Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1997, Side 17
ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1997
Sesselja
Sólheimar voru stofnaöir 5.
júlí 1930 af Sesselju Hreindísi
Sigmundsdóttur (1902-1974) sem
veitti heimilinu forstöðu allt til
dánardags. Sesselja var fyrsti ís-
lendingurinn sem lærði um-
mönnun þroskaheftra en hún
stundaði nám í Sviss og Þýska-
landi. Sesselja hreifst af hug-
myndafræði þýska bókmennta-
fræðingsins og heimspekingsins
Rudolfs Steiners og studdist um
margt við hugmyndafræði hans í
störfum sínum. Hún lagði ríka
áhersla á heilnæmt fæði, lífræna
ræktim og listræna tjáningu í
meðferðar- og umönnunarstarfi.
Sólheimahús
Starfsemin hófst 5. júlí 1930 í
tjöldum og bárujámsskúr sem í
var matreitt. Á sama tíma hófst
bygging Sólheimahúss. Um
haustið, 4. nóvember, var húsiö
fokhelt og starfsemin flutt í kjall-
arann. Sesselja bjó alla tíð i her-
bergi í kvisti Sólheimahúss.
Byggð í Grímsnesi
Sólheimar eru byggðahverfi.
Þar búa nú um 100 manns, þar af
40 fatlaðir einstaklingar. Vist-
heimiliö á Sólheimum var lagt
niður 1993 og sjálfstæð búseta
tók við. Allir íbúarnir búða í
íbúðarhúsnæði sem Sólheimar
og Styrktarsjóður Sólheima hafa
byggt. 1 einbýlishúsum búa 4-5
saman en hluti íbúa býr í ein-
staklings- eða paríbúðum og
standa sjálfir fyrir heimilishaldi
en geta sótt aðstoð til heimilis-
þjónustu með þá þætti sem þeir
valda ekki að fullu eða þarfhast
stuðnings með.
Nöfn úr verkum Lax-
ness
íbúðarhúsnæði á Sólheimum
ber nöfn úr verkum Halldórs
Laxness. Má þar nefha Steina-
hlíö, Brautarholt, Sumarhús og
íbúöir standa við götuna Undir-
hlið. Starfsemi þjónustumið-
stöövar er þríþætt og nær til bú-
setu, atvinnu- og tómstunda-
starfs.
Skógræktar- og garð-
yrkjustöð
í skógræktarstööinni Ölri eru
ræktaðar trjáplöntur, runnar og
blóm með lifrænum aðferðum.
Alls eru þar í ræktun um 120 teg-
undir. Meginhluti framleiðsl-
unnar er seldur til sumarbú-
staðafólks og bæjarfélaga en
einnig er mikið gróðursett í
landi Sólheima. Garðyrkjustöðin
Sunnar hefur með höndum um-
fangsmikla framleiðslu lífræns
ræktaðs grænmetis í gróðurhús-
um og útimatjurtargöröum.
Helstu tegundir eru tómatar,
gúrkur og paprikur í gróðurhús-
um en gulrætur, kartöflur, rófur
og kál í útiræktun. Lífræn rækt-
un byggist á því að varðveita
frjósemi jarðvegsins fyrir okkur
sjálf og framtíðina. Þess vegna
eru hvorki notuö eiturefhi né til-
búinn áburður. Sólheimaíbúar
eru frumkvöðlar í lífrænni rækt-
un á íslandi.
Sundlaug og íþrótta-
hús
Sundlaugin var byggð 1942 og
er mikið notuð af íbúum og gest-
um. Öll hús á Sólheimum eru
hituð með heitu vatni úr Sól-
heimahvernum. íþróttaleikhús
var byggt árið 1986. Safhað var
fyrir byggingunni með íslands-
göngu Reynis Péturs Ingvarsson-
ar. íþróttaleikhúsið gegnir miklu
hlutverki í félags- og menningar-
lífi íbúa Sólheima. Aðalsalur
hússins er notaður undir sam-
verustund að morgni hvers
starfsdags, líkamsþjálfun, leik-
listarstarfsemi, fundi og ráð-
stefhur. í kjallara er nú unnið að
því að koma upp aðstöðu fyrir
sjúkraþjálfun, nudd, heilsurækt,
fótsnyrtingu og hárgreiðslu.
M Jr ^ 4í
M* /íinÉHHA
Sólheimar, og um leið ísland, fengu þá alþjóöaviöurkenningu aö vera valdir I hóp 15 sjálfbærra og vistvænna byggöahverfa. Þessi samfélög mynda meb
sér samtök sem nefnast Global Eco-Village Network. Sólheimar hafa jákvæöa sérstöbu meöal þessara samfélaga vegna fatlaöra fbúa. Eco-Village er öflug
alþjóöleg hreyfing sem byggir upp samfélög og byggöahverfi sem eiga aö vera fordæmi og fyrirmyndir fyrir abra byggöarkjarna. Hér spila saman svib um-
hverfismála, í vlöustu merkingu, félagsmála og andlegra sjónarmiða. Sjálfbær þróun hefur veriö skilgreind sem þróun sem fullnægir þörfum íbúa heims án
þess aö rýra möguleika komandi kynslóöa til ab fullnægja þörfum sínum og velja sér sér eigin lífshætti.
Bryndís Schram, spilastjóri í svartapétri:
Vann tvítug að
aldri á Sólheimum
„Ég tengist Sólheimum frá fomu
fari því ég vann þar sem einstæð
móðir, rétt tvítug að aldri,“ segir
Bryndís Schram en hún stjómaði
svartapétursmótinu á Sólheimum
sem haldið var fyrir tíu dögum.
Þetta er annað skiptið í röð sem
Bryndís er spilastjómandi en áður
hafði hún hlaupið í skarðið tvisvar
sinnum og leyst Svavar heitinn
Gests af en hann var spilastjóri í
mörg ár.
„Ég vann og bjó með þeirri merku
konu Sesselju Sigmundsdóttur,
stofhanda Sólheima, þetta sumar.
Hún var brautryðjandi og byggði að-
ferðir sínar á kenningum Rudolfs
Steiners. Húsið, sem við bjuggum í,
var merkilegt að því leyti að þar var
engin bein lína og enginn nagli í
innviðum. Þetta var í upphafi starfs
Sólheima og þau böm sem voru þá
heimilismenn eru sum ennþá bú-
andi þama, nú fullorðið fólk. Mér
finnst alltaf gaman að koma í heim-
sókn og rifja upp gömul kynni við
þau. Það er svo margt gott í þessu
fólki sem ekki finnst í mörgiun sem
teljast heilbrigðir. Það er folskva-
laus einlægni og væntumþykja sem
er sérstök.“
Sólheimar hugleiknir frá
upphafi
Bryndís segir að frá upphafi hafi
Sólheimar verið henni hugleiknir
en aðstæður hafi orðið til þess að
sambandið var stundum stopult.
Þegar hún tók við stjórn Stundar-
innar okkar var hennar fyrsta verk
að fara í heimsókn að Sólheimum og
spjalla við heimilismenn. Á sextíu
ára afmæli Sólheima fyrir sex árum
gerði hún þátt ásamt Tage Amm-
endrap um starfsemina og var hann
sýndur í Sjónvarpinu.
„Lionshreyfingin með Svavar
Gests í fararbroddi hefur stutt
dyggilega við starf Sólheima, svo og
margir aðrir. Það hefur margt
breyst á þeim tæpum fjöratíu árum
frá því ég kom að Sólheimum fyrst.
Núna em Sólheimar fallegur og
yndislegur staður þar sem starfsem-
in er til mikillar fyrirmyndar. Það
er mikil starfsemi í gangi og nú eru
Sólheimar komnir í hóp 14 vist-
þorpa í heiminum sem er mikill
heiður fyrir byggðina," segir Bryn-
dís Schram, spilastjóri í svartapétri.
-jáhj
Spilastjórinn Bryndfs í hópi verölaunahafanna f svartapétri. íslandsmeistari
f svartapétri 1997 er Smári Ársælsson frá Selfossi (meö gleraugun), f ööru
sæfi varö Hafsteinn Magnússon og f þvf þribja Arna Rós Sigurjónsdóttir en
þau tvö síöasttöldu búa á Sólheimum.
Krakkaklúbbur DV og Sam-myndbönd
Vinningshafar í litaleik
Verölaunin eru glæsileg:
30 myndbönd:
Óskar Elías Sigurfisson Katrfn Ósk Jóhannesdóttir Stetán Páll Þóröarson
Nr. 5950 Nr. 8626 Nr. 9069
Jóhann P. Bergþórsson Helórún Þóróardóttlr Auöur Allansdóttlr
Nr. 5640 Nr. 5833 Nr. 9463
Bryndls Valdimarsdóttir Sandra Dögg Svansdóttir Slgrún Eir Elnarsdóttlr
Nr. 9862 Nr. 6180 Nr. 7290
Hilmar Hjartarson Heba Katrfn Slgþórsdóttír Þórarinn Magnússon
Nr. 2213 Nr. 7998 Nr. 3050
Haraldur Lúóvfk Þorgeröur og Kristín Llnd Tanja Huld Guömundsdóttlr
Nr. 5498 Nr. 1671 Nr. 7393
Jón Þór Arngrímsson Sara K. Svelnsdóttir Unnur Einarsdóttir
Nr. 2203 Nr. 10423 Nr. 5287
Dagrún Jónasdóttir Eva Hrund Aóalbjarnardóttir Kári Guómundsson
Nr. 6826 Nr. 6612 Nr. 10374
Sunna Lind Brynjar Örn Harpa Sll Þórsdóttir
Nr. 5673 Nr. 3151 Nr. 4126
Þóra Lllja Ragnarsdótllr Margrét Ó. Halldórsdóttlr Jóhanna M. Hlynsdóttlr
Nr. 9290 Nr. 9357 Nr. 7932
Harpa Hrönn Harpa Gunnarsdóttir Velgar Þór Ástvaldsson
Nr. 9423 Nr.6430 Nr. 9864
Krakkaklúbbur DV og Sam-myndbönd þakka öllum sem
tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna.
Vinningarnir veröa sendir í pósti næstu daga.