Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1997, Page 50

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1997, Page 50
58 &ikmyndir MLIjJiiYjJI Michael Collins: fltakalítil átök ***. Smilla og snjórinn: Lesið í snjóinn *** Mynd Neils Jordans um Michael Collins kemur fram á mjög áhuga- verðum tíma í írskum stjórn- málttin þegar þreytan á átök- unum er orðin almenn. Jordan leitar í upphaf vandamálanna, samninginn sem skilur Norður-írland frá lýðveldinu. Hann býður upp á endur- mat á Collins sem er fremur umdeild þjóðar- hetja og er um leið væntan- lega að segja eitthvað um samtíma sinn. Því miður er þetta endurmat mjög átaka- og bitlítið. Jordan virðist skyndilega mikið í mun að styggja engan og jpví verður myndin eins og hálfköruð. Ekki vantar þó fæmi, það er engum blöðum um að fletta að hér er fagmaður á ferð og fyrri hluti myndarinnar er hlýr og þétt- ur og lofar góðu. Jordan segist vilja sýna söguna gegnum fólk en ekki atburði og sú stefiia gefst honum vel þama. Þegar sígur á seinni hlutann leysist myndin hins vegar upp i fyrirsjáanlegt yfirkeyrt drama, tapar sjarma byrjunarinnar og um leið kemur holhljóð í söguna. Liam Neeson stendur sig vel í hlutverki Coll- ins, Aidan Quinn, sem besti vinur Harrys Bolands, og Alan Rickmann, sem De Valera forseti, era góðir en tilþrifalausir meðan Stephen Rea er framúrskarandi sterkur i hlutverki sínu sem uppljóstrari. Hvað Julia Roberts er að gera þarna er aftur á móti spuming. Hlutverk hennar sem bitbein vinanna tveggja er hvorki fugl né fiskur og svo leikur hún svo illa að hún hreinlega brýtur upp stemningu, sérstaklega þegar írski hreimurinn hrynur. Það hlýtur að vera tilflnngaþrungið fyrir íra að horfa þarna á vel útfærða kvikmyndun á mörgum frægustu sögulegu atburðmn sínum, svo sem Páskaupp- reisninni og Blóðuga sunnudeginum, og þessi saga á vissulega erindi til annarra þjóða en einmitt þess vegna á sagan heimtingu á sterkari tökum en hér er að finna. Handrit og leikstjórn: Neil Jordan. Kvikmyndataka: Chris Menges. Tónlist: Elliot Gold- enthal. Aöalleikarar: Liam Neason, Aidan Quinn, Stephen Rea, Alan Rickman og Julia Roberts. Það er ekki í fyrsta sinn sem samstarf dansks leikstjóra og al- þjóðlegra leik- ara skilar mjög undarlegri nið- urstöðu, sem markast fyrst og fremst af ein- hvers konar menningará- rekstri eða menningarsig- gengi öllu held- ur. Þetta þarf ekki að vera slæmt, slík sig- gengi geta ein- mitt virkað sem drifkraftur, líkt og misfellan milli glæpasögu og þjóðfélags- gagnrýni drífur sjálfa skáldsöguna, Lesið í snjóinn, áfram. Myndin segir frá hálf- grænlenskri Smillu sem trúir ekki að 6 ára grænlenskur vinur hennar hafi dáið af slysforam og rannsakar málið með hjálp vélvirkja sem aldrei virðist gera við vélar. Rannsókn hennar kemur við kaunin á mörgum og leiðir hana á endanum tU Grænlands þar sem lokauppgjörið gerist. Myndin er sögunni trú, of trú að mínu mati, og nær því Ula að standa sem sjálfstætt verk, án þess þó að ná að halda þeirri áhugaverðu spennu sem í bókinni flnnst. August þáttar út glæpaplottið, en tekst hvorki að ijá því aukavægi með þjóðfélagsádeUu, né að láta það virka mjög vel; í leit að meðalvegi situr hann uppi með meðalmennsku. Þó Julia Ormond sem SmUla sé ekki sannfærandi sem hálfgrænlensk skUar hún hlutverki sínu aö öðra leyti vel, og sömuleiðis er Gabriel Byme, sem vélvirkinn, traustur. Robert Loggia sem faðir SmUlu, Moritz, sýnir góða takta og samspU hans við bamunga konu sína og uppkomna dóttur er fyndið. Lokasenumar sem gerast á Grænlandi eru íðilfaUegar og greinilegt að þar var mikið í borið, Ormond meir að segja minnir á Björk um tíma, eins og tU að hnykkja frekar á norðurslóðatengslunum. Það hefði verið gaman að sjá meira af þeirri kyrrlátri tign sem einkenndi endalokin. í þeim senrnn sást vel hvað þessi mynd hefði get- að orðið og hvað snjórinn getur verið faUegur á mynd. Leikstjóri: Bille August. Handrit: Ann Biderman. Kvikmyndataka: Jorgen Persson. Tón- list: Harry Gregson-Williams og Hans Zimmer. Aðalleikarar: Julia Ormond, Gabriel Byr- ne, Richard Harris, Vanessa Redgrave, Robert Loggia. -Úd LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1997 Richard Harris hefur leikiö í fjölmörgum myndum, allt frá því aö hann lék í Mutiny of the Bounty 1961. Frægasta mynd hans er líklega A Man Called Horse en meöal nýrra mynda meö honum má nefna Unforgiven. í Lesiö í snjóinn leikur hann viðskiptajöfur sem gerir hvaö sem er fyrir peninga og völd. Leikstjórann BUle August þarf vart að kynna fyrir íslendingum en hann leikstýrir nýrri mynd sem Sambíóin frumsýndu í Bíóborginni í gær- kvöld. Þetta er dansk-ameríska stórmyndin Smilla’s Sense of Snow eða Lesið i snjóinn sem gerð er eftir heimsþekktri metsölubók hins kunna rithöfúndar Peters Höegs. Myndin segir af stærðfræðingnum og jöklasér- fræðingnum Smillu Jasperson sem flytur með bandarískum fóður síns til Kaupmannahafnar eftir að grænlensk móðir deyr á Grænlandi. Það er Julia Ormond sem leikur þessa sjálfstæðu, greindu konu sem hefur gífurlega ríka réttlætis- kennd. Lítill vinur deyr Sex ára grænlenskur vinur hennar, Esajas, flnnst látinn í snjónum fyrir utan byggingu í Kaupmannahöfn stuttu fyrir jól og lögreglan kemst að þeirri niðurstöðu að um slys hafi verið að ræða. Réttlætiskenndin rekur Smillu af stað, hún er fær um að lesa ýmislegt úr snjónum sem aðrir sjá ekki og henni sýnist augljóst á sporun- um í snjónum að strákurinn hafi verið á flótta, ekki í leik heldur vegna hræðslu við einhvem sem elti hann. Rannsókn Smillu leiðir það í ljós að móðir Esajasar fær greiddan einkennilega háan ekkna- lífeyri frá vinnuveitendum manns hennar, vold- ugu en skuggalegu fyrirtæki, eftir að maður hennar hafði látið lífið í óútskýrðri sprengingu í rannsóknarleiðangri á Grænlandi. Eini banda- maður Smillu er nágranni hennar einn, ungur maður sem hún þekkir aðeins undir nafninu vél- virkinn. Hann verður ástmaður hennar og sam- an komast þau á slóðir ótrúlegustu mála, mála sem gerast 27 ámm áður en Esajas dó en tengjast þó dauða hans að nokkm leyti. Þau leita svara við ótal spumingum og spennan magnast þegar á líður og heldur áhorfandanum fongnum. Ormond rátta konan „Hér hafði ég fullkomið dæmi, glæpasögu þar sem notuð em öll brögð spennumynda til þess aö segja hluti sem em alvarlegs eðlis. Bille August ákvað að Julia Ormond væri rétta konan í hlutverkið eftir að hann hafði horft á atriðið í Legends of the Fall þar sem hún játar ást sína fyrir Brad Pitt. „Hún var ekki aðeins gædd þeim þremur lyk- ilhæfileikum sem við sóttumst eftir heldur hatði hún margt til hlutverksins að leggja frá eigin bijósti. Hún krafðist að fá að undirbúa sig svo mikið að okkur fannst nóg um. Hlutverkið krefst mikils, bæði andlega og líkamlega, og Julia æfði líkt og hún ætlaði að taka þátt á sjálfum ólymp- íuleikunum. Þegar við svo loks byrjuðum var hún meira en tilbúin til þess að takast á við verkið," segir Bille um leikkonuna Juliu Ormond sem túlkar Smillu í Sambíóunum þessa dagana -sv Bók ársins Anna Biderman (Copycat, Primal Fear) skrif- aði handrit að myndinni eftir sögu Höges sem var t.d. valin bók ársins hjá tímaritinu Time 1992. Síðan þá hefúr bókin verið þýdd á „nánast öllum“ tungumálum og umskrifuð fyrir útvarp í nokkrum löndum. Kvikmyndagerðarmenn runnu fljótt á lyktina og tugir tOboða streymdu að, frá Hollywood og víðar, en fullur þjóðerniskenndar valdi Höeg samlanda sinn, Bille August, til þess að gera myndina. August var á þeim tíma á kafi í gerð myndarinnar Jerúsalem en gaf sér engu að síður tíma til þess að lesa bókina. Hann heillaðist á augabragði og engu minna hrifinn varð framleið- andinn, Bemd Eichinger, stjóri hjá Constantin Films, náinn vinur Bille August frá því að þeir gerðu saman verðlaunamyndina Hús andanna. Eichinger segir að tvennt hafi dregið sig að þessu verki; annað var tækifærið til þess að segja sögu í óvenjulegu umhverfi, líkt og hann gerði í myndinni í nafni rósarinnar, og hitt sú einlæga trú hans að vinsæl afþreying geti verið beintengd við gæði. Julia Ormond tók hlutverk sitt í myndinni grfö- arlega alvarlega og Bille August segir hana hafa æft líkt og hún ætlaöi aö taka þátt á sjálfum ólympíuleikunum. Sambíóin frumsýndu Lesið í snjóinn í gærkvöld: Glæpasaga með öllum brögðum spennumynda - óskarsverðlaunahafinn Bille August leikstýrði myndinni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.