Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1997, Page 23
23
LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1997 X^'V^
jitnglingar
Krakkarnir í 8., 9. og 10. bekk Austurbæjarskóla að byrja í prófum:
Nú er próftíminn að byrja eða er
byrjaður í skólunum. Eins og oft
vill verða á vorin getur verið erfitt
að húka yfir bókunum þegar sólin
skín og gott er veður. Nokkrir
krakkar í Austurbæjarskóla höfðu
fengið að fara út og njóta veðursins
í vikunni og DV tók þá tali. Þessir
krakkar eru í 8., 9. og 10. bekk og
sögðu prófin byrja í næstu viku.
Þau sögðust vera búin að lesa nær
allt en eitthvað væri þó eftir. En
hvaða fag finnst þeim skemmtileg-
ast?
„Stærðfræðin er langskemmti-
legust,“ sögðu þau flest.
„Enskan er létt og skemmtileg,"
sagði Grímur og sum hinna tóku
undir.
Margur er knár þó hann sé smár.
En þegar kom að leiðinlegasta
faginu stóð ekki á svari. Danskan
nýtur þess vafasama heiðurs að
vera leiðinlegasta fagið að áliti
krakkanna og eðlisfræðin er líka
neðarlega á listanum. Reyndar var
fátt um svör þegar spurt var af
hverju en Hrafnhildur sagði: „Jeg
snakker ikke dansk i dag.“
Krakkamir voru að hamast í fót-
bolta þegair DV-menn bar að garði.
Þau ætluðu ekki á tónleikana í
kvöld með Skunk Anansie, sögðu þá
UJttkiwlNS $fXk£&
Krökkunum í Austurbæjarskóla finnst danskan leiöinlegust en létu þá staöreynd
ekki trufla sig viö boltaleik í góöa veörinu. í efri röö eru, f.v.: Magnús, Grímur og
Kristján. í neöri röö eru Hrafnhildur, Birna og Hekla. DV-myndir E.ÓI.
hljómsveit bara vera fyrir gamla
liðið.
En hvað á að gera í sumar? „Ég
ætla í sumarbúðir sem mamma mín
rekur í Svíþjóð," sagði Grímur.
Hekla ætlaði líka til Svíþjóðar en
hin ætluðu öll í unglingavinnuna og
ein ætlaði aö passa.
„Unglingavinnan er alveg ágæt.
Það er bara svo leiðinlegt að reyta
arfa,“ sögðu þau. Krakkarnir voru á
iöi meðan við spjölluðum og nenntu
síðan ekki lengur og fóru að sparka.
Var skipt í liö stráka og stelpna. Var
ekki að sjá að stelpurnar gæfu neitt
eftir þó strákarnir færu mikinn.
Skipt var í liö stráka og stelpna á vellinum viö Austurbæjarskóla og sýndu
stelpurnar mikil tilþrif.
hin hliðin
Gunnar Berg Viktorsson, nýr liðsmaður Fram í handknattleik:
Skemmtilegt að veiða lunda
Gunnar Berg Viktorsson hefur vakið at-
hygli fyrir frammistöðu sína hjá handknatt-
leiksliði ÍBV. Þrátt fyrir að vera ungur þykir
Gunnar skotfastur mjög og um leið lipur
leikmaður. Kom því engum á óvart
þótt félögin á fastalandinu föluöust
eftir honum. Nýveriö skrifaði Gunn-
ar undir samning við Fram og
vænta Safamýrarmenn góðs af hon-
um. Gunnar vill ekki gera mikið
úr skothörku sinni en segir að
verið sé að kenna sér eitt og ann-
að varðandi skottækni. Mark-
menn ættu því að hafa gott auga
með honum í leikjum gegn Fram
næsta vetur. Gunnar brást vel
við beiðni um að sýna á sér
hina hliðina.
Fullt nafn: Gunnar Berg
Viktorsson.
Fæðingardagur og ár: 27.
júlí 1976.
Maki: Enginn en það er ýmis-
legt á döfinni.
Börn: Engin.
Bíll: Enginn.
Starf: Vinn á skrif-
stofu Samskipa hér í Eyjum.
Laun: Ágæt miðað við starfið og menntun-
ina.
Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói?
Nei, ég er alveg laus við það.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Það er frábært að fara út í eyju að
lunda og svo er ekki amalegt að fara í s
bústaðinn í góðum félagsskap.
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera?
Læra, en maður verður víst aö gera það.
Uppáhaldsmatur: Hamborgarhryggur.
Uppáhaldsdrykkur: Malt og appelsín.
Hvaða íþróttamaður stendiu- fremstur i
dag? Sigurvin Ólafsson, atvinnumaður með
Stuttgart í fótbolta. Hann gerir góða hluti
með ÍBV í sumar.
Uppáhaldstímarit. íþróttablaðið.
Hver er fallegasta kona sem þú hefur
séð fyrir utan maka? Mamma.
Hvaöa persónu langar þig mest til að
hitta? Það væri gaman að hitta snilinginn
Pele.
Uppáhaldsleikari: Bruce Willis.
Uppáhaldsleikkona: Cindy Crawford.
Uppáhaldssöngvari: Ámi Johnsen.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Lúðvík
Bergvinsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Tommi
og Jenni.
Uppáhaldssjónvarpsefni: íþróttir og
dýralifsmyndir.
Uppáhaldsmatsölustaður/veitingahús:
Hard Rock.
Hvaöa bók langar þig mest til að lesa?
Þetta er ekki mín deild.
Hver útvarpsrásanna finnst þér best?
FM 95,7.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Þór Bæring er
minn maður.
Hverja sjónvarpsstöðina horfir þú mest
á? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Gaupi (Guö-
jón Guðmundsson).
Uppáhaldsskemmtistaður: Hótel ísland.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Arsenal.
Stefiiir þú að einhverju sérstöku í fram-
tíðinni? Ég ætia að mennta mig og reyna síð-
an að komast á samning hjá einhverju liði er-
lendis. En ég spái fyrst í það þegar ég er bú-
inn í skóla.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrunu:
Hafa gaman af að lifa meðan ég er enn ungur
og frískur og laus og liðugur. Það er best að
nota tækifærið.