Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1998, Side 26
26
unglingar___________________________________
Músíktilraunir 1998 fara að hefjast íTónabæ
LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1998 JVÞ'%r
Soöin fiöla sigraöi á síöasta ári. Stóra spurningin er; hver veröur þaö þetta
áriö?
DV-myndir Hilmar Þór
hin hliðin
Sigursveitir Músiktilrauna hafa oft náö langt. Maus er gott dæmi um þaö.
Þú stendur uppi á sviði, með fullan
sal af fólki fyrir framan þig. Hefur 20
minútur til að sanna þig fyrir öllu
fólkinu og dómnefndinni sem er skip-
uð sérfræðingum, hver á sínu sviði,
fiölmiðlamönnum, tónlistarspeking-
um og útgefendum. Þú „plöggar" gít-
arinn, heldur fast um kjuðana og
ræskir þig. Allt fer í gang og sveitin
nær betur saman í kvöld en áður. Þú
klárar prógrammið og færð rosalegt
lófaklapp og dómnefndin brosir út í
annað. Þér finnst þú vera sigurvegari
kvöldsins og kannski ertu það. Já,
góðir hálsar, enn og aftur er komið að
stóru stundinni í lifi flestra bilskúrs-
sveita sem eiga það
sameiginlegt að
ætla að sanna
sig fyrir land-
anum. Músíktil-
raunir Tónabæj-
ar 1998 eru á
næsta leiti og 5
ættu allar þær
hljómsveitir sem sitja á góðu efni að
fara að setja sig í stellingar. Tónlistar-
hátíðin sem hefur fleytt mörgum bil-
skúrsböndum úr meðalmennskunni í
íslenska heimsfrægð er að hefjast.
Sveitir
leggja mis-
jafnlega mik-
iö í sviös-
framkomu.
Oft má sjá
skemmtileg
tilþrif.
Ólíkar sveitir
Músíktilraunir eiga sér langa
sögu. Hljómsveitir hafa eins og tíð-
arandinn breyst ár frá ári. Við höf-
um fengið að sjá þungarokksbönd
líkt og Gypsy, stelpubönd eins og
Dúkkulísurnar og Kolrassa krókríð-
andi, sveitaballabönd eins og Grei-
farnir, að ógleymdum
nú síðast Soðinni flðlu. Allar eiga
þessar sveitir það sameiginlegt að
hafa sigrað í Músíktilraunum og
undantekningalaust átt góð ár í
bransanum.
Aðalverðlaunin í keppninni eru
að sjálfsögðu hljóðverstímar í lands-
ins bestu hljóðverum. Nú er um að
gera að setja í fyrsta gír og keyra í
gegn prógrammið með sveitinni og
að sjálfsögðu aö skrá sig í Tilraun-
irnar áður en allt yfirfyllist.
Skráning er hafin í Tónabæ og
síminn þar er 553-6717. Það er aö
hrökkva eða stökkva því enginn
tapar á því að vera með. Hik
er sama og tap.
Hilmar Þór.
Heitustu bönd eöa persónur hvers tíma eru jafnan fengnir til þess aö vera
gestir á hverju kvöldi Músíktilrauna.
Elvar Logi Hannesson í Morgunsjónvarpi barnanna:
Mamma er fallegust
„Ég lauk leikaranámi í Danmörku
vorið 1997 og var svo heppinn að fá
strax vinnu við að leikstýra Götu-
leikhúsinu. Síðan hef ég aðallega
starfað með Möguleikhúsinu, t.d. í
nútímalegri uppfærslu á Búkollu. Þá
var ég með félaga mínum í Kómedíu,
ópus 1, er með trúöinn Tomma, sem
skemmtir hér og þar, og ýmislegt
annað,“ segir Elvar Logi Hannesson
leikari. Hann sér um kynningu á
Morgunsjónvarpi barnanna, „sótti
bara um“ og hefur passað börn
landsmanna um helgar síðan í liðn-
um nóvembermánuði. Helgarblaðið
forvitnaðist aðeins um leikarann.
Fullt nafn: Elvar Logi Hannesson.
Fæðingardagur og ár: 4. febrúar
1971.
Maki: Marsibil G. Kristinsdóttir.
Börn: Þórunn Sunnefa, 6 ára, og Heið-
ur Embla, 2 ára.
Bifreið: Mazda station 1981, fjólublár,
gengur enn.
Starf: Leikari og kynnir í Morgun-
sjónvarpi bamanna.
Laun:Þau eru ágæt.
Hefur þú unnið í happdrætti eða
lottói? Fékk einu sinni þtjá rétta. Það
er langt síðan enda spila ég sjaldan.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Það sem ég er að fást við
hveiju sinni.
Hvaö finnst þér leiðinlegast að
gera? Ég held ég verði að segja upp-
vaskið.
Uppáhaldsmatur: Lambalærið að
hætti mömmu.
Uppáhaldsdrykkur: Maltið er best.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Vala Flosadóttir er
frá Bíldudal eins og ég. Hún er að
gera góða hluti.
Uppáhaldstímarit: Böm og menn-
ing er fróðlegt og skemmtilegt rit.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð (fyrir utan maka)?
Mamma, Helga Sveinbjörnsdóttir,
fær mitt atkvæði.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Frekar hlynntur.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Robin Wiiiiams og Rowan
Atkinson.
Uppáhaldsleikari: Charlie Chaplin.
Uppáhaldsleikkona: Meryl Streep.
Uppáhaldssöngvari: Tanita Tik-
aram.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Dav-
íð Oddsson, fyrir húmorinn.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Maggi mörgæs í myndasyrpunni.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Ég verð
að segja Morgunsjónvarp barnanna.
Uppáhaldsmatsölustaður/veit-
ingahús: Hótel Borg og Lækjar-
brekka, tveir mjög góðir staðir.
Hvaða bók langar þig mest að
lesa? Ég veit ekki hvað hún heitir en
það er ævisaga Busters Keatons.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Gamla gufan er best.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Illugi
Jökulsson.
Hverja sjónvarpsstöðina horfir þú
mest á? Sjónvarpið.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Árni
og Ingó eru góðir saman.
Uppáhaldsskemmtistaður/krá: Ég
fer lítið út og ætli ég skemmti mér
ekki bara best heima hjá mér.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: íþrótta-
félag Bflddælinga, ÍFB.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Ég stefni bara að því
að gera betur það sem ég er að gera
og halda áfram að hafa gaman af því.
Hvað ætlarðu að gera í sumarfrí-
inu?Það er ekki ákveðið en mig
langar til Parísar með fjölskylduna,
a.m.k. eitthvað út fyrir landsteinana.
-sv
Elvar Logi er leikari aö mennt og byrjaöi í Morgunsjónvarpi barnanna í nóvember sl.
DV-mynd Pjetur