Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1998, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1998, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 15. APRIL 1998 Fijálst, óháð dagblað Útgáfuféíag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON OG ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vfsir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Augiýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerö: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins I stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Siðvæðing Landsbankans Upplýsingar síðustu viku um fáheyrða sóun á almannafé í laxveiðar og risnu örfárra yfirmanna Landsbankans hafa staðfest langvarandi ásakanir um munaðarlíf háttsettra embættismanna í stjómsýslunni á kostnað almennings. Afsögn bankastjóranna þriggja var óhjákvæmileg. Hún staðfestir að stjómvöldum var full alvara þegar sagt var að þeir myndu axla ábyrgð sem ábyrgðina eiga að bera. Öllum spumingum í sambandi við ábyrgð í þessu dapurlega máli er þó fráleitt svarað. Það er að sjálfsögðu misnotkun á almannafé þegar yfirmenn láta skattborgarann greiða kostnað við veiðiferðir vina og kunningja. DV hefur upplýst að fast að helmingi þeirra 40 milljóna, sem bankinn eyddi í laxveiðar, var sólundað með þeim hætti. Það er hins vegar tímabært að skoða þær vinnureglur sem bankaráðið setti stjórnendum bankans. Því er þannig staðfastlega haldið fram af Halldóri Guðbjama- syni, sem nú er fýrrverandi bankastjóri, að ráðið hafi ekki alfarið bannað laxveiðar á kostnað bankans. Halldór hefur staðhæft að stjómendur bankans hafi haft heimild til að veiða lax á kostnað bankans svo fremi það væri fallið til að efla hagsmuni stofnunarinnar. Vinnuregla af þessum toga vekur að sjálfsögðu áleitnar siðferðilegar spumingar. Er hægt að fallast á að yfirmönnum banka sé heimilt að bjóða viðskiptamönnum eða áhrifamönnum í lax á kostnað banka eða fyrirtækis á hans vegum? Vitanlega má rökstyðja að það kunni að auka vild viðkomandi áhrifamanns gagnvart bankanum. Hér er hins vegar komið út á glerhálan ís. Aðferðir af þessu tagi er erfitt að flokka undir annað en mútur. Er það veijanlegt að bankar eða aðrar opinberar stofnanir kaupi sér einhvers konar vild með þeim hætti? Því hljóta menn að svara neitandi. í fyrsta lagi býður slík regla upp á misnotkun. í öðm lagi em þetta vinnubrögð sem íslendingar hafna. Þau em lýsandi dæmi um siðferði sem á ekki að tíðkast í opinberri stjómsýslu. Þess vegna er ekki hægt að sættast á að íslensk bankaráð leyfi þau. Halldór Guðbjamason bankastjóri segir hins vegar ótvírætt að það hafi bankaráðið gert. Verði sú fullyrðing ekki hrakin er erfitt að sjá hvemig bankaráðsmenn, sem sátu meðan slíkar veiðiferðir vom famar, geta kastað af sér allri ábyrgð. Viðskiptaráðherra var spurður á Alþingi hvort hann teldi að bankaráðið hefði brotið gegn starfsskyldu sinni í laxveiðimálinu eða varðandi eftirlit með risnu-, ferða- og bílakostnaði. Hann svaraði því til að hann hefði á þeim tímapunkti ekki næg gögn til að svara spumingunni. Skýrsla Ríkisendurskoðunar liggur nú fyrir og þá er nauðsynlegt að svör viðskiptaráðherra við ofangreindu komi fram. Það verður að hafa hugfast að bankaráðið á samkvæmt lögum, sem gilda um viðskiptabanka, að hafa almennt eftirlit með rekstri síns banka. Sé staðan sú að bankaráðið hafi vitað um óheimila eyðslu getur það ekki hliðrað sér alfarið hjá ábyrgð að málinu. Hafi það hins vegar ekki haft vitneskju um stöðuna er erfitt að komast hjá þeirri ályktun að það hafi ekki sinnt eftirlitsskyldu sinni. Milli Landsbankans og þjóðarinnar ríkir trúnaðar- brestur. Bankinn verður ekki siðvæddur nema öll kurl komi til grafar. Til að svo verði skortir enn svör við mikilvægum spumingum um ábyrgð á þeirri stöðu sem upp kom. Össur Skarphéðinsson „Aðalvinningurinn var ferð til Varna í Búlgaríu þar sem fólk gat sleikt sólskinið á meðan það beið eftir að fá splunkunýjan góm, en aukavinningarnir vöruúttekt hjá KRON og pólskar saumavélar með sikksakkspori." Jólin í vor 27. febrúar bárust þúsundum Reykvík- inga venjulegu tíu miðarnir í Jólahapp- drætti Þjóðviljans. Þó það sem fylgdi áður fæðingarhátíð Frels- arans kæmi seint í ár, að fá að fóma sér fyr- ir málstaðinn með því að kaupa miða, fogn- uðu þeir sem lifa í vonargeiranum og töldu boða sigur Ingi- bjargar Sólrúnar í borginni. Aðalvinn- ingurinn var ferð til Vama í Búlgaríu þar sem fólk gat sleikt sól- skinið á meðan það beið eftir að fá splunkunýjan góm, en aukavinningarnir vöruúttekt hjá KRON og pólskar saumavél- ar með sikksakkspori. Menn fóru strax í pósthúsið til að greiða miðana og ætluðu svo að eyða nokkrum gleðiríkum veikinda- dögum, lausir við magapínu af sektar- kennd, af því íslensk húsbóndahollusta hef- ur farið í öfugan gír ™- og færst þannig yfir á atvinnurekendur. En þegar til kastanna kom tókst tölvukonum í pósthúsinu ekki að innfæra greiðslumar. Kjallarinn Guðbergur Bergsson rithöfundur Við fáum alltaf sama svar frá harða diski Þjóð- viljans: Skjalið er varið, sögðu þær. Það er í fyrsta sinn á íslandi að komið hafi verið upp þannig vörnum. Allir horfðu undr- andi á skjáinn og ekki fleira gert í pósthúsinu þann daginn. Nú vöknuðu við vondan draum þús- undir kjósenda í væntanlegum borg- arstjórnarkosning- um í vor. Þeir þótt- ust sjá að nýtt dag- „Menn fóru strax í pósthúsið til að greiða miðana og ætluðu svo að eyða nokkrum gleðiríkum veik- indadögum, lausir við magapínu af sektarkennd, af því íslensk hús- bóndahollusta hefur farið í öfugan gír og færst þannig yfír á atvinnu- rekendur.“ blað með nafni Þjóðviljans yrði ekki stofnað og sett undir rit- stjóm sífellt sömu manna sem tóku þau bestu próf sem tekin hafa verið hér heima og urðu síð- an pennaglaðir i Alþýðulýðveld- unum horfnu. Hinn 1. mars gerðist það, að Ingibjörg Sólrún kom ljómandi inn í draum þúsunda Reykvík- inga. Hún stóð á skýstrokki frá Flórída og sagði: Kæru stuðningskonur af báð- um kynjum! Það væri fýsilegri kostur að auglýsa eftir útfarar- en ritstjóra nýs vinstrablaðs, jafnvel áður en það er stofnað. Til er reynsla af þessu. Útfarar- stjórum vinstriblaða vegnar bet- ur en ritstjóram. Ég tek dæmi. (Hún kemur sífellt með dæmi og líkist þannig góðri orðabók. Orðabók án dæma stendur ekki undir nafni.) Tveir fyrrum rit- og útfararstjórar Þjóðviljans, en annar Alþýðublaðsins að auki, gera það gott sem rit- stjórar á DV. Þeir munu byggja þá Gullinbrú sem ég geng yfir í embættið á ný, þótt ég kunni tvö orð i hag- fræði innkaupatöskunnar en eitt dúndrandi loforð R-list- ans: Það verða aukajól í vor. Ég hef minna en hundsvit á brúarsmíð en gott lag á að hnykla brúnir sem skilar sér jafnt í borgarstjórn og barna- skóla. Með því vinnur telpan sér nýjan góm og tungutak og skilar Kvennalistanum pínlegu saumavélinni frá vondu árunum með sikksakksporinu: Áfram stelpur! Guðbergur Bergsson Skoðanir annarra Byltingarkenndar breytingar „Félagslegt öryggi eigenda félagslegra eignaríbúða er horfið með samþykkt þessa frumvarps! En í stað þess er komið allt að 70% húsbréfalán og 20% viðbót- arlán frá íbúðarlánasjóði, við sérstakar aðstæður! Frumvarp félagsmálaráðherra til lausnar á vanda- málum, aðallega tengdum Byggingarsjóði verka- manna, er mikilvægt mál. Og snertir okkur öll og vonandi vakna einhverjir og láta skoðanir sínar í ljós áður en hæstvirt Alþingi afgreiðir framvarp þetta og það verður að lögum. Hér er verið að bylta félagslega íbúðarlánakerfinu þar sem litlaer en bylt- ingarkenndar breytingar til einfóldunar og sæm- ræmingar í núverandi kerfi hefðu dugað betur.“ Percy B. Stefánsson í DV 14. apríl Vanþekking eða sýndarmennska? „Meö ímynd hins framsýna nútímamanns sveif Helgi í fyrsta sætið hjá R-listanum. Það er gott að vera opinn fyrir nýjum hugmyndum - en menn verða líka að hafa fætuma á jörðinni. Heimurinn er morandi í tækninýjungum og það þarf kunnáttu til að velja og hafna. Þróun tæknimála í Reykjavík er ekkert punt fyrir unga menn á framabraut sem lang- cir að sýnast nútímalegir. Hver er drifkrafturinn að baki ákvörðun um að setja tuttugu milljónirnar af almannafé í tilraunaverkefni sem engar líkur eru á að skili neinu? Vanþekking eða sýndarmennska?" Guðrún Pétursdóttir í Mbl. 8. apríl Baráttugenið „Er ekki verðugt verkefni fyrir Kára Stefánsson að finna genið sem alltaf virðist halda Völsuram á floti þegar mest liggur við. Svona baráttugen gæti nýst víða. Síðan mætti Kári finna gen sem lengir langtímaminni. Með þessi tvö gen að vopni gæti þjóðarsálin orðið það afl sem veitti ráðamönnum að- hald sem greinilega er þörf á og þjóöfélagið þróast í átt að hugtökum eins og réttsýni, heiðarleika og sanngirni." Helgi Haraldsson í Degi 9. apríl

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.