Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1998, Page 2
2
fréWr
LAUGARDAGUR 24. JANUAR 1998
Guöjón Garðarsson leigubílstjóri bjargaöi lífi konu meö blástursaðferö:
Það var um líf eða
dauða að tefla
„Ég vissi að það var um líf eða
dauða að tefla. Konan var hætt að
anda, púlsinn var vart merkjanlegur
og hörund hennar hafði skipt um lit.
Ég hóf að gera lífgunartilraunir í
gegnum vit konunnar og þrýsti á
bijóst hennar. Það liðu síðan nokkrar
mínútur þangað til lögregla og sjúkra-
bíll komu á staðinn," sagði Guðjón
Garðarsson, leigubílstjóri hjá Hreyfli,
við DV um atvik sem varð í Kópavogi
um síðustu helgi þegar hann bjargaði
lífi miðaldra konu frá Suðumesjum.
Atburðurinn varð á föstudags-
kvöldið. Konan var að koma úr húsi
Hús brennd á
hættusvæði
DV, ísafjarðarbæ:
Húsum á snjóflóðahættusvæði
sem Ofanflóðasjóður keypti á sínum
tima í Hnífsdal er nú farið að
fækka. Nýlega voru þrjú þessara
húsa sem stóðu við Strandgötu
brennd til grunna en Slökkvilið ísa-
fjarðar hafði fengið þau til afnota
fyrir brunaæfingar. Gott veður var
Jægar kveikt var í húsunum og því
engin hætta á ferðum fyrir nærliggj-
andi hús. Þann 12. nóvember var
fyrsta húsið á hættusvæðinu í
Hnífsdal, Fitjateigur 5, flutt af
grunni sínum og að bænum Innra-
Hjarðardal í Önundarfirði. Það var
verktakafyrirtækið Ágúst og Flosi
sem flutti húsið í tvennu lagi og
þurfti að fara um gamla fjaflveginn
yfir Breiðadalsheiði með húsið og
gekk það eins og í sögu. Önnur hús
í hverfinu em til sölu. -HKr.
í Kópavogi og var á leið heim til sín
á Suðumesjum þegar hún fór að
finna fyrir þyngslum fyrir hjarta.
Hún var með vinkonu sinni og ók bíl
suöur Kópavogsháls og stöðvaði við
leigubílastæði Hreyfils, skammt frá
Digraneskirkju og menningarmið-
stöð sem þar er.
Vinkona konur aar sá að ekki var
allt með felldu, ffjrði hana í aftursæt-
ið, hljóp síðan aó aftasta leigubílnum
og óskaði eftir aö hringt yrði strax á
sjúkrabíl. Bílstjórinn hringdi og náði
síöan í annan leigubílstjóra, Guðjón,
sem beið í bíl fyrir framan. Guðjón
er einnig starfandi lögregluþjónn á
Keflavíkurflugvelli og hefur verið
lögregluþjónn í Reykjavík um árabil
- hann kunni því réttu handtökin.
Á meöan sjúkrabíll var á leiðinni
reyndi Guöjón að blása lífi í konuna
og veita henni hjartahnoö. Þegar
sjúkrabíllinn kom var konan komin
með „einhvern púls“. Talsverö stund
leið síðan áður en sjúkrabíllinn lagöi
af stað með konuna í hraði á Borgar-
spítalann.
„Ætli ég hafi ekki verið réttur mað-
ur á réttum stað,“ sagði Guðjón. DV
náði sambandi við konuna. Henni var
ekki gefið um að ræða atburðinn op-
inberlega en kvaðst að vonum afar
þakklát vinkonu sinni, sem náði í að-
stoð, og lögreglumanninum sem veitti
henni skyndihjálp. Mál manna sem
DV ræddi við var að mikið lán hefði
verið að vinkonurnar voru ekki
komnar lengra en raun bar vitni.
Hefðu þær t.d. verið staddar á Reykja-
nesbrautinni mitt á milli höfuðborg-
arsvæðisins og Keflavíkur hefði verið
mun erfiðara bæði að hringja eftir
hjálp auk þess sem miklu lengri tími
heföi liðið þangað til aðstoð hjúkrun-
arfólks á sjúkrabíl hefði borist. -Ótt
Slökkviliðið á ísafirði brenndi þrjú hús við Strandgötuna í Hnífsdal til grunna þann 17. janúar. Ljósmynd Hörður
Rannsókn á meintum listaverkafölsunum:
Seldi 5 myndir hjá Gallerí Borg
- segir Jónas Freydal sem veit ekki til að vera „grunaður“
„Ég veit ekki til þess að ég hafi
verið grunaður í þessu máli. Ég
ræddi við lögreglu sem vitni vegna
þess að ég seldi 5 myndir hjá Gallerí
Borg. Ef ég hef verið grunaður, án
minnar vitundar, þá ættu líka miklu
fleiri, sem hafa keypt íslensk verk í
Danmörku, að liggja undir grun.
Þessar 5 myndir sem ég seldi hjá
Galleri Borg voru til rannsóknar
vegna orða Ólafs Inga Jónssonar for-
varðar. Það er ekkert sem bendir til
að um falsanir sé að ræða nema
vegna þess að Ólafur Ingi taldi þær
eitthvað skrýtnar. Ég tel það fráleitt
að þessar myndir séu falsaðar," seg-
ir Jónas Freydal Thorsteinsson, for-
stjóri í Kaupmannahöfn, í samtali
við DV.
Jónas vísar því á bug að hafa ver-
ið yfirheyrður af lögreglu með réttar-
stöðu grunaðs manns í rannsókn rík-
islögreglustjóra sem beinist að
meintum fólsuðum listaverkum.
„Ég hef í fleiri ár keypt og selt
listaverk í Danmörku. Ég hef að-
stoðað íslendinga við að fiárfesta í
íslenskum og erlendum listaverk-
um. Ólafur Ingi hefur mér vitanlega
verið að hringja í þessa aðila og
skoða þær myndir. Ekki ein af þess-
um myndum hefur verið til rann-
sóknar vegna meintra falsana.
Mér finnst að rannsóknin eigi
fyrst að beinast að þvi hvort um fals-
anir sé að ræða áður en menn eru
grunaðir. Mér vitanlega er ekki búið
að sanna að um neinar falsanir sé að
ræða. Mér vitanlega hef ég ekki selt
falsaða mynd en ég er maður til að
taka því hafi ég gert það. Mér þætti
þaö mjög leiðinlegt og það væri áfall
fyrir mig. Ég myndi að sjálfsögðu
endurgreiða þá mynd. En ég tel mig
hafa það mikið vit á myndum að ég
myndi sjá ef um fölsun væri að
ræða,“ segir Jónas. -RR
Árbæingar vilja
hverfislögreglu á ný
Fulltrúar almenningsfélaga, skóla
og félagsmiðstöövar í Árbæ hafa sent
formlegt bréf til borgarstjóra, lög-
reglustjóra og dómsmálaráöuneytis
þar sem þau lýsa yfir mikilli óá-
nægju með þá ákvörðun lögreglu-
stjóra að leggja niður hverfislögreglu
í Árbæ.
í bréfinu segja fulltrúarnir að lög-
gæslan hafi fiarlægst borgarana og
orðið ópersónuleg. Þessi öfugþróun
sé á skjön við hagsmuni íbúanna og
stefnu dómsmálaráðherra og borgar-
stjóra um að vinna markvisst gegn
eiturlyfium á íslandi.
I bréfinu segir m.a.: „Við höfum á
undanförnum mánuðum fundið fyrir
vaxandi óróa og öryggisleysi meðal
íbúa. Vímuefnaneysla ungmenna svo
og endurtekin atvik þar sem ofbeldi
er beitt og spjöll unnin á einka- og al-
mannaeign, eru orðin það áberandi
að við svo búiö má ekki láta standa."
í bréfinu segir enn fremur að stað-
setning sérstaks lögreglumanns í
hverfinu undanfarin ár hafi reynst
afar jákvæð. Starf hans, viövera og
persónulegt viðmót hafi veitt veru-
legt aðhald, ekki síst ungu fólki. Mat
íbúanna er að sú löggæsluþjónusta
sem þeir hafi fengið frá öðrum hverf-
isstöðvum hafi haft lítið forvamar-
gildi. Það sé brýn þörf fyrir lögreglu-
varðstofu í Árbæ þar sem 9 þúsund
manns búa.
Skoða hvernig kerfið gengur
„Þetta er tengt skipulagsbreyting-
Frá Árbæjarhverfi þar sem óánægja er með að ekki skuli vera hverfislög-
regla. ' DV-mynd GVA
um sem urðu í löggæslu á síðasta
ári. Eftirlitið i Árbæ er nú gert út frá
lögreglustöðinni í Breiðholti. Þar er
sérstakur lögreglumaður sem sinnir
því að vísu með öðrum hætti en áð-
ur var. Við erum að skoða hvernig
þetta kerfi gengur upp. Það var
óheppilegt að sá lögreglumaður sem
var í Árbænum, Ólafur Guðmunds-
son, fékk nýja stöðu innan embættis-
ins og fluttist í hana. Okkur er vel
kunnugt um áhyggjur íbúanna. Þaö
hafa verið viss vandamál kringum
unga fólkið í hverfinu nú í haust sem
við höfum reynt að taka á,“ segir
Böðvar Bragason lögreglustjóri. -RR
: stuttar fréttir
16 ára handtekinn
Sextán ára piltur hefur hand-
tekinn fyrir ránstilraunina í sölu-
:i tumi við Gnoðarvogi í vikunni.
í Farið hefur verið fram á síbrota-
j gæslu yfir honum og fær hann
j sennilega að gista í Hegningar-
| húsinu. Pilturinn, sem er ekki úr
J hverfinu, hefur áður komið við
j sögu hjá lögreglunni og á þar önn-
j ur mál óafgreidd.
Kynþokkafyllstur
í tilefni bóndadagsins kaus
j þjóðin kynþokkafyllsta mann árs-
j ins á rás 2 í gær.
| Það var Sveinn
| Ari Guðjónsson,
| knattspyrnumað-
ur frá Grindavík,
sem hlaut flest
stig. í öðra sæti
lenti Hilmir Snær
j Guðnason og i því 3. varð Logi
Bergmann Eiðsson fréttamaður.
RÚV greindi frá.
Nýr framkvæmdastjóri
Stefán Reynir Kristinsson fiár-
í málastjóri hefur verið ráðinn fram-
! kvæmdastjóri Spalar ehf., sem á og
j rekur göngin undir Hvalfiörð. Stefi
án er ráðinn til tveggja ára og tekur
við nýja starfinu 1. mars nk. Hann
; var valinn úr hópi 39 umsækjenda.
ITilnefning
í janúarhefti Classical CD er
sagt frá því aö Sinfóníuhljómsveit
íslands hefur verið tilnefnd til
verðlauna í Cannes fyrir frum-
flutning verka á geisladiski. Disk-
urinn sem um ræðir hefur að
geyma verk Jóns Leifs en stjóm-
andi var Osmo Vánská.
45% launahækkun
ÍKennarar viö Álftanesskóla
sem flestir hölðu sagt upp störfum
tóku í gær tilboði hreppsins um
kjarabætur. Kennaramir fá 45%
launahækkun en aðrir kennarar
sömdu um 33% hækkun í haust.
Tóbak, nei takk
Tóbaksvarnanefnd og Krabba-
meinsfélag Reykjavíkur veittu ný-
verið 60 reyklausum nemendum í
9. og 10. bekk grunnskólanna ein-
staklingsverðlaun. Verðlaunagrip-
urinn var glæsilegt úr með áletrun-
inni „Reyklaus framtíð" á skifu.
Verðlaunaafhendingin er þáttur í
verkefni sem ætlað er að forða ung-
lingum frá því að byrja að reykja.
Færir sig um set
Séra Jón Dalbú Hróbjartsson er
á fömm frá Laugarnesprestakalli
en hann hefur
verið skipaður
prestur í Hall-
grímspresta-
kalli frá 1.
febrúar nk.
Staða sóknar-
prests í Laug-
amespresta-
kalli hefur ver-
ið auglýst laus til umsóknar.
Launavísitalan hækkar
Hagstofan hefúr reiknað launa-
vísitölu miðað við meðallaun í
desember 1997. Er vísitalan 160,7
j stig og hækkar um 0,6% frá fyrra
! mánuði. Samsvarandi launavísi-
4
3
tala, sem gildir við útreikning
greiðslumarks fasteignaveðlána,
er 3.516 stig í febrúar 1998.
Þórir til Kuala Lumpur
Þórir Guðmundsson, sem starfi
f að hefur undanfarin tvö ár sem
sendifulltrúi Al-
þjóðasambands
Rauöa krossins
i Kasakstan og
nágrannalönd-
um þess, mun
flytja sig um set
ásamt fiöl-
skyldu sinni til
j Kuala Lumpur i Malasíu. Þórir
í hefur verið ráðinn sem upplýs-
Singafulltrúi fyrir Rauða krossinn
fyrir fiölda Asíurikja næstu tvö
I árin.
Vísitala hækkar
Hagstofan hefur reiknað vísi-
I tölu byggingakostnaðar eftir verð-
j: lagi um miðjan janúar 1998. Vísi-
j talan var 229,8 stig og hækkaði
I um 1,7% frá fyrra mánuði. Vísital-
1 an gildir fyrir febrúar þessa árs
j! en samsvarandi vísitala miðuð
| við eldri grunn er 735 stig. -aþ
|