Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1998, Side 6
6
LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1998 ijV
útlönd
Umburöarlyndi í Evrópu vegna vanda Clintons:
ítalir hlæja að
öllum látunum
stuttar fréttir
Létust í snjóflóði
Að minnsta kosti sex létust og
allt að þrettán var saknað í gær-
dag eftir að snjóflóð hreif með
sér yfir 40 skíðamenn, flesta tán-
inga, nálægt skíðastaðnum Les
Orres í suðurhluta Frakklands.
Björgunarmönnum tókst að
grafa 22 upp úr snjónum á lífi.
Rifbeinsbrotinn
Karl Bretaprins riíheins-
brotnaði þegar hann féll af hest-
baki er hann
var á veiðum í
síðustu viku.
Bresk dagblöð
greindu frá
slysinu í gær
og talsmaður
prinsins stað-
festi fréttina.
Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem prinsinn slasast
er hann dettur af baki. Hann
handleggsbrotnaöi 1990 og
meiddist á kinn 1996.
Sprengjumenn létust
Tveir meintir sprengjumenn
létu lífið í Alsír í gær er sprengja
sprakk sem þeir hugðust koma
1 fyrir í strætisvagni. Einn lést í
sprengjuárás á markað.
Tískukóngar
Áfrýjunardómstóll í Mílanó
hnekkti í gær dómi yfir tísku-
kóngunum Gianfranco Ferre,
Krizia og bróður Giannis Ver-
saces, Santo, vegna spillingar.
Þeir höfðu verið dæmdir fyrir
að greiða skattalögreglunni
mútur.
Rak eiginkonuna
Breskum þingmanni, Jimmy
Wray, hefur verið gert að greiða
eiginkonu sinni, Catherine, yfir
600 þúsund krónur i bætur
. vegna brottreksturs úr ritara-
starfi sem hún hafði hjá honum.
Neitar fölsun
Ozer Ciller, eiginmaður
Tansu Ciller, fyrrum forsætis-
ráðherra Tyrklands, neitaði fyr-
ir rétti í gær áð hafa falsað skjöl
sem hann afhenti þingnefnd.
Nefndin rannsakar meint fjár-
svik Cillerhjónanna.
Biðst ekki afsökunar
P.W. Botha, síðasti harðlínu-
forseti hvítra
í S-Afríku,
kom fyrir rétt
í gær fyrir að
hafa neitað að
mæta í yfir-
heyrslu hjá
Sannleiks- og
sáttanefnd-
inni. Botha
kvaðst ekkert þurfa að afsaka
frammi fyrir nefndinni. „Ég bið
bara um fyrirgefningu synda
minna frammi fyrir guði,“ sagði
Botha,
Fuglaflensa
Yfirvöld í Hong Kong ætla að
aflétta banni viö innflutningi á
lifandi kjúklingum frá Kína 7.
febrúar. Talin er lítil hætta á að
fuglaflensufaraldur breiðist út.
Reuter
Danfoss semur
um dreifingu
Danska fyrirtækið Danfoss Videk
hefur gert dreifingarsamning við
bandarískt sölufyrirtæki, Micromet-
ics Instrumentation Corporation,
um einkasölu á framleiðsluvörum
fyrirtækisins.
Einkasölusamningurinn nær til
alls heimsins en sá böggull fylgir
skammrifi að hinar dönsku fram-
leiðsluvörur verða seldar undir
nafni dreifingaraðilans. Vörurnar
verða þó áfram framleiddar i verk-
smiðjum Danfoss Videk í Hassela-
ger, skammt frá Árósum á Jótlandi.
Enn fremur verður öll þróunarvinna
og hönnun sem og rannsóknir áfram
í Danmörku. Aöeins 45 manns starfa
við framleiðsluna. -SÁ
Á meðan bandariskir fréttamenn
veltu sér í gær upp úr kvennamál-
um Bills Clintons Bandaríkjaforseta
og líktu meintri tilraun hans til að
fá starfsstúlku Hvíta hússins til að
ljúga um samband þeirra við Wa-
tergatehneykslið snemma á áttunda
áratugnum gerðu ítalskir fjölmiðlar
gys að öllum látunum.
ítölum þykir fátt skemmtilegra en
krassandi hneykslismál en þeir eru
umburðarlyndir þegar um ástarmál
er að ræða. Líklegra er að ítalskir
stjórnmálamenn sæti rannsókn
vegna spillingarmála heldur en
framhjáhalds. Og það er ekki fjallað
um kynlíf þeirra opinberlega.
í blaðinu La Stampa er bent á að
jafnvel þó að Clinton hafi logið sé of
langt gengið að bera Watergate-
hneykslið, sem leiddi til afsagnar
Páfagarður tilkynnti í gær að
páfa heföi tekist aö fá Kastró Kúbu-
forseta til að lofa því að íhuga að
láta lausa fanga. Fangarnir, sem
um ræðir, höfðu sjálfir snúið sér til
kaþólsku kirkjunnar í leit að hjálp.
Samkvæmt frásögnum andófs-
manna á Kúbu eru um 500 sam-
viskufangar í fangelsum þar.
Richards Nixons Bandaríkjaforseta
1974, saman við mál Clintons nú.
„Það er eitt að ljúga eiðsvarinn til
að leyna pólitískum glæp en annað
að reyna að fela óleyfilegt sam-
band,“ segir í forystugrein La
Stampa.
Blaðið L’Unita, sem er blað
vinstrisinnaðra, telur að um
pólitískt samsæri sé að ræða. Bend-
ir blaðið á að saksóknarinn Kenn-
eth Starr, sem rannsakar meint ást-
arsamband Clintons og starfs-
stúlkunnar Monicu Lewinsky, sé
vinur repúblikanans Bobs Doles
sem tapaði fyrir Clinton í forseta-
kosningunum.
Breska pressan lagði áherslu á
það í gær að hvort sem Clinton væri
sekur eða saklaus væri hann mikil-
vægur fyrir heimsfriðinn. Hann
Jóhannes Páll páfi gagnrýndi í
gær harkalega viðskiptabann
Bandaríkjanna gegn Kúbu. Sagði
páfi slíkar aðgerðir sorglegar. í
bréfi tfl kúbskrar æsku, sem birt
var við messu páfa í bænum
Camaguey á Kúbu, sagði páfi: „Við-
skiptabann... er alltaf sorglegt þar
sem það kemur niður á þeim sem
ætti ekki aö fara frá vegna þess að
„rennilásinn hans hefði opnast auð-
veldlega."
Palestínumenn lýstu því yfir í
gær að þeir hefðu áhyggjur af því að
nýja kynlífshneykslið í Washington
truflaði forsetann svo mikið að
hann gæti ekki einbeitt sér að því
að reyna að koma friðarviðræðum
um Miðausturlönd í gang á ný.
Sumir Palestínumenn, þar á með-
al róttækir múslímar, líta jafnvel
svo á að um samsæri af hálfu gyð-
inga sé að ræða.
Ýmsir írakar fógnuðu í gær yfir
vandamálum Clintons og sögðu að
hann ætti að fara frá. Aðrir skUdu
ekki lætin. „Er þetta ekki eðlilegt?
Hann er forsetinn. Hann getur gert
það sem hann viU,“ sagði bUstjóri í
Bagdad um Lewinskymálið. Reuter
eru mest þurfi.“
Kúbumenn streymdu tU messu
páfa í Camaguey í gær. Margir bæj-
arbúa virtust fremur sækja mess-
una, sem haldin var á Byltingar-
torgi borgarinnar, af forvitni en
trúrækni. Stundin var þó hátíðleg
fyrir fjölda pílagríma frá Mexíkó og
Kaliforníu. Reuter
14 þúsund
konur
myrtar af
eiginmönnum
Ráðgjafi Borís Jeltsíns Rúss-
1 landsforseta í málefnum kvenna,
Jekaterína Lakhova, telur að um
14 þúsund konur í Rússlandi séu
árlega myrtar af eiginmönnum
sínum eða ættingjum. Engin op-
í inber gögn eru þó tU yfir þann
: fiöda kvenna sem verður fyrir
1 árás sambýlismanna eða er
myrtur af þeim. Þetta kemur
í fram í skýrslu mannréttinda-
samtaka um niðurstöður rann-
ii sókna í fimm stórum rússnesk-
i um borgum.
í skýrslunni segir að sam-
kvæmt opinberum tölum hafi 11
þúsund rússneskum konum ver-
ið nauðgað eða þær orðið fyrir
nauðgunartilraun árið 1996.
Samtök kvenna í Rússlandi segja
i þessa tölu aðeins toppinn á ísjak-
anum. Ástæðan sé fyrst og
fremst sú að konur telji það ár-
ii angurslaust að kæra.
Oft neiti lögreglan að taka á
móti kærum auk þess sem lækn-
Í ar, er rannsaka konurnar, hafi
mestan áhuga á að vita hvort
þær hafi verið hreinar meyjar
i þegar ráðist var á þær. Fómar-
lömbin séu einnig oft gerð tor-
| tryggileg.
25 manns í
tveimur svefn-
herbergjum
Lögreglan í Flórída leitar nú
að stærra húsnæði handa Peter
| Thomas, 22 börnum hans og
i tveimur mæðra þeirra eftir að
upp komst að þau búa öll í
tveggja svefnherbergja húsi með
| einni snyrtingu.
Mæðurnar tvær eru reyndar
| systur og heita Apríl og
Rebekka. Báðar hafa þær tekið
eftirnafn bamsfóður síns þó að
hvomg þeirra sé gift honum.
Apríl er móðir níu barna Peters
1 Thomas en Rebekka á fimm
barna hans. Þriðja systirin, sem
ekki býr lengur með Qölskyld-
unni, á hin átta börnin. Börnin,
tíu drengir og tólf stúlkur, em á
aldrinum þriggja mánaða til
sautján ára.
Peter Thomas sagði í blaðavið-
| tali að hann hefði hitt systurnar
fyrir 20 árum í Arizona og hefði
síðan búið með þeim í ýmsum
ríkjum Bandaríkjanna. Thomas
segist vilja eiga stóra fiölskyldu
af trúarlegum ástæðum. Hann er
atvinnulaus en kveðst vilja
:> vinna.
Frakkar pirrað-
ir á farsímum
Frakkar eru búnir að fá upp í
háls af farsímum sem trufla þá á
opinberum stöðum. 57 prósent
Frakka vUja lög sem takmarka
notkun farsíma, samkvæmt nið-
urstöðum skoðanakönnunar sem
; birtar voru í gær.
Blaðiö Le Parisien hafði það
eftir háskólaprófessor að nýlega
■ hefði verið hringt 37 sinnum í
farsíma nemenda hans á meðan
: hann hélt klukkustundar langan
| fyrirlestur.
Pirraður veitingahússeigandi
hefur gripið til þess bragðs að
blása í flautu þegar gestir hans
hætta að snæða tU að geta talað
1 í farsíma. .
Þingmenn upp-
teknir af tísku
Þingmenn í Brasilíu eru nú
fremur uppteknir af því hvernig
þeir líta út heldur en mikUvæg-
j um málefnum. Frá því á þriðju-
| dag, er sjónvarpsútsendingar
hófust frá þingfundum, hafa
þingmenn birst í nýjum jakka-
fötum, með ný bindi, axlapúða
og nýjar greiðslur. í baráttunni
um sviðsljósið hafa þingmenn
einnig lengt ræður sínar. Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis
New York 1 London m Frankfurt m Tokyo m Hong Kong
8500 i
8000
7500
7000
7746,33
D J
Sykur
400
300
200
100
0
$/t 0
SH
JfiB
302
D J
5500 :
FT-SE100
4000 ,
5253,1
D J
Kaffi
-rnn mmtmmmmmm i
1500'
1UUU cnn
DUU n
V 1UU
í/t I D N D J
60000 |
40000<^55=S5=»>
20000 :-' ’ ; 4220,25
Bensín 95 okt. Bensín 98 okt.
220
220
HaneSangBKSi
20000
15000
íoooo^^^s^j,
50000
8883,73
ó N D J
Hráolía
25
20, 15 10
5 o
$/ A 14.40
tunna 0 N D J
Barnakór syngur hér fyrir utan dvalarstaö Jóhannesar Páls páfa í Havana á Kúbu.
Símamynd Reuter
Kastró íhugar lausn fanga
eftir viðræður við páfa