Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1997, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1997, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 15. DESEMBER 1997 Útlönd Stuttar fréttir jdv Ölóður Þjóðverji myrti tvo Dani með hnífi á HM kvenna í handbolta: Nær hálftími leið áður en kallað var á lækni Tæplega fimmtugur Þjóðverji gekk berserksgang í Max-Schmeling íþróttahöllinni í Berlín á laugardag og myrti tvo danska áhorfendur með hnífi. Maðurinn stakk annan Danann í hjartastað og dó sá sam- stundis. Hinn var skorinn á háls og í likamann og blæddi út skömmu síðar. Lífgunartiiraunir báru ekki árangur. Kona sem var í fylgd með Dönunum tveimur særðist illa og var flutt á brott vegna taugaáfalls. Þjóðverjinn reyndi að flýja af vettvangi en öryggisvörðum tókst að góma hann. Réðust margir þeirra á hann, skelltu honum i gólfið og létu spörkin dynja á honum. Var hann síðan dreginn blóðugur í burtu. Hann mun vera smákrimmi, góðkunningi lögreglunnar í Berlín. Atburðurinn átti sér stað baka til í hálfleik undanúrslitaleiks í heims- meistarakeppni kvenna í handbolta. Danir voru þá á góðri leið með að gersigra Rússa. í öðrum úrslitaleik, sem fór fram áður, höfðu norsku stúlkumar unnið þær þýsku. Aðventukrans kostaði þrjú börn lífið DV, Ósló: íbúar smábæjarins Alta í Norður-Noregi fagna jólunum í skugga ægilegs slyss. í gærmorg- un brunnu þrjú böm inni á heim- ili sínu en móöirin slapp út við illan leik með tvö böm. Fjöl- skyldan bjó í einbýlishúsi sem brann til grunna. Eru lík barn- anna þriggja enn ófundin. Það vom þriggja ára tví- buradrengir og 13 ára gömul syst- ir þeirra sem bmnnu inni. Rjöl- skyldufaðirinn var í Ósló. Líklegt er talið að kviknað hafi í út frá aöventukransi. Þau sem komust lífs af hafa ekki getaö greint frá því sem geröist í húsinu áður en það varö alelda. Slökkviliðið kom á ellefta timanum í gærmorgun en þá varð engu bjargaö. -GK Hvutti heim Von var á þriggja mánaða labrador-hvolpi Clintons Banda- ríkjaforseta heim 5 Hvíta húsið í gær. Átti strax að hefjast handa viö að gera hundinn húshreinan svo hann gæti notið samvista Hosu, heimiliskattar forsetahjón- anna. Clinton hefur enn ekki gefið hundinum nafn en landar hans hafa sent honum ótal tiliög- ur að nafni. Hann er mjög heill- aöur af hvolpinum og keypti ný- lega þrjár peysur með mynd af labradorhundi í verslunarferð í New York. Sófi og leður- jakki fyrir 100 miiijónir DV, Ósló Sófi í stofúna og leðurjakki fyr- ir manninn vom fyrstu óskimar sem fertug kona á Upplandi í Noregi gat stuniö upp þegar hún fékk tilkynningu um stærsta lottóvinning Noregssögunnar, 100 milijónir íslenskra króna, nú um helgina. Það næsta sem kon- unni datt í hug var aö leita eftir áfallahjálp hjá getraununum. Hjálpina fær hún og nú í gær var konan oröin svo vön því að vera milljónamæringur að hún sagðist ætla að nota vinninginn til að tryggja framtíð barna sinna og borga skuldir. Afgangurinn gæti síðan farið í sófann og leöurjakk- ann fyrir karlinn. -GK Sjónarvottar segja að Daninn, sem stunginn var í hjartastað, hafi verið að stríða Þjóðverjanum vegna tapsins gegn Noregi. Þjóðverjinn hafi dregið upp hníf og lagt til hans. Þegar annar Dani kom landa sínum til hjálpar var sá skorinn á háls. í kjölfarið ríkti alger ringulreið í íþróttahöllinni. Síðari hálfleikur í leik Dana og Rússa var hafinn og baka til stumraði fólk yfir blóðug- um fórnarlömbunum. Ríflega 20 mínútur liðu áður en auglýst var eftir lækni um hátalarakerfi íþrótta- hallarinnar. Danski landsliðslækn- irinn hljóp strax á vettvang. Þá var annar mannanna látinn. Þá hljóp hann inn á gang þar sem starfsfólk hallarinnar stumraði yfir hinum. Honum blæddi út áður en lækn- irinn gat aðhafst neitt af viti. Stjórnendur keppninnar em gagnrýndir fyrir seinagang og skipulagsleysi þar sem nær háiftími leið áður en kallað var á lækni. Kom sjúkrabíll ekki til íþróttahall- arinnar fýrr en um hálftíma eftir að Hinn 47 ára gamli Þjóðverji, morö- ingi Dananna tveggja, er hér leiddur burt eftir ódæöiö. Símamynd Reuter hnifstungurnar áttu sér stað. Bemd Steinhauser, forseti þýska handknattleikssambandsins, sagði að ítarleg rannsókn mundi fara fram á tildrögum þessa atburðar og hvernig tryggja mætti öryggi áhorf- enda í íþóttahöllinni. Skipuleggjendur keppninnar full- yrða að um 100 öryggisverðir hafi verið í höllinni, 40 frá einkafyrir- tæki, 40 sérþjálfaðir lögreglumenn og 20 almennir lögreglumenn. „Hér hefur gerst það versta sem hægt er að hugsa sér við íþróttavið- burð og við erum öll harmi slegin," sagði Steinhauser. Þrátt fyrir að atburðurinn skyggði á gleði hina norrænu kepp- enda var ákveðið að úrslitaleikur- inn milli Danmerkur og Noregs færi fram i gær. Sögðust dönsku stúlk- umar ætla að spila til heiðurs þeim látnu. Var einnar mínútu þögn fyr- ir leikinn og fór lítið fyrir því £md- rúmslofti sem fylgir úrslitaleikjum í heimsmeistarakeppni. Takmarka átti hátíðahöld til heiðurs sigurveg- umnum og lokað var fyrir bjór- krana í höllinni. Fór svo að dönsku stúlkurnar burstuðu þær norsku, 33-20. Sjá allt um leikinn á bls. 32-33. Reuter ! V? Borgarstarfsmaöur í Moskvu hreinsar hér snjó af fslistaverkum sem prýöa borgina fyrir jólin. Þar eystra er virkilega vetrarlegt, snjór og um 20 stiga frost, meöan viö hér ó Fróni spókum okkur um í vorblíðu. Símamynd Reuter Léleg kjörsókn í borgarstjórnarkosningum í Moskvu: Jeltsín enn slappur og kaus á heilsuhæli Borís Jeltsin Rússlandsforseti tók þátt í borgarstjómarkosningunum í Moskvu í gær. Reyndar þurfti að út- búa sérstakan kjörklefa á heilsu- hælinu þar sem hann dvelur eftir bráða vírassýkingu í öndunarfær- um. Jeltsín ræddi við blaðamenn eftir að hafa stungið kjörseðlinum í kassann. Hann sagðist hafa fulla stjórn á landsmálum þótt hann hefði ekki náð sér að fullu. „Ég fékk illt í hálsinn og er hálf- slappur. Mér hefur oft liðið betur," sagði Jeltsín hásri röddu. Þetta var í fyrsta skipti sem Jeltsín talaði opinberlega eftir að hann veiktist illa á miðvikudag. Hann hafði eftir læknunum að hann hefði þjáðst af venjulegum háls- bólguvírus sem gengi i Moskvu um þessar mundir. Harm mundi ná sér að fullu eftir 10 daga. „Ég er Moskvubúi og því smitað- ist ég. Það sýnir bara hvað ég er í Jeltsín sagöist vera aö hressast þegar hann kaus á heilsuhæli f gær. Símamynd Reuter góðum tengslum við borgarbúa,“ sagði Jeltsín. Aðspurður sagöist hann vinna á hveijum degi, aðstoðarmenn færðu hon- um daglega stóra bunka af skjölum. En þó Jeltsín hafi kosiö var áhug- inn á kosningunum afar lítiil. Kjör- sókn var einungis 29-36 prósent en 25 prósent þurfa að kjósa til að kosningamar séu gildar. Kosið var í 35 manna borgarstjóm en ekki um embætti borgarstjóra. Yuri Luzhkov borgarstjóri hvatti Moskvubúa til að taka þátt í kosn- ingunum og sagði hina 35 mánna borgarstjóm afar mikilvæga. í ný- ■legri könnun kom hins vegar í ljós að yfir helmingur borgarbúa hafði ekki einu sinni heyrt um borgar- stjórnina. Embættismenn kenndu köldu veðri um dræma kjörsókn en um 20 stiga frost var í Moskvu í gær. Reuter Þrýsti á ísraela Louis Farrakhan, leiðtogi múslíma í Bandaríkjunum, fór í óvænta heimsókn til yfirráða- svæða Palestínumanna í gær og hvatti þar Clinton Bandaríkjafor- seta að þrýsta á ísraela að halda friðarsamkomulagið. Ræddu vopn Tareq Aziz, varaforsætisráð- herra íraks, og Richard Butler, yfir- maður vopna- eftirlitssveita Sameinuðu þjóðanna, ræddu í þrjá tíma um hvemig ætti að gera gereyðingar- vopn íraka óvirk. Kosningasigur Útlit var fyrir sigur sósíalista í borgar- og sveitarstjómarkosn- ingum í Portúgal. Afþakkaði Mesut Yilmaz, forsætisráð- herra Tyrkja, þótti hafa gert langþráðan draum Tyrkja um að- ild að Evrópusambandinu að engu þegar hann afþakkaði boö um að sækja ráðstefiiu ESB um stækkun bandalagsins á næsta ári. Boðið var háö skilyrðum. Jólafrí Vatíkanið fagnaði mjög ákvörðun Fidels Castros um aö gefa Kúbönum einn fi-idag um jól- in. Vonast menn til að fríið veröi gefið árlega. Handtekinn Franska lögreglan handtók ítalskan mafiuforingja á frönsku Rivierunni. Sá er grunaöur um aðild að sjö moröum. Vilja aðgerðir Búist er við að leiðtogar Asíu- þjóða muni auglýsa eftir aðgerö- um til að stööva gengissig gjald- miöla sinna. Leita sátta Viðræður hófust um sam- komulag milli gyðinga og sviss- neskra banka. Gyðingarnir gera tilkall til auöæfa fjölskyldna sinna sem þeir saka bankana um að hafa stolið eftir seinni heims- styrjöldina. Sáttavilji Mohammad Khatami, forseti írans, þykir hafa teygt sig lengra i samkomulagsátt gagnvart Bandaríkjunum en nokkur for- veri hans í klerkastjóminni. Hvergi banginn Jose Maria Aznar, forsætisráð- herra Spánar, gekk um götur San Sebastian, höfuðborgar Baskalands. Var hann að sýna að hann væri ekki hræddur við skæruliða ETA, aðskilnaðar- hreyfingar Baska. Liðsmenn ETA myrtu á dögunum bæjarráös- mann úr flokki Aznars. í NATO? Austurríkismenn mimu brátt gera upp hug sinn gagnvart hlut- leysi sínu og hvort þeir eigi að sækja um aðild að NATO. Fjöldamorð Lík átta manna fjölskyldu fundust i skóglendi í Uttar Pradesh héraði á Indlandi. Grun- aður fjöldamorðingi hefur verið handtekinn. Kuldakast Snjór og kuldi hefur geisað í norðurhluta Mexíkó og orðið að minnsta kosti 12 manns að bana. Reuter
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.