Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1998, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1998, Side 22
22 LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1998 JL>V Kristján Halldórsson þjálfar Larvík, sterkasta kvennaliðið í norska handboltanum: Bara bestar DV, Larvík: Larvík? Larvík? Jú, jú, það stend- ur þarna - L-A-R-V-I-K - svo þetta fer ekki á milli mála. Ég er á réttum stað. Og hér á hann Kristján Hall- dórsson handboltaþjálfari að vera þjóðhetja, eða svo segja blöðin að minnsta kosti. Ekki ljúga þau, ekki einu sinni norsk blöð. Mig langar samt að prófa hvort það er nokkur fótur fyrir frægð Kristjáns í bænum. Gamli af- greiðslumaðurinn í pylsusjoppunni er fyrsta og eina tilraunadýrið. Hann lítur út fyrir að hafa verið hér lengi. Svona karlar eiga að vita þetta. „Ehem, haR du pölsuR í bRaud- uR,“ segi ég með eins miklum ís- lenskum áherslum og mér er mögu- legt; ýki errin upp úr öllu valdi og set svo -ur aftan við orðin. Þetta halda allir Norðmenn að sé ís- lenska. „Nei, ertu íslendingur?" spyr sá gamli og ljómar allur upp. „Þá hlýt- ur þú að þekkja hann Kristján okk- ar?“ Nei, ég þekki eiginlega ekki hann Kristján þeirra. En sá gamli lætur dæluna ganga. „Stelpumar okkar voru góðar áður en nú eru þær bara bestar," segir hann. Tilraunin hefur tekist; það er hér sem Kristján Halldórsson þjálf- ar kvennaliðið í handbolta og hefur gert það aö besta liði Noregs - næst- besta handboltalandsins í heimin- um. Og pylsan i brauðinu? í Larvík eru pylsur í brauði ókeypis fyrir ís- lendinga. Eftirsóttur þjálfari En svo kemur Kristján. Hann lof- aði að sækja mig á brautarstöðina en er seinn. Óskaplega mikið að gera og endalausir fundir um fram- tíð handboltaliðsins og þjálfarans í Larvík - ríkjandi Noregsmeistara í kvennahandboltanum. Já, það er verið að leggja drög að framtíðinni - skipuleggja næsta ár og skoða tilboð frá stelpum sem vilja koma til Larvikur og spila handbolta og svo er þaö spurningin hvort þjálfarinn verður áfram. Það eru fleiri Larvíkingar sem vilja hafa hann. Ekki vegna peninganna Kristján verður leynd- ardómsfullur þegar hann er spurður um tilboðin sem hann hefur fengið. „Þetta verður ákveðið í febr- úar. Fjölskyldan ákveöur öll hvað við gerum," segir hann og kannast bara við að hafa verið boðinn þriggja ára samningur til viðbótar í Larvík. Annað er óljóst og líka peningarnir sem eru í boði. „Ég er ekki í þessu vegna pening- anna,“ segir Kristján. Larvík er atvinnumannafélag, rekið eins og fyrirtæki og greiðir leikmönnum sínum 250.000 íslensk- ar krónur á mánuði. Stjörnumar fá kannski meira og stelpur sem enn eru í menntaskóla fá minna, en all- ar fá laun. Kristján fær sjálfsagt ekki minna en leikmennirnir. „Þjálfarinn fær nóg fyrir sig og sína,“ segir hann. Meðal sex bestu í heiminum Við keyrum í gegnum bæinn. Ibú- amir em um 40 þúsund og hér ein- okar kvennahandboltinn iþróttirn- ar. Noregsmeistaratitillinn vannst auðveldlega i fyrra og í ár hafa keppinautarnir lýst því yfir að keppninni um meistaratitilinn sé í reynd lokið þótt tímabilinu sé ólok- ið. Næsta ár verður keppnin tekin upp að nýju. Gamli maðurinn í pyls- usjoppunni hafði á réttu að standa. Stelpumar í Larvík em bara bestar. „Larvík er eitt af sex bestu félags- liðum í heimi,“ er kalt mat Krist- jáns á stöðu liðsins. Á skrifstofu félagsins er allt á suðupunkti. Blaðamenn hringja og vilja vita hvaða leikmenn verða ráðnir fyrir næsta tímabil og hvort þjálfarinn heldur áfram og svo hef- ur sú saga farið á flot að Anja And- ersen, skærasta stjarnan i heims- meistaraliði Dana, vilji koma og leika í Larvík. Kristján svarar rólegur: „Ekkert lið hefur efni á að hafna bestu hand- boltakonu í heimi - og svo getur hún örugglega lært eitthvað nýtt hér.“ Framkvæmdastjórinn, Tor Odd- var Moen, hlustar á og springur úr hlátri. „Hann er frakkur þessi,“ segir hann og bend- ir á Kristján. Svo hefur heyrst frá þýskri lands- liðskonu sem vill koma til Larvikur. Venjulega fara allar þær bestu til Þýskalands en þessi vill fara á móti straumnum. Eða er það kannski svo að straumurinn liggi til Larvíkur? Hvers vegna? Ný hugsun frá Islandi „Það hefur spurst út hvemig and- inn er héma í liðinu. Ég trúi því að fólki verði að líða vel og það verður að vera ánægt með tilveruna. Öðm- vísi næst ekki toppárangur," segir Kristján. „Ég hef komið með nýja hugsun ffá íslandi en byggi að öðra leyti á leysa öll vandamál sem upp koma strax og ekki að láta óánægju og óleyst vandamál grafa um sig í lið- inu,“ segir Kristján um handbolta- heimspeki sína. Ég er hættur við að verða þjálfari og vil vita af hverju Larvík varð fyr- ir valinu hjá Kristjáni, nú fyrir hálfu öðru ári. „Ég vildi vera í smábæ, ekki stór- borg, og ég vildi vera þar sem fjöl- skyldunni gæti liðið vel. Við sjáum ekki eftir að hafa komið hingað,“ segir Kristján. Hann var landsliðs- þjálfari kvenna á íslandi í tvö ár áður en hann fór út og gat eftir þaö valið úr nokkmm erlendum tilboð- um. Larvik er skammt suðvestan Óslóar. Það tekur bara hálfan ann- Kristján aö störfum á skrifstofu félagsins í Larvík. því sem var fyrir héma. Það er af- skaplega vitlaust fyrir nýjan þjálf- ara að ætla sér að umturna öllu. Ég reyni að þróa það áfram sem menn voru að gera hér,“ segir Kristján um brögðin sem hann beitir. Núna langar mig nefnilega til að vera af- reksþjálfari lika; vantar bara að hann gefl mér uppskriftina. En þetta er víst ekki svona ein- falt. Og þótt ég bendi á útkrotaða töflu á veggnum með pílum og örv- um sem sýna hreyfmgar leikmanna út og suður og boltann hér og þar og úti um allt. Ég gæti lært þetta! Ekki? Leysa vandamálin strax „Þetta er spurningin um að fá lið- ið til að vinna saman og það gerist ekki bara á leikvellinum heldur líka á undan og eftir leikj- um. Það þarf að an tíma að keyra til stórborgarinn- ar. Og svo er Danmörk innan seil- ingar. Ferjurnar til Danmerkur fara frá Larvík. Skógurinn nær upp að bæj- ar- mörkunum, skíðalöndin eru í Kongsberg og sumarblíðan er í gömlu virkisborginni Stavern. Allt er innan seilingar í Larvík. Og það nýtir fjölskyldan sér. „Ég sagði þér að það eru ekki peningarnir sem skipta mestu máli. Fólki verður að líða vel þar sem það er og okkur líður vel héma,“ segir Kristján, sem hefur keypt hús í Lar- vík þótt enn sé allt á huldu um framtíðina þar. „Ég ætlaði mér að vera þjálfari lengi,“ segir Kristján sem nú er 39 ára gamall. 30 ár í viðbót? Það veit hann ekki en hann segir: „Mér ligg- ur ekkert á. Ég ætla mér að enda ferilinn í karlahandboltanum, kannski í Þýskalandi, en það liggur ekkert á,“ segir hann. Tímamót í febrúar Vandinn er núna með nám bam- anna. Þau eru 8 og 15 ára og það þarf að ákveða hvar þau verða í skóla. Og svo eru fjölskylda og vin- ir á íslandi. „Við ákveðum okkur í febrúar," segir Kristján. Til þessa hefur hann mest fengist við að þjálfa kvennalið í handbolt- anum. Hann byrjaöi raunar sem stofnandi og leikmaður hjá Gróttu heima á íslandi og var svo lengi með Breiðablik. Hann er kennari að mennt og var sextán ár í kennslu, leikmaður og þjálfari. Alltaf í tveim- ur stöðum eins og venja er á íslandi. „Heima hafði ég alltaf samvisku- bit vegna fjölskyldunnar. Allur sól- arhringurinn fór í að kenna og þjálfa, eilíft stress. Hér er hugsunar- hátturinn allt annar. Hér verja menn tíma sínum með fjölskyld- unni og mesti munurinn á íslandi og Noregi er að hér er ekki þessi hamagangur alla tíð,“ segir Kristján og viðurkennir að það freisti hans ekkert mjög mikið að fara heim aft- ur. Björt framtíð á Islandi Hann fylgist með handboltanum heima og fær leiki senda á mynd- böndum. Þorbjöm Jensson lands- liðsþjálfari var í heimsókn á dögun- um. Og Kristján óttast ekki um framtíð íþróttarinnar heima þótt ís- lendingar verði ekki með á næsta heimsmeistaramóti. „Eitt heimsmeistaramót skipt- ir engu. Það eru margir efni- legir ungir leikmenn að koma fram þannig að framtíðin er björt. Efnilegustu leik- mennirnir fara auðvit- að úr landi en meðan nýliðun- in hjá fé- lögun- um er góð þarf ekk- Kristján og Eik Kristjánsdóttir hafa veriö í Larvík í háift annaö ár ásamt tveimur börnum sínum. Nú er komiö aö ákvöröuninni um hvort fjölskyldan eigi aö fara eöa vera. DV-myndir Gísli Kristjánsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.