Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1998, Page 59
JL>^> LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1998
67
Olyginn sagði...
... aö Ráögátugaurinn David
Duchovny heföi veriö sektaður
fyrir aö fara yfir á rauðu Ijósi á
götu í New York. Pilturinn var þó
ekki akandi í bíl heldur hjólandi á
reiöhjóii. Kunnugir segja að Dav-
id hafi verið aö leysa ráögátu
þarna á hjólinu og því ekki alveg
áttaö sig á litnum á Ijósinu.
... að Pierce Brosnan hefði
sagst aldrei myndu leika í
James Bond-mynd þar sem
umfjöllunarefniö væri ástandiö
á Norður-irlandi, efniö væri svo
viðkvæmt aö engum væri greiöi
gerður meö slíkri mynd.
Paul Simon í vondum málum.
Söngleik fyrir um 800 milljónir frestað:
Þótti leiðinlegur
Kannski er Paul Simon að átta sig á því að það er ekki fyrir hvern sem
er að gera söngleik að hætti Andrew Loyd Webber. Fyrsta tilraun tónlistar-
mannsins á Broadway, The Capeman, virðist eitthvað misheppnuð. Frum-
sýningarkvöldinu var frestað frá 8. janúar fram í miðjan fehrúcu-. Uppsetn-
ingin hefur kostað hvorki meira né minna en eitthvað á áttunda hundrað
milljónir króna og nú eru uppi sögusagnir um að leikstjóranum verði skipt
út og nýr fenginn í staðinn. Forsýningargestir sögðu söngleikinn einlægan
en leiðinlegan. Þetta þykja slæm tíðindi fyrir Simon sem hefur verið á sjö-
unda ár að vinna að verkefninu. Hann segir að vissulega sé honum vandi á
höndum en það sé í lagi hafi menn tima til þess að kippa hlutum í lag.
Hin barmgóða Pamela Anderson Lee:
Með eigin
þáttaröð á Fox
Leikkonan barmgóða, Pamela Anderson Lee, sem vakti athygli á
sér og sínum í Strandvörðunum um árið, er nú komin á spor vel-
gengninnar að nýju eftir að hafa undirritað tveggja ára samning við
Fox-sjónvarpsstöðina í Bandaríkjunum.
Þessi þokkagyðja ætlar að leika í eigin þáttaröð sem kallast VIP
(stendur fyrir Valerie Irons Protection) og íjallar um konu sem
stjórnar öryggisfyrirtæki sem verndar ríka og fræga fólkið.
Það verður gaman að fylgjast með Pamelu á þessum vettvangi því
einhverra hluta vegna hefur hún ekki notið sannmælis fyrir verk
sín. Hefur haft á sér leiðinlegan ljóskustimpil sem hún vonandi nær
að hrista af sér í framtíðinni. Hún er líka orðin móðir og hefur
þroskast vel. Reynslan mun án efa skila sér I þáttunum VIP.
Pamela Anderson Lee er vonandi aö komast
á sigurbraut í henni Hollywood.
1
I
I
i:;::
... og bætti við...
1
I
|
I
iv
1
:
i
■
: ■
■
p
... aö Johnny Depp nyti aöstoöar
hljóðnema í eyra til þess aö tök-
urnar á nýju myndinni gengju sem
best. Myndin heitir Fear and Loat-
hing in Las Vegas. Hugsanlega má
rekja þennan ávana til þess er
hann vann meö Marlon Brando að
myndinni Don Juan DeMarco.
Brando notaði þessa tækni sér til
aöstoöar.
... aö Dustin Hoffman heföi á sfn-
um tíma neitað aö leika Rambo í
mynd sem gerö var eftir bókinni
First Blood. Þá fannst honum
myndin of ofbeldisfull. Meö mynd-
um á borö viö Outbreak og núna
nýjustu mynd sinni, Sphere, vildi
hann vekja athygli á sér sem
hasarmyndahetju.
i
PEUGEOT
LJÓN Á VE6INUM!
Peugeot 306 - Njóttu!
Afliö og mýktin gefa Peugeot 306 frábœra aksturseiginleika. Peugeot 306 er
rúmgóöur og ríkulega útbúinn evrópskur eðalvagn sem pú veröur aö prófa.
1600 cc vél • 90 hestöfl • 5 gíra • bein innsprautun ■ regnskynjari á framrúðu • þokuljós að framan
vökva- og veltistýri • loftpúðar báðum megin • rafdrifnar rúður að framan • útvarp og segulband
stillt með stöng í stýri ■ hœðarstillanlegt ökumannssœti • bílbeltastrekkjari ■ fjarstýrðar samlcesingar
með þjófavörn ■ litað gler • höfuðpúðar í aftursœti • niðurfellanleg aftursœti 40/60 • rafdrifnir
hliðarspeglar ■ rafgalvaníseraður • hiti í afturrúðu ■ samlitlr stuðarar • barnalœsingar á afturhurðum
NYBYLAVEGI 2
SÍMI: 554 2600
0PIÐ LAUGARDAG KL. 13-17
Kraftur og feguro!
Verö aðeins: JL.
Oflug 1600 vel
PEUGEOT