Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1997, Blaðsíða 29
MÁNUDAGUR 15. DESEMBER 1997
Fréttir
37
Kvennalistinn á Akranesi:
Nýtt bæjarmálaafl?
DV, Akranesi:
Miklar líkur eru að á næstu vik-
um verði stofnað nýtt bæjarmálafé-
lag á Akranesi sem bjóði fram í
næstu bæjarstjómarkosningum.
Um er að ræða Alþýðuflokk, Al-
þýðubandalag, Kvennalista og
óháða.
Fundur var nýverið haldinn hjá
Akraneslistanum til að kynna það
sem hefur gerst í viðræðum um
sameiginlegt framboð Alþýðuflokks
og Alþýðubandalags við næstu
kosningar. Fram kom að flokkamir
hafa samþykkt að stefna að sameig-
inlegu framboði og að fá hreinan
meirihluta í kosningunum. Guðný
Guðbjömsdóttir, þingkona kvenna-
listans, var meðal framsögumanna
á fundinum. Hún bað forráðamenn
A-flokka að gleyma ekki kvenna-
listakonum heldur ræða við þær um
þátttöku í sameiginlegu framboði.
Allmiklar umræður urðu. Sumir
vildu að Framsóknarflokkurinn
yrði með svo að um R-listaframboð
yrði að ræða á Akranesi gegn íhald-
inu eins og í Reykjavík. Það kom þó
fram á fundinum að ekki væri
áhugi hjá framsóknarmönnum að
vera í viðræðum um þátttöku í nýju
bæjarmálafli fyrir kosningamar.
Flestir fundarmanna - um 80 -
voru sammála um að stefna bæri að
því að stofna nýtt bæjarmálafélag
með þátttöku Alþýðubandalags, Al-
þýðuflokks, Kvennalistans og
óháðra. Reiknað er með að á næstu
vikum verði haldinn stofnfundur
nýs bæjarmálafélags á Akranesi
sem bjóði fram í næstu bæjarstjóm-
arkosningum. Verði þá þrir flokkar
í framboði í stað fjögurra áður, þ.e.
Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknar-
flokkurinn og nýja bæjarmálafélag-
ið.
-DVÓ
Skagaíjörður:
Brotajárn flutt út
DV, Fljótum:
í haust var tæpum 700
tonnum af brotajámi skipað
út frá Sauðárkróki og fór það
til kaupenda á meginlandi
Evrópu. Brotajámið var upp-
haflega pressað í bagga haust-
ið 1996 en áður hafði Héraðs-
nefnd Skagfirðinga samið við
fyrirtækið Hringrás ehf. um
förgun þess. Með samningn-
um varð Hringrás jafhframt
eigandi brotajámsins og ann-
aðist þar af leiðandi um sölu
á því.
Förgun brotajárns í Skaga-
firði hefur undanfarin ár ver-
ið talsverður höfuðverkur
fyrir sveitarstjórnarmenn í
héraðinu enda sífellt meira
sem tilfellur af þess háttar úr-
gangi. Búið var að gera til-
raun með að flytja jámið á
vömbílum til Reykjavíkur.
Þeir flutningar gegnu illa og
var gefist upp við þann af-
setningarmáta.
Með tilkomu nýrrar og af-
kastamikillar brota-
jámspressu Hringrásar á síð-
asta ári er útlit fyrir aö fram-
tíðarlausn sé fundin varðandi
förgun þessa úrgangs. Verður
öllu jámadrasli safnað saman
á einn stað í héraði, væntan-
lega í nágrenni Sauðárkróks.
Starfsmenn Hringrásar munu
síðan koma meö sinn tækja-
búnað og pressa þegar nægi-
legt magn er til staðar. Þetta
fyrirkomulag mun a.m.k.
verða meðan samningm' Hér-
aðsnefndar og Hringrásar er í
gildi sem er tO ársins 1999.
-ÖÞ
DV-myndir Örn
Járniö sett á bíla í námunni skammt frá Sauöárkróki.
Það er einfalt og þægilegt að láta okkur
jlytja jólapakkana innanlands. Gegn vœgu gjaldi
getum við sótt til þín pakka sem eiga aðfara út á
land, eða keyrt heim sendingu til þín.
Afgreiðslutími Landflutninga-Samskipa, Skútuvogi 8:
Mánudaga-fimmtudaga: 8-17,
föstudaga 8-16, laugardaga 10-14.
Afgreiðslutími jólapakkamiðstöðvar á Laugavegi:
Frá 12.-22. desember:
Alla daga frá kl. 12-lokunar verslana.
SKÚTUVOGI 8, REYKJAVÍK. S. 569 8400
SÆKJUM
OG KEYRUM
SENDINGAR
HEIMl
VW Golf GTi '95,5 d., 5 g.,
ek. 42 þæús. km, kóngablár,
sóllúga. Verð 1.580 þús.
Toyota Carina E '93,4 d.,
ssk., ek. 78 þús. km, rauð
ur. Verð 1.200 þús.
Nissan Vanette dísil '92, 5
d., 5 g., ek. 110 þús. km,
brúnn. Verð 795 þús
KIA Sportage '96,5d.,5g.
ek. 42 þús. km. dökkblár,
30" dekk, álfelgur.
Verð 1.750 þús.
MMC Pajero '91,5 d., ssk.
ek. 107 þús. km. bíár.
Verð 1.490 þús.
Nissan Pathfinder '87, 3 d.
5 g., ek. 167 þús. km, rauð-
ur. Verð 690 þús.
VW Passat '98, 4 d., 5 g,
ek. 400 km, svartur.
Verð 1.690.000.
: i * 4 h
W