Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1998, Síða 14
14
LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1998
ifyrirl5árum
Siv E. Sæmundsdóttir á kafi í líkamsrækt fyrir 15 árum:
Mitt annað heimili
I þættinum Dægradvöl í DV fyrir
15 árum, nánar tiltekið fimmtudag-
inn 6. janúar 1983, var líkamsrækt-
aræði landsmanna tekið fyrir.
Nokkrar líkamsræktarstöðvar voru
heimsóttar og rætt við fólk sem þar
stöðin var mitt annað heimili,“
sagði Siv þegar við heyrðum í henni
í vikunni og fengum hana til að rifja
upp gamla tíma.
„Ég sótti þetta stíft, fór í ræktina
sex daga vikunnar, klukkutíma í
„FALLEGT AÐ
HAFA STÆLT
AN LÍKAMA”
segir Sif Sæmundsdóttir
Urklippa úr DV fimmtudaginn 6. janúar 1983 þar sem rætt var viö Siv E. Sæ-
mundsdóttur á meöan hún púlaöi í tækjunum.
púlaði og reyndi að ná af sér jóla-
steikinni. Á meðal þeirra var Siv El-
ísabet Sæmundsdóttir sem púlaði í
æfingasal í Kjörgarði sem þá var og
hét.
„Fallegt aö hafa stœltan llkama, “
var haft eftir henni í fyrirsögn og í
stuttu spjalli við Baldur Hermanns-
son sagði hún m.a.:
„ Við erum ansi mörg úr Hafskip
sem œfum hérna. Ég taldi um fyrir
karlmönnunum og var svolítiö aó
skjóta á þá og þaö endaði meó því aö
þeir drifu sig hingaö."
í þessu spjalli var Siv titluð tölvu-
ritari hjá Hafskip og sögð einhleyp.
Hvar skyldi hún vera niðurkomin í
dag? Með hjálp góðra manna
komumst við fljótlega að því. Síð-
ustu árin hefur hún verið búsett á
sínum æskuslóðum á Vatnsleysu-
strönd, nánar tiltekið bænum Stóru-
Vatnsleysu. Hún er gift Sigurði H.
Valtýssyni byggingatæknifræðingi
og saman eiga þau þrjá drengi.
„Mikið heilsuræktaræði var i
gangi á þessum tíma. Líkamsræktar-
senn. Margir hvöttu mig til að ganga
lengra, styrkja mig meira og jafnvel
keppa í vaxtarrækt. Þá datt mér
ekki í hug að verða einhver sýning-
argripur. Ég gerði þetta fyrst og
fremst fyrir sjálfa mig. Síðan fór
ég að eignast börn,
sagði Siv.
Þegar
Siv eign-
aðist sitt
fyrsta
barn
hætti hún
hjá Haf-
skip og
skömmu
seinna
lagði fyr-
irtækið
upp
laupana
eins og
frægt er
orðið.
Hvort
eitthvert
samhengi sé þarna á milli skal ósagt
látið!
Að loknu barnsburðarleyfi starf-
aði Siv um hríð sem ritari hjá Land-
mælingum íslands. Hún tók sig
einnig til og nam svæðanudd, er í
dag lærður nuddari og hefur starfað
hjá Hrafnistu í
Hafnarfirði.
„Ég
hef alla
tíð reynt
að hugsa
vel um lík-
amann og
hreyfa mig
reglulega.
Fólk verður
samt að
passa sig að
ganga ekki
langt, æfa undir góðri leiðsögn. Það
skiptir öllu máli að menn hafi
ánægju af hreyftngunni. Þá er síður
hætta á að
menn
geflst
upp.
of
Svo er líka mikilvægt að borða
hollan og næringarríkan mat því
annars verður engin orka né kraftur
til líkamsræktar.“
Fann mann sem eldar!
í lok umrædds spjalls í DV fyrir 15
árum var Siv spurð hvað hún ætlaði
að taka til bragðs þegar
hún eignaðist fjöl-
skyldu, ynni úti fullan
vinnudag og færi svo
heim í eldamennsku.
Hvort hún myndi
hætta að æfa. Siv
svaraði svo til: „Ég
vildi nú helst halda
áfram en þaö getur
orðið erfitt. Ég get tœplega œft
eins stíft og ég geri nú.“
- Kannski lœturöu bara manninn
elda?
„Já, þaó vœri ágœtt. Eóa viö bara
skiptumst á um aö elda!"
Siv hló þegar þetta var lesið
fyrir hana. „Ég fann mann
sem getur eldað. Ég elda í
miðri viku og hann um helg-
ar,“ sagði Siv og hló enn
meir. -bjb/ÆMK
Siv meö syni sína þrjá, Andra Rúnar, 7 ára, Frank Heiöar, 10 mánaöa
og Ásgeir Daníel, 13 ára.
DV-mynd ÆMK
A mér enga uppáhaldsbók
- segir Áslaug Friðriksdóttir bókaormur
Fimm sögur í einu
„Ég er með fimm sögur á borð-
inu hjá mér þessa dagana, gef mér
ekki nógu mikinn
tíma til þess að lesa og .
því er sami staflinn á Aslau9 Friöriksdottir
borðinu í tvo mánuði er mlkl1 ahugamann-
eða meira,“ segir Ás- eskia um æviminningar
laug. Hún segist núna ,ólks °9 sö9ur bV99öar á
t.d. vera að lesa bók Þeim- DV-mynd ÞOK
„Mér þykir mjög gaman að lesa
æviminningar og sögur byggðar á
þeim. Ég hef aðallega lesið sögur
listamanna, bækur eins og Kar-
ólínu, Gerði og eins konur lista-
manna, konu Halldórs Laxness og
fleiri slíkar. Mér flnnst þessar bæk-
ur tengja fólk saman á skemmtileg-
an hátt,“ segir bókaormur DV að
þessu sinni, Áslaug Friðriksdóttir,
sem hefur áttað sig á því að hún á
sér enga eina uppáhaldsbók.
Áslaug segir lestrarhegðun sína
hafa breyst í gegnum árin. Fyrst
hafi hún tekið einn flokk fyrir í
einu í einhvem tíma, spennusögur í
nokkrar vikur, ævisögur í nokkrar
vikur og svo framvegis. Núna er
hún með margar sögur í takinu
hverju sinni.
sem heitir Diceman eða Teninga-
maöurinn og er eftir bandaríska
höfundinn Luke Rhinehart. Þetta er
gömul bók sem fjallar um sálfræð-
ing sem finnst lífið eitthvað lítið
spennandi, þar sé ekki nógu margt
spennandi að gerast. Hann býður
sjálfum sér ákveðna valkosti og tek-
ur svo upp á því að fara að kasta
teningum til þess aö ákveða hvað
skuli gera. Hann skellir síðan skuld-
inni á teninginn. Fólk hefur tal-
að um að bókin
valdi
straumhvörfum í lífi
sínu og því bið-
ur Áslaug
spennt þessa
dagana
„Ég
er
líka
að
reyna
að dusta
rykið af dönsk-
unni og er að lesa
mjög skemmtilega bók sem
heitir Upfindelser av ensom-
hed sem gæti heitið Aó upp-
götva einmanaleikann á ís-
lensku. Bókin fjallar um
mann sem missir fóður
sinn en fer þá fyrst að
kynnast honum. Bókin er
frá árinu 1982 og er eftir
Paul Auster.“
Líka fræðibækur
Áslaug er með meistaragráðu í
vinnusálfræði og segir fræðibækur
í greininni jafnan á lestrarlistan-
um. Þær bækur séu þær einu sem
hún kaupi. Hún segist lítið lesa ís-
lenska höfunda um þessar mundir.
Þeir hafi jafnan verið í bunkanum
hjá sér, aðallega Einar Már, Vigdís
Grímsdóttir og Steinunn Sigurð-
ardóttir.
„Ég les ekki öllum stundum
en þó nokkuð reglulega og eins
oft og ég get,“ segir Áslaug Frið-
riksdóttir. Hún skorar á Guð-
mund Ragnar Guðmundsson að
vera bókaormur næstu viku. -sv
METSÖLUBÆKUR
BRETLAND
SKÁLDSÖGUR - KILJUR:
1. Helen Fielding: Bridget Jone’s Diary.
2. Mary Wesley: Part of The Furniture
3. Louls de Bernleres: Captain Corelli’s
Mandolin.
4. Colin Forbes: The Cauldron.
5. Rlchard North Patterson: Silent
Witness.
6. Sally Beaumann: Sextet.
7. Robert Goddard: Beyond Recall.
8. Jack Higgins: Drink With th Devil.
9. Arthur C. Clarke: 3001: The Final
Odyssey.
10. Anne Michaels: Fugitive Pieces.
RIT ALM. EÐLIS - KIUUR:
1. Paul Wllson: The Little Book of Calm.
2. Frank McCourt: Angela’s Ashes.
3. Bill Bryson: Notes from a Small Island.
4. John Gray: Men Are from Mars, Women
Are from Venus.
5. Grlff Rhys Jones: The Nation’s
Favourite Poems.
6. Michael Drosnin: The Bible Code.
7. Scott Adams: The Dilbert Principle.
8. Ýmsir: The Little Book of Love.
9. Ýmsir: The Nation's Favourite Love
Poems.
10. Bill Bryson: The Lost Continent.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Kathy Reichs: Déja Dead.
2. Colin Forbes: The Sisterhood.
3. Terry Pratchett: Jingo.
4. Arundhatl Roy: The God of Small
Things.
5. lan McEwan: Enduring Love.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS:
1. Frank Muir: A Kentish Lad.
2. Bill Bryson: A Walk in the Woods.
3. Andrew Morton: Diana: Her True
Story in Her Own Words.
4. Clalre Tomalln: Jane Austen.
5. Dava Sobel: Longitude.
(Byggt á The Sunday Times)
BANDARÍKIN
SKÁLDSÖGUR - KIUUR:
1. John Grisham: The Partner.
2. Patrlcia Cornwell: Hornet's Nest.
3. David Baldacci: Total Control.
4. Greg lles: Mortal Fear.
5. Sue Grafton: M is for Malice.
6. Tom Clancy: Politika.
7. Kathleen E. Woodiwiss: Petals on the
River.
8. James Petterson: Jack And Jill.
9. Nora Roberts: Sea Swept.
10. Kaye Glbbons: Virtous Woman.
RIT ALM. EÐLIS - KIUUR:
1. Richard Carlson: Don't Sweat the
Small Stuff.
2. Rlc Edelman: The Truth about Money.
3. Frances Mayes: Under the Tuscan Sun.
4. Robert Atkln: Dr. Atkins’ New Diet
Revolution.
5. James McBride: The Colour of Water
6. Ann Rule: In The Name of Love.
7. Ýmsir: Chicken Soup for the Teenage
Soul.
8. Ýmslr: The World Almanac and Book of
Facts 1998.
9. Jonathan Harr: Civil Action.
10. Ýmsir: Chicken Soup for the Woman's
Soul.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Charles Frazler: Cold Mountain.
2. Tony Morrison: Paradise.
3. David Baldaccl: The Winner.
4. James Patterson: Cat & Mouse.
5. P.D. James: A Certain Justice.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS:
1. John Berendt: Midnight in the Garden
of Good and Evil.
2. Sarah Ban Breathnach: Simple Abund-
ance.
3. Frank McCourt: Angela's Ashes.
4. James Patteison: Cat & Mouse.
5. P.D. James: A Certain Justice.
(Byggt á Washlngton Post)