Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1998, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRUAR 1998
7
sandkorn
Gólflistinn
Á ísafirði eru enn eftirskjálftar
vegna starfsmannamála á sjúkrahús-
inu. Guðjón Brjánsson fram-
kvæmdastjóri sagði upp starfsliöi eld-
hússins í þvi skyni að
ná fram sparnaði.
Þessu átti að ná fram
með því að starfs-
stúlkurnar endur-
réðu sig á kjörum
sem innihéldu við-
bótarvinnu á sviði
ræstinga. Guðjón
framkvæmdastj óri
er mikill krati og
hefur sýnt ótvíræðan vilja til að ná
pólitískum metorðum. Pétur Sig-
in-ðsson, forseti ASV, er sömuleiðis
krati en hættur að mestu metorða-
klifri. Hann hefur verið óspar á gagn-
rýni á sparnaðaraðgerðir flokksbróð-
ur síns sem hann segir ekki ná upp
fyrir gólflista. Nú segja gárungar að
Guðjón muni fara í sérframboð og
listinn verði að sjálfsögðu „Gólflist-
Kryddkarlinn
Kostulegt viðtal við Fjölni Þor-
geirsson kryddkarl í tímaritinu
Heimsmynd er nánast endalaus upp-
spretta skemmtilegheita. Eins og
Sandkom skýrði frá í
gær sýndi Fjölnir,
sem er í tygjum við
hina geðþekku Mel
B, mömmu sinni
rassinn hvar Mel-
anie er komin til
að vera í formi
húðflúrs. Sjálfsálit
Fjölnis er í góðu
lagi ef marka má grein
Heimsmyndar. Þannig segir hann frá
þvi að smápíur hafi elt hann frávita
af hrifningu æpandi „Mel B’s boy-
friend“. Þá lýsir hann því yfir hvergi
banginn að verði box leyft á íslandi
muni hann glaður halda á ólympíu-
leikana og sækja gullmedalíu! Hann
er greinilega ekkert blávatn, krydd-
karlinn ...
Gælt við óskarinn
Æðsti draumur flestra kvikmynda-
leikstjóra er að hljóta gylltu styttuna
sem kennd er við Óskar. Margir era
tO kallaðir en fáir útvaldir þar. Einn
þeirra sem greinilega
hafa áhuga er leik-
stjórinn Guðjón
Pedersen. Hann er
einn af vinsælustu
leikhúsleikstjórum
landsins. Á fóstu-
daginn frumsýndi
Þjóðleikhúsið
Poppkorn undir
leikstjórn Guðjóns, en
verkið fjallar um Hollívúddleikstjóra
sem hefur í myndum sínum hafið upp
ímynd fjöldamorðingja en lendir síð-
an sjálfur i að fá slíka ódáma yfir sig.
í lok sýningarinnar steig Guðjón á
svið og var hylltur. Meðferðis hafði
hann óskarsverðlaunastyttu og til að
undirstrika boðskap verksins lét
hann vel að styttunni og sleikti hana.
Það má því segja að Guðjón Pedersen
gæli við óskarinn ...
Með og á móti
Eins og DV greindi ffá á mánudag
hafa háskólastúdentar mismunandi
skoðanir á skólagjöldum. Dæmi var
nefnt um formann Vöku sem var á
móti slíkum gjöldum
innan einna samtaka
en með þeim innan
annarra. Samkvæmt
heimildum Sand-
korns hefur
Röskva, undir for-
sæti Haralds
Guðna Eiðsson-
ar, heldur ekki
haft eina stefnu i málinu fremur
en höfuðandstæðingarnir. Þannig
munu þau samtök geta sætt sig við
skólagjöld svo ffemi að þau renni til
Stúdentaráðs í formi félagsgjalda.
Þetta segja andstæðingar Röskvu
benda til þess að Stúdentaráð sé ekki
fyrir stúdenta heldur öfugt...
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkom @ff. is
Fréttir
Afbrotamenn í Garðabæ:
Fimm piltar dæmdir
- fyrir líkamsárásir, húsbrot, eignaspjöll og þjófnaöi
Fimm piltar á aldrinum 16-22
ára voru í gær dæmdir til refsing-
ar í Héraðsdómi Reykjaness fyrir
líkamsárásir, húsbrot, eignaspjöll
og þjófnaði í Garðabæ á síðasta
ári.
Ingólfur Freyr Elmers, 18 ára,
Sölvi Þór Birgisson, 18 ára, og Árni
Yngvi Árnason, 17 ára, voru
dæmdir i þriggja mánaða fangelsi.
Birgir Rúnar Benediktsson, 16 ára,
var dæmdur í 2ja mánaða fangelsi
og til að greiða samtals 172 þúsund
krónur í skaðabætur. Róbert Örn
Rafnsson var dæmdur til að greiða
25 þúsund króna sekt til ríkissjóðs.
í dómsorðum segir að fullnustu
refsinganna skuli frestað og þær
falla niður að tveimur til þremur
árum liðnum haldi ákærðu al-
mennt skilorð 57. gr. hegningar-
laga. Einn piltur til viðbótar var
einnig ákærður en sýknaður fyrir
dómi af kröfu ákæruvaldsins.
Sakargiftir í 8 liöum
Piltamir mættu ekki fyrir hér-
aðsdóm í gær þegar Jón Finn-
björnsson dómari kvað upp
dómana. Sakargiftir á hendur pilt-
unum voru í samtals 8 liðum í
ákærunum. Helstu sakargiftir
voru á hendur Birgi Rúnari, Sölva
Þór og Árna Yngva fyrir húsbrot
og líkamsárás í húsi í Háholti
sunnudaginn 22. júní sl. Þá rudd-
ust þeir heimildarlaust inn í húsið,
réðust á íbúa og veittu honum
áverka. Þá eru piltarnir dæmdir
fyrir fjölmörg eignaspjöll í Garða-
bæ, aðallega á Garðatorgi.
Þá voru piltarnir dæmdir til að
greiða málsvarnarlaun og annan
sakarkostnað. -RR
Krakkaklúbbur DV 03
Bíóstjarnan Húgó kynn
HÚGÓ
UTALEIKINN
Litaðu teikninguna hér að neðan 03 þú
getur unnið málsverð fyrir fjölskylduna á
Hard Rock Cafe, bíómiða fyrir tvo á
Bfóstjörnuna Húgó í Háskólabíói og Laugarás-
bíói eða bókina um Húgó frá Skjaldborg.
BÍÓSTJARNAN HÚGÓ ER FRUMSÝND 27. FEBRÚAR.
Sendiö teikninguna litaða til: Krakkaklúbbur DV, Þverholti
11.105 Reykjavík, merkt Húgó, fyrir 3. Mars.
Nöfn vinningshafa verða birt Föstudaginn 6. mars
Heimili:
Nafn:
Sími:
Aldun
LAUGARÁ
Bió
.XIXZZIH
HÁSKÓLABÍÓ
Húgó fæst líka á bók frá
|Skjakjborg^||p
nissmmim