Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1998, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1998, Síða 34
42 fréttaljós LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1998 JjV Monica Lewinsky, 24 ára yngismær, gerir allt vitlaust í Washington: 1 Eins og Bill Clinton Bandaríkja- forseti hafi nú ekki átt nóg meö Paulu Jones, konuna sem hefur kært hann fyrir kynferðislega áreitni? Þá kemur allt í einu 24 ára gömul stúlka fram á sjónarsviðið og segist hafa átt í átján mánaða ástarsambandi við for- setann á meðan hún var í starfs- þjálfun i Hvíta hús- inu. hvað þeim hefur farið í milli. Hann vísar því hins vegar alfarið á bug að hafa hvatt hana til að ljúga að lög- fræðingum Paulu Jones. Þeir ætla að nota vitnisburð hennar gegn for- setanum í málinu sem Paula hefur höfðað á hendur Clinton fyrir kynferðislega áreitni. „Ég hvatti heldur ekki á móti því að þau hafi talað saman. Fréttirnir af meintu ástarævin- týri Monicu og forsetans komu vin- um hennar gjörsamlega í opna skjöldu, bæði i Suður-Kaliforníu þar sem hún ólst upp og norður í Or- egon þar sem hún stundaði nám við Lewis & Clark háskólann. Monica er komin af auðugri fjölskyldu og faðir hennar er virtur krabbameins- læknir í Los Angeles. „Hún hafði unun af börnum. Hún var vön að passa börnin í hverfinu. Allir kunnu vel við hana,“ sagði vinkona hennar, Shirley Page, við fréttamenn í Oregon. Monica gekk í framhaldsskóla í Beverly HiIIs en hætti þar árið 1990 þegar hún var 16 ára og inn- ritaðist í fínan skóla, Bel Air undirbúningsskólann, þar sem ríka fólkið sendir börnin sín. Eftir stúdentspróf fór hún fyrst í háskólann í Santa Monica en svo í Lewis & Clark þar sem hún las sálfræði. Fáir útvaldir Monica Lewinsky ku hafa átt í átján mánaða ástarsambandi við Clinton Bandaríkjafor- seta. Hann þvertekur fyrir þaö. Monica Lewinsky heitir stúlkan, nýbúin að missa vinnuna og kann jafnvel að verða þess valdandi að Clinton missi sína. Það er að segja ef allar nýjustu ásakanirnar á hend- ur forsetanum reynast á rökum reistar, ásakanir um að hann og golffélagi hans og vinur, Was- hingtonlögfræðingurinn Vernon Jordan, hafi fyrirskipaö stúlkunni að ljúga til um sambandið við eið- svamar yfírheyrslur. Svoleiöis heit- ir að hindra framgang réttvísinnar. Clinton neitar að lýsa sambandi sínu við Monicu og skýra frá því Við svörum í símann rukkum, hringjum, tökum pantanir og tímapantanir fyrir |jjxjJ eínkaritararnir þínir þegar þér hentar 6ÍMAKJÓNU9TAN Pella eímam»r 520 6123 ekki neinn til að segja neitt sem ekki væri satt,“ sagði Clinton í við- tali við bandaríska fréttamanninn Jim Lehrer í fréttaþætti PBS-sjón- varpsstöðvarinnar í vikunni. Lögfræðingur Monicu, William Ginsburg, hefur hvorki viljaö játa því né neita að skjólstæðingur hans hafi átt í ástarsambandi við forset- ann. Hann sagöi fréttamönnum þó undir vikulokin að hvernig sem færi, sæti Monica eftir með sárt ennið. Á kaffivaktinni En hver er þá þessi Monica Lewinsky? Sú spurning hefur brunnið á allra vörum síðustu daga. Heimildarmenn Reuters frétta- stofunnar innan stjórnkerfísins í Washington sögðu að stúlkan hefði komið í starfsþjálfun í Hvíta húsinu árið 1995. Starfið var ólaunað. Hún var þá aðeins 21 árs, nýskriðin út úr háskóla með BA-próf í sálfræði. Sömu heimildarmenn sögðu hana hafa verið „með stjörnur í augun- um“. Hún vann fyrir Leon Panetta, þáverandi starfsmannastjóra Hvíta hússins, og gat þess vegna hangið öllum stundum í námunda við skrif- stofu forsetans, hina svonefndu sporöskjulaga skrifstofu. Monica þótti afskaplega áhuga- söm og vildi gera öllum til geðs, svo mjög að ýmsum þótti nóg um. Hún var alltaf að færa forsetanum gjafir og bera kaffi í aðra starfsmenn, jafn- vel þótt þeir hefðu ekki beðið um það. Skipst á gjöfum Clinton hefur vísaö því alfarið á bug að hann hafi átt í kynferðisleg- um sambandi við Monicu. Hann hefur hins vegar viðurkennt að þau hafi skipst á gjöfum. Og hann ber „Hún var indæl ung stúlka. Hún hafði fallega söngrödd. Hún var í kórnum okkar,“ sagði Rich Makoff, skólastjóri Bel Air. Monica útskrifaðist með BA-próf í sálfræði frá Lewis & Clark í maí 1995. Þaðan fór hún beint í starfs- þjálfunina í Hvíta húsinu, eftirsótt starf sem þúsundir námsmanna sækjast eftir að komast í en fæst- ir fá. Að starfsþjálfuninni lok- inni, vorið 1996, hringdu embættismenn í Hvíta húsinu svo í varnarmála- ráðuneytið, Pentagon, í leit að vinnu fyrir stúlk- una. Þeir létu það fylgja Gáðar vinkonur í Pentagon kynntist Monica Lindu nokkurri Tripp sem hafði unnið þar í nærri tvö ár en hafði áð- ur verið starfsmaður Hvíta hússins, eins og Monica. Þeim varð vel tO vina, þótt Linda væri tvisvar sinn- um eldri en nýliðinn. I fyrstu voru þær bara vinkonur sem áttu auðvelt með að blaöra saman um allt milli himins og jarð- ar. Fýrir nokkrum mánuðum breyttist það allt þegar Linda tók að hljóðrita samtöl þeirra á laun, með- al annars frásagnir Monicu af ástar- ævintýri hennar með forsetanum. Fyrst í stað gerði Linda upp- tökurnar upp á eigin spýt- ur en siðar kom al- ríkislögreglan FBI i spilið. Upptökurnar eru nú liður í rann- sókn saksóknar- arns Kenneths Starrs á White- water fasteigna- hneykslinu sem for- ' setinn hefur verið bendlaður við um allnokkurt skeið. Ekki er ljóst hvað konunum gengur til og menn vita ekki alveg hvort eigi að taka þær trúanlega. Vinir þeirra og samstarfsmenn og aðrir sem hafa haft samskipti við þær á undanfómum árum hafa sagt í viðtölum við fréttamenn að hvor- ug kvennanna hafi látið í ljósi neina sérstaka andúð á Clinton. Tripp vildi ekkert ræða við frétta- menn sem sátu um heimili hennar í Columbia í Maryland, ekki langt frá höfuðborginni Washington. „Ég er vitni í alríkisrannsókn,“ var hið eina sem hún fékkst til að segja. með að hún væri „pínuskotin" í for- setanum. Svo fór að Monica fékk starf sem aðstoðarmaður aðaltals- manns Pentagons fyrir um tvö hundruð þúsund krónur á mánuði. Hún hætti þar í desember síðast- liðnum til að taka við starfi á upp- lýsingaskrifstofu Revlon-snyrti- vörufyrirtækisins. Áðurnefndur Vernon Jordan, sem situr í stjórn ReVlon, á að hafa beitt áhrifum sín- um og útvegað henni starfið. Ekkert verður þó af því, að því er talsmað- ur Revlon skýröi frá, vegna alls um- talsins. Blaðrað um einkalífið En þrátt fyrir allt sem fram kem- ur í segulbandsupptökunum um kynferðislegt samband þeirra Clint- ons hefur Monica dregiö allt slíkt til baka í eiðsvarinni yfirlýsingu, að sögn heimildarmanns sem hefur séð skjalið. Nokkrir samstarfsmenn Monicu segja að hún hafi lagt í vana sinn að tala um einkalíf sitt, ekki bara við Lindu, heldur aðra. Ein samstarfskonan man eftir því að Monica stöðvaði hana á göngun- um í Pentagon og sagði frá því að hún hefði átt ástarævintýri með háttsettum embættismanni Penta- gons, sem hún nafngreindi, í vinnu- ferð til útlanda. Monica kunni vel við manninn og var að leita ráða þar sem hann var hættur að hringja í hana. Blaðamaður Washington Post hafði samband við viðkomandi emb- ættismann í vikunni. Sá sagðist hins vegar ekki geta rætt málið eins og ástatt væri. Enginn áróður Kenneth Bacon, fyrrum yfirmað- ur Monicu í Pentagon, sagði við fréttamann AP í Suður-Kóreu, þar sem hann var á ferð með William Cohen land- varnaráðherra, að hann hefði ekki séð neitt í fari stúlkunnar sem benti til þess að staðhæf- ingarnar um ást- arsamband hennar og Clint- ons væru sann- ar. Bacon sagði enn frem- ur að Clinton hefði ekki beitt neinum þrýstingi til að Monica yrði ráðin til Pentagons. „Hvíta húsið sendi lista með nokkrum nöfnum og eitt þeirra var Erlent frettaljos Linda Tripp hljóðritaði samtöl sín við Monicu Lewinski þar sem hún sagði frá sambandinu við Clinton. nafn Monicu. Þeir voru ekkert að reka áróður fyrir henni en nafn hennar bar á góma. Ég tók íjóra í viðtal vegna starfsins, þrjá frá Pentagon og einn utanaðkomandi, og réð Monicu," sagði Bacon. Byggt á Reuter og Washington Post Bill Clinton Bandaríkja<orseti er hér með Vernon Jordan, virtum lögfræðingi í Washington og golffélaga sínum. Þeir eru nú sakaðir um að hafa þrýst á Monicu Lewinsky um að Ijúga til um samband hennar við forsetann. Paula Jones hefur kært Bandaríkja- forseta fyrir kynferðislega áreitni og segist geta lýst kynfærum hans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.