7, Reykjavík.
Sigurjón Elíasson,
Lækjargötu 8, Hafnarfirði.
Heiðar Guðbrandsson
Valsteinn Heiðar Guðbrandsson
sveitastjómarmaður, Ámesi, Súða-
vík, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Heiðar fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann sótti námskeið hjá
Hótel- og veitingaskóla íslands, lauk
þaðan prófi með matsveinaréttindi
og stundaði nám við Félagsmála-
skóla alþýðu í Ölfusborgum.
Heiðar stundaði verslunar- og
verkamannastörf á unglingsámm,
fór til sjós um tvítugt og var lengst
af kokkur á togurum og bátum til
1987, vann hjá Frosta í Súðavík,
m.a. sem verkstjóri, var bryti við
Héraðsskólann í Reykjanesi 1987-89
og stundaði þar hótelrekstur að
sumarlagi, vann hjá Súðavíkur-
hreppi og stundar nú byggingar-
vinnu. Þá var hann fréttaritari DV í
Súðavík.
Heiðar var formaður Verkalýðs-
og sjómannafélagsins í Súðavík
1973-78, sat í sambandsstjórn Sjó-
mannasambands íslands, situr í
stjóm Matsveinafélags íslands, sat í
hreppsnefnd Súðavikur 1982-86 og
frá 1990, sat í skólanefnd Grunn-
skóla Súðavíkur, var formaður
hennar 1982-86, er formaður
fræðslunefndar Súðavíkur, var for-
maður barnaverndar-
nefndar Súðavíkur
1982-86 og situr i henni
nú, situr í almanna-
vamanefhd Súðavíkur,
sat í hafnarnefnd Súða-
víkur, situr í bygging-
arnefnd Súðavíkur, sat
í skipulagsnefnd fyrir
nýja Súðavík, var for-
maður Björgrmarsveit-
arinnar í Súðavík um
skeið, sat í stjórn Kaup-
félags ísfirðinga, í
stjórn Steiniðjunnar
hf., í stjóm Sambands ungra fram-
sóknarmanna, í miðstjórn Fram-
sóknarflokksins, í stjóm kjördæma-
sambands Framsóknarflokksins á
Vestfjörðum og var formaður Fram-
sóknarfélagsins í Súðavík.
Fjölskylda
Heiðar kvæntist 10.8. 1968 Maríu
Kristófersdóttur, f. 13.11. 1947, hús-
móður og gæðaeftirlitsmanni. Hún
er dóttir Kristófers Ingimarssonar á
Grafarbakka, og k.h., Kristínar
Jónsdóttur húsfreyju.
Sonur Heiðars frá því áður er
Guðmundur Birgir Heiðarsson, f.
22.5. 1966, forstöðumaður á Akur-
eyri.
Synir Heiðars og
Maríu era Kristófer, f.
31.1. 1969, sjómaður í
Súðavík; Albert, f. 6.4.
1970, sjómaður í Súða-
vík; Ármann, f. 19.2.
1976, verkamaður í
Súðavík.
Systkini Heiðars eru
Vigdís Alda, f. 14.5.1949,
húsmóðir á Breiðavaði,
gift Magnúsi Jóhanns-
syni verkstjóra; Albert
Ómar Guðbrandsson, f.
6.7. 1951, iðnaðarmaður
í Garði en kona hans er Guðríður
Jónasdóttir húsmóðir; Sævar Guð-
brandsson, f. 5.1.1954, útgerðarmað-
ur á Húsavík, kvæntur Svölu Björg-
vinsdóttur húsmóður; Steinunn
Guðbrandsdóttir, f. 3.10.1956, starfs-
maður Iðnlánasjóðs, búsett í Hafn-
arfirði, gift Hallbergi Svavarssyni,
tannsmið og tónlistarmanni; Har-
aldur Halldór Guðbrandsson, f. 29.9.
1965, bakari í Borgarnesi, kvænur
Svanhildi Ólafsdóttur húsmóður;
Rögnvaldur Guðbrandsson, f. 16.12.
1967, matreiðslumaður í Garðabæ,
kvæntur Ólöfu Eysteinsdóttur hús-
móður.
Foreldrar Heiðars eru Guðbrand-
ur Rögnvaldsson, f. 29.10. 1926,
fyrrv. bílamálarameistari í Reykja-
vík og síðar starfsmaður hjá Secur-
itas, og k.h., Bjamdís Inga Alberts-
dóttir, f. 18.8. 1926, húsmóðir.
Ætt
Guðbrandur er sonur Rögnvalds,
verkamanns í Reykjavík. Guð-
brandssonar, b. í Sælingsdalstungu,
Ormssonar, af Ormsætt. Móðir
Rögnvalds var Guðfríður Sólmund-
ardóttir frá Mjóhóli.
Móðir Guðbrands var Steinunn
Þorkelsdóttir, b. í Lambhaga, Árna-
sonar. Móðir Þorkels í Lambhaga
var Steinunn Þorkelsdóttir af Bergs-
ætt. Móðir Steinunnar var Ingveld-
ur, systir Sigríðar, langömmu Harð-
ar Sigurgestssonar. Ingveldur var
dóttir Jóns, ættföður Setbergsættar-
innar.
Bjarndís er dóttir Alberts, frá
Hvítanesi í Djúpi, Magnússonar, frá
Skáleyjum, Guðmundssonar. Móðir
Alberts var Ingibjörg Sigurðardóttir
frá Amardal, þremenningur við Jón
forseta, frá Ólafi lögsagnara á Eyri.
Móðir Bjarndísar var Vigdís, dóttir
Benedikts, sjómanns á ísafirði,
Sveinssonar, af Pálsætt, og Ingunn-
ar Jóhannsdóttur.
Heiðar og María taka á móti gest-
um að heimili sínu i kvöld frá kl.
19.00.
Heiöar Guöbrandsson.
Gunnar Ingvarsson, vélfræðingur
og forstjóri, Kaplaskjólsvegi 93,
Reykjavík, varð fimmtugur í gær.
Starfsferill
Gunnar fæddist í Reykjavík, ólst
þar upp og í Sandgerði og Grindavík
og siðan á Eskifirði frá 1958. Hann
lauk gagnfræðaprófi í Vestmanna-
eyjum 1963 og vélfræðiprófi frá Vél-
skóla íslands 1971.
Gunnar fór ungur til sjós en hann
stundaði sjómennsku sem aðalstarf
um árabil á bátum, togurum og ís-
lenskum og erlendum farskipum.
Hann varð vélstjóri hjá Nesskipum
Gunnar Ingvarsson
1980, varð síðan skipaeftirlitsmaður
til 1990 en stofnaði þá eigið fyrir-
tæki, Skipavarahluti ehf.
Fjölskylda
Gunnar kvæntist 1.6. 1968 Hólm-
fríði Friðriksdóttur, f. 13.12. 1948,
húsmóður. Hún er dóttir Friðriks
Hafsteins Sigurðssonar, og Jónu
Ólafíu Þorfinnsdóttur.
Dóttir Gunnars og Hólmfríðar er
Hafdis Jóna Gunnarsdóttir, f. 22.1.
1966, húsmóðir á Seltjarnarnesi, gift
Snorra Magnússyni rannsóknarlög-
reglumanni og eiga þau þrjú börn,
Gunnar Dag, f. 6.3.1984, Snorra Hall-
dór, f. 26.1. 1989, og Dag-
mar Ýr, f. 19.12. 1990.
Bróðir Gunnars er Sig-
urður Ingvarsson, forseti
Alþýðusambands Austur-
lands.
Foreldrar Gunnars
voru Ingvar Gunnarsson,
f. 18.2. 1919, d. 23.6. 1991,
vélstjóri í Grindavík og á
Eskifirði, og Dagmar Sig-
uröardóttir, f. 29.5. 1912,
d. 17.3. 1980, húsmóðir.
Ætt
Gunnar Ingvarsson.
vegsb. á Bakkagerði
Reyðarfirði, Bóasson-
ar, b. á Stuðlum í
Reyðarfirði. Móðir
Ingvars var Una Sig-
ríður Jónsdóttir frá
Teigagerði í Reyðar-
firði.
Dagmar var dóttir
Sigurðar Jónssonar
Árnes ættfræðings og
Jónínu Sesselíu Hall-
grímsdóttur úr Borg-
arfirði eystra.
Gunnar er að heim-
an um þessar mundir.
Ingvar var sonur Gunnars, út-
andlát
Eyjólfur Ágústsson
Eyjólfur Ágústsson,
bóndi og sýslunefndar-
maður í Hvammi á
Landi, lést þann 30.3.
sl. Hann verður jarð-
sunginn frá Skarðs-
kirkju á Landi, í dag,
laugardaginn 12.4. kl.
14.
Starfsferill
Eyjólfur fæddist í
Hvammi á Landi og ólst
þar upp við öll almenn
sveitastörf. Hann hóf búskap í
Hvammi 1942 og var þar bóndi til
dauðadags. Auk þess var hann oft
leiðsögumaður inn í Veiðivötn og á
Landmannaafrétt.
Eyjólfur var sýslunefndarmaður
um árabil, sat i jarðanefnd og gróð-
urnefnd Rangárvallasýslu, var bað-
stjóri sveitar sinnar og refaskytta.
Þá sinnti hann trúnaðarstörfum
fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Fjölskylda
Eyjólfur kvæntist 22.5. 1942, eftir-
lifandi eiginkonu sinni, Guðrúnu S.
Kristinsdóttur, f. 9.12. 1921, hús-
freyju. Hún er dóttir Kristins
Guðnasonar, hreppstjóra í Skarði á
Landi, og k.h., Sigríðar
Eyjólfsdóttur ljósmóður.
Börn Eyjólfs og Guð-
rúnar: Kristinn, f. 24.2.
1942, d. 13.11. 1996, bif-
reiðarstjóri á Hellu, var
kvæntur Önnu Magnús-
dóttur tónlistarkennara
og eru börn þeirra þrjú;
Katrín, f. 19.9. 1943, póst-
fulltrúi í Reykjavík, gift
Má Jónssyni pípulagn-
ingameistara og á hún
þrjú börn frá fyrra hjóna-
bandi; Ágúst Sigurvin, f.
5.6. 1945, d. 7.12. 1996, málarameist-
ari í Stokkhólmi, var kvæntur
Ástríði Elsu Stefánsdóttur kjóla-
meistara og eignaðist hann þrjú
börn; Ævar Pálmi, f. 21.8. 1946, lög-
regluþjónn í Reykjavík, kvæntur
Kolbrúnu Sveinsdóttur verslunar-
manni og eiga þau þrjú börn; Knút-
ur, f. 7.1. 1949, strætisvagnastjóri í
Reykjavík en kona hans er Edda
Halldórsdóttir og á hann tvær dæt-
ur frá fyrra hjónabandi; Selma
Huld, f. 25.7. 1961, sjúkraliði í
Brússel en maður hennar er Jó-
hann Guðmundsson skrifstofustjóri
og eiga þau tvö börn.
Systkini Eyjólfs eru Þórður, f. 5.3.
1920, d. 14.5. 1990, verslunarmaður í
Reykjavík; Eyjólfur Karl, f. 5.9.
1922, arkitekt í Svíþjóð; Guðbjörg, f.
5.12. 1924, verslunarmaður í Banda-
rikjunum; og Sæmundur, f. 5.4.
1930, verslunarmaður á Hellu.
Foreldrar Eyjólfs voru Ágúst
Kristinn Eyjólfsson, f. 28.3. 1889, d.
11.11. 1947, bóndi og kennari í
Hvammi, og k.h., Sigurlaug Eyjólfs-
dóttir, f. 23.10.1894, d. 1.3.1977, hús-
freyja.
Ætt
Systir Ágústs var Guðríður í
Tryggvaskála á Selfossi, amma
Guðlaugs Bergmanns í Karnabæ,
Guðlaugs Tryggva Karlssonar hag-
fræðings, Egils Gr. Thorarensens,
forstjóra i Reykjavík, og Guðlaugs
Ægis Magnússonar, forstjóra á Sel-
fossi. Bræður Ágústs voru m.a.
Einar kaupmaður, faðir Eyjólfs
listmálara, föður séra Óskars í
Hafnarfirði, og Óskar, faðir Bald-
urs fréttamanns. Ágústs var sonur
Eyjólfs, „landshöfðingja“ í Hvammi
á Landi, Guðmundssonar, b. í
Hvammi, Þórðarsonar. Móðir Guð-
mundar var Þorbjörg Eyjólfsdóttir,
b. í Kampholti í Flóa, Guðmunds-
sonar, sonarsonar Herdísar í Ysta-
bæli undir Eyjafjöllum, Markús-
dóttur, sýslumanns í Ögri, Bergs-
sonar, forföður Jóns Baldvins
Eyjólfur Ágústsson.
Hannibalssonar og Jóhannesar
Nordals. Móðir Eyjólfs „landshöfð-
ingja“ var Guðríður Jónsdóttir frá
Gunnarsholti, af ætt Presta-Högna,
þeirra Tómasar Sæmundssonar,
Þorsteins Erlingssonar og Gylfa Þ.
Gíslasonar.
Móðir Ágústs var Guðbjörg,
Jónsdóttir, b. í Skarði, Árnasonar,
af Bolholts- og Víkingslækjarætt
Davíðs Oddssonar og Ingólfs Jóns-
sonar, og Geirlandsættinni á Síðu,
en af henni er t.d. Jón Helgason,
fyrrv. ráðherra, Helgi Bergs for-
stjóri og Jóhannes Kjarval. Móðir
Guðbjargar var Guðrún Kolbeins-
dóttir af Reykjaætt og Fjallsætt á
Skeiðum.
Sigurlaug var dóttir Eyjólfs, tré-
smiðs í Reykjavík, Ófeigssonar, b.
á Nesjum í Grafningi, Vigfússonar,
b. á Nesjum, Ófeigssonar, málara í
Heiðarbæ í Þingvallasveit, Jóns-
sonar. Móðir Ófeigs í Nesjum var
Anna Gísladóttir, b. á Villingavatni
í Grafningi, Gíslasonar, b. i Ás-
garði, Sigurðssonar, bróður Jóns á
Hrafnseyri, afa Jóns forseta. Móðir
Önnu var Þorbjörg Guðnadóttir, b.
í Reykjakoti í Ölfusi, Jónssonar en
afkomendur hans eru m.a. Halldór
Laxness, Vigdís forseti og Ólafur
Ólafsson landlæknir. Móðir Sigm-
laugar var Guðný Aradóttir.