Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1997, Side 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 199'
Hugmyndin var
samspilshóp
- segir Gylfi Gunnarsson skólastjóri
„Hugmyndin var sú að stofna ein-
hvers konar samspilshóp sem átti
að vera andstæða við það sem verið
var að gera í tónlistarskólanum að
öllu jöfnu. Ég hafði reynslu af sam-
spili og vissi að hægt var að gera
þetta með góðum hópi. Þessi hug-
mynd varð að veruleika árið 1991
þegar nokkrir nýir strákar komu í
skólann, 7-9 ára gamlir. Fjórir
strákar byrjuðu þá á saxófón og við
röðuðum í kringum hann rafmagns-
bassa, rafmagnsgítar, pianói og
trommum. Þannig má segja að æv-
intýrið hafi byrjað,“ segir Gylfi
Gunnarsson, skólastjóri Tónlistar-
skóla Seltjarnarness, en hann hefur
verið aðalmaðurinn á bak við
hljómsveitina Bossanova. Gylfi er
einn af þremur tónlistarkennurum
sem sáu um að stofna sveitina á sín-
um tíma ásamt þeim Einari Braga
Bragasyni og Kára Einarssyni.
„Við vildum gefa strákunum tæk-
ifæri á að spila aðra tónlist en
klassíska sem alla jafna er
kennd í skólanum. Hljómsveitin
spilaði fyrst aðallega suður-am-
eríska tónlist en hefur jafnt og
þétt bætt djassi inn á efnis-
skrána. Fljótlega varð hljóm-
sveitin fullmótuð eins og hún
er í dag en hún samanstend
ur af 8 strákum. Þrír eru
blásarar, tveir spila á
gítar og einn hver á
hljómborð, bassa og
trommur. Við lögðum
áherslu frá byrjun að
þeir lærðu allt utanbók-
ar sem þeir hafa og gert.
Þeir hafa alls staðar vak-
ið athygli, bæði hér
heima og eins á ferðalög
um erlendis og verið landi
og þjóð til sóma,“ segir Gylfi.
að stofna
Gylfi Gunnarsson og Sigurður Flosason
við flygilinn í húsakynnum Tónlistar-
skóla Seltjarnarness.
DV-mynd S
8 hressir strákar mynda hljómsveitina Bossanova:
Þrælgaman að spila þessa tónlist
- segja strákarnir sem spila djass og suður-ameríska tónlist
Þeir eru átta hressir strákar á
aldrinum 14-17 ára og flestir búsett-
ir á Seltjamamesi. Þeir hafa haldið
hópinn í 6 ár eftir að þeir komu
fyrst saman til að spila suður-amer-
íska tónlist og djass. Þeir stofnuðu
hljómsveitina Bossanova og hafa
síðan slegið í gegn. Þeir hafa spilað
um allt land, í sjónvarpssal og meira
að segja farið þrívegis í tónleika-
ferðir til útlanda. DV leit inn á æf-
ingu hjá Bossanova-strákunum eitt
kvöldið í síðustu viku þar sem þeir
vom í húsakynnum Tónlistarskóla
Seltjarnamess, á heimavelli sínum
þar sem ævintýrið byrjaði fyrir sex
árum.
„Það er þrælgaman að spila þessa
tónlist, djass og suður-ameríska, því
annars væmm við jú ekki í þessu.
Við höfðum fæstir verið í tónlist
áður en við byrjuðum að spila sam-
an en nú teljum við okkur vera
orðna þokkalega góða i þessu. Við
höfum æft lengi saman og hittumst
nokkuð oft, bæði á æfingum og eins
þegar við spilum á hinum ýmsu
stöðum," segja Bossanova-strákam-
ir.
Þeir gáfu út geisladisk fyrir síð-
ustu jól og segjast stefna á annan á
þessu ári. Þeir munu halda tónleika
í ráðhúsinu nk. sunnudag kl. 17 og
em að æfa sérstaklega fyrir þá und-
ir stjórn Sigðurðar Flosasonar,
djassatvinnumanns og tónlistar-
kennara. Hann hefur æft hljómsveit-
Strákarnir í Bossanova- hljómsveitinni voru hressir þegar DV leit inn á æfingu hjá þeim á dögunum. Þeir eru að æfa
fyrir tónleika sem fram fara í ráöhúsinu nk. sunnudag klukkan 17. DV-mynd S
Þjóöhátíð í
Vestmannaeyjum
1997
ÍBV - íþróttafélag óskar eftir tillögum aö þjóöhátíöar-
lagi vegna þjóöhátíöar, sem haldin veröur 1.-3.
ágúst 1997.
Tillögum skal skila á kasettu til þjóðhátíðarnefndar
eigi síöar en 1. maí nk. og berist til:
ÍBV - íþróttafélag/þjóöhátíöarnefnd.
BOX 175, 902 Vestmannaeyjar.
„Þetta gengur mjög vel hjá strák-
unum enda eru þeir mjög góðir. Það
hefur verið gaman að fá tækifæri til
að starfa með þessum ungu mönn-
um. Þeir eru tónlistarskólanum og
bæjarfélaginu hér á Seltjarnarnesi
til mikils framdráttar," segir Sig-
urður og hann hvetur sem flesta til
að mæta á tónleikana í ráðhúsinu á
sunnudag. -RR
Nauðungarsala á lausafé
Eftir kröfu Sigurbjörns Þorbergssonar hdl., skiptastjóra dánarbús Sjgurgeirs Sigurðs-
sonar, fer fram uppboð á safni málverka eftir Sigurgéir Sigurðsson. Nauðungarsalan
ferfram á skrifstofu Sigurbjörns Þorbergssonar hdl., Ingólfsstræti 3, Reykjavík,
þriðjudaginn 22. apríl 1997 kl. 13.30. Sýslumaðurinn I Reykjavik
ina í tengslum við þemaviku í tón-
listarskólanum.
Toppurinn að spila í
Kbben
„Við höfum farið til þriggja Norð-
urlanda og spilað þar en toppurinn
var að spila í Köben á síðasta ári.
Það var líka mjög gaman að ná að
gefa út geisladiskinn," segja félag-
arnir.
Samba
og sagan
Orðið samba á portúgölsku er
komið af orðinu semba sem er
algengt í bantu-máli í Vestur-
I Afríku. Afrísku þrælamir, sem
fluttir vom til Brasilíu á 17. og
(18. öld, notuðu orðið samba
mikið því það þýddi að biðja til
guða eða anda forfeðranna. Það
var síðan notað um helgiathöfn
þar sem afrísku þrælamir döns-
uðu trúardansa í afrískum
rytma. í Brasilíu er samba
einnig konunafn og þá þýðir
það helgur dansari eða dóttir
dýrlings.
Samba
á hljómplötu
Árið 1838 kom orðið samba
Ífram í fyrsta skipti sem portú-
galskt orð í merkingunni dans
og rytmi. Það var í dagblaðinu
0 Carapuceiro í grein sem
presturinn Lopes Gama skrif-
| aði.
Árið 1917 hljóðritaði söngvar-
inn Ernesto dos Santos lagið
SPelo telefone og sönglaði með
samba, samba. Upp frá því byij-
uðu tónlistarmenn, sem vom af-
komendur þræla, að sjá samba
sem tákn um aukna sókn og
möguleika í samfélagi hvítra
manna. Þeh- bjuggu til samtök
sem nefndust Samba-skólamir.
Fátæklingar
og bófar
Einn af þekktum
sambadönsurum um miðja
þessa öld, Angenor de Oliveira,
sagði í blaðaviðtali að þegar
hann var ungur hefði veriö álit-
ið að þeir sem dönsuðu samba
væru fátæklingar eða jafhvel
bófar. Þegar fólk dansaði samba
á götunum í finu hverfunum
eða í bakgörðum hvita fólksins
stöðvaði lögreglan oftast nær
dansarana.
Neðanjarðar-
menning
Þrátt fyrir miklar vinsældir
sambadansins í Brasilíu í dag
er ekki litið á hann sem brasil-
íska menningu heldur sem neð-
anjarðarmenningu og hann nýt-
ur ekki hárrar virðingar. Á hin-
um þekktu og vinsælu kjöt-
kveðjuhátíðum í Ríó de Janeiro
og víðar í Brasilíu er samba
vinsælasti dansinn og jafnframt
vinsælasta tónlistin.
Samba
og fótbolti
A knattspymuleikjum í Bras-
ilíu má þó sjá fólk dansa samba
á áhorfendapöllunum alls stað-
ar þar sem brasilíska landsliðið
fer. Það hefur meira að segja
verið sagt að Brassamir leiki
sambafótbolta, léttan og lipran
bolta með rytma.