Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1997, Side 15
ÞRIÐJUDAGUR 15. APRIL 1997
*
Uppruni
pitsunnar
Uppruna pitsunnar er aö
finna á Ítalíu eða nánar tiltekið
í sunnanverðu landinu. Þeir
ítalir sem urðu innflytjendur í
öðrum löndum fluttu með sér
menningu sína og kynntu
heimsbyggðinni matinn að
heiman, rétti á borð við pitsu
og spagettí.
Fom hefð
pitsunnar
Pitsa á sér forna hefð á Ítalíu
og jaíhvel enn fornari heldur en
pasta. Fyrstu pitsurnar voru
bragögott brauð, bakað í viðar-
kyntum steinofnum. Ólífum,
tómötum og lauk var bætt við
deigið og loks vai- svo komið að
höfð var við þetta sérstök að-
ferð í hverju héraði. Pitsa þró-
aðist smám saman sjálfkrafa úr
þessu brauði og varð að ódýr-
um rétti sem dugði i heila mál-
tíö.
Rustica
Diana Seed, höfundur met-
sölubókarinnar Hundrað góðar
pastasósur, gefur uppskrift að
þunnri, stökkri pitsu eða Pizza
rustica eins og þær heita á
ítölsku. Þær eru bakaðar á
svörtum plötum og seldar í
sneiðum í Róm og víðar á ítal-
íu. Diana segir að fyllingarnar,
sem hún er langhrifnust af sjálf,
séu kartöflusneiðar með rós-
maríni eða sneiðar af dvergkúr-
bít með mozzarella-osti.
botn
Pitsubotn búum við til með
25 grömmum af nýju geri. Yl-
volgt vatn, 1 teskeið af salti, ein
matskeið af ólífuoliu og 500
grömm af hveiti.
Uppskrift
og aðferð
Leysið geriö upp í dálitlu yl-
volgu vatni og bætið síðan við
salti og olíu. Setjið hveitið í
skál eða blandara og hellið ger-
blöndunni út í. Bætið smátt og
smátt við meira ylvolgu vatni
þar til deigið er nokkuð þétt og
hrærið þar til það er mjúkt og
| teygjanlegt. Setjið plastþynnu
ofan á skálina eða etjið deigið í
stóran, olíuborinn plastpoka.
Látið deigið lyfta sér í um 45
mínútur á hlýjum stað. Skiptið
deiginu í sex hluta og fletjið
hvem þeirra út í þunna kring-
lótta köku.
Kartöflu-
fylling
Sjóðið kartöflumar með hýð-
inu þar til þær eru rétt soðnar.
Afhýðið þær og skerið í þunnar
sneiðar og raðið þeim á pitsu-
botninn þannig að þær skarist
aðeins. Stráið rósmaríni ofan á
og verið óspör á það. Kryddið
með salti og miklu af svörtum
pipar. Dreypið dálitilli ólífuolíu
á pitsurnar og bakið þær í 250
gráðu heitum í 15 mínútur.
Kúrbíts-
fylling
Steikið létt þunnar sneiðar af
Sdvergkúrbút (zucchini) í ögn af
ólífuolíu. Ki-yddiö þær með salti
og svörtum pipar og raðið þeim
á pitsuna þannig að þær
skarist. Setjið 4 eða 5 sneiðar af
mozzarella ofan á og stráið ögn
af nýrifnum parmaosti efst.
Bakið pitsurnar í 250 gráöu
heitum ofni í 15 mínútur.
15
- segir Devito Alilucio
Peperóní og
pipar er t.d. mjög
vinsælt ofan á pits-
urnar hér,“ segir Devito
Alilucio.
„íslendingar era góðir viðskipta-
vinir og þeir elska pitsur. Ég tek eft-
ir því að íslendingar vflja hafa pits-
umar sterkar. Peperóní og pipar
er t.d. mjög vinsælt ofan á pits-
urnar hér,“ segir Devito
Alilucio, sem rekur pitsastað-
inn Devitos við Hlemm.
Devito hefur búið á íslandi
undanfarin 5 ár og er allt í
senn, eigandi staðarins,
matreiðslumeistari og
pitsasendill. Hann
opnaði staðinn sinn í
febrúar 1994 og þó
hann sé ekki stór þá
er hann mjög vin-
sæll.
„Ég get ekki kvartað
því það er alveg nóg að
gera. Þetta kemur í lot-
um og á matmálstímum
er auðvitað mest að gera hjá
okkur. Ég á góða viðskiptavini
sem koma mjög oft og ég matreiði
reglulega fyrir nokkur erlend sendi-
ráð hér í borginni," segir Devito.
Hann er fæddur í Alsír en ólst
upp í ítölsku borginni Napólí. Hann
hefur farið víða og búið m.a. í
Frakklandi og Noregi áður en hann
fluttist hingað til lands.
Úr fiski í pitsugerð
„Ég dvaldi fyrst á Isafirði eftir að
ég kom til íslands og vann þar í
fiski. Það var ágæt tilbreyting en
síðan kom ég til Reykjavíkur og
opnaði Devitos. Ég hef búið til pits-
ur í 15 ár og vann mikið við það í
Noregi. Mér líður vel á íslandi, land-
ið er fallegt og fólkið vingjamlegt og
gott,“ segir Devito.
-RR
Finnbjörn Ólafsson tilbúinn í
slaginn meö pitsu í höndinni fyrir
utan vinnustaö sinn, Domino's.
Hann segir aö þaö sé mikil
keyrsla aö vera pitsa-
sendill.
DV-mynd S
*"• t fullu
segir Finnbjörn Olafsson pitsasendill
„Þetta er oft mikil keyrsla i orðs-
ins fyllstu merkingu. Við vinnum
um 50 tíma í viku og keyram eflaust
yfir 100 kílómetra á hverri vakt. Að-
altömin er um kvöldmatarleytið á
fóstudögum og laugardögum og þá
má segja að allt sé á fullu hjá okkur
pitsasendlum. Það eru um 25 pitsu-
sendlar hér á Grensásveginum og
góður mórall í liðinu,“ segir Finn-
bjöm Ólafsson, pitsusendill hjá
Domino’s á Grensásveginum. Finn-
bjöm er einnig nemi í viðskipta-
fræði í Háskólanum.
„Þetta er fint starf og sérstaklega
með skólanum. Ég hef verið hér í
þrjú ár eða frá því staðurinn opnaði
og lengst af unnið í hlutastarfí þó ég
sé fastráðinn nú,“ segir Finnbjöm.
Hann segir að starfið geti stund-
um verið erfitt og jafnvel dálítið
hættulegt og þá sérstaklega á nótt-
inni. „Ég man eftir því einu sinni
þegar ég var beðinn að fara með
pitsu i Mjölnisholt. Það var reyndar
um hábjartan dag en liðið þar var
skuyggalegt og manni stóð ekki á
sama. Mér var sagt að það ætti að
skrifa pitsuna á einn forsetafram-
bjóðandann sem ég vissi auðvitað að
var lygi en ég var smeykur og ákvað
að vera ekkert að fórna mér fyrir
eina pitsu. Ég lét þau því hafa pits-
una og dreif mig bara hið snarasta í
burtu,“ segir Finnbjöm.
Hann segir að viðskiptavinimir
séu í langflestum tilfellum gott fólk
og skilningsríkt þó það komi fyrir
að sendlunum seinki örlítið í um-
ferðinni.
„Það kemur þó fýrir að maður
hittir á óþolinmóða einstaklinga en
við sendlamir þurfum að sýna um-
burðarlyndi og kurteisi. Mottóið er
jú að gera allt fyrir kúnnann," segir
Finnbjörn.
-RR
§ pioimeer;
The Art of Entertainment
GEISLASPILARI
19.900,
&
SJÓNVORP OG MYNDBANDSTÆKI
LOEWE.H
Hljómtækja-
VClðlUII Akureyri Ð462 3626
Norðurlands örugg þjónusta ífjörtíu ár