Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1997, Page 25
LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1997
miöná
Uppreisnarforinginn í Saír hulin ráðgáta
BílavörubúSin
FJÖDRIN
I fararbroddi
SKEIFUNNI2,108 REYKJAVÍK SÍMI588 2550
Q0B
Ibúar Kisanganis, áöur Stanleyville,
fögnuöu ákaft er Kabila tók borgina
í mars síöastliönum.
Símamynd Reuter
Uppreisnarforinginn Laurent
Kabila þykir vera ráðgáta. Hann er
að vísu hetja í augum skæruliða en
stjórn Mobutus Seses Sekos lýsir
honum sem leikbrúðu yfírvalda í
nágrannaríkinu Úganda. Lýsing
byltingarforingjans Che Guevara á
Kabila þykir enn háðulegri. Þegar
leiðir þeirra lágu saman í nokkra
mánuði á miðjum sjöunda áratugn-
um kallaði Che Guevara Kabila
„túrista“.
Kabila fæddist í borginni Kalemie
sem á dögrnn nýlendutímabils Belga
Erlent fréttaljós
á laugardegi
hét Albertville. Fyrirmynd Kabiia
var Patrise Lumumba, fyrsti forsæt-
isráðherra sjálfstæðs Kongós, sem
var myrtur 1961.
Þremur árum seinna, er Kabila
var 23 ára, tók hann þátt í uppreisn
marxista. Uppreisninni, sem kost-
aði 500 þúsund manns lífið, lauk
ekki fyrr en eftir tvö ár þegar ofur-
stinn Joseph-Desiré Mobuto tók
völdin 24. nóvember 1965. Með sigri
Mobutus hörfuðu skæruliðar til
fjalla í austurhluta landsins.
Che Guevara kallaði
Kabila túrista
Meðan þeir dvöldu þar tókst
engu. Hann sagði Kabila ekkert
annað en túrista sem væri oft á
ferðalögum erlendis.
„Hann sagði mér aldrei að hann
væri óánægöur," sagði Kabila í við-
tali við fréttamenn frönsku frétta-
stofunnar AFP í Goma í janúar síð-
astliðnum. „Það er munur á milli
landa. Byltingar hafa ekki allar
sama markmið."
Minnir á
vingjarnlegan föður
Kabila, sem er 56 ára, er meðal-
maður á hæð, snöggklipptur og
minnir í fyrstu á vingjarnlegan fóð-
ur. Það hversu bústinn hann er ýtir
undir þá ímynd. Þessi ímynd er
þveröfug við þá sem menn hafa af
grönnum og stæltum skæruliða.
Uppreisnarforinginn klæðist oft
kakílituðum safarífötum og tenniss-
kóm. Þannig var hann einnig
klæddur er hann tók á móti frétta-
mönnum AFP i Goma i íburðarmik-
illi villu sem tilheyrði Mobutu. Vill-
an er við Kivuvatn og ungir menn,
vopnaðir AK-47 rifflum, gættu henn-
ar. Kabila virtist ekki passa inn i
þetta lúxusumhverfi. Mobutu er
einn af ríkustu mönnum í heimi og
eru auðæfi hans metin á um 300
milljarða íslenskra króna.
Kabila talar rólega og vandar
yfirleitt orðaval sitt. Þegar talið
berst að Mobutu reynir hann hins
vegar ekki að stilla sig og kallar for-
setann bölvaðan einræðisherra.
Kabila hefur veriö sakaöur um aö bera ábyrgö á fjöldamoröum á flóttamönn-
um. Hann hefur einnig skipt sér af starfsemi hjálparstofnana.
Símamynd Reuter
Eigum fyrirliggjandi dráttarbeisli í flestar
gerðir bifreiða. Rafmagnstengi einnig
fáanleg. Nánari upplýsingar fást hjá sölu-
mönnum okkar í síma 588 2550.
Mobutu Sese Seko, forseti Saírs, Nelson Mandela, forseti Suöur-Afríku,
og Laurent Kabila uppreisnarleiötogi hittust fyrir viku og ræddu valda-
skipti í Saír. Símamynd Reuter
þeim að afla málstað sínum fylgis
hjá Che Guevara. Honum hafði
sinnast við félaga sinn, Fídel
Kastró, sem þá þegar var orðinn
leiðtogi Kúbu.
Ásamt nokkrum hópi Kúbu-
manna leit Che Guevara á hjarta
Afríku sem stökkbretti byltingar
marxista um allan heim. Á sjö mán-
uðum varð draumur Guevara að
Sakaður um smygl
á gulli og demöntum
Lítið er vitaö hvað dreif á daga
Kabila milli 1960 og 1990. „Ég var
úti í skóginum," hefur hann sagt.
Einn af aðstoðarmönnum Kabila
sagði að hann hefði um skeið búið í
Tansaníu, Keníu og Úganda.
Kabila hefur vísað á bug fullyrð-
ingum um að hann hafi grætt tals-
vert á gull- og demantaviöskiptum
við aðila í Bujumbura, höfuðborg
Búrúndí, þar sem mikilvægir mark-
aðir eru fyrir málm. Því hefur
reyndar verið haldið fram að Kabila
hafi smyglað filabeini, gulli og
demöntum í gegnum Búrúndí.
Stjóm Mobutus hefur haldið því
fram að Kabila sé ekkert annað en
strengjabrúða Rúanda og Úganda.
Nágrannarnir í austri hafi kynt
undir uppreisn tútsa. Yfirvöld
Uppreisnarleiðtoginn Laurent Kabila ræöir viö liösmenn sína f Uvira þar sem borgarastríðiö í Saír hófst í október siö-
astliönum. Símamynd Reuter
geti komið á sáttum í Saír. Hann
hefúr verið sakaður um að bera
ábyrgð á fjöldamorðum á flótta-
mönnum. Hann hefur einnig skipt
sér af starfsemi hjálparstofnana.
Kabila er hins vegar augljós sig-
urvegari í borgarastyrjöldinni í
Saír. Og það er við hann sem
Bandaríkin og aðrar þjóðir þurfa í
auknum mæli að semja.
Gefur loforð en
svíkur þau síðan
Bandarískir embættismenn við-
urkenna að þeir þekki lítið til Kab-
ila. Enginn viti í raun til hvaða að-
gerða hann muni grípa.
Bandaríkjamenn hafa hvatt Kab-
ila til að samþykkja bráðabirgða-
stjórn með þátttöku annarra stjóm-
arandstæðinga, eins og til dæmis
Etienne Tshisekedis. Ekki er talið
ólíklegt að Kabila virði ekki þessa
ósk. Tshiekedi er vinsæll og Kabila
gæti stafað pólitísk hætta af honum.
Bandarískir embættismenn
benda á að það geti orðið dýrt spaug
að virða að vettugi ósk bandarískra
yfirvalda. Aðstoð Bandaríkjanna
við aö enduruppbyggja Saír sé háð
vilja Kabila til að framfylgja lýð-
ræði, stuðla að frjálsum mörkuðum
og halda kosningar.
Fufltrúi alþjóðlegrar hjálparstofn-
unar segir að Kabila þurfi að út-
skýra ýmislegt þegar hann kemst til
valda. Jafnframt verði að hafa í
huga að Kabila sé vanur að gefa lof-
orð og svikja þau.
Byggt á AFP og Reuter
Ibrink
beggja ríkja hafa neitað allri aðild
og sömuleiðis Búrúndí. Tútsar eru
við völd í öllum þremur ríkjunum.
Tútsar voru fórnarlömbin í þjóðar-
morðinu sem öfgamenn af ættbálki
hútúa frömdu í Rúanda fyrir þrem-
ur árum.
í október síðastliðnum sameinað-
ist flokkur tútsa í Saír Þjóðbylting-
arflokki Kabila. Saman mynduðu
flokkamir Bandalag lýðræðisaf-
lanna sem berst fyrir frelsi Saírs.
Grunsamlegt viðhorf
til lýðræðis
Bandaríkjamenn, sem hafa veitt
Mobutu mifljónir dollara í aðstoð
undanfarna þrjá áratugi vegna
stuðnings hans í baráttunni gegn
kommúnisma, hafa vaxandi áhyggj-
ur af væntanlegum valdaskiptum í
Saír. Laurent Kabila hefur aldrei
stjórnað landi og viðhorf hans til
lýðræðis og frjálsra markaða þykir
grunsamlegt.
Vafi þykir leika á því að hann
Skák & mát
Fylgstu með einvíginu: http//www.nyher ji.is
m
Unix iölva
====-= NYHERJl
RS/6000
DRÁTTAR-
BEISLI