Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1997, Blaðsíða 33
MÁNUDAGUR 15. DESEMBER 1997
41
Skrifstofa
framtíðarinnar
Á arkitektasýningu sem haldin
var í Seattle nýlega var sýnd skrif-
stofa framtíðarinnar. í stuttu máli
verður sú skrif-
stofa .
ekkert meira. Takmarkið er að
sýna fólki að lítið rými getur verið
ánægjulegt. Margar skrifstofúmar
eru t.d. lítið annað en skrifborðs-
stóll, lítið kringlótt borð og sófi.
Einnig er nokkuð um að starfs-
menn deili skrifborði og eru það þá
aðeins lítið þil sem skilur þá að.
Hljóðbylgjur finna
jarðsprengjur
Vísindamenn hafa farið fram á
að að prófað verði að nota högg-
bylgjur svo að hægt verði að leita
skipulega að jarðsprengjum. Rann-
sóknir vísindamannanna benda til
þess að slíkar bylgjur geti komist
gegnum venjulegan jarðveg. Ef eitt-
hvað leynist undir honum berast
sérstök merki þess efnis og þannig
er hægt að komast að því á einfald-
an hátt hvort eitthvað hættulegt sé
þar undir. Höggbylgjur hafa reynd-
ar verið rannsakaðar i nokkur ár
en það hefúr ekki verið fyrr en nú
sem mönnum hefúr dottið í hug að
þær geti hjálpað til við að finna
jarðsprengjur. Þessi skaðræðisvopn
drepa og limlesta ótrúlegan fjölda
fólks daglega og því gæti þarna ver-
ið um mikilvægt vopn að ræða í
baráttunni gegn þeim.
r.
Umdeild vísindakenning veldur fjaðrafoki á vísindafundi:
Rifrildi um snjóboltahugmyndina
Á fundi vísindamanna, sem
hcddinn var í San Francisco,
spunnust miklar umræður um
hugmynd þess efnis að á hverjum
degi rækjust á jörðina þúsundir
smástirna úr nokkurs konar
geimsnjó. Sumum finnst kenning-
in fáránleg og segja aðrar ástæður
vera fyrir þeim fyrirbærum sem
niðurstöður rannsóknanna
byggjast á. Þeir sem styðja
kenninguna eru hins vegar
þeirrar skoðunar að hún skýri
margt sem áður hefur verið
mönnum hulin ráðgáta, meðal
annars um hvernig líf varð til á
jörðinni.
Bull
Það voru samtök bandarískra
jarðeðlisfræðinga sem héldu þenn-
an fund. Sumir á fundinum sögðu
kenninguna vera bull og byggðist
á villandi hljóðum svipuðum þeim
sem heyrast í hljómflutningstækj-
um. Höfundur kenningarinnar,
Louis Frank, sem er prófessor við
háskólann í Iowa, varði hana hins
vegar með kjafti og klóm og segir
að hún varpi nýju ljósi á hvemig
líf kviknaði á jörðinni.
Þessu til sönnunar kynnti
Frank niðurstöður nýrrar rann-
sóknar sem eru byggðar á mynd-
um sem teknar voru úr einu geim-
faranna frá NASA. Hann segir að
þessar myndir færi sönnur á
kenninguna um þessi snjósmá-
stirni, sem á ensku kallast at-
mospheric holes (loftgöt).
Frank hristi nokkuð duglega
upp í vísindaheiminum þegar
hann lagði fram þá kenningu að
myndir sem bárust um gervihnött
frá áðurnefndu geimfari gæfu til
kynna að um 20 snjóboltastimi
sem em um 12 metrar í þvermál
bærust inn í andrúmsloft jarðar á
hverri mínútu. Þessi smástirni
sundrist í 10-26 þús. km hæð frá
jörðu og verði að skýi sem feyktist
til í vindinum. Þessi ský blandast
síðan hefðbundnu veðurkerfi og
þannig fengi jörðin eins konar
geimrigningu sem gæti innihaldið
lífrænar agnir, sem aftur gæti gef-
ið til kynna upphaf lífs.
ar sannanir
umræddum fundi vom hins
vegar margir vísindamenn sem
draga þessa kenningu mjög í efa,
svo ekki sé meira sagt. I farar-
broddi þess hóps var George Parks
jarðeðlisfræðingur. Hann segist
hafa prófað þessa tilgátu með því
að beina myndavél sem var sams
konar og sú sem notuð var í rann-
sókn Franks að venjulegu útfjólu-
bláu ljósi á skrifstofunni sinni. í
myndavélinni hafi komið fram ná-
kvæmlega sömu „sannanir" fyrir
slíkum loftgötum. Með þessu færir
Parks þau rök aö það sem Frank
hafi séð á umræddri myndavél
hafi einfaldlega verið áhrif
útfjólublárra geisla sólarinnar
sem hafi sést á myndavélinni, ekki
einhver dularfull smástirni úr
snjó.
Annar hópur vísindamanna, frá
háskólanum i Arizona, benti á að
mun meiri raunverulegar sannan-
ir lægju fyrir ef þessir snjóboltar
væru til. „Himininn myndi glitra
eins og jólatré, um 30.000 sinnum
meira eðalgas væri í loftinu og
mun fleiri gígar væru á tunglinu
heldur en eru á því núna,“ sögðu
vísindamennirnir á fundinum.
„Hvar er þetta allt saman?“
Ekki fylgdi sögunni hvernig
Frank svaraði þessum rökum hjá
þessum vísindamönnum. Hann
hefur orðið að aðhlátursefni hjá
allmörgum í þeirra hópi vegna
þessarar vægast sagt furðulegu
kenningar. Hvort sem það er með
réttu eða ekki þá má ljóst vera að ^
hann þarf að hafa fyrir því að
sanna að það sem hann heldur
fram eigi við rök að styðjast.
Frank hefur reyndar þegar
fengið aðstoð við það verk. NASA
hefur nú ákveðið að reyna að kom-
ast endanlega að þvi hvort þessi
kenning eigi við rök að styðjast
með eigin aðgerðum. Það verður
spennandi að sjá hvemig sú
athugim kemur út. -HI/CNN
Faxafeni 5 • Sfmi 533 2323
tolvukjor@itn.is
. Trust Lf.xm vrk
TOLVUBUNAÐUR PRENTARAR
Trust Intel Pentium 166 MMX
Abit TX móðurborð - 32 Mb EDO minni - 512 Kb skyndiminni
4,3 Gb Quantum harður diskur - 2 Mb S3 Trio 64 V2 skjákort - 24 x Toshiba geisladrif
Trust Soundwave 300W 3D hátalarar -15 Trust Precision Viewer skjár
33.600 Baud utanáliggjandi motald
Allir viðskiptavinir
fá frábæran jólayeisladisk
með Sixties í kaupbæti sé keypt
fyrir meira en kr. 1.000.-
Internet Kit fylgir öllum
tölvum og prenturum
- magnaður hugbúnaður
með frábæra möguleika!
Lexmark 1000 bleksprautuprentari
Ein nettasta litableksprautan a markaðnum í dag! Alvöru 600 x 600 dpi
upplausn bæði i lit og svart livítu Með Lexmark 1000 getur þú utbuið falleg
verkefni og skýrslur fyrir skólann og vinnuna. gert skemmtilega afmælisborða og
boðskort og prentað þina eigin T-boli! Pottþéttur prentari fyrir börn, namsfolk,
mömmur og pabba - hvern þann sem vill lifga upp á lifið með hressilegum litum!
Fyrir aðeins 3.900 kr. til viðbótar
fylgir Lotus SmartSuite með.
Öflug ritvinnsla, töflureiknir,
gagnagrunnur, dagbók og fleira
- allt sem þarf fyrir
skólann eða skrifstofuna!
.Tölvukiör
rolVUr
verslun
heimilanna
Jólabónus að verðmæti kr. 8.280,- fylgir meó!
'Hercules Print Studio' fra Disney. Jóladiskur með Sixties og Internet Kit fra Canon
Afgreiðslutími í desember:
13.12 10-22 20.12 10-22
14.12 13-18 21.12 13-18
15.12 12-18.30 22.12 12-22
16.12 12-18.30 23.12 12-23
17.12 12-18.30 24.12 10-12
18.12 12-22 27.12 Lokað
19.12 12-22 31.12 10-12
afsláttur
Við erum aðili að Fríðindakorti VISA og veitum handhöfum
þess 5% afslátt af öllum vörum gegn framvísun kortsins.